Morgunblaðið - 20.06.2011, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2011
Svamlað saman Andarungar syntu á eftir móður sinni í Seltjörn í gær. Frjósöm vötn eru kjörlendi fyrir andavarp því þar er að finna helstu fæðu þeirra, skordýralirfur og önnur vatnasmádýr.
Ernir
Minn gamli félagi
frá Edinborgarnáms-
árum og síðar á Al-
þingi, Gunnar Birg-
isson, sendir mér
áminningarbréf í
Morgunblaðinu 4. júní
síðastliðinn. Segist
hann eiga við mig lít-
ilsháttar erindi, áður
borið upp í sama blaði:
„Ég vil benda þér á, að
þú ert þingmaður
Suðvesturkjördæmis. Þar bíða mjög
aðkallandi verkefni í vegagerð, m.a.
Arnarnesvegur, Álftanesvegur, tvö-
földun Vestur- og Suðurlandsvegar
og ekki má gleyma þriggja ára gam-
alli skuld Vegagerðarinnar við
Kópavogsbæ vegna byggingar und-
irganga undir Reykjanesbraut uppá
320 milljónir ásamt verðbótum …“
Síðan segir Gunnar réttilega að
ég horfi nú mjög til strandsiglinga
og vegabóta „á fáförnum slóðum“
svo sem á Barðaströnd og Langa-
nesi. Í framhaldinu kveðst Gunnar
vegna þessara viðhorfa minna vilja
minna mig á þarfasta þjóninn, ís-
lenska hestinn, enda sé sá flutnings-
máti að nýta hesta „aðferð mjög
vistvæn“.
Gott og vel, hér er gaman og al-
vara í bland. Við Gunnar Birgisson
höfum ekki verið samherjar í pólitík
og fer því nokkuð fjarri – en þó ekki
heldur ósammála um allt.
Úr mínum vasa og þínum
Þannig var að þegar einkavæð-
ingarfárið reið yfir á sinni tíð gengu
ríki og mörg sveitarfélög í björgin,
einkavæddu allt lifandi og dautt
sem fyrir þeim varð og settu fram-
tíðina í einkaframkvæmd. Það þýddi
að einkaaðilum var falið að reisa og
reka opinberar stofnanir og op-
inberi aðilinn gerður að leiguliða til
að skapa aðilum „útí bæ“ arð upp úr
vasa skattborgarans,
vasa mínum og þínum.
Þetta heillaði margan
stjórnmálamanninn og
viðhlæjendur hjá hinu
opinbera. Stjórn-
málamenn gátu nú
endalaust klippt á
borða, opnað skóla og
sjúkrahús, fagnað
áföngum og sigrum án
þess að þess sæi stað í
skuldastöðunni. Skuld-
irnar hvíldu hjá einka-
aðilunum. Ríki og
sveitarfélög höfðu hins
vegar skuldbundið sig til að greiða
leigu langt fram í tímann, oftast í
marga áratugi. En það voru loforð,
ekki krónur í bókhaldsdálki þótt út-
koman væri sú sama (nema nátt-
úrlega að einkaframkvæmdin var
dýrari, enda leikurinn til þess gerð-
ur að framkvæmdaaðilinn fengi arð
í sinn vasa).
Ágengir stórverktakar
En einn lét aldrei blekkjast.
Gamli stórverktakinn á bæj-
arstjórastólnum í Kópavogi. Hann
þekkti glímubrögðin, ýtni og
ágengni verktakanna, og að þessu
leyti stóð hann betur vaktina fyrir
almenning en margir aðrir. Gunnar
Birgisson fór ekki í einka-
framkvæmd. Þarna reyndist dóm-
greind hans rétt og varðstaðan fyrir
almenning ótvíræð að þessu leyti.
Í ljósi þessa er það stílbrot í mál-
flutningnum hjá Gunnari Birgissyni
að horfa framhjá bágum fjárhag
ríkisins og afgreiða stórfram-
kvæmdir sem kosta tugi milljarða
eins og hver önnur léttvæg smámál.
Staðreyndin er sú að á þensluár-
unum vörðum við rúmum þrjátíu
milljörðum árlega til samgöngu-
mála, þegar mest var, en sú upphæð
er nú komin niður í um fimmtán
milljarða, þar af eru um sex millj-
arðar í nýframkvæmdir.
En sex milljarðar eru miklir fjár-
munir og skiptir máli hvernig þeim
er varið. Þrennt vil ég hafa að leið-
arljósi við ráðstöfun þessara fjár-
muna. Í fyrsta lagi umferðaröryggi.
Í öðru lagi vil ég horfa til hve að-
kallandi framkvæmdir eru til að
tryggja íbúum lágmarkssamgöngur
á þeim stöðum þar sem grunnþarfir
hafa ekki enn verið leystar með nú-
tímavegum með bundnu slitlagi. Í
þriðja lagi vil ég horfa til þess í ljósi
aðstæðna á vinnumarkaði, hve
mannfrekar framkvæmdirnar eru
og fjárfesta í framkvæmdum sem
skapa mörg störf.
