Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Kveðja frá Héraðs- sambandinu Skarphéðni Sú sorgarfrétt barst í síðustu viku að Unnur Stefánsdóttir væri fallin frá. Unnur tók frá barnsaldri þátt í störfum Hér- aðssambandsins Skarphéðins og hélt mikilli tryggð við HSK alla tíð. Slíkt er ekki sjálfgefið þar sem hún flutti ung að heiman og út fyrir sambandssvæðið. Í því sambandi skiptu vegalengdir ekki máli og hún var alltaf boðin og búin að leggja sambandinu lið. Unnur var mikil keppnis- manneskja og stundaði íþróttir og heilsurækt alla tíð. Hún náði afburðaárangri og er ein mesta afrekskona HSK í sprett- og millivegalengdahlaupum frá upphafi. Hún setti tugi héraðs- meta og á í dag átta HSK met í sprett- og millivegalengdahlaup- um í kvennaflokki. Unnur tók þátt í héraðsmót- um um áratugaskeið og var í bik- arliði HSK um árabil. Þá keppti hún á landsmótum fyrir HSK og vann til fjölda verðlauna. Minn- isstæður er sigur hennar í 400 metra hlaupi á landsmótinu í Mosfellsbæ árið 1990, en þá var hún orðin 39 ára gömul. Unnur var einnig kröftug fé- lagsmálakona og lét víða til sín taka í því sambandi. Hún var m.a. í landsmótsnefnd HSK sem sá um framkvæmd landsmóts UMFÍ á Laugarvatni árið 1994 og í svokölluðum 65 hóp sem minntist landsmótsins fræga á Laugarvatni 1965. Þá átti hún sæti í stjórn ÍSÍ um skeið sem fulltrúi HSK. Hún stóð sig frá- bærlega í þessum störfum, eins og á keppnisvellinum, enda metnaðurinn sá sami að standa sig vel og láta gott af sér leiða. Sá er þetta ritar, fyrir hönd sambandsins, átti því láni að fagna að kynnast Unni, en við vorum samherjar í bikarliði HSK og síðar í stjórn ÍSÍ. Það var eftirtektarvert hvað hún var alltaf jákvæð og hvetjandi. Stutt var í brosið, hláturinn og lífsgleð- ina. Þetta allt gerði hana að eft- irminnilegri og skemmtilegri konu sem við söknum svo mjög. Að leiðarlokum þakkar Hér- aðssambandið Skarphéðinn fyrir hennar mikilsverða framlag til íþrótta- og æskulýðsmála í hér- aði og áratuga samfylgd og vin- áttu. Við sendum Hákoni, börn- um og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. F.h. Héraðssambandsins Skarphéðins, Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri. Nú hefur hún Unnur okkar skokkað yfir á annað tilverusvið og skilið eftir sig stórt skarð í bekkjarsystrahópnum. Við kynntumst Unni haustið 1971 þegar við hófum nám í Fóstru- skóla Sumargjafar eins og skól- inn hét þá. Skipt var í bekki eftir stafrófsröð og var okkar bekkur, b-bekkurinn, seinni hluti staf- rófsins. Strax í upphafi skólans komu forystuhæfileikar, metn- aður og framtakssemi Unnar í ljós. Á öðrum degi var hún komin með ábyrgð á kladdanum og eftir viku hafði hún stofnað kaupfélag til fjáröflunar fyrir nemenda- félagið sem hún var í forystu fyr- ir. Í kaupfélaginu fengust auðvit- að bara hollustusamlokur, gulrætur og súrmjólk. Sumar af námsmeyjunum laumuðust út á Skalla í matarhléinu! Hollustan var strax í fyrirrúmi hjá Unni og okkur grunar að pólitískur áhugi hennar hafi einnig þá þegar beinst í ákveðna átt. Þá ályktun drögum við af græna nestisbox- inu hennar. Okkur bekkjasystrum duldist ekki að í Unni bjó engin meðal- mennska. Hún