Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 Ofurhetjan Phoenix Jones var nefbrotin um helgina þegar hún reyndi að stöðva slagsmál sem voru í uppsiglingu. Jones hefur vakið mikla at- hygli upp á síðkastið fyrir að sinna hlutverki ofur- hetju Seattle-borgar í Bandaríkjunum, en ofur- hetjur hafa hingað til eingöngu átt heima í myndasögum og kvikmyndum. Tveir menn réðust á Jones með áðurgreindum afleiðingum. „Þeir voru að þræta og við það að fara að slást,“ segir Jones. Hann blandaði sér í málin og reyndi að stöðva mennina. Jones sagði mönnunum að hann hefði hringt í neyðarlínuna og greip annan þeirra höfuðtaki. Þá dró hinn maðurinn upp byssu. „Hann hóf að sveifla höndum og byrjaði að slást við mig,“ segir Jones. Phoenix Jones gengur grímuklæddur um stræti Seattle-borgar á kvöldin og berst gegn glæpum. Hann er klæddur í svartan og gulllitaðan búning og er gjarnan með skikkju og hatt á höfði. Hann kveðst vera leiðtogi sérstakrar ofurhetju- hreyfingar, sem nefnist „Ofurhetjur rigning- arborgarinnar“ – sem er einmitt viðurnefni Seattle-borgar. Atburðir helgarinnar eru að sögn lögreglu ein- mitt það sem hún hefur áhyggjur af þegar borg- arar taka lögin í sínar hendur. Jones gefur lítið fyrir þær. Hann segist ætíð hringja í lögregluna áður en hann fer út á kvöldin og segi þeim hvert hann hyggist fara. Hann kveðst þjálfa sig sér- staklega fyrir hættulegar aðstæður eins og þær sem hann lenti í um helgina. Glæpamenn nefbrutu ofurhetju Hetja Phoenix Jones Leikarinn Colin Farrell mun fara með sama hlutverk og Arnold Schwarzenegger lék svo eft- irminnilega í endurgerð kvik- myndarinnar Total Recall. Hinn 34 ára gamli Farrell vildi ekki tjá sig um málið fyrr í vik- unni en nú hefur framleiðandi myndarinnar, Neil Moritz, stað- fest orðróminn. Aðspurður segist Far- rell vera spenntur fyrir að leika í mynd- inni. „Hand- ritið er svalt, gáfu- legt og vel skrifað,“ sagði hann í viðtali við fjölmiðla vestanhafs. Colin Farrell fetar í fótspor Schwarzeneggers Töffari Colin Farrell Fyrirsætan og leikkonan Tasha de Vas- concelos segir Karl Bretaprins hafa daðrað við sig í partíi árið 1999. Þetta kemur fram í sjálfsævisögu hennar sem kemur út á næstunni. Tasha segir Karl hafa beðið sig um einka- tískusýningu í teiti í London. Hún segir prinsinn hafa daðrað við sig allt kvöldið. „Ég sá hann horfa á hálsmenið mitt og líta svo niður allan líkama minn,“ útskýrir Tasha í bókinni. „Svo bað hann mig um einkatísku- sýningu.“ Segir Karl Bretaprins hafa daðrað við sig Flott Tasha de Vasconcelos Leikkonan Rachel McAdams segist hafa farið hjá sér er hún lék á móti Harrison Ford í kvikmyndinni Morning Glory. Adams og Ford mættu saman á frumsýningu myndarinnar í London en kvikmyndin segir frá tveimur þáttastjórnendum sjónvarpsþáttar sem berjast um athyglina. „Ég fékk fiðrildi í magann þegar ég vann með honum en hann róaði mig niður,“ sagði Adams um mót- leikara sinn í viðtali á frumsýning- unni og kallar hún þó ekki allt ömmu sína, blessunin. Fékk fiðring í magann út af Harrison Ford Flaðrað Rachel McAdams

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.