Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011
Nýútkominn geisladiskurIKI, níu stúlkna spuna-söngsveit, er athygl-isverð frumraun. Hérna
er á ferðinni hópur stúlkna frá
Norðurlöndunum, m.a. ein frá Ís-
landi, Anna María Björnsdóttir,
sem hafa komið saman til að spinna
saman hljóð/sönggjörninga. Þessar
frjóu konur eyddu þremur dögum í
hljóðveri og árangurinn var sjö
klukkustundir af tónlist sem tókst
að skera niður í 12 laga geisladisk
sem kom út hjá danskri útgáfu í
sumar.
Söngspuni af þessu tagi á það á
hættu að verða innhverfur og lítið
áhugaverður fyrir aðra en flytj-
endur og fjölskyldur þeirra. IKI
hópnum tekst hins vegar oftast að
vekja áhuga. Það er ljóðræn og leik-
ræn stemmning yfir lögunum. Flest
lögin eru án texta og alls konar
raddhljóð mynda hljóðveggi. Djass
og þjóðlagatilbrigði eru mest
ríkjandi og yfir öllu er norrænn
kuldi sem er sérstæður. Það er vel
til fundið að loka augunum yfir
þessari plötu og láta raddirnar
flytja mann á nýjan stað. Einnig
mætti segja mér að það væri svellf-
ínt að hlusta á tónlistina uppi á fjöll-
um, einn með náttúrunni eða við
innhverfa íhugun.
IKI hópurinn minnir mann óneit-
anlega á sönghópa spunasöngkon-
unnar Meredith Monk og stundum
kemur Björk upp í hugann, þó að
nokkuð langt sé í að hópurinn nái
dýpt þeirra. Það er hluti af karakter
söng- og hljóðspunans að sleppa
hljóðfærum, en fyrir minn smekk
hefði það getað bætt plötuna að
nota hljóðfæri til áherslu á nokkrum
völdum stöðum. Á heildina litið er
frumraun IKI sönghópsins eft-
irtektarverð og verður spennandi að
sjá á hvaða hátt stúlkurnar þróa
sína gjörninga í framtíðinni.
Ljóðræn og leikræn stemmn-
ing og norrænn kuldi
IKI - IKI bbbnn
Fyrsti geisladiskur norrænu stúlkna-
sveitarinnar IKI. ILK Music gefur út.
ÖRN
ÞÓRISSON
TÓNLIST
Hressar IKI hópurinn eyddi þremur dögum í hljóðveri.
Óperusmiðja Garðabæjar er nú
haldin þriðja sinni í Kirkjuhvoli,
safnaðarheimili Vídalínskirkju. Að
þessu sinni taka sextán söngvarar
þátt í smiðjunni, allir nemendur í
framhaldsnámi eða ungir atvinnu-
söngvarar. Í ár komu tveir söngv-
arar að utan, einn frá Þýskalandi og
einn frá Suður-Kóreu.
Leiðbeinendur smiðjunnar eru
Martha Sharp, prófessor við Moz-
arteum-tónlistarháskólann í Salz-
burg, sem sér um leikstjórn, og
Margareth Singer, sem sér um tón-
listarstjórn. Einnig annast undirleik
í atriðum tveir aðrir þýskir píanó-
leikarar.
Í smiðjunni verða sett upp sjö at-
riði úr mismunandi óperum og lýkur
námskeiðinu með tveimur sýningum
í Kirkjuhvoli. Sú fyrri er í kvöld kl.
20.00 og á laugardaginn kl. 17.00.
Flutt verða leikin atriði úr Brúð-
kaupi Figaros, La clemenza di Tito,
Cosi fan tutte og Brottnáminu úr
kvennabúrinu eftir Mozart, Mikado
eftir Gilbert og Sullivan, The Old
Maid and the Thief eftir Menotti og
Grímudansleiknum eftir Verdi.
arnim@mbl.is
Óperusmiðja haldin í
Garðabæ í þriðja sinn
Sýningar í
Kirkjuhvoli í kvöld
og annað kvöld
Morgunblaðið/Kristinn
Óperufjör Frá æfingu Óperusmiðju Garðabæjar í Kirkjuhvoli.
