Morgunblaðið - 22.02.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2011
Nú standa yfir vetrarfrí í flestum
grunnskólum Reykjavíkur og þeir
eru ófáir sem hafa nýtt sér þessa
löngu helgi til að bregða sér út
fyrir borgarmörkin eða njóta þess
til fulls sem höfuðborgin hefur
upp á að bjóða.
Vegna þess hve samræmd fríin
eru orðin hjá skólunum hafa frí-
stundamiðstöðvar, félagsmið-
stöðvar og sundlaugar ÍTR tekið
upp á því að bjóða upp á fjölbreytt
frístundastarf í vetrarfríinu. Má
þar m.a. nefna fjölskylduskemmt-
anir, skákmót og þrautakeppnir.
Auk þeirra sem leggja síðan leið
sína í sumarbústaði eða til ann-
arra áfangastaða á landsbyggðinni
virðast margir nýta helgina til
þess að fara utan. Að sögn Guð-
jóns Arngrímssonar, upplýsinga-
fulltrúa Icelandair, var uppbókað
til vinsælla skíðaáfangastaða síð-
astliðna helgi sem og til Orlando
og segir hann valdar dagsetningar
benda til þess að þar sé á ferðinni
fjölskyldufólk í löngu og góðu
helgarfríi.
Löng helgi hjá grunn-
skólabörnum í vetrarfríi
Vetrarfrí
» Í dag verður haldið skákmót
í Hlöðunni við Gufunesbæ kl.
12.30-14.30.
» Kl. 13-16 verður efnt til fjöl-
skylduskemmtunar í Vestur-
bæjarlauginni þar sem m.a.
verður hægt að gæða sér á
kleinum og heitu kakói.
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Í sundi Börnin eru eflaust hæstánægð með að fá langa helgi, geta sofið út og ef til vill skellt sér svo í sund.
Taka þátt í frístundastarfi eða njóta jafnvel frísins erlendis
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Nokkur loðnuskip voru í gær við
veiðar og vinnslu út af Snæfellsnesi
og önnur fylltu sig þar um helgina.
Útgerðarmaður sem rætt var við í
gær var ánægður með gang mála:
„Þetta er orðin hörkuvertíð, það hef-
ur tvisvar verið bætt við kvótann,
gott verð hefur fengist fyrir mjöl og
lýsi og hrognavinnslan er framund-
an,“ sagði hann.
Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræð-
ingur, sagði að ekki væri ólíklegt að
fremsta gangan gengi inn á Breiða-
fjörð og hrygndi þar. Slíkt væri ekki
óalgengt, en oft næði gangan ekki
svo langt áður en hún hrygndi við
Reykjanes og í Faxaflóa. Loðnan
hefur gengið hratt síðustu daga og
sagði Sveinn að göngurnar færu oft
um 20 mílur á dag þegar aðstæður
væru þannig og kraftur væri kominn
í hrygningargönguna.
Elías Kristinsson, stýrimaður á
Ingunni AK var á leið af miðunum og
til Akraness um hádegi í gær með
15-1600 tonn. Aflinn fékkst vestur af
Svörtuloftum í sex köstum. Elías
sagði að ætlunin væri að kreista
hrogn úr loðnunni og frysta svoköll-
uð iðnaðarhrogn, en þau fara m.a. á
markaði í Austur-Evrópu.
Hrognafrysting í vikulokin
Hrognafylling var í gær 22-24% og
er talið að hægt verði að frysta hrogn
fyrir Japansmarkað í vikulokin,
hugsanlega fyrr. Fulltrúar jap-
anskra kaupenda hafa verið hér á
landi síðustu tvær vikurnar og fylgj-
ast þeir grannt með þroska og gæð-
um hrognanna.
Loðnubræðsla var í gær í flestum
verksmiðjum frá Þórshöfn suður og
vestur um til Akraness. Boðun verk-
falls í verksmiðjum fyrr í mánuðin-
um hafði þau áhrif að margir veiddu
grimmt fyrri hluta vertíðar til að
forðast að brenna inni með kvóta, en
til verkfalls kom ekki. Loðnutorfur
er víða að finna við suðurströndina
og vestur úr. Loðna veiddist t.d. við
Vestmannaeyjar í síðustu viku.
Fremsta gangan
inn á Breiðafjörð
Fulltrúar japanskra kaupenda fylgjast
grannt með hrognaþroska og gæðum
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskistofu var í gær búið að
landa tæplega 180 þúsund
tonnum af loðnu á vertíðinni.
Nokkur skip voru á landleið með
afla, þannig að eitthvað meira
er búið að veiða.
Heildarheimildir til loðnu-
veiða á fiskveiðiárinu eru 390
þúsund tonn. Þar af fara um 317
þúsund tonn til íslenskra fiski-
skipa. Í síðustu viku var kvótinn
aukinn um 65 þúsund tonn.
180 þúsund
Loðna Jón Kjartansson SU við veið-
ar í Faxaflóa veturinn 2008.
SAXAST Á LOÐNUKVÓTANN
Reglubundinn
sparnaður
Ein besta leiðin til að spara er með reglubundnum sparnaði.
Þú setur þér skýr markmið og ákveður hve háa upphæð
þú vilt spara mánaðarlega. Byrjaðu að spara strax í dag.