Morgunblaðið - 22.02.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.02.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2011 Enzo nefnist hundur einnsem segir okkur sögusína í þessari bók. Enzoer valinn úr hvolpahópi úti í sveit af honum Dennis sem starfar sem atvinnuökuþór, en líf hans snýst um kappakstur og kapp- akstursbíla. Fyrst eru Enzo og Dennis bara einir en svo kemur Eva inn í líf þeirra og verða hún og Dennis ástfangin. Þau eignast stúlku, Zoë, sem er í miklu uppáhaldi hjá Enzo. Ham- ingjan leikur við fjölskylduna þangað til Eva fær sjúkdóm sem Enzo skynjar áður en hún uppgötvar hann. Þegar upp kemst um veikindi Evu fer lífið á annan endann hjá litlu fjölskyldunni og Dennis á ekki sjö daga sæla, Enzo reynir að gera honum lífið bærilegt og tekur þátt í sorginni með eiganda sínum. Söguna segir Enzo okkur þegar hann er orðinn gamall og veikburða og veit að komið er að leiðarlokum. Hann rifjar upp líf sitt hjá þessari ágætu fjölskyldu, frá því hann var hvolpur og fram á síðasta dag. Það háir Enzo helst að hann er hundur og kemur það oft fram í sög- unni, að hann getur ekki bjargað málunum því hann talar ekki manna- mál, skrifar ekki og hefur ekki hend- ur til að opna dyr. Hann getur ekki gert sig auðveldlega skiljanlegan á annan hátt en hundar geta. Það er eins og höfundurinn, Garth Stein, fái ekki nóg af því að tyggja ofan í les- andann að Enzo sé hundur og hundar geti ekki talað, eins og les- andinn geti ekki sagt sér það sjálfur eftir að komið er í ljós að sagan er sögð út frá sjónarhóli hunds. Dennis og Enzo hafa mjög gaman af formúlukappakstri og horfa mikið á slíkt saman í sjónvarpinu. Enzo er uppfullur af kappakstursáhuga og líkir oft lífinu við kappakstur. Það koma heilu kaflarnir þar sem hann notar kappakstursfræðin til að út- skýra lífið. Þeir sem lesa þessa bók þurfa því að hafa áhuga á hundum, kappakstri og dramatík. Vissulega er þetta hjartnæm saga sem fær eflaust marga til að tárfella en hún fer líka stundum svo yfir strikið í tilfinningunum að hún er varla lesandi. Þeim sem trúa því ekki að hundar hafi mannshuga á líklega eftir að finnast þessi bók ótrúverðug á köflum. Það hefur verið í tísku undanfarið að segja sögur út frá sjónarhorni dýra, Enzo er ekkert einsdæmi. En mér finnst Stein ekki takast vel upp með að blanda saman fjölskyldusög- unni og kappakstri, auk þess að hann smyr söguna með svo mikilli dramatík og tilfinningum að manni þykir nóg um. Nú er verið að kvik- mynda söguna um Enzo og ef mynd- in verður eitthvað í líkingu við bók- ina þarf annaðhvort að mæta með bunka af snýtupappír eða gubbudall í bíó. Hundur, kappakstur og dramatík Kilja Enzo – Garth Stein bmnnn Bókaútgáfan Tindur INGVELDUR GEIRSDÓTTIR BÆKUR Jóhann Friðgeir Valdimarsson er gestur á hádeg- istónleikum ungra einsöngv- ara í Íslensku óp- erunni í dag, þriðjudag. Hefj- ast tónleikarnir klukkan 12.15. Efnisskrá þessara hádeg- istónleika verður í dramatískara lagi, en á þeim verða fluttar aríur og samsöngvar úr óperum eftir Verdi, Mascagni, Puccini og Bizet, þar á meðal Blómaarían úr Carmen og Un di felice úr La traviata. Á undanförnum árum hefur Jó- hann Friðgeir sungið mörg stór hlutverk við Íslensku óperuna, m.a. Hertogann í Rigoletto, Turiddu í Cavalleria Rusticana, Canio í I Pagliacci og Alfredo í La traviata. Aðrir flytjendur eru að venju úr röðum ungra íslenskra einsöngv- ara; þau Egill Árni Pálsson, Gréta Hergils Valdimarsdóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Jóhanna Héðinsdóttir og Magnús Guðmundsson. Antonía Heversí leikur á píanó og sér Sibylle Köll um sviðsetningu atriðanna. Rósa Magnús- dóttir, lektor í rússneskri sagn- fræði við Háskól- ann í Árósum í Danmörku, flytur í dag fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðinga- félags Íslands, Hvað er kynja- saga? Nefnir hún fyrirlesturinn Þóra og Kristinn: Ævisaga – hjónasaga – kynslóðasaga – kynjasaga? Í fyrirlestrinum fjallar Þóra um ævisögu hjónanna Þóru Vigfús- dóttur og Kristins