Morgunblaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um 5.900 manns eru taldir af eða
þeirra er saknað eftir risaskjálftann
í Japan á föstudag, eftir að um 1.000
lík fundust í Miyagi-héraði í gær. Í
gærkvöldi að íslenskum tíma var
2.369 enn formlega saknað, að því er
fréttavefurinn Kyodo News hafði
eftir japönsku lögreglunni.
Óttast er að tala látinna eigi eft-
ir að hækka verulega en sami vefur
hafði eftir sveitarstjórnum á ham-
farasvæðinu að ekki hefði tekist að
hafa uppi á allt að 30.000 manns,
tæpum fjórum sólarhringum eftir að
skjálftinn reið yfir. Hafa ber í huga
að allir innviðir eru í rúst og eiga
björgunarmenn því enn von um að
finna fólk á lífi sem hvorki hefur
komist lönd né strönd þar sem brak
og rústir hamla för.
Til að bæta gráu ofan á svart
syrti enn í álinn við Fukushima Daii-
chi-kjarnorkuverið í gær þegar
þriðji kjarnakljúfurinn tók að of-
hitna vegna bilaðs kælibúnaðar.
Ofhitnun veldur ótta
Fyrr um daginn varð sprenging
í kjarnakljúfi 3 í verinu en hún fylgdi
í kjölfar sprengingar í kljúfi 1 á laug-
ardag. Ellefu slösuðust í sprenging-
unni, þar af einn alvarlega. Var ótt-
ast að eldsneytisstangir í kljúfi
númer 2 gætu ofhitnað og brætt úr
sér vegna skorts á kælivatni.
Aðspurður hvort tilefni sé til að
hafa áhyggjur af atburðarásinni í
verinu segir Sigurður Emil Pálsson,
viðbúnaðarstjóri hjá Geislavörnum
ríkisins, að atburðir gærdagsins hafi
ekki breytt því stöðumati að útilokað
sé að eitthvað í líkingu við Tsjerno-
byl-slysið endurtaki sig, jafnvel eftir
atburðina í gær.
Hann segir verstu hugsanlegu
afleiðingarnar þær ef stangirnar
bræði úr sér og geislavirk úrgangs-
efni berist frá verinu. Bráðnunin
þurfi að vera svo mikil að hún leiði til
þess að hylki utan um kjarnakljúfinn
rofni. Þá hafi verið slökkt á kjarna-
kljúfunum síðan skjálftinn reið yfir
og því fari magn geislavirkra efna í
þeim ört minnkandi.
100
m 4
3
2
1
10 km
Okuma
Kjarnakljúfar
5 og 6 eru ekki
sýndir hér.
Heimild: Reuters *Skammstöfunin TEPCO stendur fyrir Tokyo Electric Power Company
Fukushima
Tókýó
Skjálftamiðja
JAPAN
Raforkuver
Kjarnakljúfur
Fukushima Daini-
kjarnorkuverið
Fukushima Daiichi-
kjarnorkuverið
Joban-
hraðbrautin
Kyrra-
hafið
Kyrrahafið
10 km
rýmingar-
svæði
20 km
rýmingar-
svæði
MÁNUDAGUR 11.11 Japanskir fjöl-
miðlar greina frá því að reykur stígi
upp frá kjarnakljúfi 3. Stjórnvöld
staðfesta síðar að vetnissprenging
hafi orðið í verinu. 14.40 Fram kemur í
japönskum fjölmiðlum að kæli-
búnaður í kljúfi 2 hafi bilað.
SUNNUDAGUR
Um 110.000 manns er gert
að yfirgefa heimili sín í 20 km
radíus í kringum kjarnorkuverið.
23.37 Sjó er dælt inn í kjarnakljúfa númer 1
og 3 til að kæla þá og draga úr þrýstingi inni í
kjarnakljúfshylkinu. Raforkufyrirtækið TEPCO
undirbýr að dæla sjó í kjarnakljúfi 2.
LAUGARDAGUR
10.07 Raforkufyrirtækið TEPCO
byrjar að draga úr þrýstingi við
kjarnakljúf 1 í verinu.
17.47 Staðfest að sprenging
hefur orðið í kljúf 1 og að
geislavirk efni leki þaðan.
Síðar var staðfest að hluti
steinsteypts turns yfir einingunni
hefði hrunið en kjarnakljúfurinn
væri óskemmdur.
20.43 TEPCO undirbýr að fylla
kljúfinn sem lekur af sjó og
bórsýru til að kæla hann og draga
úr þrýstingi í einingunni.
FÖSTUDAGUR 19.46 Japans-
stjórn upplýsir að kælibúnaður við
Fukushima Daiichi-kjarnorkuverið
virki ekki sem skyldi. Verið, sem er
rekið af TEPCO,* er á norðaustur-
ströndinni og á svæði sem fór einna
verst út úr hamförunum.
21.55 Stjórnvöld staðfesta
að geislavirk efni leki
frá einum af
kjarnakljúf-
unum sex.
