Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 14

Skátablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 14
jókst nú mjög eftir því sem á daginn leið, og láku tjöldin mjög. Fóru þá skátarnir frá Úlfljótsvatni heim í skálann og sváfu þar yfir nóttina. Hinir, sem eftir voru, hreiðr- uðu um sig í þeim fáu tjöldum, sem ekki láku, en hinir tjölduðu inni í stóra eldhús- tjaldinu. Laugardagur 27. júní. Veður var nú heldur skárra, en nokkuð hvasst. Ákveðið var að halda skemmtun um kvöldið heima í skálanum að Úlfljóts- vatni. Um kvöldið var veður mikið betra, svo varðeldur einn mikill var haldinn nið- ur við vatnið. Var þangað boðið Skátum og kvenskátum frá Úlfljótsvatni, sem bæði höfðu verið á mótinu og svo þeim, sem komu úr bænum til að heimsækja okkur. Sunnudagur 28. júní. Nú var síðasti dagur mótsins runninn upp, og var nóg verk að taka saman og ganga frá. Var nú unnið af kappi við þetta. Lagt af stað heim kl. 12 á miðnætti. Ég get ekki látið hjá líða í lokin, að minnast á hina góðu stjórn, sem var á mót- inu. Allt fór fram samkvæmt áætlun og býst ég ekki við að neinn hafi verið óá- nægður þegar hann fór, heldur liafi geymt endurminninguna um skenimtilega daga í hollu umhverfi. Einnig vil ég minnast með þakklæti aðstoðar þeirrar er við nutum frá foringjum Skátaskólans á Úlfljótsvatni. Vil ég sérstaklega minnast Jónasar B. Jónsson- ar, Jóns Sigurðssonar og Björns Stefáns- sonar, sem voru alltaf boðnir og búnir til að veita okkur alla þá aðstoð, sem þeir gátu látið okkur i té. Það var að miklu leyti þeim að þakka, hve útilegan var skemmtileg. Hafi Skátafélág Reykjavíkur þökk fyrir mótið og Vestmanneyingarnir fyrir sinn mikla áhuga, sem ruddi þessu máli braut. Páll Gíslason. Daníel Bíslason. Daníel Gíslason félagsforingi Skátafélags Reykjavíkur hefur nú látið af störfum við félagið, og er í siglingum til Ameríku. Skátablaðið þakkar honum ágætt starf fyrir málefni skátanna. Vissulega mun Daníel hefja merki skátanna að nýju, þegar hann kemur heim aftur. Er gott til þess að vita, að skátahreyfingin á slika ágætismenn í liðssveitum sínum. J. S. Gjafir til Skátaskólans: Haraldur Guðjónsson, Tjarnarg'. 10, færði skólanum vandað víðtæki að gjöf í júní- mánuði i sumar. Gísli Pálsson, læknir, gaf 100 kr. i bókasafnssjóð. Þá gaf Stefán Helgason, Vm. kr. 120.00. Lúðvíg Guðmundsson, skólastj. kr. 10.00. Sighvatur Brynjólfsson kr. 10.00. Magnús Guðmundsson, múrari kr. 10.00. Sigurmundur Jónsson kr. 10.00. Skátaskólinn þakkar gjafirnar. J. B. J. 14 DRENGJAJÓL

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.