Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Hljómsveitin Hjaltalín ætlar að fara í hljóðver í febrúar til að taka upp nokkur lög. Þetta staðfestir Högni Egilsson, forsprakki sveit- arinnar, sem hefur vakið mikla at- hygli fyrir hljóðversplötur sínar Terminal og Sleepdrunk Seasons. „Við ætlum að taka upp þrjú eða fjögur lög. Við erum nánast tilbúin með þau,“ segir hann en að hluta til er um að ræða lög sem sveitin spilaði með Sinfón- íuhljómsveit Íslands í sumar en önnur eru glæný. Sveitin gaf ein- mitt út tónleikaplötuna Alphanon á síðasta ári, sem inniheldur upp- tökur frá tónleikunum með Sin- fóníunni. Eftir hljóðversheimsókn leggst sveitin í víking. „Við erum að fara í stóran Evróputúr í mars,“ segir Högni og bætir við að þetta verði langur og strangur túr, um mán- aðarferðalag með stífri dagskrá. Lofar ekki nýrri plötu á árinu Hljómsveitin nýtir ferðalagið í hugmyndavinnu fyrir næstu plötu sína. „Við hlustum á músík saman í rútunni og pælum í þessu,“ segir Högni en Hjaltalín ætlar að spila nýju lögin á Evrópuferðalaginu. Hann segir hægt að greina ein- hverja sameiginlega eiginleika með nýju lögunum og býst við því að hljómurinn á næstu plötu verði „dekkri og hrynlegri. Það verður mikið um alls kyns hrynpæl- ingar“. Það er þó engin tímapressa á sveitinni. „Ég er ekki viss um að við stefnum á plötu á þessu ári,“ segir söngvarinn og lagasmið- urinn en eitt er víst að hennar er beðið með eftirvæntingu. Hjaltalín í hljóðver Morgunblaðið/Eggert Hljómurinn Högni segir hljóminn á væntanlegri plötu verða „dekkri og hryn- legri“ en áður, mikið um allskyns hrynpælingar hjá Hjaltalín.  Strangur Evróputúr framundan hjá hljómsveitinni  Dekkri hljómur á næstu plötu segir forsprakkinn Högni Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Kvikmyndin Rokland var forsýnd í fyrrakvöld í Sambíóunum í Egilshöll en hún verður frumsýnd á morgun. Myndin var þó fyrst sýnd á Sauð- árkróki skömmu fyrir áramót og voru viðtökur áhorfenda þar góðar, að sögn leikstjóra myndarinnar, Marteins Þórssonar. Blaðamaður sló á þráðinn til Marteins í gær og spurði hann fyrst hvernig viðtökur gesta hefðu verið í Egilshöll en myndin var sýnd í fjórum sölum. „Það var nú að- eins mismunandi eftir sölum, hátíð- legra andrúmsloft í sal 1 en meira hlegið í sal 2, 3 og 4,“ svarar Mar- teinn en hann fór á milli sala á meðan á sýningu stóð. Á Sauðárkróki hafi mikið verið hlegið. Hann segist þó al- mennt sáttur við viðbrögð áhorfenda. Rokland er byggð á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar og segir hún af Bödda Steingríms sem snýr aftur til heimabæjar síns Sauð- árkróks eftir tíu ára námsdvöl í Þýskalandi. Böddi hefur heldur lítið álit á bæjarbúum og Íslendingum al- mennt og reynir hvað hann getur að breyta hugsunarhætti landa sinna, m.a. með bloggskrifum þar sem þýskar hugsjónir eru áberandi og víkingaaldarrómantík. Sauðkræk- ingar kunna ekki að meta þau skrif og lánið leikur ekki við Bödda. Saga um Íslendinga -Er illa farið með Sauðkrækinga í myndinni? „Nei, það held ég ekki,“ segir Mar- teinn og skellihlær en myndin var tekin upp á Sauðárkróki. „Þetta er bara saga um Íslendinga, held ég,“ bætir hann við. -Nú las ég bókina og þótti hún mjög skemmtileg. Hversu trúr ertu henni í myndinni? „Hún fylgir sögunni alveg í grunn- inn, plottinu í sögunni, fer ekki mikið út af sporinu þar. Reyndar er síðasti hálftíminn með mestu breytingunum í plottinu.