var metnaðar- gjörn og skipulögð í sínu námi og kastaði aldrei til höndum í nokkru verkefni hvorki smáu né stóru. Hún vissi hvert hún stefndi og hafði framtíðarsýn sem líklega verður að teljast óvanalegt fyrir svo unga konu. Aldrei heyrðist styggðaryrði frá okkur bekkjarsystrum vegna kladdans. Unnur hafði óskorað traust okkar allra og við virtum samviskusemi hennar og ná- kvæmni. Ef einhver nennti ómögulega að sitja í leiðinlegu átthagafræðitímunum þá sætti hann sig við skróp í kladdann. Svo einfalt var það. Eftir útskrift fórum við hver í sína áttina eins og gengur en héldum þó flestar áfram hópinn, hittumst á bekkjarkvöldum nokkrum sinnum á ári og höldum partí á vorin. Það eru ekki mörg bekkjarkvöld eða partí sem Unni hefur vantað í. Alltaf var jafn gaman að hitta hana. Ævinlega fitt og flott, fallega klædd, glöð og kát en hófstillt í allri fram- göngu. Margt er skrafað á bekkjarkvöldum og þá sér í lagi um leikskólamál. Unnur naut sín í slíkum umræðum enda með brennandi áhuga á öllu er sneri að leikskólastarfi og átti auðvelt með að koma skoðunum sínum á framfæri. Eitt var það sem ein- kenndi Unni en það var að hún hafði einnig einlægan áhuga á því sem varðaði allar skólasyst- urnar og gilti þá einu hvort um var að ræða einkalíf okkar eða starf. Þannig var Unnur. Eftir að Unnur greindist með krabbamein þá sendi hún okkur bekkjarsystrunum annað slagið tölvupóst með fréttum af sér og sínum. Í þeim póstum var aldrei uppgjafartónn heldur bjartsýni og horft fram á veginn. 1. júní sl. héldum við vorpartíið. Þar mættu þau hjónin Unnur og Há- kon og skemmtu sér með okkur fram á nótt. Unnur lék á als oddi og síst af öllu leiddum við hug- ann að því að þetta væri síðasta partíið þar sem við nytum sam- vista við okkar kæru bekkjar- systur. Nú er skarð fyrir skildi en minning um einstaka konu lif- ir með okkur áfram. Við vottum Hákoni og börnum þeirra Unnar okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd bekkjasystra Fósturskóla Íslands 1974, Ragnheiður Halldórsdóttir. Þá hefur hún Unnur Stefáns- dóttir, skólasystir mín, vinkona og samstarfsmaður til margra ára, tapað í baráttunni við krabbameinið. Hún Unnur var mikill bar- áttu- og keppnismaður og það átti ekki við hana að tapa. Fram til hins síðasta leit hún svo á að að sjálfsögðu myndi hún sigra í þessari baráttu eins og öðrum. Við Unnur vorum skólasystur í fyrsta framhaldsnámi í stjórn- un sem haldið var fyrir leikskóla- kennara. Það var hópur valkyrja sem lærðu ekki síður hverjar af öðrum en kennurunum. Nú er enn eitt skarð höggið í þennan hóp. Síðar unnum við Unnur sam- an í Kópavogi þar sem hún var leikskólastjóri. Hún Unnur var hugmyndarík og ólíkt mörgum kom hún hug- myndum sínum í framkvæmd. Hún var fylgin sér, ósérhlífin og kraftmikil kona. Hún leit ætíð svo á að henni væru allir vegir færir, stundum þyrfti bara að hrinda nokkrum steinum úr vegi. Þetta viðhorf innprentaði hún börnunum sínum, svo og sam- starfsfólki. Hún bar mikið traust til undirmanna sinna, fól þeim metnaðarfull verkefni og stuðl- aði að samvinnu þeirra. Unnur bar ómælda virðingu fyrir leikskólastarfi og var óþreytandi við að kynna starfið