Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1942, Qupperneq 15

Skátablaðið - 01.12.1942, Qupperneq 15
Hjálp í viðlögum — Nokkrar nýungar. — Alla slcáta, sem lært liafa hjálp í við- lögum, langar eflaust til þess að fylgjast með öllum nýungum á þvi sviði. Hér verður minnst á þrjú atriði, sem teljast mega til nýunga: Sárabögglax. Sú tegund sáraböggla (Cito- og'hermanna- böggla), sem einkum voru hér á markaðin- um fyrir strið, og ætlaðir vöru til þess að leggja til bráðabirgða við svöðusár, inni- héldu, eins og skátar munu minnast: sára- grisju (compressu), bómull og grisjubindi, allt sitt í hverju lagi. Var bréfræma höfð um sáragrisjuna svo ekki þyrfti að snerta hana með berum höndum um leið og hún væri lögð á sárið, síðan skyldi leggja bóm- ullina yfir grisjuna og að lokum binda um með grisjubindinu. Hin nýja tegund sáraböggla, sem sést hér á myndunum, er mun auðveldari i notkun vegna þess að-sáragrisjan og bómullin er saumuð föst i grisjubindið. Gæta skal þess, um leið og sárabögglarnir eru opnaðir, að snerta ekki á sáragrisjunni (sem er oftast gul á lit), en talca um grisju- bindið sín hvoru megin við sáragrisjuna og bregða henni á sárið eins og sést á mynd nr. 2. Siðan skal grisjubindinu vaf- ið um eins og venjulega. Sárabögglar þessir eru einkum ætlaðir til þess að binda til bráðabirgða um svöðusár, þar til næst i lækni. Skátar ættu þvi að jafnaði að bera einn slíkan böggul i treyu- vasa sínum þegar þeir eru á ferðalögum. Fyrir atbeina Slysavarnarfélagsins hafa þessir nýju sárabögglar verið pantaðir hing- að til lands, og eru leiðbeiningar um notk- un þeirra prentaðar á íslenzku á hverjum böggli. Utan um bögglana er vaxborið lér- eft og þola þeir því vel að veltast í vasa. Skyndiplástur. Þessi handhægi plástur, með viðfestri sáragrisju, er einkum notaður við kaun og fleiður, sem lítið blæðir úr. Munið að þvo kaunin áður en plásturinn er settur á þau, og gætið þess að teygja ekki plásturinn um leið og þið setjið hann á, þvi að þá getur 1. Skyndiplásur. 2. Sáraböggull. hann hert um of að blóðrásinni. Myndirnar sýna hvernig lyfta skal léreftinu, sem hylur sáragrisjuna, um leið og plástrinum er brugðið á. Brunasmyrsl. Á undanförnum árum hafa skátar eink- um haft gult vaselin í lyfjakössum sínum til notkunar við bruna, en eftirleiðis ættu þeir að nota sérstakt brunasmyrsl (Sulfan- ilamid), sem fæst í lyfjabúðum. Brunasmyrslinu er smurt á sótthreinsaðar umbúðir (sáragrisju), sem síðan eru lagðar við sárið. Forðast ber að koma við sárið, eða þann hluta umbúðanna, sem leggjast á næst sárinu. Jón Oddgeir Jónsson. Ráðningar 2 á gátum -1 ^3 í síðasta Skátablaði. 1 Það eru tveimur fleiri eldspýtur á borðinu. 15 DRENGJAJÓL

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.