Morgunblaðið - 19.08.2011, Síða 31

Morgunblaðið - 19.08.2011, Síða 31
grösin og jurtir grænar, glóandi blómstrið frítt, reyr, stör sem rósir vænar reiknar hann jafnfánýtt. (Hallgrímur Pétursson) Já, fallvaltleiki tilverunnar er mikill – þrátt fyrir einlæga von um annað. Huggun á þessari stundu finnst þó í þeirri stað- reynd að hafa fengið tækifæri að þekkja jafn frábæran einstakling og góða konu og Unnur var og átt hana að sem frænku og félaga. Unnur kom mér nefnilega fyrir sjónir sem mikil fyrirmynd og það var hún svo sannarlega. Unnur var vissulega „blómstur frítt“ og „rós væn“ og ber ævistarf hennar fagurt vitni því til staðfestingar. Því er eftirsjáin mikil eftir Unni. Ég vil votta Hákoni, Finni, Grími og Hörpu Dís innilega sam- úð mína eftir þetta sviplega fráfall og vona með guðshjálp að þau finni styrk til að takast á við þenn- an mikla missi. Heiðar Lind Hansson. Unnur föðursystir mín er fallin frá. Margs er að minnast þegar svo kraftmikil kona fellur frá í blóma lífsins. Líf hennar ein- kenndist af elju og dugnaði og fylgdi hún hugðarefnum sínum vel eftir. Það voru margir sem nutu krafta hennar á breiðum starfs- og áhugasviðsferli. Stolt fylgdist ég með Unni taka þátt í frjálsum íþróttum fram eftir öll- um aldri þar sem margir sigrar unnust, oftar en ekki var hún mun eldri en hinir þátttakendurnir í viðkomandi greinum. Unnur var dugleg við að uppfræða kynslóðir. Hún sagði mér sögur af leikjum þeirra systkina og barnanna í hverfinu frá æskuárunum og gæddi þær lífi svo upplifunin varð sterk þeim sem á hlýddi. Einnig sagði Unnur mér skemmtilegar sögur af tilurð nokkurra trjáa sem prýða skógarreit á æskuslóð- um okkar beggja og hún, Hákon og fjölskylda hafa hlúð að og búið sér athvarf í. Ég minnist orlofsdaga sem farnir voru á Kársnesbrautina í æsku. Þá sóttum við heim marga fróðleiksstaði á höfuðborgar- svæðinu sem ég hafði ekki áður komið á. Það var gott að dvelja hjá þeim Hákoni á Kársnesbraut- inni í tvö sumur í kringum tvítugt þegar ég var að hefja leikskóla- kennsluferil minn. Oft hafa leik- skólamál verið í umræðunni þeg- ar við höfum hist og upplifði ég sterkt hvað Unnur var vel að sér í þeim málum. Hún uppgötvaði nýjar leiðir og var óhrædd við að prófa þær og bæta. Einnig var hún dugleg að kynna stefnu og fræði Heilsuleikskólanna og auka þannig breidd leikskólastarfs á Íslandi. Hennar mun verða sárt saknað á þeim vettvangi eins og svo mörgum öðrum. Elsku Hákon, Finnur, Grímur, Harpa Dís, Rósa, Halla og Ísa- dóra. Megi guð styrkja ykkur í sorginni. Minning um kjarnorku- mikla framkvæmdakonu mun lifa í hjörtum okkar. Kristín Þóra. Það er erfitt að þurfa að kveðja Unni okkar, sem svo víða hefur lagt hönd á plóg og komið góðu til leiðar fyrir samfélagið. Unnur sinnti líka fjölskyldunni vel, hún var stoð og stytta Unnar Guðmundsdóttur móðursystur sinnar sem varð níræð 30. júlí sl. Það var eitt síðasta verk Unnar að skipuleggja veglega afmælis- veislu hennar, sem haldin var í Þingborg í Flóa. Í allmörg ár höfum við nokkur systkinabörn séð um að sinna Unni Guðmundsdóttur bæði þeg- ar hún var heima og nú eftir að hún fór inn á Grund. Unnur kall- aði okkur reglulega saman til að gleðjast saman yfir veitingum og til að ræða málefni Unnar frænku og sá um að skipuleggja heim- sóknir þannig að tryggt