Á þeim árum þegar margir höfðu
á tilfinningunni að peningar væru
óþrjótandi var farið að skipuleggja
vegakerfið eftir því. Tvöfaldir vegir,
eða tveir plús tveir eins og það hef-
ur verið kallað, voru lausnin þótt
allar grannþjóðir okkar horfi til
ódýrari lausna á jafnvel fjölmennari
svæðum en okkar. Í stað tveir plús
tveir vega er nú að nýju farið að
tala um tveir plús einn vegi eins og
við þekkjum til dæmis í Svínahrauni
vestan Hellisheiðarinnar (mættu þó
vera ívið breiðari en þar er). Gunn-
ar er hins vegar ekki á þessum bux-
unum í fyrrgreindum skrifum sín-
um. Hann krefst tvöföldunar
Suðurlandsvegar og Vesturlands-
vegar en nefnir ekki þessa lausn
sem er margfalt ódýrari í fram-
kvæmd. Um árabil hefur Vegagerð-
in unnið jafnt og þétt og markvisst
að því að gera vegakerfið öruggara,
til dæmis með tvöföldun brúa og
ræsa. Nú vill svo til að það eru jafn-
framt mannaflafrekustu fram-
kvæmdirnar og þess vegna ekki
óeðlilegt að horfa til þeirra nú þegar
þröngt er í búi.
Öryggi og atvinna
Ég hef margoft lýst áhuga mínum
á að forgangsraða sérstaklega í
þágu svæða sem búa við lakastar
samgöngur. Það er rétt hjá Gunnari
að þar hef ég nefnt Vestfirði sér-
staklega. Nýlega ákvað ríkisstjórnin
samkvæmt minni tillögu að auka
vegafé til Vestjarða á þessu ári um
350 milljónir. Óskað var eftir því við
Vegagerðina að fjármununum yrði
ráðstafað með öryggi að megin-
markmiði en einnig yrði horft til at-
vinnusköpunar. Niðurstaðan var sú
að ráðist er í að byggja fjórar tví-
breiðar brýr í stað einbreiðra gam-
alla og hættulegra brúa, annars
vegar á Ísafjarðaratvinnusvæðinu
og hins vegar á sunnanverðum
fjörðunum.
Þegar þetta allt er tekið saman
má staðhæfa eftirfarandi: Fjár-
munir til vegagerðar eru best nýttir
– með tilliti til öryggis og atvinnu-
sköpunar – með framkvæmdum
víða í stað risavaxinna verkefna sem
taka tiltölulega skamman tíma,
kosta mikið en skapa fá störf.
Enda þótt sex milljarðar séu dá-
góð upphæð þá vilja margir fá vega-
bætur hraðar. Í því samhengi var
sett fram sú hugmynd að mynda
sérstakar sjálfstæðar rekstrarein-
ingar um einstakar framkvæmdir
sem yrðu algerlega sjálfbærar í
þeim skilningi að notendur borguðu
þær með vegatollum. Upphaflega
var ég ekki ginnkeyptur fyrir þess-
ari hugmynd en tók hana í fangið
við komu mína í ráðuneyti sam-
göngumála síðastliðið haust og tal-
aði fyrir hugmyndinni. Frá því er
skemmst að segja að hugmyndin
var algerlega töluð í kaf, hvort sem
um var að ræða vegatoll á Reykja-
nesbraut, Vesturlandsvegi úr
Reykjavík að Hvalfjarðargöngum
eða á Suðurlandsvegi. Sveit-
arstjórnarmenn allra flokka mót-
mæltu og Félag íslenskra bifreiða-
eigenda afhenti mér yfir fjörutíu
þúsund undirskriftir sem söfnuðust
á fáeinum dögum. Inn í þetta bland-
ast síðan efasemdir margra um tug-
milljarða lántökur sem beint eða
óbeint yrðu á ábyrgð ríkissjóðs
hvernig sem að málum væri staðið
hvað varðar skipulagsformið.
Opin og heiðarleg umræða
Þá ber að hafa í huga að fram-
kvæmdir eins og þær sem hér um
ræðir eru ekki ýkja mannaflafrekar.
Þær koma hins vegar stórum vinnu-
vélum á hreyfingu. En þessar vélar
verða að sjálfsögðu margar notaðar
í vegaframkvæmdum þótt flýtiverk-
efnin detti upp fyrir sem slík. Við
skulum ekki gleyma milljörðunum á
fjárlögum til nýframkvæmda, auk
þeirra milljarða sem fara til við-
halds og þjónustu við vegakerfið,
sem líka kallar á vinnuvélar og
framlag verktaka.
Auk þess skal minnt á að það eru
lítil búhyggindi að láta núverandi
vélakost stýra hraða framkvæmda.
Þegar flýtiframkvæmdum væri lok-
ið þyrfti síðan nýja innspýtingu.
Nær væri að vinna áfram að sam-
göngubótum á framkvæmdahraða
sem er í samræmi við greiðslugetu
okkar sem einstaklinga (sbr. vega-
tolla) og sem samfélags (samanber
skatta) til langs tíma.
Það sem nú er frábrugðið í vinnu-
brögðum eins og þau tíðkuðust í að-
draganda hrunsins er að nú tala
menn opinskátt um tvær leiðir til
fjármögnunar, skattahækkanir eða
vegatolla. Áður var einfaldlega sagt:
Við borgum þetta seinna – einhvern
veginn.
Eftir Ögmund
Jónasson »Nær væri að
vinna áfram að
samgöngubótum á
framkvæmdahraða
sem er í samræmi við
greiðslugetu okkar sem
einstaklinga (sbr. vega-
tolla) og sem samfélags
(samanber skatta)
til langs tíma.Ögmundur Jónasson
Höfundur er innanríkisráðherra.
Gunnar Birgisson, verktakarnir og vegatollarnir