Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1942, Side 9

Skátablaðið - 01.12.1942, Side 9
SKÁTASTARF Nú í ár, þann 2. nóvember voru liSin rétt þrjátíu ár síðan fyrsta skátastarfsemin var hafin hér á landi. Fyrsta skátafélagið var stofnað hér í Reykjavík og hlaut nafnið „Skátafélag ReykjavíkuF'. Félagið starfaði í þrem sveitum á grundvelli þeim, er Lord Baden Powell hafði lagt i bókinni „Scout- ing for Boys“. Þetta félag starfaði til ársins 1917. Má meðal annars geta þess, að núver- andi skátahöfðingi, Dr. Helgi Tómasson, var einn af stofnendum félagsins. Árið 1913 er svo Væringjafélagið stofnað. Stofnandi þess var séra Friðrik Friðriks- son. Væringjafélagið var í upphafi ekki stofnað sem skátafélag, en strax á fyrstu ár- um þess tóku við forystu þar, þeir A. V. Tulinius og Ársæll Gunnarsson. Þessir tveir menn efldu brátt félagið mjög og breyttu starfsemi þess í skátastarf. Er óhætt að fullyrða, að þessir menn ásamt Davíð Sch. Thorsteinssyni hafa mótað starf og stefnu félagsins hver á sinn hátt, og félagið síðan mótað stefnu í áframhaldandi skátastarfi hér á landi. Skátafélagsskapurinn fær seint þakkað þessum mönnum hið mikla og óeig- ingjarna starf, er þejr inntu af hendi í þágu skátanna. Árið 1925 var skátafélagið „Ernir“ stofn- að. Varð félagið brátt öflugt skátafélag og lagði fram ágætt og mikið starf i þágu starfseminnar. Seinna, eða árið 1938 voru svo bæði þessi félög sameinuð í eitt félag, er nefnt var eins og fyrsta félagið „Skáta- félag Reykjavíkur“, og er það nú fjölmenn- asta skátafélag landsins. Seinna bættust svo í hópinn mörg ágæt skátafélög víðsvegar um landið, og hafa mörg þeirra lagt fram mjög gott starf og sýnt mikinn dugnað og má af þeim mikils vænta í framtíðinni. Merkasta sporið, er stigið hefir verið í ís- lenzkum skátamálum, er svo stigið 1925, með stofnun Bandalags íslenzkra skáta. For- göngu um stofnun Bandalagsins höfðu fé- lögin „Ernir“ og „Væringjar“. Með stofnun B.Í.S., var gjört mögulegt að allir íslenzkir skátar sameinuðust til átaka um áhugamál sín, enda hefur það komið í ljós að þá fyrst er Bandalagið kom til sögunnar byrjaði skátafélagsskapurinn fyrst verulega að efl- ast hér á landi. Á þessum þrjátíu árum liafa skátarnir í Reykjavík lagt fram geysimikið starf í þágu skátanna. Má meðal annars minna á hin mörgu skátamót er þeir hafa haft for- göngu að og séð um. Eins hafa þeir staðið að móttökum erlendra skáta og skátahópa og lagt frarn mikið starf í undirbúning ut- anlandsfara íslenzkra skáta, svo fátt eitt sé nefnt fyrir utan hið eiginlega skátastarf, sem auðvitað ávallt er grundvöllurinn. Félagsforingi hin seinustu ár hefur verið Daníel Gíslason. Daníel hefur rækt þetta starf sitt frábærlega vel, en verður nú að liverfa frá því vegna brottferðar af landinu. Núverandi félagsforingi er Björvin Þor- björnsson, sem öllum skátum er að góðu kunnur af margra ára skátastarfi. Leifur Guðmundsson. DRENGJAJÓL 9

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.