Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nú þegar ár er liðið frá jarðskjálftanum á Haítí býr enn um milljón manna í búðum fyrir heim- ilislausa, þar af 400.000 börn að því er talið er. Mörg þeirra misstu foreldra sína í hamför- unum og bíður hjálparsamtaka mikið starf að koma lífi þeirra í eins eðlilegan farveg og kost- ur er miðað við aðstæður. Jarðskjálftinn er einn sá mannskæðasti í sögunni en talið er að allt að 230.000 hafi týnt lífi, að frátöldum öllum þeim sem slösuðust. Leita foreldra barnanna Georg Willeit, starfsmaður SOS Barna- þorpa í þorpinu Santo á Haítí, segir samtökin leggja megináherslu á að sameina fjölskyldur. „Við höfum starfað á Haítí í hátt í 31 ár og þar af 26 ár hér í bænum Santo. Við höfðum því verið hér í langan tíma og átt í samstarfi við heimamenn í áraraðir þegar skjálftinn reið yf- ir. Eftir skjálftann komum við börnum sem voru ein síns liðs eftir hamfarirnar fyrir í þorp- inu. Þegar mest var voru þar yfir 600 börn en þau voru upphaflega um 130. Okkur hefur þeg- ar tekist að sameina 176 börn foreldrum sínum eða fjarskyldari ættingjum […] Það eru nokk- ur börn í þorpinu og þúsundir í neyðarbúð- unum sem kynnu að eiga foreldra á lífi. Það reynist hins vegar erfitt að finna þá.“ Aðspurður um þá greiningu Unni Karu- nakara, forseta samtakanna Lækna án landa- mæra, Médecins Sans Frontières, að skortur á samhæfingu standi hjálparstarfinu fyrir þrif- um, líkt og fjallað er um á miðopnusíðu Morg- unblaðsins á mánudag, segir Willeit að hafa verði í huga að fyrir skjálftann hafi Haítí verið eitt fátækasta ríki heims. Um 40% íbúanna hafi verið læs. Því sé erfitt að finna hæfa heima- menn til samstarfs, auk þess sem stjórnmála- ástandið fyrir og eftir hamfarirnar hafi verið óstöðugt. Af þeim sökum geti það reynst hjálpar- samtökum örðugt að gera langtímaáætlanir í samvinnu við stjórnvöld. Til að gera illt verra hafi margir starfsmenn ríkisins og hjálp- arstofnana farist í hamförunum. „Þetta þýðir að allt gengur fremur hægt fyrir sig en samstarfið á milli hjálparstofnana og sjálfstæðra samtaka gengur hins vegar nokkuð vel. Þessi vinna er innt af hendi skref fyrir skref. Verkefnið sem framundan er mun taka nokkur ár […] Í apríl sl. lögðum við fram tíu ára áætlun. Við horfum til langs tíma þegar við skipuleggjum starfsemina.“ Aðspurður hvað hann telji að það muni taka langan tíma að endurbyggja samfélagið segir Willeit vissa ónákvæmni felast í því orða- lagi. Haítí hafi verið þróunarland og því snúist markmiðið um að stuðla að því að lýðræði skjóti dýpri rótum og hagkerfið komist í gang. „Þetta verður að gerast í samvinnu við heima- menn. Utanaðkomandi aðilar geta ekki gert þetta á eigin spýtur,“ segir Willeit og leggur áherslu á mikilvægi þess að mennta og þjálfa heimamenn. Hann víkur síðan að starfi SOS Barna- þorpa í landinu sem hafi metnað til að reisa 10 skóla í landinu í samvinnu við stjórnvöld, með því skilyrði að þeir verði að lokum opinberir skólar. „Fátækt fólk hér á Haítí þurfti að borga upp undir 40% af árstekjum sínum í skólagjöld hjá einkaskólum. Það er ástæða þess að svo mörg börn fóru á mis við nám.