Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1942, Qupperneq 18

Skátablaðið - 01.12.1942, Qupperneq 18
NÝR SKÍÐASKÁLI Það hefur lengi verið mikill áhugi meðal R.S. Skáta í Reykjavík, fyrir því að koma upp skiðaskála. Ur framkvæmdum hefur þó ekki orðið fyr en síðastliðið sumar, að skíðaskálinn hefur orðið að veruleika. Hafin var vinna við hann snemma í vor og er honum nú að mestu lokið. Skálanum hefur verið valið nafnið Þrym- heimur, en nafnið er sem kunnugt er úr goðasögunum. Þrymheimur hét bústaður Skaði, „en hún er öndurdis, ok ferr hon mjök á skiðuni“, segir í Eddu. Þrymheimur stendur undir Skarðsmýrar- fjaíli á Hellisheiði. Það er óhætt að segja, að vel hafi tekizt með val á stað fyrir skálann. Staðurinn sjálfur er fallegur, auk þess sem skíðaland er mjög gott rétt við skálann. Nokkur landspilda hefur verið tekin á leigu í lengri tima og er i þvi landi hver, sem líkur eru til, að hafa megi nokkur not af, t. d. til að hita upp skálann og útbúa gufubað. Skálinn rúmar 24 í rúm, en auk þess geta vitanlega fleiri skátar dvalið nætur- langt, ef þörf krefur. Hann er 7 metrar á lengd, þar af er 5 metra stofa, byggð í bað- stofustíl, með skarsúð. í Stofunni eru 6 fastarúm, 3 hvert upp af öðru, sem á daginn má nota sem bekki. Arinn er í öðrum enda stofunnar. El^húsið er furðanlega rúmgotl, þótt ekki sé það stórt. Auk þess er svo lier- bergi með 6 fastarúmum, 3 hvert upp af öðru eins og í stofunni, það herbergi er um 2x2.80 metrar, Forstofa er stór og rúm- góð og undir henni kjallari. í einu horni forstofunnar er kamar, sem gengið er i að utan frá. Það má telja víst, að skálinn verði mikið sóttur af skátum í vetur. Þangað er aðeins einnar stundar gangur frá Kolviðarhóli og umhverfi skálans er, eins og áður segir, eitt hið bezta skíðaland í nágrenni Reykja- víkur. Örskammt er í Innstadal, en þar er oft snjór langt fram á vor, þótt snjó þrjóti annarsstaðar. Þótt skálinn sé almennt kallaður skiða skáli, er langt frá því, að hann verði ekki notaður að sumrinu, siður en svo. Þrymheimur er á mjög hentugum stað fyrir þá, er vilja fara gönguferðir. Heppi- legt er að fara þangað á laugardagskvöldi. Á sunnudag' er svo hægt að ganga t. d. í Innstadal, þangað er aðeins % tíma gang- ur. Á Hengil er ca. 1% tíma gangur frá skálanum. í Dyrafjöll, sem eru mjög falleg og sérkennileg', er um 3 tíma gangur og litlu lengra er i Hestvík við Þingvallavatn. Að Úlfljótsvatni er ca. 5 tíma gangur, og að Hveragerði um 1% tíma gangur. Allar þess- ar leiðir og fleiri eru skemmtilegar og heppilegar sumarferðir um helgar. Það er bent á þetta til að sýna, hve skál- inn á mikla framtið fyrir sér, einnig sem sumarskáli, þvi ault þess að geta verið nokkurskonar miðstöð fyrir ýmsar göngu- ferðir um nágrennið, þá er umhverfi skál- ans mjög skemmtilegt og veðursæld sízt minni en viða á láglendi, má því jafnvel gera ráð fyrir að þar dvelji skátar i sumar- fríum. Fyrir framan skálann eru flatir, heppilegar fyrir tjaldbúðir. Ég óska svo R.S. skátum til hamingju með þetta veglega hús sitt og vona, að Þrymheimur megi verða öllum, sem þang- að koma, til gagns og ánægju. Hannes Þorsteinsson. 18 DRENGJAJÓL

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.