Skátablaðið - 01.12.1942, Síða 7
JÓLIN
Oti í ríki náttúrunnar getur marga
fagra sjón. Allir skátar, sem um eitt-
hvert árabil hafa iðkað skátastörf,
hafa átt unaðslegar stundir undir ber-
um himni og eiga endurminningar sín-
ar um fagrar sýnir, er þeim birtust
þar..
Frá öndverðu liafa mennirnir fylgst
með margvíslegum teiknum og tákn-
um hins ytra heims og leitazt við að
lesa úr þeim og ráða, hvað þau boð-
uðu. Menn reyndu að skilja hið þögla
en leiftrandi mál stjarnanna úti í
himingeimnum. I gamla daga var það
ti'ú margra þjóða, að á undan stórvið-
burðum veraldarsögunnar, gerðust
einhver undur i ríki náttúrunnar. —
Oti í haganum ljómaði dýrð Drott-
ins umhverfis fjárhirðana, er gættu
hjarðar sinnar.
Það varð nóttin lielga i meðvitund
hins kristna heinis, því að orð engils-
ins reyndust rétt og sönn:
„Yður er i dag frelsari fæddur, sem
er Kristur Drottinn í borg Davíðs“ . .
Frelsari heimsins er fæddur.
Það er þessi boðskapur, sem Skáta-
blaðið vill með þessum linum flytja
öllum lesendum sínum, jafnframt því,
sem það færir þeim einlægar jólaóskir.
Ef jólin hefðu ekki komið og boð-
skapur Krists ekki hljómað um þessa
jörð, er ekki hugsanlegt, að skáta-
reglan væri til i þeirri mynd, sem liún
er nú í. Þá væri skátastarfið með ein-
hverjum öðrum liætti og í öðrum anda.
-— Því óhugsandi er, að nokkrum dylj-
ist að skátareglan starfar í þeim anda,
sem boðskapur Jesú Krists ber í sér.
Skátareglan vill, að skátinn elski
Guð og föðurlandið og að lumn sé
ávallt viðbúinn, sem sannur maður, er
á hjálp hans þarf að halda í lífinu.
Víðsvegar um heiminn styður skáta-
reglan beinlínis og óbeinlínis starf
lcirkjunnar. Margar á ég fagrar minn-
ingar frá skátaguðsþjónustum og síð-^
ast í sumar að Olfljótsvatni. Kirkjan
var full af skátastúlkum og skáta-
drengjum. Höfðu skátarnir sjálfir
málað kirkjuna fagurlega, og er hún
þvi i hinum fegursta búningi nú er
jólin koma.
Skátinn vill, í anda Jesú Krists, gefa
lífinu fegurri svip. Verkefni lians eru
því óendanleg. Fyrsta skrefið er að
íklæða sinn innri mann i fagran búning
hinna beztu liugsana og áforma og
gjöra sér síðan far um að breiða út
meðal manna allt hið fegursta og bezta
er skátinn veit.
Mættu jólin, sem nú koma, vera þér
sterk hvatning til þessa, skáti!
Guð blessi skátafélögin og störf
þeirra og gefi öllum skátum
Gleðileg jól. Sigurgeir Sigurðsson.
DRENGJAJÓL
/