“ Týndist í húsarústunum Ástralinn Ian Woolverton hjá samtök- unum Save the children, eða Barnaheill, segir að brak úr rústum húsa sé til mikils trafala í höfuðborginni Port-au-prince. Til að gera illt verra hafi fjöldi pappíra sem staðfesti eign á landi og fasteignum týnst í braki. Það eitt skapi flækju sem taki mörg misseri að greiða úr. Þá sé áætlað að það muni taka þrjú ár að hreinsa borgina. Til að auka á vandann taki kólerufaraldur sem komið hafi upp í landinu tíma og orku frá öðrum verkefnum en talið er að um 120.000 af níu milljón íbúum hafi smit- ast. Brýnt sé að koma börnum í skóla. Þar fái þau skjól og félagsskap frá jafnöldrum. Níundi hver er enn heimilislaus á Haítí  Uppbygging er skammt á veg komin ári eftir jarðskjálftann mannskæða  Hjálparstofnunum reynist örðugt að gera langtímaáætlanir  Óhreinsað brak tefur uppbyggingu í höfuðborginni Ljósmynd/SOS Barnaþorp/Christian Martinelli Forvitnar Þessar stúlkur eru með blik í auga þrátt fyrir allt sem á daga þeirra hefur drifið. Blóðtaka » Menntakerfið á Haítí varð fyrir mik- illi blóðtöku í hamförunum. » 600 kennarar og um 200 sam- starfsmenn þeirra í menntamálaráðu- neyti landsins fórust í skjálftanum. » Um 60% af um níu milljón íbúum landsins voru ólæs fyrir skjálftann. » 912 börn eru í skóla SOS Barna- þorpa í Santo og er skólinn tvísetinn til að anna eftirspurn. » Þegar ekki er rúm í skólanum fer kennslan fram í tjöldum. » Markmiðið er að opna annan skóla í október fyrir allt að 450 börn. » Sá verður einsetinn.Ljósmynd/SOS Barnaþorp/Christian Martinelli FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Síðasta verk ástralska táningspilts- ins Jordan Rice áður en hann lést var að hjálpa 10 ára gömlum bróður sínum að komast á þurrt land. Bræðurnir sátu fastir á bílþaki ásamt móður sinni í flóðunum í Queensland í Ástralíu. Fjöldi vegfar- enda stóð á þurru landi og fylgdist ráðþrota með þeim þar til vörubíl- stjóri greip til þess ráðs að festa reipi um sig miðjan sem bundið var í vörubílinn og vaða út í strauminn. Þegar hann kom að bílnum ýtti hinn 13 ára gamli Jordan bróður sín- um til mannsins og bað um að honum yrði bjargað fyrst. Örfáum mínútum síðar hreif straumurinn mæðginin burt og þau drukknuðu bæði. Sagan af dauða Jordan Rice hefur hreyft mjög við Áströlum, sem hylla hann sem hetju. Hann er einn af 13 manns sem staðfest er að hafi látist í hamfaraflóðunum í borgunum Bris- bane og Ipswich. 43 er saknað, þar af er óttast að a.m.k. 9 séu látnir. Tjónið margfalt meira en áður Vatnið tók að sjatna í gærkvöldi en Anna Bligh, ríkisstjóri Queens- land, varaði Brisbane-búa við því að þeir kynnu að fá áfall yfir ástandinu í birtingu í dag og skyldu búa sig und- ir það versta. Þúsundir flýðu heimili sín og kl. 4 að staðartíma, þegar vatnshæðin náði hámarki í 4,46 m, var Brisbane draugabær. Íbúar í Brisbane eru ekki alls ókunnugir flóðum því Brisbane-áin hefur flætt yfir bakka sína um annað hvert ár að meðaltali síðustu áratugi og teljast flóðin árin 1893 og 1974 til hamfara- flóða. Þótt vatnsyfirborðið nú hafi mest verið um metra lægra en í síð- asta aftakaflóði er tjónið meira en nokkru sinni enda var Brisbane að- eins 6.000 manna bær fyrir 37 árum en er nú þriðja stærsta borg Ástr- alíu með um tvær milljónir íbúa. Til að hamfaraflóð verði virðast margir samhangandi þættir þurfa að koma saman. Sjávarfalla gætir í ánni og nú hittist þannig á að