Kjarnakljúfur 1
Steyptur turn yfir
kljúfnum brast
Kjarnakljúfur 2
Allt kapp var lagt á
að kæla hann í gær
Kjarnakljúfur 3
Steyptur turn yfir
kljúfnum er ónýtur en
kljúfshylkið er óskemmt
FUKUSHIMA DAIICHI-
KJARNORKUVERIÐ
Miðað er við staðartíma (+ 9 tímar miðað við Ísland)
Óvíst um afdrif 30.000
manns á skjálftasvæðinu
Ekki talin mikil hætta af kjarnorkuverinu í Fukushima
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Líkur eru á að eignatjón vegna jarð-
skjálftans í Japan síðastliðinn föstu-
dag muni þegar upp er staðið reyn-
ast meira en þegar fellibylurinn
Katrína reið yfir Mexíkóflóa og
borgina New Orleans í ágústmánuði
2005 og olli tjóni sem áætlað var
8.224 milljarðar króna á gengi
bandaríkjadals í gær.
Óvissan er veruleg
Það er hugbúnaðar- og ráð-
gjafarfyrirtækið AIR Worldwide
sem hefur áætlað eignatjónið í Japan
en eins og sjá má hér til hliðar er það
metið á 1.675 til 3.997 milljarða kr.
Það eru veruleg skekkjumörk
og skýrist það af því að umfang ham-
faranna er ekki að fullu komið fram.
Fram kemur í stöðuskýrslu um
skjálftasvæðið á vef fyrirtækisins að
þótt tjón af völdum flóðbylgjunnar
sé ekki tekið með beri að hafa í huga
að hluti mannvirkja sem eyðilögðust
í skjálftanum og eldsvoðum sem hon-
um fylgdu hafi einnig farið illa út úr
flóðbylgjunni. Því geti það leitt til
tvítalningar í mörgum tilfellum að
bæta tjóni af völdum flóðsins við.
Ónýtir munir og vörur
Á hinn bóginn segir þar að bú-
ast megi við miklu tjóni á innan-
stokksmunum og öðrum búnaði sem
tryggður er, þ.m.t. í Tókýó.
Það eignatjón bætist við tjón á
mannvirkjum og samgöngutækjum.
Að viðbættu tjóni vegna flóðsins
gæti heildartalan því hækkað mikið.
Skiptir þúsundum milljarða
Eignatjón af völdum risaskjálftans í Japan gæti farið fram úr tjóninu vegna fellibyljarins Katrínu
Áætlað 1.675 til 3.997 milljarðar króna að frátöldu tjóni vegna flóðbylgjunnar sem skall á ströndinni
Heimildir: Tryggingafyrirtækið Swiss Re, hugbúnaðarfyrirtækið AIR Worldwide
*Bráðabirgðatölur
frá AIR Worldwide.
Taka ekki til tjóns vegna
flóðbylgjunnar eða
óhappa í kjarnorkuverum.
STÓRTJÓN VEGNA NÁTTÚRUHAMFARA
ÁR
$14,5 - $34,6*
$71,2
$24,5
$22,8
$20,3
$19,9
$14,6
$13,8
$11,1
$9,1
ATBURÐUR KOSTNAÐUR (í milljörðum dala)
2005
2011
1992
2001
1994
2008
2004
2005
2005
2004
Fellibylurinn Katrína, BNA
Jarðskjálfti, Japan
Fellibylurinn Andrés, BNA
Árásin 11. september, BNA
Skjálfti í Northridge, BNA
Fellibylurinn Ike, BNA
Fellibylurinn Ívan, BNA
Fellibylurinn Wilma, BNA
Fellibylurinn Ríta, BNA
Fellibylurinn Charley, BNA
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Japan
Bandaríkin
Reuters
Eftir flóðið Fólksbifreið hvílir á
þaki annarrar í Iwate-héraði.
Ung kona virðist buguð af harmi í
borginni Ishimaki. Kannski eru
ættingjar hennar undir brakinu.
Jafnan er dimmast fyrir dögun-
ina og þótt auðvelt sé að láta hug-
fallast mun byggðin rísa á ný.
ÞEGAR ALLT ER FARIÐ STENDUR VONIN EFTIR
Reuters
Eyðileggingin er yfirþyrmandi
Stúlka sem hefur verið einangruð í
bráðabirgðaskýli heilsar hundinum
sínum í gegnum glervegg í borginni
Nihonmatsu í N-Japan.
Í skýlinu er kannað hvort geisla-
virk efni mælist í fólki, það látið þvo
sér hátt og lágt og því haldið í ein-
angrun í einhvern tíma.
Geislun frá kjarnorkuverinu í
Fukushima (sjá kort til hliðar) er
óveruleg en engu að síður hefur
185.000 manns verið gert að yfir-
gefa heimili sín í nágrenninu.
Bandaríkjaher hefur liðsinnt
Japansstjórn við að kæla niður
kjarnorkuverið. Eftir að geisla-
mengun mældist á 17 bandarískum
sjóliðum í gær í um 160 km fjar-
lægð frá verinu var flugmóður-
skipinu USS Ronald Reagan hins
vegar siglt fjær landi, þótt auðvelt
væri að þvo af sér mengunina.
Hvutti horfir hissa
í gegnum glerið
Reuters