Morgunblaðið - 20.06.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Kvenréttindadagurinn var haldinn hátíðlegur á
Árbæjarsafninu í gær, en þar fengu gestir og
gangandi að skyggnast inn í líf 19. aldar kvenna
í öllum stigum þjóðfélagsins. Þar var meðal ann-
ars boðið upp á fræðslu um híbýlahætti í Reykja-
vík á þessum tíma. Margt var um manninn í Ár-
bæjarsafni og fengu konur frítt inn í tilefni
dagsins.
Saga íslenskra kvenna var höfð í forgrunni, en
gestir Árbæjarsafnsins, fengu leiðsögn um svæð-
ið. En kvenréttindadeginum voru gerð góð skil
og rifjað var upp fyrir gestum að á sínum tíma er
Danakonungur samþykkti nýja stjórnarskrá, var
sú breyting gerð að konur fengu fyrst kosninga-
rétt til Alþingis 19. júní 1915. janus@mbl.is
Kvenréttindadeginum fagnað ákaft á Árbæjarsafni í gær
Morgunblaðið/Ernir
Gestir skyggndust inn í líf 19. aldar kvenna
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í sjálfu sér flytur skýrsla hagfræð-
inganna okkur engin ný tíðindi, boð-
skapurinn er samtóna áliti annarra
sem tjáð hafa sig um hugsanlegar
breyingar á því hvernig nýta skuli
auðlindina í hafinu,“ segir Björn Val-
ur Gíslason, þingmaður VG.
Sjávarútvegsráðherra kallaði sex
hagfræðinga til að meta hagræn
áhrif af frumvarpi til nýrra laga um
stjórn fiskveiða. Skýrsla hagfræð-
inganna var kynnt fyrir helgina og
mæla þeir eindregið gegn takmörk-
unum á framsali aflaheimilda og
telja bann við veðsetningu óráðlegt.
Nái boðaðar hugmyndir fram að
ganga muni jafnframt mjög draga úr
arðsemi af rekstri sjávarútvegsfyr-
irtækja, auk þess sem bann við veð-
setningu kvóta komi illa við bank-
ana.
Spurningin er pólitísk
„Sú spurning er pólitísk hvort við
eigum alfarið að stjórna fiskveiðum
eftir hagfræðilegum sjónarmiðum
eða taka fleiri þætti inn í breytuna,“
segir Björn Valur.
„Vissulega þarf sjávarútvegur að
bera sig og skila eðlilegri arðsemi en
við getum ekki alfarið byggt á einni
atvinnugrein í þeirri baráttu að
tryggja byggð í landinu. Þar þarf
fleira að koma til þó að enginn geti
heldur vænst þess að aftur verði róið
eða stunduð fiskvinnsla í hverju
sjávarplássi eins og var.“
Sigurður Ingi Jóhannsson, þing-
maður Framsóknarflokks og fulltrúi
í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd
Alþingis, segir skýrsluna staðfesta
að stjórnarflokkarnir séu á rangri
leið með breytingar á stjórn fisk-
veiða. Kapp sé meira en forsjá. Eðli-
legt hefði verið að doka með tillögur
um víðtækar breytingar uns hag-
fræðileg mælistika hefði verið lögð á
þær hugmyndir sem uppi eru. „Nú
hafa þessar hugmyndir fengið al-
gjöra falleinkunn og hagfræðiskýrsl-
an er áfellisdómur um vinnubrögð-
in,“ segir Sigurður Ingi.
Einar Kr. Guðfinnsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks í sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefnd, segir álit hag-
fræðinga um áhrif kvótabreytinga
rothögg á hugmyndir stjórnarflokk-
anna. Nú skuli stefnan vera sú að
reka sjávarútveg á félagslegum
grundvelli í stað þess að hann sé arð-
bær atvinnugrein. Slíkt muni eðli-
lega draga úr fjárfestingum og leiða
til lægri auðlindagjalda þegar fram í
sækir en þau skila ríkissjóði nú um
þremur milljörðum kr. í tekjur á ári.
„Af hálfu VG er afstaðan augljóslega
á þennan veg enda þótt ekki liggi
fyrir hvort hinn stjórnarflokkurinn
sé á sömu línu,“ segir Einar.
Þarf fleira en hagfræði í breytuna
Skýrsla hagfræðinga um hugsanlegar breytingar á kvótalögum engin ný tíðindi, segir þingmaður VG
Kapp meira en forsjá og áfellisdómur um vinnubrögð ríkisstjórnarinnar, segir framsóknarþingmaður
Björn Valur
Gíslason
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is
Fundað var í húsakynnum ríkis-
sáttasemjara í gær, en þar fór fram
sáttafundur í kjaradeilu flugmanna
og forsvarsmanna Icelandair. Til
næsta fundar er boðað í dag eða á
morgun.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Icelandair, hefur
lítið þokast í deilunni, en hann vonast
til þess að ekki þurfi að komi til yf-
irvinnubanns sem boðað er á föstu-
daginn en eins og Björgúlfur Jó-
hannsson, fostjóri Icelandair,
greindi frá í síðustu viku mun það
hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar
fyrir ferðaþjónustuna í heild sinni.
