Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Stígamót hyggjast í byrjun septem- ber opna athvarf fyrir vændiskonur í Reykjavík, efnt verður til fjáröflunar og þegar hefur verið auglýst eftir sjálfboðaliðum til að starfa í athvarf- inu. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir að þegar hafi fjöldi kvenna boðið sig fram. „Þetta athvarf hefur verið draum- ur okkar í mörg ár, reynslan sýnir okkur að það er þörf fyrir sérhæfð úrræði fyrir konur í klámiðnaði,“ segir Guðrún. „Hvorki við né nokkr- ir aðrir vita með vissu hvað umfang þessa markaðar er mikið. En við höf- um gert lauslegar kannanir eins og hverjir aðrir leikmenn. Við höfum komist að því að það er grasserandi markaður fyrir vændi á Íslandi. Og það eru miklir peningar í spilinu og um margar konur að ræða.“ Guðrún segir að lengi hafi verið vitað um margar konur sem vildu leggja eitthvað af mörkum við að að- stoða konur í vændi. Sjálfboðaliðarn- ir munu fara á ítarlegt námskeið en þegar sé búið að finna húsnæði fyrir athvarfið og verði haft náið samstarf við lögregluna varðandi öryggismál á staðnum. Samtökin verða með einn launaðan starfsmann í athvarfinu, Steinunni Gyðu og Guðjónsdóttur verkefnisstjóra. Lítið um götuvændi hér Guðrún segir aðspurð að mjög lítið sé um götuvændi hér á landi. Það sé undantekningin frá meginreglunni. „Það viðgengst ekki í svona litlu samfélagi. Viðskiptaleyndin er lyk- ilatriði við sölu og kaup á vændi til þess að þeir sem kaupi geti gert það óáreittir. Netið og ýmsar aðrar leiðir eru miklu hentugri en götuvændið. Ef fólk ætlar að selja vændi þarf það að vera nógu sýnilegt til að hægt sé að selja en líka nógu vel falið til að kaupandinn geti verið óáreittur. Hann vill varðveita mannorð sitt.“ Vandinn er að miklu leyti falinn vegna þess hve mikil skömm fylgir því að stunda vændi. „Þessu fylgir svo mikill skömm og sektarkennd að venjulega koma þær hingað með hefðbundna aðgöngu- miðann, nauðganir eða sifjaspell. Enda eru sterk tengsl þarna á milli. Ef þær læra að treysta okkur segja þær okkur frá vændinu en þetta er afskaplega vel falin hlið á lífi þeirra. Þær lifa tvöföldu lífi, nota ekki sín eigin nöfn og gera það sem þær geta til að hylja slóðina, þetta er ekki mál sem þolir dagsins ljós. En við höfum sagt að á hverju ári séum við í sam- bandi við 30-40 konur og einhverja karla vegna þessara mála.“ Í fyrra leituðu 13 konur til Stíga- móta vegna þess að þær höfðu verið í vændi og 13 að auki vegna tengsla sinna við klámiðnaðinn, tengsla sem þær skilgreindu ekki nánar. En oft- ast er fólk sem hefur verið í vændi í löngu sambandi við samtökin. Vændiskonur fá athvarf  Stígamót hafa þegar fundið húsnæði og munu efna til fjáröflunar í september  Árlega leita 30-40 konur til samtakanna vegna tengsla við klámiðnaðinn Við höfum komist að því að það er gras- serandi markaður fyrir vændi á Íslandi. Guðrún Jónsdóttir Mikil stemning var í Bíó Paradís í gær þar sem frumsýnd var heimildarmyndin Andlit norðurs- ins. Í myndinni er Ragnari Axelssyni ljósmynd- ara fylgt eftir við störf sín við að festa íbúa á norðurslóðum og lífshætti þeirra á filmu. Fjöl- menni var á frumsýningunni og hér er Rax í fé- lagsskap Arnars Jónssonar, Dagfinns Stef- ánssonar og Ingu Bjarkar Dagfinnsdóttur. Myndin er einnig sýnd í Sambíóunum, Kringlu. Andlit norðursins frumsýnd Morgunblaðið/Sigurgeir S. „Barnið er eins vel haldið og hægt er að hugsa sér. Þetta reyndist eiga sér eðlilega skýringu, það var í raun röð atvika sem gerði það að verkum að þetta gerðist,“ segir Sigrún Hv. Magnúsdóttir, yfirfélagsráðgjafi Fé- lagsmálaráðs Seltjarnarness, sem fer með barnaverndarmál í bænum. Barnaverndaryfirvöld ræddu í gær við foreldra barns sem fannst snemma í gærmorgun á gangstétt í Reykjavík. Leigubílstjóri tilkynnti lögreglu um kl. 5.40 að hann hefði fundið ungbarn yfirgefið í bílstól. Stuttu síðar, þegar lögregla var komin á staðinn, barst tilkynning frá foreldrum sem höfðu týnt sex mán- aða gömlu barni sínu. Reyndist um sama mál að ræða og komu foreldrarnir strax á vettvang. Þau vinna við dreifingu blaða, og höfðu verið að hlaða bíl sinn af blöð- um í morgunsárið þegar þau gleymdu barninu. Barnið var með pela og klætt í hlýjan galla. Það var sofandi þegar