Morgunblaðið - 19.08.2011, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. Á G Ú S T 2 0 1 1
Stofnað 1913 193. tölublað 99. árgangur
GILDIN Í SKÓLASTARFI
OG FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ
40 SÍÐNA AUKABLAÐ UM SKÓLA OG NÁMSKEIÐ
Frumkvöðlaleiðsögn, endurmenntun, markþjálfun, danskennsla,
leiðtoganámskeið, listin samtvinnuð bóknámi o.m.fl.
Í vor veitti Alþingi einstaklingi
ríkisborgararétt með lögum númer
71/2011, þrátt fyrir að hann hefði
ekki sýnt fram á það með fullnægj-
andi hætti hver hann væri. Viðkom-
andi uppfyllti ekki það skilyrði laga
um íslenskan ríkisborgararétt að
hafa sýnt fram á uppruna sinn.
Þetta kemur fram í svari Útlend-
ingastofnunar við fyrirspurn Morg-
unblaðsins um það hversu margir af
þeim sem hlutu ríkisborgararétt
uppfylltu ekki hvert og eitt skilyrði
laganna þar um. Alþingi fjallar að-
eins um mál þeirra sem ekki upp-
fylla skilyrðin og ákveður hverjum
sé engu að síður rétt að veita rík-
isfang. Hópur hælisleitenda býr á
hverjum tíma réttindalítill á Íslandi,
vegna erfiðleika við að sanna upp-
runa sinn. »17
Fékk ríkisfang þrátt
fyrir óljósan uppruna
Már ræddi við þingnefnd
» Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri mætti á fund utan-
ríkismálanefndar í gær, ásamt
embættismönnum úr Seðla-
bankanum.
» Spurður um áhrif ástands-
ins á evrusvæðinu á ávinning
Íslendinga af upptöku evru
mun hann hafa sagst vona að
ástandið varaði ekki lengi.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Samþykkt var í sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd Alþingis í gær að
stefna að opnum fundum um aðild-
arferli og samningsmarkmið í land-
búnaðarmálum, í viðræðunum við
ESB. Hljóðar tillagan, sem borin var
upp af Sigurði Inga Jóhannssyni,
Framsóknarflokki, svo að haldnir
skuli a.m.k. tveir fundir og verði Öss-
ur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra boðaður á annan þeirra en Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, á hinn. Lilja
Rafney Magnúsdóttir nefndarfor-
maður lagði einnig til að kannað yrði
hvort halda mætti fundina sameig-
inlega með utanríkismálanefnd, þar
sem Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son hefði mælt fyrir svipaðri tillögu.
Tillögu um fund frestað aftur
Einnig var fundað í utanríkismála-
nefnd í gær og afgreiðslu tillögunnar
frestað öðru sinni, að sögn Sigmund-
ar Davíðs, þar sem Árni Þór Sigurðs-
son nefndarformaður lætur kanna
hvernig slíkt samræmist þingsköp-
um og hvenær er rétt að halda slíka
fundi með tilliti til þess hvenær
verður hreyfing á Evrópumálunum.
Fulltrúar Bændasamtakanna
mættu á fund sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefndar í gær og að sögn
Sigurðar Inga kom fram hjá þeim að
enginn vissi hvar undirbúningur
samningaviðræðnanna um landbún-
aðarmál væri staddur, hver ætti að
móta samningsmarkmiðin eða hvort
einhver væri að því. Þeir hefðu sent
ráðherrum erindi og Jón Bjarnason
svarað þeim erindum en ekkert
heyrst frá utanríkisráðherra. Utan-
ríkisráðuneytið hefði ekki boðað
neinn fund í samningahópi um land-
búnaðarmál síðan í febrúar.
