Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 Meginherstjórnaráætlun um inn-göngu í ESB var byggð á því að þjóðin væri illa að sér um málið og því væri hægt að láta eins og um- sóknin væri annað en reglur ESB segja til um.    Slík áætlun er dæmd til að mistak-ast nema hægt sé að ljúka ferl- inu með leifturhraða. Því var talað ótt og títt um hraðferð Íslands inn í sambandið. „Sækja verður um á meðan Svíar eru í for- svari“ var herhvötin. Enginn man lengur hvenær sænskir fóru síðast með puntrullu innan sambandsins.    Þjóðinni var sagt aðumsóknin væri „hvað er í pakkan- um“-umsókn. Hver getur verið á móti svo- leiðis umsókn sögðu herstjórarnir flissandi hver við annan.    En ferlið tók aðhiksta. Það spurðist út að Ís- lendingar væru óafvitandi komnir í aðildarferli. Talsmenn ESB sögðu að það hefði alltaf legið ljóst fyrir „hvað væri í pakkanum“.    Nú segir Árni Þór Sigurðssonskyndilega, að það sé hugsan- legt að rétt verði að hætta umsókn- arferlinu áður en því lýkur. En hvað verður þá um „hvað er í pakkanum“- slagorðin? Og hvað verður um að þjóðin fái að kjósa slagorðin?    Ekkert vandamál.    Það er að renna upp fyrir sífelltfleirum að pakkinn er búinn að vera galopinn fyrir allra augum lengi og þess vegna getur þjóðin kosið strax. Og senn munu herstjór- arnir verða eins og pakkinn: Ber- rassaðir fyrir allra augum. Össur Skarphéðinsson Sandrennandi STAKSTEINAR Árni Þór Sigurðsson Veður víða um heim 12.1., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri -1 alskýjað Egilsstaðir 0 alskýjað Kirkjubæjarkl. 1 skýjað Nuuk -7 léttskýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló -6 heiðskírt Kaupmannahöfn 1 léttskýjað Stokkhólmur -1 snjókoma Helsinki -2 skýjað Lúxemborg 3 skúrir Brussel 7 skúrir Dublin 11 skúrir Glasgow 2 skýjað London 12 skúrir París 10 skýjað Amsterdam 7 skúrir Hamborg 2 skýjað Berlín 3 skýjað Vín 6 skýjað Moskva -1 snjókoma Algarve 17 heiðskírt Madríd 16 heiðskírt Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 12 skýjað Winnipeg -17 snjókoma Montreal -7 snjókoma New York -1 skýjað Chicago -3 skýjað Orlando 6 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:00 16:14 ÍSAFJÖRÐUR 11:34 15:50 SIGLUFJÖRÐUR 11:18 15:32 DJÚPIVOGUR 10:37 15:36 Árið 2009 fækkaði komum barna til tannlækna um 15% og að sögn Sigurðar Bene- diktssonar, for- manns Tann- læknafélags Íslands, er ekki útlit fyrir að heim- sóknum hafi fjölg- að í fyrra. Guð- bjartur Hannesson, velferðar- ráðherra, segir það eitt af brýnustu verkefnum ráðuneytisins á nýju ári að bæta aðgengi barna að tann- læknaþjónustu og stuðla að betri tannheilsu almennt. „Það er augljóst að við getum ekki sætt okkur við þetta ástand eins og það er og það er sameiginleg ábyrgð okkar og tann- læknanna að finna lausn á þessum vanda,“ segir Guðbjartur. Hann segir ráðuneytið hafa lagt fram tillögu um að stofnaður verði sérstakur tannverndarsjóður fyrir börn og þannig verði tryggt að ekkert barn fari á mis við tannlækna- þjónustu af efnahagslegum ástæðum. Hann segir enn fremur að Tann- læknafélagið hafi sett fram stefnu- mótunartillögur sem ráðuneytið eigi eftir að fara yfir og vinna betur úr og ítrekar að þetta sé verkefni sem verði að vinna að í sameiningu, en m.a. verði að skoða að stilla saman gjald- skrár Sjúkratrygginga og tannlækna. holmfridur@mbl.is Brýnt að bæta tann- heilsu barna Vill leysa málið í sam- vinnu við tannlækna Guðbjartur Hannesson Í dag kl. 20:30 standa samtökin Ný dögun fyrir samverustund í safn- aðarheimili Háteigskirkju þar sem fjallað verður um sorg vegna fráfalls maka. Hulda Guðmundsdóttir guð- fræðingur ræðir þar um makamissi og boðið verður upp á umræður og fyrirspurnir. Á undan eða kl. 19:30 er opið hús á sama stað þar sem fólk getur komið, spjallað og fengið sér kaffi. Allir eru velkomnir. Nánari upplýsingar má sjá á www.sorg.is. Að missa maka Dr. Kári Stefánsson, stofnandi, forstjóri og yfirmaður rannsókna Íslenskrar erfðagreiningar, flytur fyrsta erindi í röð hátíðarfyrirlestra rektors á aldarafmæli Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu, laugardaginn 15. janúar kl. 15. Allir velkomnir HÖNNUN MANNS hvernig maðurinn skapast af samspili erfða og umhverfis FYRIRLESTRARÖÐ Á ALDARAFMÆLI HÁSKÓLA ÍSLANDS PI PA R\ TB W A • SÍ A • 11 00 58

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.