og mikilvægi þess. Hún var upp- hafsmaður og hugmyndafræð- ingur heilsustefnunnar í leik- skólum, sem nú er unnið eftir víða. Hún Unnur kom víða við á sinni alltof stuttu starfsævi og allsstaðar skildi hún eftir sig framfaraspor. Megi minning hennar lifa og hugsjónir hennar halda áfram að þróast, leikskólastarfi á Íslandi til frama og gæfu. Ég færi eiginmanni hennar, börnum og barnabarni innilegar samúðarkveðjur mínar og starfs- manna á leikskóladeild Mennta- sviðs Kópavogs. Sesselja Hauksdóttir. Við fráfall Unnar Stefánsdótt- ur erum við enn á ný minntar á hve hratt flýgur stund. Unnur er sú þriðja sem kveður af 53 náms- meyjum sem komu saman á haustdögum 1969 til að nema við Húsmæðraskóla Suðurlands að Laugarvatni. Veturinn leið við nám og störf undir handleiðslu góðra kennara sem meðal ann- ars leiddu námsmeyjar í allan sannleika um matargerð, út- saum og hreingerningar. Ekki má gleyma söngnum og félagslíf- inu sem var með miklum blóma. Í þessum hópi var gott að hafa Unni . Hún var samviskusöm, skipulögð og traust og naut virð- ingar innan skólans. Það kom okkur því ekki á óvart að hún skyldi veturinn á eftir vera valin til að starfa sem aðstoðarmaður kennara við skólann. Þá þegar hafði Unnur tileinkað sér þann heilbrigða lífsstíl sem einkenndi hana alla tíð og hún síðar breiddi út meðal annars með frum- kvöðlastarfi sínu við mótun heilsustefnu fyrir leikskóla hér á landi. Við skólasysturnar höfum fylgst með velgengni Unnar og verið stoltar af því að hún skyldi vera ein úr okkar hópi. Á fimm ára fresti höfum við skólasysturnar komið saman og rifjað upp gamlar minningar. Fyrir rúmu ári komum við sam- an að Laugarvatni og fögnuðum 40 ára útskriftarafmæli. Okkur öllum sem þar voru er minni- stætt þegar Unnur stóð upp og sagði frá veikindum sínum, hve vel hún lýsti því sem hún hafði gengið í gegnum og bjartsýni hennar á bata. Við trúðum því líka að hún myndi sigra þennan vágest með elju sinni og dugnaði. Við kveðjum okkar kæru skólasystur með hlýju og þakk- læti fyrir allar ánægjulegar sam- verustundir á Húsmæðraskólan- um að Laugarvatni veturinn 1969-1970. Aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Fyrir hönd skólasystra frá Laugarvatni, Erna Hanna Guðjónsdóttir. Unnur Stefánsdóttir var fal- leg kona, bæði að innan sem ut- an. Fegurð hennar var öllum ljós, frítt andlit, fíngerð og stælt kona. Hennar innri maður var sömu gerðar. Jákvæð viðhorf, heiðarleiki, heilindi og einlægt viðmót. Mannkostir í hvívetna. Það var Unnur. Nú er þessi góða kona, þessi blómarós, horfin af sviðinu, alltof snemma, öllum harmdauði. Það verður ekki sagt um hana Unni Stefánsdóttur að hún hafi farið með látum og hávaða sína ævigöngu. Kurteisi, látleysi og falleg framkoma var hennar stíll, hennar eðli. Þar með er ekki sagt að Unnur hafi verið skaplaus dula. Öðru nær. Það sýndi sig í íþróttaafrekum hennar, störfum hennar við leikskóla og félags- málastússi, hvort heldur í stjórn- málum eða á vettvangi íþróttanna. Með stillingu sinni, ákveðni og málflutningi öllum ávann hún sér traust, skilning og ábyrgð. Og hún tók ekki þátt í fé- lagsmálum nema vegna þess að hún var holdgervingur