væri að hún fengi heimsókn um hverja helgi. Unnur sá um að fataskáp- urinn hennar og annað væri í lagi og var dugleg að taka hana heim til sín eða í sumarbústaðinn, á af- mælum og stórhátíðum eða við önnur tilefni. Við viljum þakka Unni fyrir þessa góðu umönnun Unnar frænku og nú reynum við að fylla skarðið þó aldrei verði það alveg eins. Það er óhætt að fullyrða að þetta fyrirkomulag hefur verið mjög mikils virði fyrir hana og hefur í leiðinni aukið samskipti okkar frændsystkinanna og styrkt okkar fjölskyldubönd. Við sendum dýpstu samúðar- kveðjur til Hákonar, Finns, Gríms og Hörpu Dísar og allrar fjölskyldunnar frá Vorsabæ. Ragnheiður og Jónína Stef- ánsdætur, Guðmundur, Svavar, Ingibjörg og Ragn- heiður Sigmundsbörn. Fallinn er frá góður félagi, mig langar til að minnast í örfáum orðum frænku minnar, nágranna og góðs liðsfélaga. Unnur Stef- ánsdóttir var fyrirmynd á marga vegu. Hún kom mér alltaf fyrir sjónir sem lífsglöð manneskja og alltaf var stutt í brosið. Hún hætti aldrei að berjast og brosa þrátt fyrir að hún hafði greinst með þann sjúkdóm sem varð henni að falli að lokum. Það var ein minn- ing, af mörgum, sem kom strax í huga mér þegar ég fékk þær fréttir að Unnur væri fallin frá. Landsmót ungmennafélaga Ís- lands í Keflavík 1984, ég var þá 16 ára að keppa í 1.500 m hlaupi á mínu fyrsta landsmóti en Unnur hafði margra móta reynslu. Við vorum að hita upp saman fyrir hlaupið og ég var eitthvað stress- uð yfir þessu en ég gleymi aldrei hvatningarorðum Unnar en hún sagði við mig: „Við förum alltaf út á brautina til að gera okkar besta og um leið að hafa gaman af því.“ Þessi orð hafa fylgt mér áfram til framtíðar og verið mitt veganesti í því sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Unnur var mikil keppn- ismanneskja og stundaði heilsu- rækt alla tíð, hún var meðvituð um að hreyfing og hollt mataræði skipi miklu máli. Því fyrr sem byrjað væri á að vera meðvitaður um hollustu því betra. Það kom því ekki á óvart að Unnur myndi verða brautryðjandi í stefnu um heilsuleikskóla á Íslandi. Hún var trygg sínu gamla ungmennafélagi Samhygð og HSK og var félagi í því þrátt fyrir að hafa flutt af svæðinu frekar ung. En hún kom og keppti fyrir sitt félag og var trygg því, það er því ekki ofsögum sagt að hún var góður félagi. Það er svo margt sem kemur upp í huga mér þegar ég byrja að skrifa og hægt væri að telja upp svo margt sem Unnur afrekaði í lífinu en sumt er gott að eiga fyrir sig. Við, fjölskyldan í Vorsabæj- arhjáleigu, vottum fjölskyldu Unnar okkar dýpstu samúð, sér- staklega Hákoni, Hörpu Dís, Grími, Finni, tengdadætrum og barnabarni. Við vitum að nú eru erfiðir tímar hjá ykkur öllum en munið: minningin lifir áfram og í hana höldum við öll. Anný Ingimarsdóttir. Með þakklæti kveðjum við Unni Stefánsdóttur, þakklæti fyr- ir að hafa átt hana að vini. Hún er látin langt um aldur fram, erfið barátta við óvæginn sjúkdóm tap- aðist. Unnur giftist ung æskuvini mínum, Hákoni Sigurgrímssyni. Þrátt fyrir mikinn aldursmun ríkti mikið jafnræði og hamingja í sambandi þeirra, og gagnkvæm- ur stuðningur. Unnur var mörgum kostum gædd, eins og sjá má af hennar glæsilega ferli. Hún var kappsöm, ekki bara í íþróttum, heldur einn- ig í þeim fjölmörgu verkum sem henni var trúað fyrir og hún vann að af hugsjón