Morgunblaðið - 22.02.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Úr safni Heilsuskóla Keilis
Með honum koma Eric Cressey og
Nick Tumminello. Útgangspunkt-
urinn verður sem fyrr á styrktar- og
ástandsþjálfun sem miðar að því að
hámarka árangur og lágmarka
meiðsli.“
Uppgötva nýja hluti í þjálfun
Gunnhildur segir þjálfarabúð-
irnar hafa opnað augu margra þjálf-
ara fyrir mikilvægi styrktar- og
ástandsþjálfunar samhliða íþrótta-
þjálfuninni, því hægt sé að fyr-
irbyggja alvarleg meiðsli með því að
greina veikleika í hreyfikeðju hjá
einstaklingum og byggja þá mark-
visst upp. „Ég var með helminginn
af íslenska handboltalandsliðinu í
ÍAK einkaþjálfaranáminu hjá mér
og það var magnað að sjá þegar
þessir miklu íþróttakappar voru að
uppgötva nýja hluti í þjálfun – sér-
staklega það sem snýr að fyr-
irbyggjandi þáttum gagnvart
meiðslum. Menn sögðust almennt
fara til sjúkraþjálfara þegar þeir
kæmu úr meiðslum en það væri ekk-
ert gert til að reyna að fyrirbyggja –
og hér erum við að tala um rándýra
skrokka!“
Kristján Ómar Björnsson,
styrktar- og knattspyrnuþjálfari,
tók undir það sjónarmið í samtali við
blaðamann að það væri mikilvægt að
fá nýja strauma, stefnur og hugs-
unarhátt beint í æð. „Það nýtist
manni á ýmsan hátt að hlusta á fólk
með ferskar hugmyndir. Við það
vakna yfirleitt fleiri spurningar hjá
manni sjálfum og manni gefst tæki-
færi til að skoða eigin störf og hug-
myndafræði út frá öðrum vinkli. Það
er yfirleitt það sem ég lít á sem
mesta ávinninginn við að sitja
áhugaverða fyrirlestra, sjálft efni
fyrirlestrana er að sjálfsögðu oft
mjög gagnlegt en sjálfsgagnrýnin
sem fer sjálfkrafa af stað er ekki síð-
ur verðmæt.“
Framför eða afturför
Silja Úlfarsdóttir, styrktar- og
íþróttaþjálfari, var líkt og Kristján
Ómar, einn þátttakenda í fyrra og
sagðist vera mjög upptekin af öllu
því sem lyti að því að bæta sig sem
íþróttamann og nefndi það sem einn
aðalkost Þjálfarabúðanna. „Ég hef
nýtt margt af því sem ég lærði í fyrri
þjálfarabúðunum og tel mig betri
þjálfara fyrir vikið. Svo hafa margir
af þessum þjálfurum, sem eru að
koma í búðirnar, verið fyrirmyndir
hjá manni og nú get ég aðeins notið
góðs af því,“ sagði Silja kímin.
Kristjáni Ómari fannst styrkt-
arþjálfarinn Mike Boyle hafa staðið
upp úr á síðustu þjálfarabúðum,
„vegna þess hversu vel honum tókst
að koma að sínum einstaka krítíska
hugsunarhætti og sinni nálgun í
starfi,“ eins og Kristján orðaði það.
„Sem þjálfari þá ertu annaðhvort að
kynna þér og tileinka nýja hluti í
starfi eða sitja eftir. Menn þurfa
ekki annað en að skoða hversu mikið
þjálfunarhættir hafa breyst sl. 20 ár
í hvaða íþróttagrein sem er. Það er
ekkert status quo eða stöðnun til í
þessu fagi, aðeins framþróun eða
afturför.“
Morgunblaðið/Ernir
Handboltalandsliðið Þarf að gæta að þjálfuninni eins og önnur lið.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2011
Matur & vín
Þann 11. mars gefurMorgunblaðið út sérblað
ummat og vín.
Spjallað verður við ýmsa úr veitingageiranum
sem deila girnilegum uppskriftum til lesenda.
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 7. mars.
MEÐAL EFNIS:
Kokkar gefa girnilegar uppskriftir
Framandi matargerð.
Námskeið í matargerð.
Lambakjöt.
Nautakjöt.
Kjúklingar
Villibráð.
Sjávarfang.
Eftirréttir.
Kokkabækur uppskriftir frá
höfundum.
Uppskriftir.
Spennandi óvissuferðir.
Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi efni.
SÉ
RB
LA
Ð
Mat
ur &
vín
Annað hlaupið í hlaupaseríu Atl-
antsolíu og FH fer fram á fimmtu-
daginn kemur, 24. febrúar. Vega-
lengdin er 5 km og er hlaupið
meðfram strandlengju Hafn-
arfjarðar í átt að Sundhöll Hafn-
arfjarðar við Herjólfsgötu. Leiðin
sem er hlaupin er flöt og ákjós-
anleg til að bæta sig og verður ná-
kvæmlega mæld.
