Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 Franski raf- poppdúettinn Daft Punk var fenginn til að semja tónlist- ina við kvikmynd- ina Tron: Legacy og hér er sú tónlist á disk komin. Kvikmyndin er til- þrifamikið sjónarspil, mikil átök og dramatík mestan part myndar og tónlistin ber keim af því, vekur réttu stemninguna. Sá sem hér rýnir sá kvikmyndina á dögunum og fannst mikið til samspils tóna og mynda koma, tónlist Daft Punk fellur eins og flís við rass að tölvuteiknuðum Tron-heiminum og hefur mikið að segja um upplifun áhorfandans. Það er svo önnur saga hvort kvikmynda- tónlist hrífur mann þegar engar eru myndirnar og Tron-tónlist Daft Punk verður heldur tilbreytingarlítil þegar líða fer á plötuna, maður fær þörf fyrir að hraðspóla. Dramatíkin ræður hér ríkjum, sinfóníuhljóm- sveit keyrð áfram í bland við rafpopp en inn á milli má þó finna stuðvænni lög. Þetta er ágæt plata en þó heldur mikið um endurtekningar á henni. Daft Punk - Tron: Legacy bbbnn Dramatík í tölvuheimi Helgi Snær Sigurðsson Wire er sú síð- pönksveit sem átti tilkomumesta sprettinn þegar sú stefna var að fæð- ast, alltént í huga þess er hér skrifar. Fyrstu þrjár plötur sveitarinnar eru algerlega magnaðar og eru ástæða þess að maður er enn að eltast við sveitina. Þessi plata, ein af fyrstu út- gáfum þessa árs, er þriðja plata síð- ari endurreisnar sveitarinnar sem hófst með Send árið 2003. Sú plata er þokkaleg, og ögn meira, en síð- asta plata, Object 47, olli miklum vonbrigðum. Skrítið að heyra þessa tilraunaglöðu meistara sigla um í einhverri meðalmennsku. Þessi plata dettur þarna einhvers staðar á milli, það er eins og djúsinn flæði að- eins hraðar í þetta skiptið en um leið er þetta að sjálfsögðu lítt sambæri- legt við fyrri afrek. Þetta er auðvitað ómissandi plata fyrir okkur Wire- nördana en ég bendi þeim sem hafa áhuga á að kynna sér síðpönk eins og það gerist best eindregið á fyrstu þrjár plöturnar. Það gerist bara ekki betra en þar. Miðaldra síðpönk Wire - Red Barked Tree bbbnn Arnar Eggert Thoroddsen Á viðsjárverðum tímum er gott að vakna á morgnana og sjá að Esjan er ennþá á sínum stað. Það er líka gott að vakna á morgnana og sjá að Motörhead er ennþá á sínum stað. Í tilefni af 35 ára starfsafmæli sínu sendi þetta göfuga breska rokktríó fyrir skemmstu frá sér sína tuttugustu breiðskífu, The Wörld is Yours. Skemmst er frá því að segja að platan kemur ekki nokkrum manni á óvart. Lemmy Kilmister og félagar pönkrokkast gegnum hana á brjóst- vitinu og baráttuþrekinu. The Wörld is Yours er rökrétt framhald af fyrri verkum Motörhead, melódískt keyrslurokk með pönkívafi. Hvers vegna í ósköpum að róa á önnur mið þegar menn hafa sett í feita torfu? Eins og Lemmys er von og vísa eru lögin haganlega smíðuð, lítið um krúsídúllur og slaufur. Svei mér ef þau virka hreinlega ekki ennþá bet- ur en í langan tíma. Nægir þar að nefna „Waiting For the Snake“, „Born to Lose“ og „Devils In My Hand“. Hæst rís skífan þó í hinu mergj- aða „Brotherhood of Man“. Þar er rokkað af dýpt og drunga. Riffið smýgur á augabragði inn í sálina. Margir segja að Motörhead hafi verið upptakturinn að bresku ný- bylgjunni í þungarokki og vestur í Ameríku bera þrassarnir, með James Hetfield í broddi fylkingar, Lemmy á höndum sér. Sjálfur hefur kappinn aldrei viljað gangast við hreyfiaflshlutverki sínu enda hatar hann dilka eins og væri hann dýrbít- ur. „Við erum Motörhead, við spilum rokk og ról!“ Málmvísindamönnum er eflaust fróun í slíkum skilgrein- ingum en þegar upp er staðið skipta þær ekki nokkru máli. Það er bara eitt sem við þurfum að vita: Virkar músíkin eða virkar hún ekki? Þegar The Wörld is Yours er veg- in og metin á þeim forsendum er svarið einfalt: Já, svo sannarlega! Motörhead er með þetta. Rokk og ról, þú sem ert á himnum! Motörhead – The Wörld is Yours bbbbn Orri Páll Ormarsson Sprækur Lemmy Kilmister rokkar enn af lífi og sál, orðinn hálf sjötugur. Erlendar plötur Breska spútnik- sveitin Arctic Monkeys er byrjuð að vinna sína fjórðu plötu ásamt upp- tökustjóranum James Ford. Vonir standa til að platan komi út síðar á þessu ári. Upptökur hófust seint í desem- ber og verður vinnunni framhaldið í Los Angeles. Platan nýja kemur í kjölfar Humbug (2009) en þar stýrðu Josh Homme og Ford saman upptökum. Sú plata féll í fremur grýttan jarðveg, samanborið við tvær fyrstu plötur