sam- kenndar, velvildar og ástúðar á samborgurum sínum. Hún vildi koma góðu til leiðar. Áður en samstarf okkar innan ÍSÍ hófst var hún löngu þekkt sem afrekskona í íþróttum, eink- um sem langhlaupari í frjálsum íþróttum. Þannig var einnig hennar lífshlaup þar sem úthald, þrautseigja og yfirvegun skiptu máli. Það var hennar raunveru- lega langhlaup. Engin gönuhlaup, engir óþarfa sprettir, ekkert hik, heldur var haldið áfram jafnt og þétt með það fyrir augum að koma fyrst í mark. Þannig þekkt- um við Unni meðan hún var sam- starfsmaður okkar hjá ÍSÍ. Hún var kjörin í varastjórn ÍSÍ 1990 og í framkvæmdastjórn ÍSÍ 1994 þar sem hún sat til ársins 2002. Á þessum tíma leiddi Unnur starf ÍSÍ á vettvangi kvennaíþrótta og var meðal annars formaður Um- bótanefndar ÍSÍ í kvennaíþrótt- um. ÍSÍ hlaut jafnréttisviður- kenningu Jafnréttisráðs 1993 fyrir eflingu kvennaíþrótta. Unn- ur var fremst meðal jafningja í þeirri vinnu. Hún sat einnig í fjölda nefnda er tengdust afreks- starfi og hafði sérstakan áhuga á eflingu barnaíþrótta. Það kom því ekki á óvart að hún skyldi beita sér fyrir stofnun heilsuleikskóla þar sem áhersla var lögð á hreyf- ingu leikskólabarna samhliða leik og starfi. Fyrir öll þau góðu störf og þátttöku í íþróttalífi landsmanna viljum við undirritaðir þakka Unni Stefánsdóttur. Við sendum Hákoni og börnum þeirra hjóna og fjölskyldunni allri einlægar samúðarkveðjur. Ellert B. Schram, Stefán Snær Konráðsson. Unnur á hlaupabrautinni, spengileg afrekskona, keppnis- andinn leynir sér ekki, svo hraustleg og glæsileg. Hollustan alltaf í fyrirrúmi og ekki hægt að ímynda sér annað en að hún héldi heilsu um langan aldur. En lífið er ekki alltaf sanngjarnt og nú kveð- ur hún alltof snemma. Unnur Stefánsdóttir var mikil hugsjóna- manneskja og frumkvöðull. Með ævistafi sínu náði hún meiri ár- angri en margur og hafði jákvæð áhrif á samtíð sína. Merk nýjung eru heilsuleikskólarnir hennar og heilsustefnan sem hún þróaði. Fjölmörg leikskólabörn njóta þessa starfs hennar nú og upp- vaxandi kynslóð hefur fengið þar ómetanlegt veganesti út í lífið. Unnur settist þrisvar á Alþingi sem varaþingmaður, árin 1987, 1988 og 1996. Hugðarefni hennar lýsa sér vel í þingmálum hennar – velferð barna, menntun og um- bætur margskonar. Ein tillaga hennar sem full ástæða er að huga að, er að koma á öðrum þjóðsöng við hlið þjóðsöngsins okkar, sem auðveldara væri fyrir alla að syngja. Áhugi Unnar á heilsueflingu kom snemma í ljós. Á árum áður breytti hún t.d. gam- alli fundamenningu með því að bjóða upp á hollustufæði, ávexti og grænmeti í stað hefðbundins sætabrauðs. Karlarnir fussuðu þegar þessi siður Unnar bitnaði á þeim, en hún lét það ekki á sig fá og hló að þeim og gaf ekkert eftir. Þetta var fyrir tæpum þremur áratugum, en nú er hollustan sjálfsagt mál og ótrúlegt að átak þyrfti til að breyta þessu. Leiðir okkar Unnar lágu sam- an í pólitísku starfi. Við unnum náið saman með öflugum konum í rúman áratug í stjórn LFK, lengstum undir formennsku Unn- ar. Hún leiddi starfið af festu og dug eins og önnur verk sem hún vann á lífsleiðinni. Jafnréttismál- in voru stóru baráttumálin á þess- um árum – samþykktir um kvennakvóta og þrotlaus hvatn- ing til kvenna um að láta til sín taka í stjórnmálum. Unnur var öflug í þeirri baráttu. Ógleyman- legar eru funda- og námskeiðs- ferðir um landið þar sem konum voru kennd fundarsköp og fram- koma og síðan brunað í bæinn, oft að næturlagi um langan veg. Unnur var stór í sniðum, greið- vikin, glaðbeitt og forkur dugleg. Mikið áhugamál Unnar var að koma á manneldis- og neyslu- stefnu hér á landi að hætti Norð- manna. Varð það eitt af stefnu- málum LFK. Að áeggjan Unnar var fyrsta þingmál mitt sem vara- þingmanns, í byrjun árs 1987, um opinbera manneldis- og neyslu- stefnu. Síðar var slík stefna sam- þykkt á Alþingi að tillögu þáver- andi ríkisstjórnar. Naut heilbrigðisráðuneytið krafta Unnar í því verkefni, sem skipti sköpum um hversu vel tókst til. Þótt leiðir okkar skildu í pólitík- inni héldust vináttubönd okkar alla tíð. Stóra gæfusporið í lífi Unnar var er hún flutti á Kársnesbraut- ina í leiguherbergið hjá Hákoni. Reyndar var það gæfa þeirra beggja og upphafið að löngu og hamingjuríku hjónabandi. Börnin þeirra þrjú, þau Finnur, Grímur og Harpa Dís, bera foreldrum sínum gott vitni. Við Einar Örn vottum Hákoni og fjölskyldunni allri samúð okkar. Missir þeirra er mikill. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Fallin er frá langt fyrir aldur fram kær vinkona, Unnur Stef- ánsdóttir. Unni kynntist ég í Framsóknarflokknum, en hún gegndi margvíslegum trúnaðar- störfum fyrir hann. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Landssam- bandi framsóknarkvenna(LFK) þar sem við unnum samhentar að jafnréttismálum. Síðar tók við farsælt samstarf í kjördæminu og víðar á vettvangi framsóknar- fólks. Unnur var glæsilegur og fram- sýnn foringi. Hún var m.a. for- maður í Freyju, félagi framsókn- arkvenna í Kópavogi, einu öflugasta kvenfélaginu okkar. Einnig var hún formaður LFK 1985-1993. Unnur var ötull jafn- réttissinni. Á hennar tíð tókst að lyfta grettistaki í þeim málum. Í sögu LFK, sem gefin var út fyrir stuttu, lýsir Unnur því hvernig LFK, undir forystu hennar, vann af festu við að auka áhrif kvenna. Haldin voru námskeið m.a. í ræðumennsku, sjónvarpsfram- komu og fundarstjórn. Konur voru hvattar til að fara á mæl- endaskrá á fundum og taka sæti ofarlega á framboðslistum. Karl- arnir voru upplýstir um af hverju réttast væri að konur væru sýni- legar og færu líka með völd. Á brattann var að sækja. Eitt lítið dæmi í bókinni lýsir tíðarandan- um, baráttunni og réttlætiskennd Unnar, en þar lýsir hún því þegar hún sótti á um, í framkvæmda- stjórn flokksins, að konur yrðu fundarstjórar til jafns við karla á miðstjórnarfundum og flokks- þingum. Þar segir Unnur: „Það vita það sjálfsagt fáir hvað þetta þótti í raun fáránlegt. Bæði var það að þeir sættu sig ekki við þau nöfn sem ég stakk upp á, fannst þær ekki vanar og í raun fannst þeim þetta ekki passa. Það tók marga fundi og símtöl að koma þessu í gegn. Eftir nokkur ár þótti þetta eðlilegt.