“ Hallgrímur kom ekki að skrifum handritsins en fékk þó að lesa upp- köst að því tvisvar. „Hann sagði nú við mig í gær að honum þætti end- irinn á myndinni betri en í bókinni,“ segir Marteinn og hlær. Hallgrímur hafi verið mjög ánægður með útkom- una. -Hvað kom til að þú ákvaðst að gera kvikmynd byggða á þessari bók? „Mér fannst þetta skemmtileg bók og rosalega athyglisverður karakter hann Böddi. Mér fannst svo margt í honum, þversagnir og það sem hann var reiður út í, maður fann Böddann í sjálfum sér. Á þessum tíma bjó ég í Kanada, kom hingað heim og sá svipað og Böddi því hann er náttúrlega líka að koma heim, eftir tíu ár í Þýskalandi, og fannst þetta vera svolítið í ruglinu. Vildi fá and- lega vakningu. Þannig að þetta var bara saga sem þurfti að segja á tjald- inu.“ Gullgrafaraæði á Íslandi -Böddi er nú ekki gallalaus … „Nei, ekki frekar en við öll en það er það sem gerir hann svo mann- legan. Mér fannst þetta svo sterk saga, um mann sem missir allt ein- hvern veginn og þeir sem hafa orðið fyrir einhverjum áföllum í lífinu skilja mjög vel hvað hann er að ganga í gegnum,“ segir Marteinn og tekur undir að það sé mikil samfélagsádeila í bókinni sem var skrifuð á tímum hins svonefnda góðæris. „Mér fannst vera eitthvert gullgrafaraæði hérna á Íslandi, ég bara skildi þetta ekki. Kanada er mjög stóískt þjóðfélag, ekki mikið kaupæði en það er nátt- úrlega stærra þjóðfélag og kannski sést þetta minna þar. En þetta var svona pínu sjokk fyrir mig, hvað það tóku margir þátt í þessu. Við erum svolitlir villimenn,“ segir Marteinn og hlær. Góð tímasetning -Þannig að þetta er ágætis tíma- setning fyrir þessa mynd, að rifja að- eins upp ruglið? „Ég held að þetta sé rosalega góð tímasetning á myndinni, það er ótrú- legt hvernig það hefur atvikast,“ svarar Marteinn. „Við þurfum bar- asta að passa okkur aðeins, að missa okkur ekki í ruglinu. Eins og Böddi segir í myndinni, hann er að skrifa bók og er að rífast við útgefandann og segir: „Þjóðin þarf á þessari bók að halda“, það er ein línan. Ég held að þjóðin þurfi á þessari mynd að halda,“ segir Marteinn sposkur. Með hlutverk Bödda fer Ólafur Darri Ólafsson og ber Marteinn hon- um afar vel söguna, hann hafi verið ljúfur í samstarfi. „Hann er bara svo yndislegur, svo góð manneskja, það eru engir stælar í Darra. Hann er góður drengur og rosalega „pro“,“ segir Marteinn um aðalleikarann. Í öðrum helstu hlutverkum í Roklandi eru Elma Lísa Gunnarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Laddi. Marteinn segir stefnuna svo tekna á erlendar kvik- myndahátíðir en hvaða hátíðir liggur ekki fyrir að svo stöddu. Kvikmynd sem þjóðin þarf á að halda  Kvikmyndin Rokland verður frumsýnd á morgun  Góðærisruglið rifjað upp  Saga um Íslend- inga frá sjónarhóli Bödda Steingríms  Víkingaaldarrómantík, þýskar hugsjónir og bylting Á Sauðárkróki Ástin kemur líka við sögu í Roklandi. Ólafur Darri Ólafsson og Elma Lísa Gunnarsdóttir í kvikmynd Marteins Þórssonar sem frumsýnd verður á morgun. Marteinn hyggst gera kvik- mynd upp úr bókinni Bankster og teiknimyndasögu Hugleiks Dagssonar, Garðarshólma, sem verður eins konar ódýr útgáfa af Sin City, að sögn Marteins. Þá er Marteinn að skrifa hand- rit sem byggt er á sannri sögu af íshokkíliði skipuðu Vestur- Íslendingum sem hlaut ólymp- íugull í íþróttinni árið 1920. Þá er hann einnig að skrifa hand- rit að þriller í anda kvik- myndarinnar Fargo. Fróðleik um verk Mar- teins og feril má finna á vefsíðunni tenderlee.com. Bankster o.fl. HVAÐ ER FRAMUNDAN? Marteinn Þórsson www.rokland.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.