Morgunblaðið - 15.03.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Tæki færi
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Glæsilegar vörur nú
á Tækifærisverði.
Komdu í heimsókn
og gerðu góð kaup.
Brandugla gerði sig heimakomna
við íbúðarhús á Seltjarnarnesi á
sunnudaginn var. Ólafur Gylfi
Gylfason, flugstjóri hjá Icelandair,
sagðist hafa litið út um gluggann
og séð ugluna. Hann fór út á verönd
og náði meðfylgjandi mynd. Þegar
hann fór nær til að taka mynd tók
uglan flugið og sveif stuttan spöl yf-
ir í næstu götu. Ólafur taldi að ugl-
an hefði setið á girðingunni hjá
honum í um tvo klukkutíma.
Það vakti athygli flugstjórans,
sem jafnframt er flugáhugamaður,
hvað vænghaf uglunnar var mikið
og vængirnir flottir.
Yann Kolbeinsson, líffræðingur
og fuglaáhugamaður, sagði fremur
sjaldgæft að sjá branduglu á opnu
svæði í þéttbýli um hábjartan dag
að vetri til. Hann sagði algengara
að rekast á branduglur í trjálund-
um á veturna. Þær velja gjarnan
þétt greni fyrir svefnstað og falla
vel inn í þann bakgrunn. Brandugla
er eina uglan sem verpir að stað-
aldri á Íslandi. gudni@mbl.is
Brandugla
brá sér í
bæjarferð
Ljósmynd/Ólafur Gylfi Gylfason
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@mbl.is
Tillaga um stjórnlagaráð var af-
greidd af meirihluta allsherjarnefnd-
ar Alþingis í gær. Gert er ráð fyrir að
Alþingi skipi þau 25 sem efst urðu í
kosningum til stjórnlagaþings í sér-
stakt stjórnlagaráð sem semji frum-
varp að nýrri stjórnarskrá.
Í nefndaráliti meirihlutans er m.a.
lagt til að bætt verði við ákvæði um
að stjórnlagaráð kjósi formann úr
sínum hópi, sem beri ábyrgð á fjár-
reiðum stjórnlagaráðs gagnvart Al-
þingi. Einnig leggur meirihlutinn til
að fundir ráðsins verði opnir en það
sé mikilvægt þegar litið sé til þess
sjónarmiðs sem leggja átti til grund-
vallar endurskoðun stjórnarskrár-
innar, þ.e. að almenningur geti fylgst
með vinnu stjórnlagaráðs. Þá er lagt
til að undirbúningsnefndin gangi frá
skipan stjórnlagaráðsins og sjái
ráðinu fyrir starfsaðstöðu, starfsliði
og nauðsynlegri sérfræðiaðstoð.
Einnig að fulltrúar í stjórnlagaráði
njóti launa sem samsvara þingfarar-
kaupi alþingismanna og að formaður
ráðsins njóti samsvarandi launa og
forseti Alþingis. Meirihlutinn leggur
einnig til að starfsreglur stjórnlaga-
ráðs þurfi ekki staðfestingu forseta
Alþingis heldur fari ráðið með það
hlutverk sjálft.
Minnihluti allsherjarnefndar,
fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks, eru sem fyrr andvígir
tillögunni um stjórnlagaráð en Þór
Saari áheyrnarfulltrúi samþykkti
nefndarálitið. Seinni umræða um
stjórnlagaráð fer fram á Alþingi síð-
ar í vikunni.
Fundir stjórnlagaráðs
verði opnir almenningi
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnlagaráð Hæstiréttur Íslands
ógilti kjör til stjórnlagaþings.
Breytingatillögur um stjórnlagaráð frá allsherjarnefnd
Flutningabíll fauk á hliðina á Borg-
arfjarðarbrú í gærmorgun. Bílstjór-
inn slapp ómeiddur en ekki var hægt
að fjarlægja bílinn af brúnni fyrr en
tók að lægja og voru kranar komnir
út á brúna til að hífa bílinn í gær-
kvöld þegar blaðið fór í prentun.
Víða var óveður í gær, á norð-
anverðu Snæfellsnesi, á Bröttu-
brekku og Holtavörðuheiði og illfært
vegna veðurs um Hellisheiði, í
Svínahrauni og á Reykjanesbraut.