háflóð fylgir í kjölfar gríðarlegra rigninga. Áin er afar bugðótt og rennur hægt til hafs sem þýðir að verði mikil vatnssöfnun inn til landsins hækkar yfirborðið ört og það leiðir til öflugra skyndiflóða. Dagblaðið The Australian sagði að fyrir áratug hefðu vísindamenn og verkfræðingar lýst í leynilegri skýrslu til stjórnvalda miklum áhyggjum af yfirvofandi eyðilegg- ingu og hættu af flóðum í Brisbane- ánni. Skýrslunni hefði verið stungið undir stól og ráðleggingum sérfræð- inganna um breytt deiliskipulag og smíði neyðaráætlana alfarið hafnað. Vatnið tekið að sjatna eftir hámark hamfaraflóðanna Reuters Beljandi Mórauð Brisbane áin hefur rutt með sér heilu húsunum og skilur eftir sig rústir einar þakktar leðju.  Íbúar Brisbane voru viðbúnir því versta í birtingu  Þúsundir heimila á kafi Eyðileggingin vegna flóðanna í Brisbane- ánni er gríðarleg. Raf- magnslaust er á 113.000 heimilum og búist var við því að í dag yrðu um 30.000 heim- ili á kafi í vatni. Í gær byrjaði að flæða inn á fyrstu hæð húss Erlu Margrétar Gunnarsdóttur náms- manns í Brisbane. Sjálf býr hún á þriðju hæð og segist ekki í hættu, en hún hefur þó flutt stóran hluta innbúsins á örugg- an stað. Erla segist hafa séð ótrúlegustu hluti fljóta niður ána. „Við höfum séð kofa, hús- bíla, heybagga, bryggjur, báta og fleira.“ Erla segist ekki geta ímyndað sér hvernig borgin líti út þegar flóðin taka að sjatna. Hús, bílar og bryggjur á floti TJÓNIÐ NEMUR HUNDRUÐUM MILLJARÐA KRÓNA Erla Margrét Gunnarsdóttir „Við erum já- kvæð en það breyttust að- stæður mjög snögglega, við ætluðum ekki að flytja á flóða- svæði,“ segir Erla Sigurlaug Sigurðardóttir sem ásamt manni sínum Guðjóni Víglundi Helgasyni og tveimur ung- um börnum er að flytja til Brisbane. Fjölskyldan lagði af stað í flugi til Ástralíu í morgun og stefnir á að lenda í Brisbane um hádegi á laug- ardaginn. „Við höfum fylgst með fréttum og verið í sambandi við fólk sem býr úti. Ég fékk alþjóðlegan Rotary- námsstyrk til að fara í mastersnám í friðar- og átakafræðum í Brisbane. Það er Rotary-fólk úti sem ég er samskiptum við, það reynir að lýsa aðstæðum fyrir mér en veit voða lít- ið enda einangrað á sínu heimili. Við ætluðum að gista hjá þeim til að byrja með á meðan þau aðstoðuðu okkur við að finna húsnæði en það mun eitthvað dragast, svo enn sem stendur veit ég ekki hvar við gist- um. Flugvellinum í Brisbane hefur ekki verið lokað svo við erum bjart- sýn á að lenda þar og finna okkur svo samastað í gegnum Rotary- netið,“ segir Erla og hljómar ekki smeyk. Ætluðum ekki að fresta för „Við ætlum ekki að stefna okkur í neina hættu. Brisbane er stórt svæði og við verðum þar sem óhætt er að vera. Skólinn hjá mér byrjar ekki fyrr en í lok febrúar en skólinn hjá sex ára dóttur minni átti að byrja 24. janúar svo ég veit ekki hvað verður með það, við verðum bara að vinna okkur áfram eins og allir hinir sem búa í Brisbane. Þetta er óvissa en ekki inni í myndinni að fresta för. Ég er búin að kaupa flugfar fyrir alla fjölskylduna, það er ekki hægt að tryggja sig fyrir náttúruhamför- um svo það er ekki annað en að leggja af stað hvar sem við lendum,“ segir Erla. ingveldur@mbl.is Ætluðu ekki að flytja á flóðasvæði Erla Sigurlaug Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.