Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 27
✝ Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, afi, langafi og langalangafi, SVERRIR ÓLAFSSON frá Patreksfirði, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 14. ágúst. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 24. ágúst kl. 13.00. Margretha Ryggstein, börn og barnabörn. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Við kveðjum mæta konu með söknuði og votta ég öllum mína dýpstu samúð. Dóra G. Jónsdóttir. Stefanía eða Fanna frænka, eins og við systur kölluðum hana iðulega, er fallin frá. Hún var stóra systir pabba sem hann kall- aði Stjúu systir. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður minnist Fönnu er þolinmæði og æðruleysi. Fanna var búin að stríða við veikindi sem gerðu það að verkum að hún átti erfitt með hreyfingar og gang síðastliðin ár. Hún kvartaði aldrei svo við heyrðum til og tók alltaf á móti okkur með bros á vör. Fyrstu minningarnar sem við eigum frá Fönnu eru frá því þeg- ar hún, ásamt fjölskyldu sinni, bjó í Zonta-húsinu í Aðalstræti og sá um Nonnahúsið. Þau voru ófá skiptin sem við fengum að skot- tast með henni í Nonnahúsið og ekki var leiðinlegt að dröslast með dúkkurnar upp á loft og búa um þær þar. Hún var óþreytandi við að fræða okkur um sögu Nonna og eigum við nokkrar Nonnabækur sem Fanna gaf okkur í jólagjafir. Eftir heim- sóknir í Nonnahúsið valhoppuð- um við svo yfir til ömmu og afa í „Afastrætinu“. Þegar amma féll frá fluttu Fanna og Baldur yfir í „Afastræti“ eða Aðalstræti 62, eins og það heitir í raun og veru. Mikið vorum við glaðar að það hús hélst í fjölskyldunni og við gátum haldið áfram að mæta þangað og hlusta á Fönnu segja okkur sögur frá því þegar hún var að passa pabba okkar, sem var mjög óþekkur, að hennar sögn. Það þótti okkur skemmti- legt að heyra og Fönnu ennþá skemmtilegra að segja frá. Við þessar frásagnir hló Fanna sín- um smitandi hlátri, hún hló á inn- soginu þannig að það var ekki annað hægt en að hlæja með. Það verður tómlegt að koma til Ak- ureyrar í framtíðinni og fasti punkturinn í „Afastræti“ er horf- in á braut en við höfum minning- arnar til að ylja okkur við og þær eru ómetanlegar. Við systur sendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur til Bald- urs, Sirru, Sigga, Balla og fjöl- skyldna. Sigrún, Pála og Eva Kristjánsdætur. Fagna þú, sál mín. Lít þú víðlend veldi vona og drauma, er þrýtur rökkurstíginn. Sjá hina helgu glóð af arineldi eilífa kærleikans á bak við skýin. Fagna þú, sál mín, dauðans kyrra kveldi, kemur upp fegri sól, er þessi er hniginn. (J.J.Smári.) Góð vinkona mín, Stefanía Ár- mannsdóttir, er látin. Við hitt- umst fyrst við skólasetningu hús- mæðraskólans á Varmalandi í Borgarfirði og áttum þar ógleym- anlega dvöl í 9 mánuði ásamt öðr- um skólasystrum. Við héldum nemendamót á nokkurra ára fresti, síðast í sept- ember á liðnu ári og þá var okkur ljóst að stór skörð voru komin í hópinn. Við Fanna eins og hún var gjarnan kölluð áttum eftir að eiga mjög góð samskipti meðal annars í Zontaklúbbi Akureyrar um ald- arfjórðungs skeið en þar var hún ein styrkasta stoðin í þeim ágæta félagsskap sem ég minnist gjarn- an með þakklæti og virðingu fyrir öllum þeim góðu konum sem þar störfuðu. Fanna var um áratuga skeið safnvörður í Nonnahúsi sem Zontaklúbburinn átti og rak, störf hennar þar voru ómetanleg sem og öll önnur sem hún gegndi fyrir þann félagsskap. Fanna lét til sín taka á öðrum sviðum mannlífsins sem aðrir munu trúlega minnast. Enn hún stóð ekki ein, hún átti sinn bakhjarl sem var hann Bald- ur Sigurðsson, hennar góði eig- inmaður og styrkasta stoð til hinstu stundar. Með innilegum samúðarkveðj- um til