Spáð er sunnan- og suðvestanátt í
dag, 15-23 m/s og verður hvassast
allra austast og norðvestantil á land-
inu. Rafmagnslaust varð í Dala-
byggð og á Vestfjörðum um kvöld-
matarleytið í gær, vegna bilunar í
línu. Unnið var að því að koma á
varatengingu við Búðardal þegar
blaðið fór í prentun. Ljósleiðari Mílu
á Suðurlandi fór í sundur milli Víkur
og Kirkjubæjarklausturs. Það veld-
ur truflunum á fjarskiptaþjónustu
og útsendingum sjónvarps og út-
varps á svæðinu.
Enn á
brúnni í
gærkvöldi
Víða óveður og
rafmagnsbilanir
Valt Veðurhæðin var slík að bíllinn
lagðist á hliðina á brúnni.
Lára V. Júlíusdóttir, settur ríkis-
saksóknari í máli níumenninganna
svokölluðu, hefur ákveðið að áfrýja
ekki dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
í málinu.
Í dómi héraðsdóms fengu tveir
skilorðsbundna dóma, annars vegar
í fjóra mánuði og hins vegar sextíu
daga. Tvær konur voru einnig sekt-
aðar. Aðrir voru sýknaðir.
Þá sagði í dómnum að ekkert hefði
komið fram sem benti til þess að
fólkið hefði sammælst um að gera
árás á Alþingi þannig að sjálfræði
þess hefði verið hætta búin, en að
því laut alvarlegasta ákæruatriðið.
Mun ekki
áfrýja dómi
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er
að rannsaka tilkynningar um menn
sem undanfarið hafa reynt að lokka
börn upp í bíla. Undanfarið hafa bor-
ist nokkrar slíkar tilkynningar. Full-
nægjandi skýring fannst á einni
þeirra en hinar eru í rannsókn.
Björgvin Björgvinsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn sagði að verið væri
að safna upplýsingum um málin. All-
ir lögreglumenn sem væru á ferðinni
um höfuðborgarsvæðið hefðu fengið
lýsingar á bílum og meintum gerend-
um í þessum tilvikum og mundu hafa
augun hjá sér. Hann sagði að lýsing-
in á svörtum bíl og mönnum í honum
væri áþekk í tveimur tilvikanna. Því
væri ekki útilokað að um sama bíl og
menn væri að ræða.
Nýjasta tilvikið var við Húsaskóla
í Grafarvogi á föstudaginn var.
Ókunnugir menn á svörtum bíl buðu
þá ungum dreng að skoða Legó í bíl
þeirra. Hann afþakkaði boðið og lét
foreldra sína vita sem gerðu skólan-
um viðvart. Skólayfirvöld sendu for-
eldrum ábendingu vegna málsins. Í
henni sagði m.a. að bíllinn hefði verið
svartur og mennirnir tveir. Annar
þeirra með yfirvaraskegg og mjóan
hökutopp.
Svipuðum bíl og mönnum sem
svipar til lýsingarinnar úr Grafar-
vogi var lýst í Garðabæ í byrjun
þessa mánaðar. Þá reyndu tveir
menn að lokka átta ára dreng upp í
bíl til sín við Stjörnuvöllinn. Þeir
buðust til að sýna drengnum fót-
boltadót.
Reynt að lokka stúlkur
Einnig var tilkynnt um atvik í
Hafnarfirði og Breiðholti í síðustu
viku þar sem reynt var að lokka ung-
ar stúlkur upp í bíl með dökkum rúð-
um. Stúlkurnar sem voru á Suður-
götu í Hafnarfirði voru um átta ára
en stúlkan í Breiðholti á unglings-
aldri. Þá var tilkynnt atvik við Laug-
ardalshöll þar sem dreng var boðið
upp í bíl.
Í tilvikinu við Laugardalshöll náð-
ist bílnúmer. Þegar málið var kannað
fékkst eðlileg skýring á því að dreng
var boðið þar upp í bíl. Maður sem
var að sækja syni sína á íþróttaæf-
ingu og var með þá í bílnum bauð
ókunnugum dreng far vegna þess
hvað veðrið var vont.
Lögreglan leitar manna sem
reyndu að lokka börn í bíla
Nokkrar tilkynningar hafa borist lögreglu um menn sem reyna að blekkja börn
Morgunblaðið/Heiðar Kristjánsson
Varúð Börn verða fyrir því að full-
orðnir reyni að tæla þau upp í bíl.
Aldrei í bíl ókunnugra
» Mikilvægt er að brýna fyrir
börnum, strax við 4-5 ára ald-
ur, að þau eiga aldrei að fara
upp í bíl hjá ókunnugum.
» Vara á börn við hættum sem
geta falist í samskiptum við
ókunnuga.
» Fræðslan á ekki að vera
þannig að hún veki óþarfa ótta
hjá barninu.