Fjöldi óleystra mála
Á borði ríkissáttasemjara liggur
fjöldinn allur af óleystum málum og
verður líklega fundað langt fram eft-
ir öllu sumri. Meðal þeirra deiluaðila
sem funda í dag eru flugfreyjur hjá
Icelandair og viðsemjendur þeirra
en eins og áður hefur verið greint frá
hefur Flugfreyjufélag Íslands vísað
deilunni til ríkissáttasemjara. Ekki
hefur verið greint frá neinum áform-
um um verkfallaðgerðir af þeirra
hálfu. Á morgun eru boðaðir fjöl-
margir fundir, m.a. Starfsgreina-
sambandsins, Framsýnar og Kjalar
á Akranesi með viðsemjendum.
Lítið þokast í deilu flug-
manna hjá Icelandair
Yfirvinnubann á
föstudag náist
samningar ekki
Morgunblaðið/Ernir
Ágreiningur Reiknað er með næsta
sáttafundi í dag eða á morgun.
„Eftir fyrstu
fjóra mánuði árs-
ins er jafnvægi
milli útgjalda og
tekna. Sá árang-
ur er góður,“
segir Stein-
grímur J. Sigfús-
son fjár-
málaráðherra.
Hann segir suma
tekjustofna rík-
isins hafa á fyrstu mánuðum árs
skilað meiri tekjum en ráð var fyrir
gert en aðrir minna. Sama megi
segja um útgjöld.
Steingrímur segir að þó að áætl-
anir séu í stórum dráttum að ganga
upp hafi ákveðnir málaflokkar og
rekstur þeirra reynst kostn-
aðarsamari en vænst hafi verið.
Nefnir þar mál á sviði velferð-
arráðuneytis, sérstaklega útgjöld
vegna sjúkratrygginga sem hafi
verið alvarlegasti veikleikaliður
fjárlaga að undanförnu. Einnig
þurfi að mæta tilfallandi verk-
efnum, t.d. í rekstri einstakara
stofnana.
„Svo koma alltaf upp ný viðfangs-
efni sem eru kostnaðarsöm, t.d.
kjarasamningar, náttúruhamfarir
og fleira og við því þarf að bregð-
ast. Fjárlög gerðu ráð fyrir 37 millj-
arða kr. halla í ár sem hefði staðist
kæmu ekki breyttar forsendur til –
fyrst og fremst kjarasamningar.
Við erum þó óumdeilanlega á réttri
leið,“ segir ráðherrann. sbs@mbl.is
Forsendur breyttar
en erum engu að
síður á réttri leið
Steingrímur
J. Sigfússon
„Skýrsla hagfræðinganna er
vinnugagn sem verður lagt á
borðið í þeirri vinnu sem er
framundan. Ég tel samt að nið-
urstaðan sé ekki þannig að
menn þurfi að fara af hjör-
unum,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, fjármálaráðherra og
formaður VG. „Við breytingar á
kvótakerfinu þarf að vega og
meta ýmislegt, t.d. hag-
fræðilega þætti, og finna rétta
jafnvægið í málinu.“
Vega og meta
STEINGRÍMUR J.
Lögreglan handtók karlmann um
hádegi í gær við Grensáskirkju við
Háaleitisbraut. Hann hafði vopnaður
stórum hnífi gengið inn í verslunina
Nóatún í nágrenninu og veist þar að
starfsmönnum og viðskiptavinum.
Þegar lögreglu bar að garði rembd-
ist maðurinn við að reyna að slíta
niður íslenska fánann sem blakti við
hún við Grensáskirkju.
Hann hafði jafnframt stolið nokkr-
um sálmabókum og Nýja testament-
inu úr búð í nágrenninu. Ekki er vit-
að hvað maðurinn ætlaðist
nákvæmlega fyrir eða hvað honum
gekk til. Hann var undir miklum
áhrifum fíkniefna.
Annar karlmaður var handtekinn
á höfuðborgarsvæðinu um svipað
leyti í gær fyrir að veitast að starfs-
manni myndbandaleigu í grennd við
Hlemm. Ekki er vitað hvað kom
manninum úr jafnvægi en lögreglu-
menn þurftu að hlaupa hann uppi.
Hann hafði jafnframt í hótunum
við lögreglumenn og sýndi þeim mót-
þróa. Maðurinn var undir miklum
áhrifum fíkniefna. haa@mbl.is
Vopnaður
stórum hnífi
í Nóatúni
Handtökur Lögreglan handtók tvo
menn undir áhrifum fíkniefna í gær.