“ Þarna er Unni rétt lýst. Hún barðist alla leið fyrir konurnar í þessu sem öðru. Unnur lét einnig til sín taka í lýðheilsumálum. það var fyrir hennar frumkvæði sem Alþingi samþykkti manneldis- og neyslustefnu fyrir íslensku þjóð- ina 1989. Í henni var áhersla á að auka kolvetnisneyslu, minnka sykurneyslu og gera reglulega út- tekt á fæðuvenjum Íslendinga. Áhugi Unnar á heilsu kom einnig fram í leikskólastörfum hennar en hún var skólastjóri fyrsta heilsuleikskólans á Íslandi, Urðarhóls, og var heilsustefna hans unnin að frumkvæði hennar. Unnur var þeirrar gæfu aðnjót- andi að eiga samhenta fjölskyldu. Hákon stóð þétt við hlið hennar í öllu. Hún var afar stolt af strák- unum sínum og dótturinni. Er minnisstætt þegar þær mæðgur, geislandi glaðar, mættu saman á jólafund Freyju fyrir tveimur ár- um og Harpa Dís las upp úr nýút- gefinni bók sinni Galdrasteinn- inn. Þá var Unnur stolt. Ég vil þakka Unni fyrir mik- ilvægan stuðning í stjórnmálum og árangursríka samvinnu. Áhrif verka Unnar ná langt út fyrir rað- ir eins flokks. Jafnréttisstarf hennar hafði jákvæð áhrif með al- mennum hætti. Konur í öllum flokkum, sem til Unnar starfa þekkja, munu minnast hennar með þakklæti. Ég þakka Unni og Hákoni fyrir hlýhug og góðar minningar í gegnum tíðina. Hákoni, Finni, Grími, Hörpu Dís og öðrum ást- vinum Unnar votta ég mína dýpstu samúð vegna fráfalls hennar. Megi Guð blessa minn- ingu Unnar. Siv Friðleifsdóttir. Unnur Stefánsdóttir leikskóla- kennari var fagmaður fram í fing- urgóma. Hún var hugsjónamann- eskja og frumkvöðull og hrinti hugmyndum sínum hiklaust í framkvæmd. Hún þorði að fara ótroðnar slóðir og náði að hrífa fólk með sér. Einna þekktust er hún fyrir mótun heilsustefnu fyr- ir leikskóla sem hún þróaði og breiddi út víða um land og var ein- arður talsmaður fyrir. Í fyrstu þóttu þær hugmyndir nokkuð rót- tækar og umdeildar, en í dag er heilsuefling meðal leikskólabarna eðlilegur og sjálfsagður þáttur í leikskólastarfi. Þökk sé Unni fyr- ir það. Kynni undirritaðra af Unni voru á vettvangi stéttarfélags- mála, sem hún sjálf tók þátt í um tíma er hún sat í stjórn fyrir leik- skólakennara. Hún var ein af þessum góðu, traustu röddum sem alltaf lét heyra í sér með reglulegu millibili, kom í heim- sókn á skrifstofuna eða hringdi til að spjalla. Hún viðraði nýjar hug- myndir, hrósaði því sem henni fannst vel gert og gagnrýndi það sem betur mætti fara. Þetta gerði hún af einlægni og hispursleysi, vildi deila skoðunum sínum og hugmyndum og hafa áhrif. Um leið var þetta okkur ómetanleg tenging við grasrótina og daglega lífið í leikskólanum. Þökk sé henni fyrir það. Fjölskyldu Unnar send- um við hugheilar samúðarkveðj- ur. Björg Bjarnadóttitr varafor- maður Kennarasambands Ís- lands og Ingibjörg Kristleifs- dóttir formaður Félags stjórnenda leikskóla. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi, dagleið þín var greið. Þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn. Þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson) Fyrir hönd félagsmanna í Fé- lagi leikskólakennara viljum við senda aðstandendum Unnar inni- legustu samúðarkveðjur. Við biðjum Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Fjóla Þorvaldsdóttir varaformaður. Unnur Stefánsdóttir  Fleiri minningargreinar um Unni Stefánsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.