Morgunblaðið - 15.03.2011, Side 12
verði þó að passa sig á gjám og
grjóti á leiðinni.
„Ég kom hingað fyrir tveimur vik-
um og hef fylgst með vindinum.
Hann breytist æði hratt og það get-
ur orðið ótrúlega hvasst.“
Hundrað kílómetra hraði
Snjódrekamenn eru þannig búnir
að þeir eru bundnir við fallhlíf og eru
knúnir áfram af vindorkunni. Je-
rome er meðal fremstu manna í
greininni og heimsmethafi. Hann
hefur svifið hæst manna á snjódrek-
anum, í 450 metra hæð.
Jerome fer afar hratt á snjódrek-
anum. „Metið mitt er um 100 km á
klukkustund. Það er verulega hratt.
Ég fer yfirleitt á 20 til 40 km hraða.
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Frakkinn Jerome Josserand er
staddur hér á landi ásamt kvik-
myndagerðarmönnum. Jerome er
þekktur fyrir afrek sín á svoköll-
uðum snjódreka, eða snowkite.
Til stóð að Jerome færi frá Akur-
eyri til Mýrdalsjökuls á snjódrek-
anum síðasta fimmtudag, fyrstur
manna. Um leið átti að kvikmynda
afrekið. Jerome hefur hins vegar
ekki getað lagt af stað enn, sökum
slæms veðurs.
Ferðalagið tekur átta til tíu
klukkustundir á snjódrekanum, í
hægstæðum vindi. Jerome og kvik-
myndagerðarmennirnir hafa verið
hér á landi í rúmar tvær vikur að
bíða eftir rétta tækifærinu. Nú
stefnir hópurinn að því að leggja af
stað á föstudag. Þá mun Jerome
leggja af stað frá Mýrdalsjökli og
fara þaðan til Akureyrar, en ekki öf-
ugt, því þá er spáð sunnanátt. Vind-
urinn skiptir höfuðmáli í íþróttinni.
Hagstæðar aðstæður
Þetta er í annað sinn sem Jerome
kemur til Íslands til að iðka sína
íþrótt. Hann segir að aðstæður á há-
lendinu séu kjörnar fyrir snjódrek-
ann.
„Landslagið er ekki erfitt viður-
eignar því það er flatt og lítið um
mikla bratta. Vandræðin tengjast
helst vindinum og veðrinu,“ segir
Jerome. Frakkinn segir að hann
Það er meðalhraðinn minn á snjó-
drekanum.“
Jerome kveðst ekkert þurfa að
óttast. „Þetta er ekki hættulegt. Ef
þú virðir reglurnar þá er þetta ekki
hættulegt. En ef það er hvasst, ef
það eru miklir klettaveggir eða grjót
í landslaginu, þá getur þetta orðið
hættulegt. En ef þú undirbýrð þig,
þá verður allt í lagi.“
Hópurinn ekki farinn bugast
Um tuttugu manna teymi vinnur
að verkefninu með Jerome hér á
landi. Eru þar með taldir bæði hinir
erlendu kvikmyndagerðarmenn og
íslenskir aðstoðarmenn sem verða
innan handar ef eitthvað kemur upp
á.
Erik Kapfer, framleiðandi kvik-
myndarinnar, segir að hópurinn sé
ekki að bugast vegna tafarinnar.
„Það er hugur í Íslendingum og
það þarf meira en vont veður til að
brjóta hann niður. Við útlending-
arnir fylgjum þeirra fordæmi. Það
er mikill baráttuhugur í hópnum –
við trúum enn að við getum þetta og
það gerir Jerome líka,“ segir fram-
leiðandinn.
Ljósmynd/Marco Stoppato & Amanda Ronzoni
Gefast ekki upp „Það er mikill baráttuhugur í hópnum – við trúum enn að við getum þetta og það gerir Jerome líka,“ segir framleiðandinn, Erik Kapfer.
Snjódrekamaður bíður betra veðurs
Jerome Josserand hyggst fara á snjódreka frá Mýrdalsjökli til Akureyrar
á einum degi Tuttugu manna teymi lætur tafir vegna veðurs ekki á sig fá
Ofurhugi Jerome Josserand er meðal fremstu manna í greininni og heimsmethafi. Hann getur farið á allt að 100
kílómetra hraða og hefur svifið hæst manna á snjódrekanum, í 450 metra hæð.
12 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011
Afkoma Faxaflóahafna sf. árið 2010
var nokkru betri en ráð var gert fyr-
ir í fjárhagsáætlun.
Rekstrartekjur Faxaflóahafna sf.