Hlaupin eru þrjú í seríunni og
fara fram síðasta fimmtudag í
hverjum mánuði og hefjast kl. 19
fyrir utan höfuðstöðvar Atlantsolíu
á Lónsbraut í Hafnarfirði. Ekki eru
veitt verðlaun fyrir hvert hlaup
heldur samanlagðan árangur.
Skráning fer fram í klukkutíma fyrir
hlaup.
Síðasta hlaupið fer fram 24.
mars og verðlaunahóf fyrir hlaupin
fer fram í Kaplakrika hinn 25. mars.
Hlaup
Morgunblaðið/Ómar
Hlaupið Annað hlaupið af þremur fer fram á fimmtudaginn.
Hlaupasería Atlantsolíu og FH
Nú er sá árstími sem margir eru að
berjast við kvefpúkann og leita allra
leiða til að vinna bug á honum. Í grein
á Guardian segir að það að taka inn
sinksíróp, munnsogstöflur eða bara
sinktöflur innan við degi frá því að
kvefeinkennin fara að gera vart við
sig geti dregið úr alvarleika og lengd
veikindanna. Þetta hefur ný rannsókn
leitt í ljós en niðurstöður hennar birt-
ust í Cochrane Library.
Skoðaðar voru fimmtán rannsóknir
sem náðu yfir 1.360 þátttakendur.
Þær sýndu fram á að það að taka inn
sink innan við degi frá því að kvef-
einkennin gera vart við sig hefur
læknandi áhrif. Bæði dró úr alvar-
leika og lengd veikindanna. Eftir sjö
daga höfðu fleiri sjúklingar sem tóku
inn sink lagast af kvefinu en þeir sem
tóku inn lyfleysu.
Sink minnkaði einnig sýkla-
lyfjanotkun hjá börnum. Sýklalyf
virka ekki gegn vírusum eins og þeim
sem valda kvefi og flensu, og ofnotk-
un getur leitt til þróunar ónæmra
baktería.
Þessi rannsóknarniðurstaða þykir
sýna fram á að sink getur gagnast
sem lyf gegn hinu hefðbundna kvefi.
Vitað er að sink er mikilvægt fyrir
ónæmiskerfi, og skortur á því getur
aukið næmi fyrir sýkingum. Hug-
myndin um að sink gæti unnið gegn
kvefi var fyrst sett fram árið 1984 en
aðrar rannsóknir síðan þá hafa ekki
komist að samræmdum niðurstöðum
fyrr en nú.
Flensa og kvef Það er leiðinlegt að vera með kvef eins og flestir vita.
Sink getur dregið úr kvefi
Heilsa
» Þjálfarabúðirnar eru haldn-
ar í samstarfi við ÍSÍ. Hægt er
að skrá sig í búðirnar og fá
nánari upplýsingar á www.keil-
ir.net/heilsa. Mörg stétt-
arfélög og íþróttafélög og at-
vinnuleysissjóður niðurgreiða
námskeið sem þetta.
» Heilsuskóli Keilis er einn
fjögurra skóla Keilis, mið-
stöðvar vísinda, fræða og at-
vinnulífs. Í skólanum er boðið
upp á nám í ÍAK einkaþjálfun
og ÍAK íþróttaþjálfun.
» Nú vinnur starfsfólk heilsu-
skólans að stefnumótun í ÍAK
hópþjálfun í samvinnu við fjöl-
margar heilsuræktarstöðvar
en ætlunin er að bjóða upp á
þá námsbraut frá og með
haustinu 2011.
» Keilir kappkostar við að
bjóða upp á fjölbreytt stök
námskeið fyrir þá sem veita
ráðleggingar á sviði þjálfunar
og næringar. Námskeiðin eru
ýmist kennd af kennurum við
ÍAK eða öðrum erlendum sem
og íslenskum sérfræðingum.
» Miðvikudagskvöldið 23.
febrúar mun Dave Jack ræða
um vaxandi heilsubresti í
samfélaginu og einblína fyrst
og fremst á offituvandann.
Hann mun ræða við þátttak-
endur sem foreldra og sem
þjálfara, hvert er okkar hlut-
verk? Hvað getum við gert til
að grípa inn í hjá börnunum?
Ókeypis aðgangur og allir vel-
komnir.
Einn fjögurra
skóla Keilis
HEILSUSKÓLI KEILIS
Búðirnar Með því að bjóða upp á þjálfarabúðir á
Íslandi er hægt að sækja sér þekkingu fyrir
minni tíma, fyrirhöfn og pening, þótt margir
kjósi einnig að sækja sér þekkingu erlendis.