allrar fjölskyldunnar. Auður Björnsdóttir. Yndisleg kona hefur kvatt. Stórt skarð er komið í vinahópinn sem ekki verður fyllt. Stefanía okkar sem öllum þótti vænt um, átti við erfið veikindi að stríða um langan tíma. Jákvæðni, sterk trú og góðvild til allra sem í kring um hana voru, var hennar styrkur. Hlýjar minningar leita á hugann, allar skemmtilegu stundirnar í Aðalstræti 62 með þeim hjónum því sjaldan var Baldur langt und- an. Þar var mikil samheldni. Verður því erfitt að venjast nýju mynstri í þeirri góðu fjölskyldu. Stefanía var mikilvirk fé- lagskona og margfróð sem oft var leitað til, ef rifja þurfti upp og punkta niður það sem ekki mátti glatast í þeim félögum sem hún starfaði í af mikilli vandvirkni og orku meðan heilsan leyfði. Elsku vinkona. Fegurðin er frá þér barst, fullvel þótti sanna, að yndið okkar allra varst, engill meðal manna. Hlutverk þitt í heimi hér, þú hafðir leyst af hendi. Af þeim sökum eftir þér, Guð englahópa sendi. Sú besta gjöf er gafst þú mér, var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. (B.H.) Margt í lífinu er okkur mik- ilvægt, eitt af því er vináttan sem gefur okkur hamingjuauka. Ég þakka Stefaníu Ármannsdóttur fyrir að hafa átt hana að vinkonu. Ljós og friður umvefji hana og hennar fjölskyldu. Svana Jósepsdóttir. Kveðja frá Zontaklúbbi Akureyrar Stefanía hefur kvatt þennan heim og það hefur dregið ský fyr- ir sólu hjá öllum, sem þekktu þessa mætu konu. Hún var félagi í Zontaklúbbi Akureyrar um langt árabil og það er margs að minnast. Ég sótti minn fyrsta Zontafund árið 1975 og var svo heppin að Stefanía var sessu- nautur minn. Ég kunni svo vel við þessa glaðlegu, notalegu konu og leið vel í návist hennar. Síðar átt- um við eftir að starfa náið saman að mörgum verkefnum fyrir Zontaklúbbinn og Nonnahús. Stefanía var ákaflega félagslynd og hafði alltaf tíma til að sinna því sem henni var falið að gera. Það voru forréttindi að starfa með henni. Hún gegndi ýmsum emb- ættum fyrir klúbbinn. Hún var gjaldkeri og formaður og svæð- isstjóri fyrir Ísland í umdæmi 13. Síðast en ekki síst var hún lengi safnvörður í Nonnahúsi og for- maður Nonnanefndar. Það má fullyrða að fyrstu fé- lagar í Zontaklúbbi Akureyrar og Stefanía þeirra á meðal björguðu miklum menningarverðmætum frá glötun þegar þær fengu Páls- hús, hálfónýtt, að gjöf og komu þar upp safni til minningar um rithöfundinn, Jón Sveinsson, Nonna. Þær endurbyggðu húsið og söfnuðu munum, sem tengjast Nonna og tókst að opna safnið ár- ið 1957 þegar 100 ár voru liðin frá fæðingu hans. Margir þessara muna eru ákaflega merkir og má þar nefna jesúítakufl Nonna, bænabók hans og eintök af bók- um hans á nærri 40 tungumálum. Klúbburinn rak Nonnahús i 50 ár og færði þá Akureyrarbæ það að gjöf. Þekking Stefaníu á Nonna og safninu var óþrjótandi og áhugi hennar á vexti þess og viðgangi sömuleiðis. Að hennar frum- kvæði var hafin leit að styttu Nínu Sæmundsson af Nonna. Styttan fannst með dyggri aðstoð Önnu Snorradóttur og var sett á stall við Nonnahús og er einn af þeim ómetanlegu safngripum, sem tengjast Nonna. Í safnið kom fjöldi fólks frá Mið-Evrópu, sem hafði lesið bækur Nonna í hörmungum heimsstyrjaldanna, hafði flúið hinn ljóta veruleika með því að sökkva sér niður í bernskuævin- týri hans. Sumir gerðu sér ferð til Íslands af þessu tilefni og Stef- anía minntist margra, sem táruð- ust og fannst þeir komnir á helg- an stað þegar þeir gengu um Nonnahús. Ýmsir höfðu hitt hann og heyrt fyrirlestra hans og höfðu hrifist af persónuleikanum. Stefanía var í hópi nokkurra Zontakvenna, sem fóru á Nonna- slóðir árið 1983. Þær fóru til Þýskalands og Belgíu og víðar og var allstaðar vel tekið, ekki síst í Köln