Morgunblaðið - 20.06.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2011
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Stuttmyndadagar í Reykjavík fóru
fram með verðlaunaafhendingu í
síðustu viku og þótti hún heppnast
mjög vel þetta árið. Stutt-
myndadagar í Reykjavík fóru fyrst
fram árið 1992 og hafa frá upphafi
notið vinsælda og þá sérstaklega á
meðal ungs fólks og þeirra sem eru
að stíga sín fyrstu skref í kvik-
myndagerð. Hátíðin er keppni um
bestu stuttmyndina. Hún fór fram
árlega til 2002, en eftir það féll hún
niður til ársins 2007. Síðan þá hef-
ur hún farið árlega fram og segja
aðstandendur að svo muni vera
áfram. Margir af okkar þekktustu
leikstjórum sýndu sín fyrstu verk á
hátíðinni en þar má meðal annarra
nefna Grím Hákonarson, Ragnar
Bragason, Róbert Douglas og Rún-
ar Rúnarsson.
Að sögn Ásgríms Sverrissonar,
framkvæmdastjóra hátíðarinnar,
er almenn ánægja með þessa hátíð.
„Þetta er jafnbesta hátíð sem ég
hef upplifað,“ segir Ásgrímur. „Það
sem við ákváðum að gera var að sía
út það besta og ég held að það sé
að skila góðum árangri. Hér áður
fyrr voru allar myndirnar sýndar.
Kvikmyndaskólinn er líka að vaxa
mikið sem skóli, þannig að það eru
farnar að koma ansi góðar myndir
þaðan. Hann er á réttri leið. Svo er
fólk sem er í öðrum kvikmynda-
skólum að skila sér. Það sem er
skemmtilegt við þessa hátíð er að
þetta er grasrótarhátíð. Gefur
ákveðna vísbendingu um framtíð-
ina. Sigurvegarinn kemst svo með
stuttmyndina sína í Short film cor-
ner á Cannes. Það verður gaman
fyrir sigurvegarann að fara þang-
að, en ég sjálfur ætla ekki að fara
þangað fyrr en þeir rúlla út rauða
dreglinum fyrir mig,“ segir Ás-
grímur og hlær.
Haldin í Bíó Paradís
Tvö kvöld voru lögð undir hátíð-
ina í Bíó Paradís og voru tíu mynd-
ir sýndar fyrsta kvöldið og átta
myndir seinna kvöldið. Gæðin voru
svo sannarlega mikil og má þar
nefna fínar myndir manna eins og
Gunnars Tryggvasonar, The
Magnet, en hann býr í Prag og
gerði mynd sína þar. Þá var María
Þórdís Ólafsdóttir með stór-
skemmtilega ljóðræna mynd á há-
tíðinni þar sem sjónhverfingar
kvikmyndavélarinnar voru notaðar
til að miðla skemmtilegu sambandi
karls og konu. Heimur þeirra virt-
ist vera án þyngdarafls og ójafn-
vægið í sambandinu kom þeim á
hvolf í orðsins fyllstu merkingu.
Hrollvekjandi Freyja
Fyrstu verðlaun hátíðarinnar
fékk Marsibil Sæmundardóttir fyr-
ir mynd sína Freyja, þar sem ein-
földum trikkum hrollvekjunnar er
beitt með árangursríkum hætti.
Sagan segir frá ungri konu,
Freyju, sem er barnshafandi og
komin 7 mánuði á leið. Hún og Al-
bert maðurinn hennar hafa keypt
stórt hús úti á landi og Freyja bíð-
ur ein í húsinu eftir að Albert komi
með búslóðina þeirra. Eftir nokkra
daga er Freyja orðin óróleg, það er
eitthvað á seyði í húsinu sem veld-
ur henni áhyggjum. Það er óhætt
að segja að þetta sé hnitmiðað verk
hjá leikstjóranum, einfalt og lýta-
laus kvikmyndataka, leikur og frá-
sagnarstíllinn nettur. Öll frásögn
Marsibil og frágangur er snyrti-
legur. Hún Marsibil er þekktust
fyrir þátttöku í pólitík en hún fékk
nóg af henni fyrir nokkrum árum
og segist alfarið vera hætt í henni.
„Ég ætlaði alltaf að fara í eitthvað
skapandi en svo fór lífið með mig
annað,“ segir Marsibil. „Ég hafði
alveg fyrir því að finna út úr því
hvað ég ætlaði að gera og fór fyrst
í verkefnastjórnun og leiðtoga-
þjálfun uppi í HÍ, svo fór ég í
markþjálfun, sem er nám í
samtalstækni sem gengur út á að
finna út hvað fólk vill gera og koma
því þangað. Mér fannst þetta allt
miða að því að fara í kvikmynda-
nám hjá mér. Kvikmyndagerðin er
verkefnamiðuð, hún er lífleg, mað-
ur fær að skrifa og það eru mikil
samskipti við fólk. Svo er hægt að
hafa áhrif þarna rétt einsog í póli-
tík,“ segir Marsibil.
„En ég er bara búin með ár og
þetta er bara önnur myndin mín.
