Morgunblaðið - 20.06.2011, Side 15

Morgunblaðið - 20.06.2011, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2011 Svamlað saman Andarungar syntu á eftir móður sinni í Seltjörn í gær. Frjósöm vötn eru kjörlendi fyrir andavarp því þar er að finna helstu fæðu þeirra, skordýralirfur og önnur vatnasmádýr. Ernir Minn gamli félagi frá Edinborgarnáms- árum og síðar á Al- þingi, Gunnar Birg- isson, sendir mér áminningarbréf í Morgunblaðinu 4. júní síðastliðinn. Segist hann eiga við mig lít- ilsháttar erindi, áður borið upp í sama blaði: „Ég vil benda þér á, að þú ert þingmaður Suðvesturkjördæmis. Þar bíða mjög aðkallandi verkefni í vegagerð, m.a. Arnarnesvegur, Álftanesvegur, tvö- földun Vestur- og Suðurlandsvegar og ekki má gleyma þriggja ára gam- alli skuld Vegagerðarinnar við Kópavogsbæ vegna byggingar und- irganga undir Reykjanesbraut uppá 320 milljónir ásamt verðbótum …“ Síðan segir Gunnar réttilega að ég horfi nú mjög til strandsiglinga og vegabóta „á fáförnum slóðum“ svo sem á Barðaströnd og Langa- nesi. Í framhaldinu kveðst Gunnar vegna þessara viðhorfa minna vilja minna mig á þarfasta þjóninn, ís- lenska hestinn, enda sé sá flutnings- máti að nýta hesta „aðferð mjög vistvæn“. Gott og vel, hér er gaman og al- vara í bland. Við Gunnar Birgisson höfum ekki verið samherjar í pólitík og fer því nokkuð fjarri – en þó ekki heldur ósammála um allt. Úr mínum vasa og þínum Þannig var að þegar einkavæð- ingarfárið reið yfir á sinni tíð gengu ríki og mörg sveitarfélög í björgin, einkavæddu allt lifandi og dautt sem fyrir þeim varð og settu fram- tíðina í einkaframkvæmd. Það þýddi að einkaaðilum var falið að reisa og reka opinberar stofnanir og op- inberi aðilinn gerður að leiguliða til að skapa aðilum „útí bæ“ arð upp úr vasa skattborgarans, vasa mínum og þínum. Þetta heillaði margan stjórnmálamanninn og viðhlæjendur hjá hinu opinbera. Stjórn- málamenn gátu nú endalaust klippt á borða, opnað skóla og sjúkrahús, fagnað áföngum og sigrum án þess að þess sæi stað í skuldastöðunni. Skuld- irnar hvíldu hjá einka- aðilunum. Ríki og sveitarfélög höfðu hins vegar skuldbundið sig til að greiða leigu langt fram í tímann, oftast í marga áratugi. En það voru loforð, ekki krónur í bókhaldsdálki þótt út- koman væri sú sama (nema nátt- úrlega að einkaframkvæmdin var dýrari, enda leikurinn til þess gerð- ur að framkvæmdaaðilinn fengi arð í sinn vasa). Ágengir stórverktakar En einn lét aldrei blekkjast. Gamli stórverktakinn á bæj- arstjórastólnum í Kópavogi. Hann þekkti glímubrögðin, ýtni og ágengni verktakanna, og að þessu leyti stóð hann betur vaktina fyrir almenning en margir aðrir. Gunnar Birgisson fór ekki í einka- framkvæmd. Þarna reyndist dóm- greind hans rétt og varðstaðan fyrir almenning ótvíræð að þessu leyti. Í ljósi þessa er það stílbrot í mál- flutningnum hjá Gunnari Birgissyni að horfa framhjá bágum fjárhag ríkisins og afgreiða stórfram- kvæmdir sem kosta tugi milljarða eins og hver önnur léttvæg smámál. Staðreyndin er sú að á þensluár- unum vörðum við rúmum þrjátíu milljörðum árlega til samgöngu- mála, þegar mest var, en sú upphæð er nú komin niður í um fimmtán milljarða, þar af eru um sex millj- arðar í nýframkvæmdir. En sex milljarðar eru miklir fjár- munir og skiptir máli hvernig þeim er varið. Þrennt vil ég hafa að leið- arljósi við ráðstöfun þessara fjár- muna. Í fyrsta lagi umferðaröryggi. Í öðru lagi vil ég horfa til hve að- kallandi framkvæmdir eru til að tryggja íbúum lágmarkssamgöngur á þeim stöðum þar sem grunnþarfir hafa ekki enn verið leystar með nú- tímavegum með bundnu slitlagi. Í þriðja lagi vil ég horfa til þess í ljósi aðstæðna á vinnumarkaði, hve mannfrekar framkvæmdirnar eru og fjárfesta í framkvæmdum sem skapa mörg störf. Á þeim árum þegar margir höfðu á tilfinningunni að peningar væru óþrjótandi var farið að skipuleggja vegakerfið eftir því. Tvöfaldir vegir, eða tveir plús tveir eins og það hef- ur verið kallað, voru lausnin þótt allar grannþjóðir okkar horfi til ódýrari lausna á jafnvel fjölmennari svæðum en okkar. Í stað