leigubílstjórinn kom að því. Að sögn Sigrúnar varð barninu ekki meint af. Ekkert bendi til vanrækslu heldur hafi aðeins verið um stakt atvik að ræða vegna sérstakra aðstæðna. „Það er bara hræðilegt að þetta skyldi hafa komið fyrir og ef ein- hverjir eru í áfalli þá eru það for- eldrarnir,“ segir Sigrún. Ekki þykir tilefni til frekari eftirmála. Áfallið er mest fyrir foreldrana Barnið sem fannst á gangstétt vel haldið Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, gaf í gær út reglugerð sem heimilar bátum sem stunda makríl- veiðar á hand- færi og línu að halda þeim veið- um áfram eftir 1. september 2011. Áður var makríl- veiði þessara aðila, sem hafa sam- eiginlegt aflahámark, takmörkuð við veiðar fram að fyrrgreindri dagsetningu. Makrílveiðar leyfðar eftir 1. september Jón Bjarnason Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is „Við erum búin að bjóða rúmlega helminginn af þeim 25,4% sem farið var fram á. Eitthvað um 13% sem er í raun það sem við höfum sagt að sé það sem viðmiðunarstéttirnar fá í sínum samningum. Eftir standa 11% og við erum búin að reikna út að heildin þ.e. 25,4% myndi kosta sveit- arfélögin 1,7 milljarða,“ segir Hall- dór Halldórsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, um áætlaðan kostnað af því að verða við kröfum leikskólakennara. Halldór segir að heildarlauna- kostnaður á leikskólum sé um 17 milljarðar og leikskólakennarar um 44% starfsfólks. Leikskólakennarar hafi hins vegar hærri laun en ófag- lærðir starfsmenn og því sé ekki raunhæft að reikna hlutfalls- tölu launa til jafns við hlutfall leik- skólakennara af heildarstarfsliði. Heildartekjur A-hluta sveitarfé- laga fyrir árið 2010 voru nær 171 milljarði króna og heildar- gjöld námu rúmum 167 milljörðum króna, þegar ekki er tekið tillit til fjármagnsliða og óreglulegra liða. Um það hvort sveitarfélögin gætu mætt auknum launakostnaði án þess að hækka leikskólagjöld segir Hall- dór að það sé misjafnt eftir sveit- arfélögum. Sum gætu brúað bilið en önnur gætu þurft að hækka gjöldin. Þegar spurt er hvernig sveitar- félögin gætu þá mætt þessum kröf- um vísar Halldór til þess að samn- ingar Samtaka atvinnulífsins og ASÍ í vor hafi byggt á hagvaxtarspám og loforðum ríkisstjórnarinnar um að örva ákveðna þætti þannig að hér verði hagvöxtur og tekjuaukning. Það sé óraunhæft að ætla að sveit- arfélögin geti fjármagnað alla þessa nýju kjarasamninga með auknum tekjum. Það sé enginn, hvorki sveit- arfélögin, ríkið né aðrir að fá auknar tekjur þar sem hagvaxtarspáin og þær forsendur sem voru gefnar fyrir tekjuaukningu í samfélaginu séu rangar. Halldór segir jafnframt. „Ég vil ítreka það sem ég hef sagt. Það er ekki komið verkfall og það er skylda samninganefndanna beggja, bæði okkar og þeirra að finna leið til að koma í veg fyrir verkfall.“ Ekki til peningar í hærri laun  Segir óraunhæft að ætla að sveitarfélögin geti fjármagnað alla þessa nýju kjarasamninga með auknum tekjum Halldór Halldórsson „Auðvitað hefur það mjög slæm áhrif á börnin ef til verkfalls kemur. Þá kemur rof í þeirra leikskóladvöl, það er slæmt fyrir börn sem eru nýlega byrjuð og enn í aðlögun. Við erum núna að flytja börn yfir á eldri deildir og sú vinna er í fullum gangi þessa dag- ana,“ segir Þórunn Gyða Björnsdóttir, leikskóla- stjóri í leikskólanum Rofaborg í Reykjavík. Verkfall komi til með að lama starf skólans að stærstum hluta eins og málið hafi verið sett fram í dag. Það séu átta leikskóla- kennarar, af átján starfsmönnum sem starfi á deildum, sem skipu- leggja faglega starfið inn- an leikskólans. Innan leik- skólans eru fimm deildir sem þjónusta um 110 börn. „Verkfall kemur til með að hafa mjög slæm áhrif á leikskólana og valda börn- unum og fjölskyldum þeirra erfiðleikum. Við höf- um einnig heyrt að margir innan atvinnulífsins séu áhyggjufullir um hvað ger- ist eftir helgi,“ segir Þórunn. „Ég óttast það að ef laun leikskóla- kennara verði ekki leiðrétt þá geti það haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir íslenska leikskóla. Þá óttast ég frekara brottfall úr stéttinni verði launin ekki leiðrétt.“ „Mjög slæm áhrif á börnin“ YFIRVOFANDI VERKFALL LEIKSKÓLAKENNARA Þórunn Gyða Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.