og eldmóði, en þó með hógværð. Þessir eiginleikar voru þeim Unni og Hákoni sam- eiginlegir, og var líklega ástæðan fyrir hve þau voru samrýmd í öllu. Ekki var verra að þau voru með svipaðan bakgrun, fædd og upp alin sitt á hvoru fyrirmyndar óðal- inu í Flóanum, Vorsabæ og Holti. Barnalánið jók lífshamingjuna á heimilinu við Kársnesbraut. Tengslin við átthagana voru sterk. Að því kom að þau reistu sér hús á unaðsreit í landi Vorsa- bæjar, æskuheimilis Unnar. Þar upplifði öll fjölskyldan margar glaðar stundir í fögru og friðsælu umhverfi. Mikið gleðiefni var okkur að hafa fengið að taka þátt í því ævintýri. Öll árin höfum við hitt Unni og Hákon, stundum í sveitinni og stundum í bænum. Það hafa verið gefandi stundir þar sem margt var rætt og margs minnst. Unnur barðist við veikindin í þrjú ár af sama æðruleysi og dugnaði og við hvert annað verk- efni sem hún tók sér fyrir hendur. Baráttan var erfið, líka fyrir ykk- ur kæru Hákon, Harpa Dís, Finn- ur og Grímur. Fallegar minning- ar um Unni veiti ykkur styrk í þungbærri sorg. Við sendum ykk- ur og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Hróbjartur og Karin. Eftir því sem við fáum að lifa lengur verður erfiðara að kveðja. Kveðja þá sem við kynntumst ung og hafa fylgt okkur síðan í gegn- um árin í starfi og leik. Nú er komið að kveðjustund okkar með Unni Stefánsdóttur. Við kynnt- umst fyrst þegar hún var ung stúlka, vel innan við tvítugt, sem sótti dansleiki í Félagslundi með Hljómsveit Steina spil frá Sel- fossi. Hún hafði þá þegar vakið athygli sem upprennandi íþrótta- kona og virkur þátttakandi í fé- lagsstarfi. Þau kynni héldu áfram þegar Unnur leiddi Landssam- band framsóknarkvenna til áhrifa innan Framsóknarflokksins, þá sjálf ung að árum. Hún lagði þar grunn að farsælu starfi innan stjórnmálaflokksins sem hún studdi alla tíð með óeigingjörnu sjálfboðaliðastarfi hvort sem var á landsvísu eða í bæjarmálum í Kópavogi. Þá unnum við saman innan íþróttahreyfingarinnar. Það var mikilvægt að eiga Unni að í forystu Íþrótta- og ól- ympíusambands Íslands þegar við unnum að því að stofna sér- samband dansíþrótta. Hún skildi að iðkun dansíþróttar er ungu fólki farsæl þjálfun til félagslegr- ar þátttöku á lífsleiðinni en ekki síst góður grunnur í þjálfun ann- arra íþrótta eins og fimleika. Síð- asta verkefnið sem við unnum saman var við forval og uppstill- ingu á lista til bæjarstjórnar í Kópavogi fyrir síðustu kosningar. Það var gott að vinna með Unni að slíku starfi því hún var ávallt tilbúin að taka að sér verkefni, hversu erfið sem þau kynnu að vera, og sinnti þeim af kostgæfni. Um tíma vorum við nágrannar Unnar og Hákonar á Kársnesinu og áttum með þeim góðar sam- verustundir. Drengirnir hennar gengu í sama skóla og okkar og fylgdumst við með þeim þegar þeir unnu frumraunir sínar á listasviðinu. Svo eftir að yngsta barnið þeirra fæddist fylgdumst við með Hörpu Dís vaxa og dafna. Við sáum hana taka þátt í keppni í samkvæmisdönsum og syngja með Kársneskórnum við ótal tækifæri, og svo ekki síst þegar hún gaf út fyrstu bókina sína. Þegar við stóðum frammi fyr- ir útför yngsta drengsins okkar fyrir nær tuttugu árum gerðum við okkur takmarkaða grein fyr- ir því stóra verkefni sem fólst í erfidrykkju að athöfn lokinni. Þá tók Unnur óbeðin til hendinni og