E. Andréssonar í ljósi sambands þeirra við sjálfstæð- isbaráttu Íslendinga, kvennabarátt- una, kommúnismann, Sovétríkin og alþjóðahyggjuna. Fjallar Rósa um sögu hjónanna og mögulegar að- ferðir við nálgun hennar. Fyrirlesturinn verður í Þjóð- minjasafninu og hefst kl. 12.05. Saga Krist- ins og Þóru Rósa Magnúsdóttir Myndröð pólska ljósmyndarans Adam Pañczuks, sem er hluti sýn- ingarinnar (Ei)land eða IS(not), sem opnaði í Hofi á Akureyri í lið- inni viku, hlaut önnur verðlaun sem „porterttmyndröð ársins“ í einni virtustu ljósmyndasamkeppni sam- tímans, Picture of the Year Int- ernational (POY). Myndröðina, sem kallast „Hidden People“, tók Pañc- zuk hér á landi og vann með texta Sindra Freyssonar rithöfundar. Sýna myndirnar Íslendinga sem tengjast huldufólks- og álfatrú á ýmsan hátt. Í verkefninu (Ei)land tóku fimm ungir pólskir ljósmyndarar höndum saman við fimm íslenska rithöfunda og unnu að verkefnum hér á landi. Afraksturinn er kominn út í veg- legri bók. Settar verða upp þrjár sýningar á verkefninu hér á landi og þrjár í Póllandi; á eftir Hofi verður sýningin sett upp í Gerðu- bergi í Reykjavík og síðan í Lista- safni Árnesinga. Í verðlaunaröðinni eru sjö ljós- myndir af viðmælendum Sindra og Pañczuks í íslenskri náttúru. Huldufólksmynd- ir verðlaunaðar  Myndröð Pañczuks valin önnur besta Ljósmynd/Adam Pañczuk Ein verðlaunamyndanna Á þessari mynd Pañczuks má sjá Sigurlaugu Dagsdótur í óræðu umhverfi en fyrirsæturnar eru allar úti í náttúrunni. Verðlaunaraðirnar í portrettflokki POY má sjá á slóðinni www.poyi.org/68/15/ Jóhann Friðgeir gestur  Drama í hádeginu í Íslensku óperunni Jóhann Friðgeir Valdimarsson 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Þri 22/2 kl. 20:00 forsýn Sun 6/3 kl. 20:00 5.k Fös 25/3 kl. 22:00 aukasýn Mið 23/2 kl. 20:00 forsýn Þri 8/3 kl. 20:00 aukasýn Lau 26/3 kl. 19:00 12.k Fim 24/2 kl. 20:00 forsýn Mið 9/3 kl. 20:00 6.k Fös 1/4 kl. 19:00 Fös 25/2 kl. 20:00 frumsýn Fös 11/3 kl. 19:00 7.k Lau 2/4 kl. 19:00 Lau 26/2 kl. 19:00 2.k Fös 11/3 kl. 22:00 aukasýn Sun 3/4 kl. 20:00 Þri 1/3 kl. 20:00 aukasýn Mið 16/3 kl. 20:00 8.k Fim 7/4 kl. 20:00 Mið 2/3 kl. 20:00 3.k Fim 17/3 kl. 20:00 9.k Lau 9/4 kl. 19:00 Fös 4/3 kl. 19:00 4.k Fös 18/3 kl. 19:00 10.k Sun 10/4 kl. 20:00 Fös 4/3 kl. 22:00 aukasýn Fös 18/3 kl. 22:00 ný aukas Sun 17/4 kl. 20:00 Lau 5/3 kl. 19:00 aukasýn Fim 24/3 kl. 20:00 11.k Lau 5/3 kl. 22:00 aukasýn Fös 25/3 kl. 19:00 aukasýn Tveggja tíma hláturskast...með hléi Ofviðrið (Stóra sviðið) Fim 3/3 kl. 20:00 Fim 10/3 kl. 20:00 Sun 13/3 kl. 20:00 Ástir, átök og leiftrandi húmor Fjölskyldan (Stóra svið) Sun 27/2 kl. 19:00 aukasýn Sun 20/3 kl. 19:00 aukasýn Fim 31/3 kl. 19:00 lokasýn Lau 12/3 kl. 19:00 aukasýn Sun 27/3 kl. 19:00 aukasýn Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar. Allra síðustu sýningar! Afinn (Litla sviðið) Sun 27/2 kl. 20:00 Lau 19/3 kl. 19:00 Óumflýjanlegt framhald Pabbans. Sýnt á Stóra sviðinu í mars Nýdönsk í nánd (Litla svið) Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 20:00 6.k Lau 26/2 kl. 19:30 Fim 24/2 kl. 20:00 5.k Fös 25/2 kl. 22:00 Lau 26/2 kl. 22:00 Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Sun 27/2 kl. 12:00 Sun 27/2 kl. 14:00 Bestu vinkonur allra barna NEI RÁÐHERRA! - Frumsýning á föstudag Ath. Sýningar hefjast kl. 19:00 Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200 Mbl, GSP ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Karlakórinn Heimir Skagafirði í Njarðvíkurkirkju föstudaginn 25. febrúar kl. 20:30 í Langholtskirkju laugardaginn 26. febrúar kl. 15:00 Forsala á tónleikana í Langholtskirkju er hjá Eymundsson í Kringlunni Helga Rós Indriðadóttir STJÓRNANDI Thomas R. Higgerson PÍANÓ Jón Þorsteinn Reynisson HARMONIKA Efnisskrá fjölbreytt að vanda, þekktar karlakóraperlur, óperukórar, ástarkvæði og hestavísur. Einnig flytur Jón Þorsteinn nokkur sígild verk gömlu meistaranna. www.heimir.is N Ý PR EN T eh f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.