Á sunnudag verða
næstsíðustu tón-
leikarnir í tón-
leikaröðinni Sum-
artónleikar í
Hóladómkirkju,
en þá syngur
Gerður Bolladótt-
ir íslensk þjóðlög
við undirleik
Victoriu Ta-
revskaiu sellóleik-
ara. Flutt verða þekkt lög sem Ferd-
inand Rauter útsetti en einnig
þjóðlög sem Hildigunnur Rúnars-
dóttir hefur nýlega útsett og hafa
sjaldan heyrst. Ennfremur verður
fluttur ljóðaflokkurinn „Lysting er
sæt að söng“, þar sem ljóðin eru úr
fornum handritum en Snorri Sigfús
Birgisson hefur útsett þau fyrir sópr-
an og selló. Tónleikarnir eru sér-
staklega tileinkaðir Katrínu Kolka
Jónsdóttur. Aðgangur er ókeypis.
Sópran og
selló á Hólum
Gerður
Bolladóttir
Á Menningarnótt verður sýningin
100 andlit íslenskrar náttúru sett
upp víða um miðborgina. Fimmtíu
myndir verða til sýnis í húsakynn-
um Crymogeu, Barónsstíg 27, í
verslunum Anderson and Lauth, í
Borði fyrir tvo, Circus circus,
Calvi, Sigurboganum, Argentínu
steikhúsi, GK Reykjavík, Kiosk,
hjá Gilbert úrsmiði, í Herrafata-
verslun Kormáks og Skjaldar, Ni-
kita, Lólu, Gulli og silfri, Vín-
berinu, Litla bóndabænum,
Smekkleysu, Hringu, Joss, Kún-
íkúnd, Gleraugnamiðstöðinni, Gull-
kúnst Helgu,
The Work
Shop, Ófeigi,
Útúrdúr,
Karlmönnum,
Kexi hosteli,
Spak Design
Space, Minervu, Eymundsson og
Spútnik.
Sýningin tengist væntanlegri
ljósmyndabók, Ný náttúra –
Myndir frá Íslandi, sem Crymogea
sendir frá sér innan skamms, en
myndirnar eru úrval þeirra mynda
sem þar verður að finna.
Farandljósmyndasýning
um alla miðborgina
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Fös 2/9 kl. 20:00 1.k Mið 7/9 kl. 20:00 3.k Fös 16/9 kl. 20:00 5.k
Lau 3/9 kl. 20:00 2.k Sun 11/9 kl. 20:00 4.k Sun 18/9 kl. 20:00 6.k
Mannleg og hrífandi sýning sem lætur engan ósnortinn
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 9/9 kl. 20:00 1.k Lau 17/9 kl. 20:00 3.k Lau 24/9 kl. 20:00 5.k
Lau 10/9 kl. 20:00 2.k Fös 23/9 kl. 20:00 4.k
Vinsælasta sýning síðasta leikárs snýr aftur
Zombíljóðin (Litla sviðið)
Fös 9/9 kl. 20:00 frumsýn Sun 11/9 kl. 20:00 3.k Þri 13/9 kl. 20:00 5.k
Lau 10/9 kl. 20:00 2.k Mán 12/9 kl. 20:00 4.k
Hábeittur og hrollvekjandi samfélagsspegill
Afinn (Stóra sviðið)
Fös 16/9 kl. 20:00 1.k Fim 22/9 kl. 20:00 3.k Fös 30/9 kl. 20:00 5.k
Sun 18/9 kl. 20:00 2.k Sun 25/9 kl. 20:00 4.k
Hlýlegt gamanverk með stórt hjarta
Eldfærin (Stóra sviðið)
Lau 24/9 kl. 13:00 1.k Sun 25/9 kl. 13:00 2.k
Leikhústöfrar fyrir börn á öllum aldri
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 2/9 kl. 19:30 Br.
sýningartími
Fös 9/9 kl. 19:30 Fös 16/9 kl. 19:30
Lau 3/9 kl. 19:30 Br.
sýningartími
Lau 10/9 kl. 19:30 Lau 17/9 kl. 19:30
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 18/9 kl. 19:30 Sun 25/9 kl. 19:30 Sun 2/10 kl. 19:30
Fös 23/9 kl. 19:30 Fös 30/9 kl. 19:30
Lau 24/9 kl. 19:30 Lau 1/10 kl. 19:30
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 28/8 kl. 14:00 Sun 11/9 kl. 14:00 Sun 25/9 kl. 14:00
Sun 4/9 kl. 14:00 Sun 18/9 kl. 14:00
Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna!
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
School of Transformation (LÓKAL2011)
Mið 24/8 lokaæfing kl. 19:00
Fim 25/8 frums. kl. 19:00
Lau 27/8 kl. 16:00
Sun 28/8 kl. 16:00
Mið 31/8 kl. 19:00
Fim 1/9 kl. 19:00
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is