sýndi að á slíkri stundu kunni hún til verka. Sú aðstoð var okk- ur ómetanleg. Síðasta samveru- stundin sem við áttum með Unni var á sólríkum degi á friðsælli og fagurri ströndinni meðfram Kópavoginum. Unnur var al- vörugefin en ræðin og fljótlega fór hún að brosa og hlæja eins og henni var svo tamt. Þegar við skyldum höfðum við á orði að hittast fljótt aftur. Því náðum við ekki að sinni. Við viljum þakka fyrir allar samverustundirnar með Unni, samstarfið og samhygð sem hún sýndi á liðnum árum. Við send- um okkar dýpstu samúðarkveðj- ur til fjölskyldu hennar, sona hennar og dóttur, en ekki síst til eiginmanns hennar, Hákonar Sigurgrímssonar. Birna Bjarnadóttir og Haukur Ingibergsson. Kveðja frá Landssambandi framsóknarkvenna Í dag kveðjum við eina mestu baráttu- og hugsjónakonu sem Landssamband framsóknar- kvenna hefur haft í sínum röð- um. Unnur Stefánsdóttir var stofnfélagi Landssambands framsóknarkvenna (LFK) 1981, varaformaður á árunum 1983- 1985 og formaður 1985-1993. Á formannsárum sínum sat hún einnig í framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins fyrir hönd LFK. Unnur gegndi einnig ýms- um öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn þ. á m. var hún kjörin varagjaldkeri flokksins. Á for- mannsárum sínum lagði Unnur mikla áherslu á að koma konum í efstu sæti á framboðslista Fram- sóknar, ásamt því að hennar áherslumál voru tengd heilsu og velferð almennings. Á þeim tíma sem Unnur var varaformaður hjá Sigrúnu Stefánsdóttur þá- verandi formanni lögðu þær mikla vinnu í að fylgja eftir „Húsavíkursamþykkt“ LFK, þar sem krafist var að konur sætu til helmings á við karla í stjórnum, fulltrúaráðum og kjör- dæmasamböndum. Þessi tillaga þótti mjög róttæk og fylgdu þær henni eftir með því að búa konur undir að taka við þessum emb- ættum. Þær höfðu samband við konur í ýmsum landshlutum og fengu þær til að bjóða konum í heimahús til að ræða málin. Þessir fundir voru óformlegir og stundum mátti ekki ræða um pólitík sem varð þó aðalumræðu- efnið. Á landsþingi LFK 1985 var Unnur kjörin formaður. Ályktað var að konur ættu að vera í öðru af tveim efstu sætum á framboðslistum í komandi sveitarstjórnar og alþingiskosn- ingum. Í framhaldi af þessari kröfu var LFK með námskeið um allt land þar sem stjórnar- konur og aðrar konur í þeirra röðum kenndu konum fundar- sköp, framkomu og annað sem þótti nauðsynlegt til að undirbúa þær fyrir alvöru framboð. Þegar á reyndi var einungis ein kona í öðru sæti á lista í þingkosningum en margar í þriðja sæti og neðar á listum. Þá ályktaði stjórn LFK mjög hart í garð flokksins, sem er mörgum eftirminninlegt. Þær hótuðu að ganga úr flokknum og sameinast Kvennalistanum eða stofna nýtt stjórnmálaafl. Þetta þótti innsta kjarna flokksins frekar mikil frekja, en þessi krafa hafði áhrif á framtíðina eins og flestir vita. Hér er aðeins minnst á helstu atburði sem Unnur stóð fyrir. Listinn er ótæmandi frá hennar tíma í starfi LFK. Við þökkum fyrir að hafa haft slíka baráttukonu í for- svari LFK. Konu sem hafði kjark til að ryðja brautina fyrir þær konur sem komu á eftir. Erfitt er að missa Unni úr starfinu, hún var ávallt til staðar fyrir þær sem tóku við keflinu úr hennar hendi og hlaut hún nú í vor jafnréttis- viðurkenningu Framsóknar- flokksins fyrir störf sín.Við