Morgunblaðið - 22.02.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2011
Þorraþing Veðurfræðifélagsins
verður haldið í Orkugarði, Grens-
ásvegi 9 í Reykjavík í dag, þriðju-
daginn 22. febrúar. Þingið verður
sett kl. 13.30 og því verður slitið
klukkan 16.00.
Dagskráin er fjölbreytt en
fjallað verður um vinda, ský, hita,
úrkomu og öskufoksmælingar.
Flutt verða átta erindi um fram-
angreind efni.
Aðgangur að þinginu er ókeypis
og þingið er opið öllum er áhuga
hafa á veðri og veðurfari.
Á síðustu árum hefur orðið vart
aukins áhuga almennings á veðr-
inu og tilbrigðum þess.
Þorraþing veður-
fræðinga öllum opið
Í dag, þriðjudag, kl 12.05-13.00,
stendur Sagnfræðingafélag Ís-
lands fyrir hádegisfundi í Þjóð-
minjasafni Íslands sem er hluti
af fyrirlestraröðinni „Hvað er
kynjasaga?“ Aðgangur er ókeyp-
is og öllum opinn.
Rósa Magnúsdóttir sagnfræð-
ingur mun halda fyrirlestur und-
ir heitinu „Þóra og Kristinn:
Ævisaga – hjónasaga – kyn-
slóðasaga – kynjasaga?“ Þar
fjallar hún um hjónin Þóru Vig-
fúsdóttur og Kristin E. Andr-
ésson og samband þeirra við
kvennabaráttuna, sjálfstæðisbar-
áttuna, kommúnismann, Sov-
étríkin og alþjóðahyggjuna.
Fyrirlestur
um kynjasögu
STUTT
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Gallabuxur
Str. 36-54
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Allra síðasta
vika útsölunnar
í EDDUFELLI
-- 1.000 kr. --
-- 2.000 kr. --
-- 3.000 kr. --
ÚTSÖLU-
LOK
Pantanir teknar í síma 694 2196 frá kl. 10-12
Opið frá
kl. 15-19
Miðvikudag, fimmtudag, föstudag
Verð frá 50 kr.
Fornbóka-
markaður
Langholtsvegi 42
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Líkt og Morgunblaðið greindi frá í
gær sendi SP-Fjármögnun hluta við-
skiptavina sinna, sem hafa sótt um
greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni
skuldara, bréf fyrir helgi þar sem til-
kynnt var að bíla-kaupleigusamning-
um hefði verið rift og var fólkið beðið
að skila bifreiðum sínum innan fimm
virkra daga. Að sögn Kjartans
Georgs Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra SP-fjármögnunar, fengu um
áttatíu einstaklingar umrætt bréf og
býst hann við að sú tala eigi eftir að
hækka. „Ég vona að þetta eigi eftir að
ýta við ráðuneytinu og menn geri
lagabreytingu.“
Samkvæmt lögum er einstakling-
um sem sótt hafa um greiðsluaðlögun
ekki heimilt að greiða af lánasamn-
ingum. „Við teljum að þetta [kaup-
leigusamningar] séu lánasamningar
en fjármálafyrirtækin telja að þetta
séu leigusamningar,“ segir Svanborg
Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi
umboðsmanns skuldara og vísar í
dóm Hæstaréttar, sem kveðinn var
upp í júní á síðasta ári, máli sínu til
stuðnings. Að sögn Svanborgar hefur
umboðsmaður rætt við stjórnvöld um
þessi mál og má vænta frétta innan
tíðar.
Sumir kjósa að skila bílunum
SP-Fjármögnun er ekki ein á báti í
þessum efnum því svipað er upp á
teningnum hjá öðrum fyrirtækjum
sem hafa boðið viðskiptavinum sínum
upp á þann möguleika að kaupa bíla á
kaupleigu.
Fjármögnunarfyrirtækið Avant
hefur sent sambærilegt bréf til um
fimmtíu til hundrað viðskiptavina
sem sótt hafa um greiðsluaðlögun.
„Það sem við erum fyrst og fremst að
óska eftir er að fólk hafi samband við
okkur,“ segir Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Avant. Að hans
sögn hafa einhverjir kosið að skila bíl-
um sínum en aðrir leitað eftir því að
leggja spilin á borðið. „Það er eðlilegt
að fá fólk að borðinu þar sem það
kemur með sína sýn á það hvernig
hægt sé að leysa úr málunum. Við
horfum á greiðslusögu viðkomanda
og aðstæður. Auðvitað verður það að
viðurkennast að oft á tíðum er ekki
búið að greiða af samningnum í lang-
an tíma og svo kemur þetta bara til
viðbótar, þá verðum við að átta okkur
á því hvernig staðan er og hvernig
hægt sé að greiða úr henni.“ Að sögn
Magnúsar er ekki áætlað að senda
fleiri viðskiptavinum bréf.
„Við erum ekki búin að gera þetta
en okkur sýnist það vera það eina í
stöðunni,“ segir Halldór Jörgensen,
forstjóri eignaleigufyrirtækisins
Lýsingar. Aðspurður segist hann
ekki geta nefnt þann fjölda viðskipta-
vina sem fær bréf sent, ef af sending-
unum verður. „Það bætist sífellt í
þennan hóp sem sækir um greiðslu-
aðlögun svo þetta er tala sem er fljót-
andi.“
Guðný Helga Herbertsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Íslandsbanka, segir að
ekkert hafi verið gert varðandi þessi
mál hjá bankanum og að engin
ákvörðun hafi verið tekin um hvað
verði gert í framtíðinni.
