Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 32
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 15-23 m/s og 23-28 með suðurströndinni, en mun hægari vindur á NA- og A-landi. Snjókoma eða él. Frostlaust syðst, annars 0-5 stiga frost.  Goddur heldur fyrirlestur í hádeg- inu í dag í Þjóðminjasafni Íslands undir yfirskriftinni Hvað er handan spegilsins? Þessi fyrirlestur fjallar um notkun listamanna á ljósmynd- um. Farið verður yfir hugmyndasögu tuttugustu aldar og ljósmyndin sem tæki listamanna sett í samhengi við hana. Hvað er handan spegilsins? FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Vinunum fækkaði eftir óléttu 2. Brúður fannst látin á hóteli 3. Glæpamenn nefbrutu ofurhetju 4. Svaf í Oddskarðsgöngum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Menntaskólarnir eru nú að fara af stað með leiksýningar sínar. MR og Verzló ætla að kljást við Shakespeare en MS ætlar að setja upp Hairspray og er það Pétur Einarsson sem leik- stýrir. »28 MS setur upp söng- leikinn Hairspray  Tónleikar til stuðnings níumenn- ingunum verða haldnir í kvöld á Nasa. Fram koma Páll Óskar, Sin Fang Bous, Diskóeyjan, KK og Ellen, Para- bólurnar, Reykjavík!, Ein- ar Már, Múm, Steini úr Hjálmum, Prins Póló, Ellen K. og Pétur H., Elín Ey, Arnljótur, Idir, ákærð- ur níumenn- ingur og fleiri óvæntir gestir. Spilað til stuðnings níumenningunum Á föstudag Austlæg átt, víða 10-18 m/s. Rigning eða slydda við suðurströndina, annars snjókoma eða él, einkum eystra. Frost 0-5 stig, en 0-5 stiga hiti syðst. Á laugardag Norðaustan 8-13 m/s og slydda eða snjókoma við norðvesturströndina, annars hægari breytileg átt og skúrir eða él, en úrkomulítið NA-lands. Hiti breytist lítið. VEÐUR Zoltán Belányi, fyrrum handknattleiksmaður, sem áður var Ungverji en nú Ís- lendingur, segir að lið þjóð- anna séu skipuð mjög áþekkum leikmönnum. „En þegar horft er á liðsheildina er hún miklu betri hjá ís- lenska liðinu. Svo spila ís- lensku strákarnir allir mikið erfiðari leiki en þeir ung- versku sem vinna flesta deildaleiki sína með miklum mun,“ sagði Zoltán. »1 Liðsheildin miklu betri hjá Íslandi Körfuboltalið Tindastóls frá Sauð- árkróki hefur sótt mjög í sig veðrið undanfarið og er komið í undanúrslit bikarkeppninnar. Þar fékk það erfitt verkefni, útileik gegn KR. „Það verður gaman að fara í KR-heimilið og við komum brjálaðir til leiks þar,“ sagði Helgi Rafn Viggós- son, leik- maður Sauð- krækinga, við Morgun- blaðið. »3 Komum brjálaðir til leiks í KR-heimilið Valur lagði Fram í uppgjöri tveggja af bestu liðum landsins í kvenna- handboltanum í gærkvöld. Fram- konur náðu aðeins að skora þrisvar í seinni hálfleiknum og Valur vann að lokum sjö marka sigur. „Við hleyptum lífi í þessa deild með sigrinum,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir sem lék frábærlega í vörn Valskvenna í gærkvöld. »4 Fram skoraði 3 á 30 mínútum gegn Val ÍÞRÓTTIR HM Í SVÍÞJÓÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Staðan er einfaldlega þannig að við náðum í silfur á Ólympíu- leikunum og það kom brons á síð- asta stórmóti. Ég held þess vegna að meira sé um að hin liðin svitni við það að mæta Íslandi heldur en öfugt. Í gegnum tíðina hafa sum liðin ekki þolað að mæta Íslandi því við gefumst aldrei upp. Þess vegna skiptir svo miklu máli að halda því við og sýna í fyrsta leik á móti Ungverjum að Íslendingar séu mættir á mótið til að gera góða hluti. Þegar okkur tekst vel upp í fyrsta leik þá er búið að setja ákveðið viðmið og hin liðin vita þá að við erum mættir. Þá er sál- fræðistríðið okkar megin,“ segir Sigfús Sigurðsson, einn af silf- urverðlaunahöfum Íslands á síð- ustu Ólympíuleikum, í viðtali í HM- blaði Morgunblaðsins í dag. HM-blaðið er afar veglegt, 32 síður að stærð, og þar er fjallað ít- arlega um mótið í Svíþjóð. Rætt við marga um íslenska liðið og mögu- leika þess, leikjadagskráin er kynnt, sem og leikmennirnir sjálfir. Við vorum ekki algjörir asnar Ennfremur er saga Íslands á heimsmeistaramótum í handknatt- leik frá upphafi rakin, í fimm blað- síðna úttekt Ívars Benedikts- sonar. Þar kennir margra grasa, enda hefur Ísland tekið þátt í 15 heims- meistaramótum á rúm- lega 50 árum. Sagt er frá gleði- og sorgarstundum, vitnað í fleyg orð leikmanna og þjálfara, og magnaðar lýsingar íþrótta- fréttamanna Morgunblaðsins á gangi mála. Rætt er við tvo af þeim sem léku með íslenska landslið- inu á fyrstu heimsmeistaramót- unum, þá Birgi Björnsson og Karl Jóhannsson. „Við vorum ekki algjörir asnar þegar keppni hófst á HM þó að- stæður innanhúss hér heima væru ekki eins og best varð á kosið,“ segir Birgir Björnsson, og fram kemur að Íslendingar hafi strax frá byrjun tekið mið af bestu hand- knattleiksþjóðum Evrópu. Dagur Sigurðsson, fyrrum lands- liðsfyrirliði, segir að það verði erf- itt fyrir íslenska liðið að reyna að vinna til verðlauna á þriðja stór- mótinu í röð. „Það væri með ólík- indum ef þeim tækist að halda sér á þeim stalli ef maður horfir raun- hæft á málið,“ segir Dagur m.a. í ítarlegu viðtali í HM-blaðinu. Sum þola ekki að mæta Íslandi  Veglegt 32 síðna HM-blað fylgir Morgunblaðinu í dag Morgunblaðið/Golli HM Róbert Gunnarsson og félagar í íslenska landsliðinu mæta Ungverjum í Norrköping á morgun. Áhugamenn um íslenska lands- liðið í handknattleik karla geta fylgst mjög vel með gengi liðsins á heimsmeistaramótinu í Sví- þjóð í Morgunblaðinu og á mbl.is. Kristján Jónsson íþróttafréttamaður fylgir íslenska liðinu í leikjum þess í Svíþjóð og fjallar ítarlega um það. Á mbl.is verða m.a. myndskeið með við- tölum við leikmenn, þjálfara og fleiri aðila frá Svíþjóð og öllum leikjum Íslands verður lýst í bein- um textalýsingum. Í Morg- unblaðinu verður frammistaða liðsins krufin nákvæmlega eftir leikina og fjallað um allt sem ger- ist innan vallar sem utan. Fyrsti leikur Íslands er gegn Ungverjalandi á morgun, föstudag, og hann hefst klukkan 16 að ís- lenskum tíma. Beinar lýsingar á mbl.is UMFJÖLLUN UM HM Í SVÍÞJÓÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.