send- um fjölskyldu Unnar okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi guð gefa ykkur styrk. F.h. Landssambands fram- sóknarkvenna. Þórey Anna Matthíasdóttir. Kveðja frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands Það er með söknuði sem íþróttahreyfingin á Íslandi kveð- ur Unni Stefánsdóttur. Vissulega hafði legið fyrir um nokkurt skeið hvert stefndi, þar sem aðdáunarvert hugrekki í bar- áttu við illvígan sjúkdóm endur- speglaði mikinn persónuleika Unnar. Hún var íþróttafólki góð fyrirmynd, glæsileg kona með af- reksferil jafnt á vettvangi íþrótta sem daglegra starfa. Unnur Stefánsdóttir starfaði lengi og dyggilega í þágu íþrótta- hreyfingarinnar á Íslandi í kjölfar afreksferils í frjálsíþróttum. Sat hún í aðal- og varastjórn Íþrótta- sambands Íslands, og síðar í stjórn hinna sameinuðu samtaka Íþrótta- og Ólympíusambands Ís- lands frá árinu 1990-2002. Var hún ávallt virk í sínum störfum, ekki síst á sviði jafnréttismála og aukinnar þátttöku kvenna í íþróttastarfi. Má sannarlega segja að hún hafi verið í hópi brautryðjenda þess málaflokks innan íþróttahreyfingarinnar. Hlaut Unnur verðskuldaðar við- urkenningar fyrir störf sín á þeim vettvangi. Á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2009 hlaut Unnur Heiðurskross Íþrótta- og Ólympíusambands Ís- lands. Sannfæring Unnar um sam- félagslegt mikilvægi heilbrigðs íþróttastarfs var mikil, og sýndi hún það vel í verki í sínu daglega starfi á vettvangi barna- og upp- eldismála með frumkvæði og hug- myndum um tengingu íþróttaiðk- unar barna í leikskólum við heilbrigði og hollt uppeldi. Fyrir hönd starfsfólks og stjórnarmanna í framkvæmda- stjórn Íþrótta- og Ólympíusam- bands Íslands votta ég aðstand- endum Unnar Stefánsdóttur okkar dýpstu samúð. Ólafur E. Rafnsson, forseti ÍSÍ Það var mikið áfall að frétta af ótímabæru andláti Unnar Stef- ánsdóttur í byrjun mánaðarins. Lífsstíll Unnar og þokki báru þess ævinlega vott að hún hafði notið góðs af heilbrigðu uppeldi og líferni og hún sem var ávallt já- kvæð og ljúf í fasi, var á margan hátt tákngervingur heilbrigðs líf- ernis og virtist eiga fyrir höndum langan og farsælan feril á lífs- brautinni. Íþróttir en þó einkanlega frjálsíþróttir voru Unni hjartans mál. Afrek Unnar á afrekaskrá spanna allt frá árinu 1967 til árs- ins 2008, eða í rúma fjóra áratugi. Ferill hennar í íþróttum var samt lengri og segja má að hún hafi stundað íþróttir allt sitt líf og sinnt þeim bæði utan og innan vallar. Hún var einnig öðrum góð fyrirmynd og brautryðjandi á mörgum sviðum. Hún á ekki að- eins langan keppnisferil að baki, heldur var hún mikill brautryðj- andi á sviði íþrótta. Hún var í fyrsta fullskipaða kvennalands- liðinu sem tók þátt í fyrstu Kalott- keppninni árið 1972. Hún lét ekki þar við sitja heldur kom aftur inn í landsliðið níu árum síðar og þá komin á fertugsaldurinn og kom þá til leiks að nýju sterkari en nokkru sinni fyrr eftir barneignir. Hennar besti árangur er frá því tímabili lífsskeiðsins sem flestar konur voru löngu hættar íþrótt- um. Hún keppti einnig á fyrsta Norðurlandameistaramótinu innanhúss sem fram fór í Laug- ardalshöll síðla vetrar 2008. Hún stóð sig ávallt vel og lagði sig alla fram í keppni og var öðrum góð fyrirmynd að því leyti einnig. Til að sýna hversu mikið hún