Vilja ekki í stríð
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra segir að verið sé að skoða
hvort þörf sé á að setja lög á túlkun
leigufyrirtækjanna. „Þetta er lán en
ekki leiga og við viljum að þetta verði
meðhöndlað sem slíkt. Þarna virðast
menn fara fram með öðrum hætti en
við erum sátt við, svo bæði ráðuneytið
og fulltrúar félags- og trygginga-
málanefndar hafa verið að skoða mál-
ið og sjá hvernig hægt er að grípa inn
í þetta og stöðva það að þessi fram-
kvæmd verði notuð.“
Hann segir að ekki eigi að fara með
kaupleigusamninga öðruvísi en önn-
ur lán því annars verði niðurstaðan sú
að sumir aðilar fái greitt fyrir vörur
sína á sama tíma og aðrir fái ekkert.
„Auðvitað eru álitamál í þessu eins og
öðru og þar með verðum við að vanda
okkur,“ segir Guðbjartur.
Að sögn Magnúsar er málið komið
inn á borð hjá samtökum fjármálafyr-
irtækja. „Ég vona að það fáist farsæl
lausn svo við þurfum ekki að standa í
neinu stríði við viðskiptavini.“
Íhuga lagasetningu
á túlkun fyrirtækja
Morgunblaðið/Ernir
Bíllinn Málið er komið inn á borð hjá samtökum fjármálafyrirtækja.
Kaupleigusamn-
ingar eru lán, segir
velferðarráðherra
Riftun samninga
» 80 viðskiptavinir sem eru
með bíl á kaupleigu hjá SP-
fjármögnun og hafa sótt um
greiðsluaðlögun fengu bréf
fyrir helgi þar sem samn-
ingnum er rift. Fleiri geta átt
von á slíku bréfi.
» Avant hefur sent nokkrum
tugum viðskiptavina sinna
sambærilegt bréf.
» Engin bréf hafa borist frá Ís-
landsbanka né Lýsingu.
Í þættinum Þetta gerðist … í
Morgunblaðinu sl. föstudag var
sagt að mótorbáturinn Stuðlaberg
frá Seyðisfirði hefði farist 18. febr-
úar 1962. Hið rétta mun vera að
báturinn fórst 17. febrúar 1962.
Leiðréttist þetta hér með.
Bókabúð annað
en forlag
Rétt er að árétta að Bókmennta-
félagið Mál og menning, sem á
helmings hlut í Forlaginu við
Bræðraborgarstíg, hefur ekkert að
gera með Bókabúð Máls og menn-
ingar við Laugaveg. Bókaútgáfa
Forlagsins gengur vel en þegar
greint var frá gjaldþroti Máls og
menningar við Laugaveg í blaðinu
sl. laugardag láðist að geta þess að
um bókabúðina var að ræða og er
beðist velvirðingar á ónákvæmn-
inni.
LEIÐRÉTT
Stuðlaberg fórst
17. febrúar 1962
Hádegisfundur um millidómstig
fer fram í Háskólanum í Reykjavík
í dag kl. 12-13. Fundurinn ber yf-
irskriftina Millidómstig – Hvers
vegna, hvernig og hvenær? og
verður hann haldinn í salnum Fön-
ix 3 á 1. hæð skólans.
Frummælendur eru Sigurður
Tómas Magnússon, atvinnu-
lífsprófessor við lagadeild HR,
með erindið Af hverju þarf milli-
dómstig á Íslandi og hvernig verð-
ur því best fyrir komið?, og Símon
Sigvaldason, formaður Dómstól-
aráðs, með erindið Raunasaga
millidómstiga á Íslandi.
Fundurinn er öllum opinn og að-
gangur ókeypis.
Fundur um millidóm-
stig haldinn í HR
Sigurður Tómas
Magnússon
Símon
Sigvaldason
Guðmundur Ingvi Sig-
urðsson hæstaréttar-
lögmaður lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir í
gær, 88 ára að aldri.
Guðmundur fæddist
á Akureyri 16. júní
1922. Foreldrar hans
voru Halldóra Ólafs-
dóttir húsmóðir og
Sigurður Guðmunds-
son skólameistari.
Guðmundur var
einn af stofnendum
lögmannsstofunnar
LEX árið 1959. Þar
starfaði hann til árs-
ins 2001, þegar hann lét af lög-
mannsstörfum. Hann var prófdóm-
ari við lagadeild Háskóla Íslands
frá 1973-2005, kennari við Fóstru-
skóla Sumargjafar 1957-1958 og
1959-1960 og dómarafulltrúi hjá
Sakadómi Reykjavíkur 1947-1960.
Guðmundur var nokkrum sinnum
setudómari í Hæstarétti og var
heiðursfélagi Lögmannafélags Ís-
lands.
Guðmundur sat í stjórn Lög-
fræðingafélags Ís-
lands 1958-1962 og
var formaður samtaka
dómarafulltrúa 1959-
1960. Hann sat í
stjórn Lögmanna-
félags Íslands 1969-
1971 og var formaður
stjórnarinnar 1970-
1971. Hann sat í
stjórn Íslandsdeildar
norrænu lögfræði-
þinganna 1972-1987
og var formaður
stjórnar námssjóðs
Lögmannafélags Ís-
lands 1974-1984.
Guðmundur lauk lögfræðiprófi
frá HÍ, varð héraðsdómslögmaður
1950 og hæstaréttarlögmaður
1962. Hann stundaði nám í af-
brotafræðum í Kaupmannahöfn og
við Pennsylvaníuháskóla í Fíladel-
fíu í Bandaríkjunum.
Guðmundur var kvæntur Krist-
ínu Þorbjarnardóttur en hún lést í
lok árs 2008. Þau láta eftir sig
þrjú börn, Sigurð, Þórð Ingva og
Þórunni.
Andlát
Guðmundur Ingvi
Sigurðsson