Vita ekki hvar mál standa
Stefna á opna fundi þingnefnda með Össuri Skarphéðinssyni og Jóni Bjarnasyni
Bændasamtök fá viðbrögð frá Jóni, ekki Össuri Ekki fundað síðan í febrúar
Ef komist verð-
ur að þeirri nið-
urstöðu að ólög-
legt hafi verið að
reikna verðbætur
á höfuðstól verð-
tryggðra lána,
eins og Hags-
munasamtök
heimilanna halda
fram, gætu afleiðingarnar orðið al-
varlegar fyrir banka og lífeyrissjóði.
Ein hugsanleg afleiðing af slíkri
niðurstöðu er að afskrifa þurfi stór-
an hluta verðtryggðra eigna fyr-
irtækja og stofnana, en lífeyrissjóð-
irnir eiga um 550 milljarða króna í
verðtryggðum eignum, svo dæmi sé
tekið. Hér er þó aðeins um eina
mögulega niðurstöðu af mörgum að
ræða. »18
Eignir í hættu
Sú ró sem einkennt hefur erlenda
hlutabréfamarkaði í vikunni virðist
á enda runnin, því evrópskir hluta-
bréfamarkaðir hrundu í gær. Frétt-
ir af veikri stöðu evrópskra banka
og viðvarandi áhyggjur af skulda-
vanda evruríkja voru, eins og í síð-
ustu viku, það sem olli flótta fjár-
magns frá evrópskum hlutabréfum
og til bandarískra ríkisskuldabréfa
og gulls.
Hlutabréf í evrópskum bönkum
lækkuðu mjög mikið í gær og skipti
það litlu máli hvort um var að ræða
franska, þýska eða breska banka.
Allir lækkuðu þeir umtalsvert.
Gull heldur áfram sinni sigur-
göngu, en um kvöldmatarleytið í
gær hafði heimsmarkaðsverð á
gulli náð 1.824 dölum á únsuna.
Breska FTSE-vísitalan lækkaði
um 4,5%, þýska DAX um 5,8% og
franska CAC um 5,5%. »18
Evrópskir markaðir
hrynja á nýjan leik
Stressaður Verðbréfamiðlari í Frankfurt.
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Mesta ógnin sem fylgir þessu er sú að til þess að
geta farið út á sjó verðum við að hafa tvær þyrlur.
Og þumalputtareglan er sú að ef þú ætlar að hafa
tvær þyrlur starfhæfar þarftu að hafa fjórar,“
segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar. Nota þurfti þyrlu frá Norðurflugi, sem
ekki er björgunarþyrla, til að sækja slasaðan
ferðamann í Kverkfjöll í gær. Georg segir að
björgunin í gær hafi heppnast vel, þökk sé góðu
samstarfi Gæslunnar og Norðurflugs, en ekki síst
heppni.
Slysið varð inni í miðju landi í rjómablíðu. Ef
neyðarkallið hefði borist utan af hafi eða ef ísing
og óveður hefði verið á svæðinu hefði þyrla Norð-
urflugs ekki verið nothæf. Þetta sýnir að lítið má
út af bera þegar staða Gæslunnar er svo þröng.
„Með mjög nákvæmu skipulagi hefur tekist vel að
halda okkur á floti þrátt fyrir þennan þrönga kost
og þetta hefur blessast. En það er náttúrlega
heppni líka,“ segir Georg.
Nú var TF Gná föst við jörðu í reglubundinni
skoðun þegar TF Líf bilaði óvænt. Sagan gæti
endurtekið sig í janúar, þegar Líf fer í skoðun.
„Eins og málin horfa núna bendir allt til þess að
þá verði bara Gná til taks. Við höfum leitað ein-
hverra lausna í allangan tíma en horfurnar eru
ekki góðar.“ »2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Biluð Flugvirkjarnir Kristján B. Arnar og Reynir G. Brynjarsson gaumgæfa skemmdir á blöðum í túrbínum TF-Líf með hjálp örmyndavélar.
Heppni að allt hafi blessast
Hefðu ekki getað sinnt útkalli á sjó eða í óveðri Gæti endurtekið sig í janúar