naut þess að keppa og taka þátt íþróttum keppti hún á fjölda móta og í öðrum greinum en þeim sem hún var fremst í eins og fimmtarþraut, kúluvarpi og hástökki svo aðeins fátt sé nefnt. Unnur var fyrsta konan sem kjörin var í aðalstjórn Frjáls- íþróttasambandsins árið 1983, en lét af því embætti eftir að hún var kjörin í framkvæmastjórn ÍSÍ. Auk þess starfaði hún mikið í nefndum og sinnti öðrum fé- lagsmálum fyrir hreyfinguna. Unnur hlaut gullmerki FRÍ árið 1997 fyrir framlag sitt til íþrótt- arinnar. Afrekum og framlagi Unnar Stefánsdóttur eru ekki gerð sanngjörn skil með þessum fáu orðum, en við þökkum fyrir hennar mikilsverða framlag til íþróttarinnar. Fjölskyldu Unnar eru færðar innilegustu samúðar- kveðjur frá Frjálsíþróttasam- andi Íslands vegna fráfalls henn- ar. Fyrir hönd FRÍ, Jónas Egilsson, framkvæmdastjóri. Kveðja frá Ungmennafélagi Íslands Unnur Stefánsdóttir gerðist félagi í Ungmennafélaginu Sam- hygð ung að árum undir hand- leiðslu föður síns, ungmenna- félagsleiðtogans Stefáns Jasonarsonar í Vorsabæ. Hún varð snemma ein af bestu frjáls- íþróttakonum landsins og keppti jafnan fyrir Samhygð og HSK þótt hún ætti lengstum heima á höfuðborgarsvæðinu. Hún var orðin þrítug tveggja barna móðir árið 1981 en hóf þá markvissar æfingar á ný og var valin í úr- valslið UMFÍ sem keppti gegn Dönum í Árósum um sumarið. Unnur stóð sig frábærlega og hlaut nafnbótina „hlaupadrottn- ing UMFÍ“ í Skinfaxa. Frammi- staða hennar á landsmótum UMFÍ er mörgum minnisstæð en hápunkturinn var sigur henn- ar í 400 metra hlaupi í Mos- fellsbæ 1990. Þá var Unnur 39 ára gömul en flestir keppinautar hennar helmingi yngri. Unnur var íþróttakonum landsins frá- bær fyrirmynd og sýndi það og sannaði að aldur er engin hindr- un ef áhuginn er fyrir hendi. Unnur átti fjölbreyttan feril innan ungmennafélagshreyfing- arinnar. Meðal annars sýndi hún þjóðdansa á Landsmótinu á Laugarvatni 1965 og 30 árum síðar var hún í mótsnefnd Landsmótsins á Laugarvatni 1994. Mikið mæddi á nefndinni því halli varð á mótinu en með samstilltu átaki tókst að ljúka skuldaskilum innan árs sem var afreksverk. Seinna tók Unnur þátt í öðrum keppnisgreinum á landsmótum, svo sem pönnu- kökubakstri og var stöðugt tilbú- in að leggja sitt af mörkum ung- mennafélagshreyfingunni til framdráttar. Þá er ótalin sú hvatning sem Unnur veitti með frammistöðu sinni í íþróttum og heilbrigðum lífsstíl sem hún innleiddi á leik- skólum sem hún stjórnaði. Já- kvæðni hennar og glaðlyndi hafði sitt að segja og hennar verður minnst sem einnar af þeim konum sem hafa betrandi áhrif á mannlífið í kringum sig. Það er gott að minnast Unnar Stefánsdóttur og stjórn UMFÍ vill að leiðarlokum þakka hennar jákvæða framlag til ungmenna- félagshreyfingarinnar. Eiginmanni hennar og börn- um vottum við innilega samúð. Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ. HINSTA KVEÐJA Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. (Friðrik Guðni Þórleifsson) Með djúpri virðingu og þökk kveð ég kæra sam- ferðakonu, Unni Stefáns- dóttur. Eiginmanni, börnum, tengdabörnum, ömmu- stelpunni svo og öðrum syrgjendum votta ég mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Unn- ar Stefánsdóttur. Sigurbjörg Björgvinsdóttir. SJÁ SÍÐU 32 MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.