þar sem Nonni er vel þekkt- ur enn í dag. Hin síðari ár var heilsu Stef- aníu farið að hraka en alltaf var hún jafn áhugasöm um málefni líðandi stundar og sótti fundi meðan hún gat. Fyrir mánuði heimsótti ég hana og færði henni fundarboð á umdæmisþing Zonta, sem verður haldið á Ak- ureyri. Það var alltaf ánægjulegt að hitta þau hjónin og aðdáun- arvert að sjá hvernig þau tókust á við erfiðleika líðandi stundar, samhent og jákvæð og dugleg. Litla húsið þeirra var fullt af visku og gleði og skilningi á gang lífsins.Við sendum Baldri og allri fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur og yljum okkur við minn- ingarnar. Ragnheiður Hansdóttir. Leiðir okkar Stefaníu lágu fyrst saman haustið 1977 þegar ég hóf störf á Skattstofunni á Ak- ureyri. Þar unum við saman í um aldarfjórðung. Á þessum árum þróaðist gagn- kvæm vinátta milli okkar og fjöl- skyldna okkar sem aldrei bar skugga á. Er þar margs að minn- ast þótt aðeins fátt eitt sé tínt til hér. Minnisstæð er haustferð inn í Gæsavatnasskála, þann eldri, en hann var þá í eigu þeirra hjóna Stefaníu og Baldurs. Ógleym- anleg helgi í kyrrð öræfana. Heimsóknir þeirra í bústaðinn okkar þar sem allar plönturnar sem þau gáfu okkur eru orðnar að trjám sem umlykja húsin og skýla. Þau munu minna okkur um alla framtíð á vináttu þeirra, hjálpsemi og örlæti í garð okkar hjóna. Stefanía bauð mér að koma til starfa í Slysavarnadeild kvenna hér í bæ þar sem við unnum sam- an að hugðarefnum okkar um árabil. Það var dýrmætt tímabil. Ótalinn er allur sá fróðleikur sem hún sem innfædd miðlaði mér aðfluttri um hvaðeina sem máli skipti varðandi bæði menn og málefni hér á Akureyri fyrr og síðar. Stefanía var einstökum mann- kostum búin. Þeir sem eignuðust vináttu hennar munu lengi búa að því og minnast þess sem eins af mikilvægu hlutunum í lífinu. Fyr- ir það þakka ég og fjölskylda mín nú um leið og við sendum Baldri og fjölskyldu þeirra Stefaníu innilegar samúðarkveðjur. Stefanía Rósa Sigurjónsdóttir. amma hafði sannarlega upplifað ýmislegt um ævina og eftir stend- ur dýrmæt frásögn af lífshlaupi hennar sem ég mun vonandi síðar lesa fyrir mín börn og barnabörn og segja þeim frá þessari yndis- legu ömmu. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Elsku amma mín. Þín verður sárt saknað. Þangað til næst. Þín, Fjóla Þórdís Jónsdóttir. Elsku amma Fjóla. Ég er stoltur af því að kalla þig ömmu mína og þakklátur fyrir að hafa átt þig að. Það er óskandi að við getum öll gert þig stolta af okkur með því að lifa lífinu af sama æðruleysi og með jafn mikl- um kærleika og þú. Betri fyrir- mynd er vart hægt að fá. Takk fyrir samfylgdina, elsku amma. Amma mín var kjarnakona kærleiksrík og undurblíð. Ef allir lærðu að lifa svona leysast myndu öll heimsins stríð. Ég kveð þig nú með tár á hvarmi Fjóla kæra amma mín. Þú lifir enn í okkar barmi, ávallt munum sakna þín. Magnús Sveinn. Elsku amma. Þú varst einstök kona, svo falleg bæði að utan sem innan. Lítil kona með stórt hjarta. Það eru margar hlýjar minningar um sem ég geymi með mér um ókomna tíð, elsku amma mín. Ég er sannfærð um að þú sért komin á góðan stað þar sem tekið hefur verið vel á móti þér. Hvíldu í friði. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Halldóra Guðrún Jónsdóttir. Æskuvinkona mín Fjóla Sig- urbjörnsdóttir hefur nú kvatt þennan jarðneska heim. Minn- ingar um hana hrannast upp og streyma fram sem glitrandi perl- ur. Fyrsta sinn sem ég sá Fjólu var þegar fósturmóðir hennar, Ragnheiður í Hlíð, kom með hana í Krók. Ég var þá nýflutt í Krók austan úr Biskupstungum. Mér varð starsýnt á þessa litlu fallegu ljóshærðu telpu. Hún var smá og eins og falleg brúða í framan með liðað ljósgullið hár. Mér er ákaf- lega minnisstætt að Fjólu var boðið upp á ábrystir. Fjóla virtist ekki vera ýkja hrifin af þessum veitingum, en svo var henni sagt að á botni disksins væri mynd af geit, sem væri að elta strák og hún sæi hvort geitin væri að stanga strákinn, ef hún lyki af diskinum. Fjóla borðaði af disk- inum og sá að strákurinn mundi sleppa frá geitinni. Fjóla kom í Hlíð tveggja ára og eignaðist þar sína fósturforeldra, sem voru henni einkar kærir alla tíð. Foreldrar hennar og systkini áttu heima í Reykjavík og voru ætíð góð tengsl milli þeirra og hennar. Okkur krökkunum fannst hún öfundsverð að eiga tvenna foreldra. Við hófum okkar skólagöngu í barnaskólanum á Garðaholti. Við vorum fimm stelpurnar í yngri deild þennan vetur. Fjóla var 7 ára og orðin fluglæs. Ég man vel að hún las okkur til ánægju um spýtustrákinn Gosa. Það kom fljótt í ljós að Fjóla var góður stíl- isti og átti auðvelt með að semja sögur og segja frá. Æskuár okkar í Garðahverfi liðu í skóla, leikjum, störfum og smá ferðalögum. Frá þessum tíma eru ljúfar endur- minningar og þakklæti fyrir að hafa alist upp í Garðahverfi á þessum fallega stað og í því mannlífi sem þar var. Eftir að barnaskólanum lauk lá leið Fjólu í Flensborgarskól- ann eins og flestra okkar í Garða- hverfi og lauk hún þaðan gagn- fræðaprófi. Á þessum tíma þótti það vera góð menntun því Flens- borgarskólinn naut mikils álits. En það krafðist dugnaðar og harðfylgis að hjóla hvern morgun úr Garðahverfi inn í Hafnarfjörð í þrjá vetur hvernig sem veður var. Síðan hófst lífsbaráttan. Það fór ekki hjá því að svona falleg ung stúlka vekti athygli. Ég held að það hafi verið á Röðli að þau Gunnar Sveinsson og Fjóla sáust í fyrsta sinn. Það varð ást við fyrstu sýn og þau settu upp hringana í jarðarberjagjótunni í Garðahrauni á hvítasunnudag 1952 á leið sinni heim að Hlíð. Áð- ur en við var litið var Fjóla orðin kaupfélagsstjórafrú í Keflavík. Þar hófst hennar meginlífsstarf. Börnin komu brátt með sína gleði og sorgir. Fjóla var einstaklega dugleg og myndarleg húsmóðir. Þrátt fyrir að hún sem ung teldi sig ekki vera mikið fyrir handavinnu, skreytti hún heimilið með alls kyns hannyrðum og ég handfjatla litla gula peysu sem Fjóla prjón- aði og gaf mér þegar ég eignaðist fyrirburann minn. Nú hefur peysan nýtt hlutverk, yljar brúðu sem barnabörn mín leika sér að. Þakklæti fyrir tryggð og vin- skap er mér efst í huga á kveðju- stund. Fjölskyldan sendir inni- legar samúðarkveðjur. Elín Vilmundardóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, UNNUR STEFÁNSDÓTTIR leikskólakennari, Kársnesbraut 99, Kópavogi, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 8. ágúst. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minn- ast hinnar látnu er bent á Ljósið eða Samtök Heilsuleikskóla. Hákon Sigurgrímsson, Finnur Hákonarson, Rósa Birgitta Ísfeld, Grímur Hákonarson, Halla Björk Kristjánsdóttir, Harpa Dís Hákonardóttir, Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýnt hafa okkur stuðning, samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra JÓNS PÉTURSSONAR eðlisfræðings, Þinghólsbraut 27, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæslu- deildar og heila- og taugaskurðdeildar Landspítala í Fossvogi fyrir alúð og fagmennsku við meðferð og hjúkrun Jóns. Einnig sérstakar þakkir til bridgefélaga, samstarfsfólks Jóns hjá Actavis og samstarfsfólks Önnu á Landspítala fyrir ómetanlegan stuðning og aðstoð á erfiðum tíma. Anna Stefánsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Einar Jónsson, Dofri Jónsson, Kristrún Sigurðardóttir, Dagbjört Jónsdóttir, Anders Bjarnason Jensen og barnabörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.