sveitarinnar, Whatever People Say I Am, That’s What I’m Not (2006) og Favourite Worst Nightmare (2007). Ford er meðlimur í Simian Mobile Disco og hefur tekið upp plötur Arctic Mon- keys, The Last Shadow Puppets, Klaxons og Florence And The Machine. Ný Arctic Monkeys Api Alex Turner Ný James Bond-mynd, sú 23., kemur í kvikmyndahús 9. nóvember 2012 sam- kvæmt MGM/ EON Produc- tions. Það er enginn annar en Sam Mendes sem mun leik- stýra og Daniel Craig fer með hlutverk njósnara hennar hátign- ar sem fyrr. Bond-vörumerkið hefur verið í miklum fjárhags- kröggum og var MGM keyrt í þrot í liðnum nóvember. Fyr- irtækið hefur nú verið endur- fjármagnað og -skipulagt og sér bandaríska fyrirtækið Spyglass Entertainment um þau mál. Síð- asta Bond-mynd var frumsýnd ár- ið 2008, Quantum of Solace, og samkvæmt könnunum er fólk al- mennt ánægt með hinn ljóshærða og hörkulega Bond. Grænt ljós á Bond Bond Daniel Craig Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Það vantar ekki metnaðinn í ís- lenska menntskælinga þegar kemur að leikhúsi. Leikfélög Verzl- unarskóla Íslands og Mennta- skólans í Reykjavík munu tækla Draum á Jóns- messunótt á árinu, merkileg tilviljun það, og metnaðurinn er ekki minni hjá leikfélagi Menntaskólans við Sund, Thalíu, sem setur upp söngleikinn Hairspray sem byggður er á vin- sælli kvikmynd Johns Waters frá árinu 1988 og söngleik sem unninn var út frá henni og sýndur á Broad- way í New York. Handritið að upp- færslu MS er unnið út frá handrit- inu að þeim söngleik. Hairspray MS verður frumsýndur 15. febrúar nk. í Austurbæ. Vanur því að leikstýra menntskælingum Pétur Einarsson leikari leikstýrir uppfærslu MS á verkinu en hann hefur margoft leikstýrt uppfærslum framhaldsskóla, m.a. fyrir Verzl- unarskóla Íslands og Mennta- skólann í Reykjavík. Arnar Pálmi Gunnarsson, formaður leikfélagsins Thalíu, segir heppilegt að leikstjór- inn hafi verið uppi á þeim tíma sem söngleikurinn gerist á, snemma á sjöunda áratugnum. Pétur hlær þegar blaðamaður minnist á það. „Dansinn í þessu er jive og það er dansinn sem var í gangi þegar ég var kornungur og byrjaði að dansa,“ segir Pétur. Hann kunni jive en geti með engu móti lýst því hvernig hann dansi jive. „Þetta var þannig dans, bara fílingur,“ rifjar Pétur upp. Spurður að því hvort hann hafi séð söngleikinn á Broadway segir hann svo ekki vera og það sé í raun óþarfi. „Við í leikhúsinu komum að handriti og mótum okkar afstöðu út frá því. Ég hef ekkert skoðað þetta verk sérstaklega áður, ekki fyrr en þau stungu upp á þessu krakkarnir. Þá uppgötvaði ég hvað þetta er merkilegur söngleikur því þessi manneskja, aðalhlutverkið, hún Tracy, er svo ótrúlega jákvæð manneskja. Það er ekki af því hún hafi tekið ákvörðun um það, hún bara er það náttúrulega. Ég er mjög heppinn með leikhópinn, ég gaf mér góðan tíma í að velja leikara með þeim,“ segir Pétur. Persónurnar í verkinu séu sprenghlægilegar, mik- ið um dans og söng og svið Austur- bæjar henti verkinu afar vel. 30 nemar á sviði Það verður nóg af tónlist í Hair- spray, um 14 lög. Aðalleikarar eru 11 í uppfærslunni en auk þeirra verða nemendur í minni hlutverkum og verða í heildina 30 manns á sviði. Örn Guðmundsson er danshöfundur sýningarinnar og var ráðinn vegna sérþekkingar sinnar á dansi frá 7. áratugnum, að því er fram kemur á fésbókarsíðu sýningarinnar en tón- listarstjóri er Albert Hauksson sem nemur tónsmíðar við Listaháskóla Íslands. Stuð Nokkrir nemendanna í MS sem leika í Hairspray. Glatt á hjalla enda skemmtilegur tími framundan. Hairspray að hætti MS  Broadway-söngleikur á svið Austurbæjar  Leikarinn Pétur Einarsson stýrir menntskælingum en hann dansaði jive þegar hann var ungur að árum Pétur Einarsson Hárúði Úr endurgerð kvikmyndar- innar Hairspray frá árinu 2007. John Travolta og Nikki Blonsky í hlutverkum mæðgnanna Ednu og Tracy Turnblad. Um Hairspray TÁNINGSSTÚLKA LÆTUR DRAUM SINN RÆTAST Í Hairspray segir af bandarísku unglingsstúlkunni Tracy Turnblad sem dreymir um að dansa í sjónvarps- þætti, Corny Collins Dance Show, og sá draumur verður að veruleika. Hún verður táningsstjarna og nýtir sér frægðina til að vekja máls á málefnum sem eru henni hugleikin, einkum að þeldökkir njóti sömu réttinda og aðrir. John Waters, sem sést hér til hliðar, leikstýrði kvikmyndinni Hairspray frá árinu 1988.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.