tveir plús tveir vega er nú að nýju farið að tala um tveir plús einn vegi eins og við þekkjum til dæmis í Svínahrauni vestan Hellisheiðarinnar (mættu þó vera ívið breiðari en þar er). Gunn- ar er hins vegar ekki á þessum bux- unum í fyrrgreindum skrifum sín- um. Hann krefst tvöföldunar Suðurlandsvegar og Vesturlands- vegar en nefnir ekki þessa lausn sem er margfalt ódýrari í fram- kvæmd. Um árabil hefur Vegagerð- in unnið jafnt og þétt og markvisst að því að gera vegakerfið öruggara, til dæmis með tvöföldun brúa og ræsa. Nú vill svo til að það eru jafn- framt mannaflafrekustu fram- kvæmdirnar og þess vegna ekki óeðlilegt að horfa til þeirra nú þegar þröngt er í búi. Öryggi og atvinna Ég hef margoft lýst áhuga mínum á að forgangsraða sérstaklega í þágu svæða sem búa við lakastar samgöngur. Það er rétt hjá Gunnari að þar hef ég nefnt Vestfirði sér- staklega. Nýlega ákvað ríkisstjórnin samkvæmt minni tillögu að auka vegafé til Vestjarða á þessu ári um 350 milljónir. Óskað var eftir því við Vegagerðina að fjármununum yrði ráðstafað með öryggi að megin- markmiði en einnig yrði horft til at- vinnusköpunar. Niðurstaðan var sú að ráðist er í að byggja fjórar tví- breiðar brýr í stað einbreiðra gam- alla og hættulegra brúa, annars vegar á Ísafjarðaratvinnusvæðinu og hins vegar á sunnanverðum fjörðunum. Þegar þetta allt er tekið saman má staðhæfa eftirfarandi: Fjár- munir til vegagerðar eru best nýttir – með tilliti til öryggis og atvinnu- sköpunar – með framkvæmdum víða í stað risavaxinna verkefna sem taka tiltölulega skamman tíma, kosta mikið en skapa fá störf. Enda þótt sex milljarðar séu dá- góð upphæð þá vilja margir fá vega- bætur hraðar. Í því samhengi var sett fram sú hugmynd að mynda sérstakar sjálfstæðar rekstrarein- ingar um einstakar framkvæmdir sem yrðu algerlega sjálfbærar í þeim skilningi að notendur borguðu þær með vegatollum. Upphaflega var ég ekki ginnkeyptur fyrir þess- ari hugmynd en tók hana í fangið við komu mína í ráðuneyti sam- göngumála síðastliðið haust og tal- aði fyrir hugmyndinni. Frá því er skemmst að segja að hugmyndin var algerlega töluð í kaf, hvort sem um var að ræða vegatoll á Reykja- nesbraut, Vesturlandsvegi úr Reykjavík að Hvalfjarðargöngum eða á Suðurlandsvegi. Sveit- arstjórnarmenn allra flokka mót- mæltu og Félag íslenskra bifreiða- eigenda afhenti mér yfir fjörutíu þúsund undirskriftir sem söfnuðust á fáeinum dögum. Inn í þetta bland- ast síðan efasemdir margra um tug- milljarða lántökur sem beint eða óbeint yrðu á ábyrgð ríkissjóðs hvernig sem að málum væri staðið hvað varðar skipulagsformið. Opin og heiðarleg umræða Þá ber að hafa í huga að fram- kvæmdir eins og þær sem hér um ræðir eru ekki ýkja mannaflafrekar. Þær koma hins vegar stórum vinnu- vélum á hreyfingu. En þessar vélar verða að sjálfsögðu margar notaðar í vegaframkvæmdum þótt flýtiverk- efnin detti upp fyrir sem slík. Við skulum ekki gleyma milljörðunum á fjárlögum til nýframkvæmda, auk þeirra milljarða sem fara til við- halds og þjónustu við vegakerfið, sem líka kallar á vinnuvélar og framlag verktaka. Auk þess skal minnt á að það eru lítil búhyggindi að láta núverandi vélakost stýra hraða framkvæmda. Þegar flýtiframkvæmdum væri lok- ið þyrfti síðan nýja innspýtingu. Nær væri að vinna áfram að sam- göngubótum á framkvæmdahraða sem er í samræmi við greiðslugetu okkar sem einstaklinga (sbr. vega- tolla) og sem samfélags (samanber skatta) til langs tíma. Það sem nú er frábrugðið í vinnu- brögðum eins og þau tíðkuðust í að- draganda hrunsins er að nú tala menn opinskátt um tvær leiðir til fjármögnunar, skattahækkanir eða vegatolla. Áður var einfaldlega sagt: Við borgum þetta seinna – einhvern veginn. Eftir Ögmund Jónasson »Nær væri að vinna áfram að samgöngubótum á framkvæmdahraða sem er í samræmi við greiðslugetu okkar sem einstaklinga (sbr. vega- tolla) og sem samfélags (samanber skatta) til langs tíma.Ögmundur Jónasson Höfundur er innanríkisráðherra. Gunnar Birgisson, verktakarnir og vegatollarnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.