Svo er hún að fara til Palm
Springs, sem er ein stærsta stutt-
myndahátíð í heiminum, á eftir
Cannes og Sundance, þannig að
það er gaman hvað hún fer víða,“
segir hún. Aðspurð hvort hún ætli
að einbeita sér að hrollvekjum seg-
ir hún svo ekki vera. „Ég hugsaði
bara með mér hvað það væri sem
ég gæti gert vel á tveimur dögum.
Ég skrifaði handritið út frá að-
stæðunum. Hafði bara eitt „loca-
tion“, einn leikara og allt einfalt,“
segir Marsibil um verðlaunamynd-
ina.
Fleiri myndir
Í öðru sæti á hátíðinni lenti
myndin Shirley eftir Eilíf Örn
Þrastarson sem er tragíkómedía
um unga stúlku sem reynir að láta
pabba sinn hætta að drekka. Í um-
sögn dómnefndar segir: „Góð nálg-
un á erfiðu viðfangsefni. Listræn
umgjörð og fallegt myndmál.
Myndin sýnir sterkan höfundarstíl
leikstjóra.“ Í þriðja sæti lenti In
Memoriam eftir Hauk M., drama
um ungan mann sem á erfitt upp-
dráttar eftir sjálfsmorð móður
sinnar. Í umsögn dómnefndar seg-
ir: „Persónuleg og áhrifarík mynd,
fallegt myndmál í draumkenndum
og tregafullum stíl.“ Þess má geta
að blaðamanni Morgunblaðsins
sem sá þessar myndir virtist sem
þær væru gerðar annars vegar í
Póllandi og hins vegar í Tékklandi.
En það er vel ef íslenskir kvik-
myndagerðarmenn eru farnir að
sækja bestu kvikmyndaskóla þess-
ara Evrópuþjóða.
Stuttmyndadagarnir enduðu í hryllingi
Hrollvekjan Freyja bar sigur úr býtum á Stuttmyndadögum í Reykjavík Fyrrverandi pólitíkus
kominn yfir í kvikmyndagerðina Sérstaklega mikil gæði á stuttmyndahátíðinni í ár
Sigurvegari Fyrrverandi stjórnmálamaðurinn Marsibil Sæmundardóttir
sigraði á Stuttmyndahátíðinni í Reykjavík í ár með myndinni sinni Freyju.
Dómnefndin Í henni voru Guðrún
Edda, Hálfdán og Lars Emil.
Hrollvekja Stuttmyndin Freyja er hrollvekja sem er tekin upp í svarthvítu.
JACK SPARROW ER MÆTTUR Í STÆRSTU MYND SUMARSINS!
HHHH
“SANNKALLAÐUR GIMSTEINN!
HIN FULLKOMNA SUMARMYND
Í ALLA STAÐI. JACK SPARROW ER
SANNARLEGA KVIKMYNDAFJÁRSJÓÐUR”
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
“SJÓNRÆN VEISLA”
“STÓR SKAMMTUR AF HASAR”
- K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ
“BANGKOK ADVENTURE IS NOT
WITHOUT ITS SHOCKING,
LAUGH-OUT-LOUD MOMENTS.”
- HOLLYWOOD REPORTER
80/100
ÞRÍVÍDD EINS
OG HÚN
GERIST BEST
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
HHHH
- BOX OFFICE
MAGAZINE
HHHH
"KUNG FU PANDA 2
ER SKOTHELD
SKEMMTUN."
- Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
„Djarfasta og best skrifaða
X-Men-myndin til þessa.”
-T.V., Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt
HHHH
„Þetta er sannarlega fyrsta
flokks ofurhetjumynd!“
-Þ.Þ., Fréttatíminn
“IT ACTUALLY IMPROVES
ON THE JOKES”
- TIME OUT NEW YORK
HHHH
“EIGINLEGA
NAUÐSYNLEGT
FYRIR MIG AÐ SJÁ
MYNDINA AFTUR...”
- R.M. - BÍÓFILMAN.IS
HHHH
EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS
HHHHH
- ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHH
- QUICKFLIX
HHHH
- KVIKMYNDIR.IS/
SÉÐ OG HEYRT
100/100
- TIME
- JIMMYO,
JOBLO.COM
HHHH
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
SUPER 8 kl. 5:40 - 8-10:20 -11:10 12
SUPER 8 kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP
THE HANGOVER 2 kl.5:50 - 8 - 9 -10:20 12
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 6 L
KUNG FU PANDA ísl. tal kl. 6 L
KUNG FU PANDA enskt tal kl. 10:20 með texta L
PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 6 - 8 - 10:50 10
SOMETHING BORROWED kl. 8 L
/ ÁLFABAKKA
SUPER 8 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
THE HANGOVER 2 kl. 6 - 8 - 10:25 12
X-MEN: FIRST CLASS kl. 5:10 - 8 - 10:45 14
KUNG FU PANDA 3D ísl. tal kl. 5:30 L
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 8:20 10
SUPER 8 kl. 5:50 - 8-10:20 12
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 6 L
KUNG FU PANDA 2 3D enskt tal kl. 8 (ótextuð) L
THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 10 10
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12
BRIDESMAIDS kl. 8 - 10:30 12
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ AKUREYRI
/ KEFLAVÍK
/ SELFOSSI
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
THE HANGOVER 2 kl. 8 12
X-MEN: FIRST CLASS kl. 10:20 14
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNISÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSI