Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 38

Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Á morgun verður haldin bók- menntasmiðja í Þjóðarbókhlöðunni fyrir Alzheimerssjúklinga með rit- höfundinum Þórarni Eldjárn. Minnismóttakan á Landakoti, fé- lagið FAAS (Félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúlinga og annarra skyldra sjúkdóma) og list- fræðingurinn Halldóra Arnardóttir skipuleggja bókmenntasmiðjuna í samstarfi við Þórarin, Myndlist- arskóla Reykjavíkur og Þjóð- arbókhlöðuna. Fyrirmyndin að smiðjunni er sótt til Murcia á Spáni þar sem lista- og menning- artengdar smiðjur hafa verið nýtt- ar sem hluti af meðferð og er Hall- dóra skipuleggjandi þeirra. Markmið bókmenntasmiðjunnar eru að bæta líf og sjálfstraust sjúk- linga sem og fjölskyldna þeirra, að tengja þátíð og nútíð í gegnum tilfinningaminn- ið, stuðla að frekari gildum gegn fordómum gagnvart Alz- heimers- sjúkdómnum og kynda undir verkefnum þar sem mismunandi kynslóðir vinna saman, eins og því er lýst í tilkynningu. Unnið út frá „Hvaðefsögu“ „Mín aðkoma að þessu er sú að ég mæti þarna þegar þetta fer af stað og les upp smásögu sem hefur verið valin áður, úr mínum sagna- bálki. Þetta er saga sem heitir „Hvaðefsaga“ og ég les hana fyrir þá sem taka þátt í þessu og það eru, auk fólks sem hefur greinst með Alzheimers, listnemar sem eru í myndlist. Svo þegar þetta er búið að gerast þá tekur við svona smiðja og ég kem ekkert að því heldur er það bara það fólk sem vinnur með þetta, sem er þá Hall- dóra og Jón Snædal (öldr- unarlæknir og sérfræðingur í Alz- heimers) og hinir og þessir sem ýmist tengjast listageiranum eða heilbrigðissviðinu. Og þá er mein- ingin að út frá þessari sögu skapist einhverjar umræður og síðan ein- hvers konar bókmenntastarf þeirra sem taka þátt í þessu, þ.e.a.s. fólk- ið býr til sínar eigin sögur út frá einhverju sem hefur kviknað við það að fara í saumana á þessari sögu,“ segir Þórarinn um smiðjuna. „Það má segja að þessi saga sé ákveðið veganesti sem gengið er út frá og svo þróast það vonandi í óendanlega margar áttir. Þannig mun þetta ganga fyrir sig og síðan er endað á einhvers konar uppske- ruhátíð eða lokafundi þar sem er farið í gegnum það sem hefur sprottið upp af þessu, í þessari bókmenntasmiðju, 30. ágúst. Þar mæti ég þá aftur og kem inn í um- ræður og svara fyrirspurnum og tek þátt í því að reyna að finna út hvernig tekist hafi til.“ Þórarinn segir söguna gerast í íslensku umhverfi, hún sé dálítið absúrd og því vonandi eft- irminnileg. Hefur gefið góða raun Halldóra Arnardóttir hefur um- sjón með lista- og menning- artengdum smiðjum sem eru hluti af Alzheimers-meðferð í Murcia á Spáni, í samvinnu við héraðs- sjúkrahúsið þar í borg og tauga- sérfræðing sem þar starfar. „Í fyrra kom ég hingað til Reykjavík- ur og hélt fyrirlestur á ráðstefnu hjá FAAS og kynnti þessa vinnu, þetta verkefni. Í framhaldi af því vildu þau fara af stað með álíka smiðju með bókmenntasmiðjuna í Murcia sem fyrirmynd. Þetta er hluti af stærri rannsókn um hvern- ig við getum m.a. bætt lífsgæði sjúklings og fjölskyldu með því að tengja líf manneskjunnar betur inn í meðferðina, ekki bara með meðulum heldur grafa upp í eigin lífi með hjálp mismunandi lista- ðferða og menningartengdra þátta,“ segir Halldóra. Hún hafi fengið heimsfræga menn til liðs við sig, m.a. bandaríska myndlist- armanninn Bill Viola og verkefnið sé orðið alþjóðlegt. Halldóra segir mikilvægt að finna aðferðir sem tengja félagslega þætti manneskj- unnar við meðferðina. Markmið bókmenntasmiðjunnar sé að það spinnist út frá sögu Þórarins um- ræða um efnisþætti sem séu í sög- unni. „Þessi saga fjallar um fjall og hvað ef það væri holt að innan. Öll höfum við minningar um fjöll og upplifað eitthvað tengt þeim. Þetta er mjög auðveld tenging fyrir sjúklingana,“ segir Halldóra. Nemendur frá Myndlistarskóla Reykjavíkur munu myndskreyta frásagnir sjúklinganna og þegar smiðjunni lýkur verða sjúkling- arnir komnir í aðalhlutverkið, segja sögur sínar eða lýsa minn- ingum sínum með hjálp teikning- anna. Halldóra segir meðferðina hafa gefið góða raun. „Það er mjög skýrt að á þeim tíma sem smiðjan stendur og ákveðinn tíma þar á eftir líður sjúklingunum bet- ur,“ segir Halldóra. Það sé mik- ilvægt að taka fram að unnið sé út frá tilfinningaminninu, grafið upp í tilfinningunum til þess að komast að minningum sem sjúklingurinn hefði annars ekki aðgang að. Til útskýringar á sjúkdómnum segir Halldóra að taugarnar í heil- anum myndi visst kerfi, séu tengdar en hjá Alzheimerssjúkum slitni þau tengsl. „Við erum að reyna að búa til nýja brú á milli þessara minninga, milli þessara tauga, til að muna hlutina á annan hátt. Þetta fólk hefur minninguna en það nær henni ekki. Við erum að reyna að fara í gegnum tilfinn- ingakerfið til að komast að þess- um minningum aftur.“ Morgunblaðið/Kristinn Smiðja Þórarinn Eldjárn tekur þátt í bókmenntasmiðju í dag. Að búa til brýr milli minninga  Bókmennta- smiðja með Þór- arni Eldjárn fyrir Alzheimerssjúka Frekari fróðleik um verkefnið má finna á artandcultureasther- apy.blogspot.com. Halldóra Arnardóttir Pétur Gautur opnar vinnustofu sína fyrir gestum og gangandi á Menn- ingarnótt frá kl. 16.00 til 22.00. Vinnustofan er á horni Snorra- brautar og Njálsgötu. Tríó Eyjólfs Þorleifsssonar flytur jazz og dæg- urperlur frá kl. 20.00 til 22.00. Ný málverk verða á veggjum. Pétur Gautur býð- ur til vinnustofu Opið hús Eitt verka Péturs Gauts. Sýningu Hrafnhildar Ingu Sigurð- ardóttur í Ketilhúsinu á Akureyri lýkur á sunnudaginn. Á sýningunni eru 27 olíumálverk sem Hrafnhild- ur hefur málað á síðastliðnum tveimur árum, allt myndir af ís- lenskri náttúru eins og hún birtist Hrafnhildi. Þetta er 11 einkasýning Hrafn- hildar og ennfremur hefur hún tek- ið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og erlendis. Ketilhúsið er opið frá kl. 13.00 til 17.00 meðan á sýningu stendur. Náttúra Málverkið Hvarvetna eftir Hrafn- hildi Ingu Sigurðardóttur. Sýningu Hrafnhild- ar Ingu lýkur Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Nýtt leikár tekur nú við hjá Þjóðleikhúsinu og mikið úrval leiksýninga í boði. Hvergi verður slegið af hvað varðar metnað á nýju leikári að sögn Tinnu Gunnlaugsdóttur, leikhússtjóra. „Við teflum fram einvala liði listamanna og fjölbreyttu úrvali sýninga. Við leggjum áherslu á íslensk verk og kynn- um meðal annars til leiks nýtt leikskáld, Auði Övu Ólafsdóttur,“ segir Tinna. „Við sýnum ný og spennandi erlend verk og svið- setjum nokkrar perlur leikhúsbók- menntanna.“ Þjóðleikhúsið tekur þátt í spennandi sam- starfsverkefnum, börnin fá veglega dagskrá og Leikhúskjallarinn verður vettvangur ein- leikja, uppistands, tónlistar og söngs að sögn Tinnu. Hún segir það nýnæmi að nýta Leikhúskjallarann með þessum hætti en ýtt var við þessu starfi í fyrra og verður það aukið og eflt í ár. Þriðja Laxnesssýning Þjóðleikhússins Stórsýning ársins verður ný sviðsetning á hinum vinsæla söngleik Vesalingarnir. „Þar skapar frábær saga og heillandi tónlist listaverk sem á sér vart hliðstæðu á leik- sviði. Í sýningunni er allur textinn sunginn og verkið gerir miklar kröfur til flytjenda. Í aðalhlutverkinu kynnum við til leiks Þór Breiðfjörð, en hann er eini Íslendingurinn sem hefur sungið þetta hlutverk á West- End í London,“ segir Tinna. Hápunktur leikársins er þó að vanda jóla- sýningin að sögn Tinnu. Þá verður sett upp ný leikgerð Kjartans Ragnarssonar af Heimsljósi eftir Halldór Laxness en eft- irminnilega setti hann síðast upp Sjálfstætt fólk fyrir rúmum áratug. „Heimsljós er þriðja stóra Laxnesssýningin sem Þjóðleik- húsið setur upp á skömmum tíma, en það er mikil auðlegð fólgin í þeim bókmenntaarfi sem skáldið Halldór Laxness skildi eftir sig og mikil og spennandi ögrun fyrir áræðið og hæfileikaríkt leikhúslistafólk að skila hugmyndaheimi hans til áhorfenda af leik- sviði.“ „Hvert nýtt ár fullt af nýjungum“ „Síðasta ár í Þjóðleikhúsinu var ein- staklega vel heppnað, bæði í listrænu tilliti og aðsóknarlega,“ segir Tinna. „Sviðsetning Þjóðleikhússins á Lé konungi stóð upp úr sem ótvíræður sigurvegari á Grímuhátíðinni og á síðasta leikári var slegið áratuga að- sóknarmet.“ Nýjungar í ár eru fjölmargar og að sögn Tinnu er hvert nýtt ár fullt af nýjungum. Nú má nefna að Baltasar Kormákur stígur aftur á leiksvið í Listaverkinu, sem er haustsmellur Þjóðleikhússins eftir Yasminu Reza í leikstjórn Guðjóns Pedersens. Nýtt ár fullt af nýjungum  Áhersla á íslensk verk á nýju leikári í Þjóðleikhúsinu Fjölskyldudrama Hilmir Snær Guðnason, Arnar Jónsson, Guðrún Snæfríður Gísladóttir og Atli Rafn Sigurðarson fara með hlutverk í Dagleiðin langa í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Mörg ný og spennandi leikverk má finna í Þjóðleikhúsinu í ár en að sögn leik- hússtjóra verður lögð áhersla á íslensk verk. Nýju verkin eru Heimsljós, Vesalingarnir, Lista- verkið, Hreinsun, Svartur hundur prestsins, Dagleiðin langa, Afmælisveislan, Hlini Kóngsson – Sögustund, Með berum augum, Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu, Svartfugl, Gæludýrin og Skýja- borg. Fjöldi verka á fjalirnar í vetur LEIKHÚS Vesalingarnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.