árið 2010 voru kr. 2.317.838.357 sem
er 4,5% hækkun tekna á milli ára.
Tekjuspá í fjárhagsáætlun ársins
var nokkru varlegri en í heild voru
tekjur 82,8 mkr. umfram áætlun eða
3,7%. Rekstrargjöld Faxaflóahafna
sf. árið 2010 voru kr. 2.014.619.242
og hækka að krónutölu á milli ára
um 11.0 mkr. eða um 0,5%.
Frávikið frá fjárhagsáætlun árs-
ins var 16,8 milljónir eða sem nemur
0,8%. Að teknu tilliti til fjármunaliða
er rekstrarhagnaður ársins 2010
alls 269,8 mkr. sem er 138,8 mkr.
hagstæðari niðurstaða en gert var
ráð fyrir í fjárhagsáætlun og 165,9
mkr. hagstæðari niðurstaða en árið
2009.
Morgunblaðið/Ásdís
Sundahöfn Tekjur umfram áætlun.
Betri afkoma
Lögreglan hefur að undanförnu
fengið margar ábendingar þess
efnis að ökumenn hafi ekið á
móti rauðu ljósi á gatnamótum á
Reykjavíkursvæðinu.
Lögreglan tekur þessar ábend-
ingar alvarlega og mun á næstu
vikum leggja sérstaka áherslu á
eftirlit við ljósastýrð gatnamót.
Þá mun lögreglan fylgjast með
því að stöðvunarskylda á gatna-
mótum sé virt.
Þá vill lögreglan benda öku-
mönnum á þá miklu hættu sem af
brotum sem þessum stafar og
hvetur til aðgæslu að þessu leyti
sem öðru. Ökumenn sem gerast
brotlegir mega eiga von á sekt-
um.
Stórhert eftirlit við
umferðarljós
Í dag, þriðjudag, mun Freyja H.
Ómarsdóttir halda fyrirlestur í
Þjóðminjasafni Íslands um höfða-
letur. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05.
Aðgangur er ókeypis.
Höfðaletur er séríslensk skraut-
leturgerð, alþýðulist sem notuð var
í áletrunum, mest á hversdagshluti.
Þótt margir þekki útlit höfðaleturs
er hefðin að miklu leyti horfin eða
stöðnuð. Að erindinu loknu býðst
gestum að skoða sýningu á kistlum
sem skornir eru höfðaletri, en hún
stendur yfir á 3. hæð safnsins.
Höfðaletur
STUTT
Skannaðu kóðann
og sjáðu myndskeið
um ferðalag ofur-
hugans Jerome
Josserand á mbl.is.
Háskólinn á Hólum
auglýsir eftirfarandi
hross til sölu:
1. Ögri IS2000158308 frá Hólum.
F: Markús f. Langholtspart
M: Þokkabót f. Hólum
Keppnishestur.
2. Brekka IS2004258316 frá Hólum.
F: Rökkvi f. Hárlaugsstöðum
M: Björk f. Hólum
Reiðhross, ósýnd.
Skrifleg tilboð þurfa að berast skrifstofu skólans í síðasta lagi
28. mars nk. Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum.
Frekari upplýsingar á sveinn@holar.is.
Úkraínski stórmeistarinn Yuriy Kuzubov er enn í efsta
sæti á MP Reykjavíkurskákmótinu með 6 vinninga en
hann gerði jafntefli við stigahæsta keppanda mótsins,
Englendinginn Luke McShane, í 7. umferð mótsins í
gærkvöldi. Að minnsta kosti átta skákmenn koma í hum-
átt á eftir Kuzubov með 5½ vinning. Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Sigurður Daði Sigfússon eru efstir íslensku
skákmannanna með 5 vinninga hvor.
Þá fór fram hraðskákeinvígi í gær til minningar um
Inga R. Jóhannsson í húsakynnum Deloitte þar sem Ingi
starfaði. Bosníski stórmeistarinn Ivan Sokolov lagði þar
Helga Ólafsson 3-1. Erlingur Tómasson, skákmeistari
Deloitte, lék opnunarleikinn fyrir Helga sem bað Erling
að hefja skákina á „enska leiknum“. Ekki vildi betur til
en svo að Erlingur greip F peðið og lék því fram, sem
vakti mikla kátínu skákmeistaranna.
Kuzubov enn efstur á mótinu
Ivan Solokov lagði Helga Ólafsson í hraðskákeinvígi
Morgunblaðið/Ómar
Skák Erlingur fékk að taka rangan byrjunarleik til
baka og hóf skákina fyrir Helga á réttum leik.