Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 7

Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 Á efnisskrá tónleikanna er meðal annars frumflutningur verksins Tiger Touch eftir Karin Rehnqvist, Sinfónía nr. 6 eftir Tchaikovsky og Klarinettukonsert eftir Mozart. Einleikari er Martin Fröst Fyrsta erlenda gestahljómsveitin í Hörpu: Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar GUSTAVO DUDAMEL DUDAMEL Á ÍSLANDI Ein skærasta stjarna tónlistarinnar Tryggið ykkur miða www.harpa.is 18. september kl. 20.00 Stoltir bakhjarlar Hörpu WWW.ICELANDAIR.IS ÍS LE N SK A SI A .IS H AR 56 31 4 09 /1 1 Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is ,,Barna- og unglingageðdeildin er orðin mjög þanin og það fer að koma að sársaukamörk- um,“ segir Guðrún B. Guðmundsdóttir, yfir- læknir á göngudeild BUGL, en nú eru um áttatíu börn og unglingar á biðlista eftir þjón- ustu hjá deildinni. ,,Komutölur hafa haldist nokkuð svipaðar frá árinu 2007, eða í kringum áttatíu einstaklingar, en það ár voru um 170 á biðlista þegar mest var. Biðtíminn hefur verið að lengjast jafnt og þétt og er nú kominn í hálft ár að meðaltali,“ segir Guðrún. Hún segir mikið álag hafa verið á deildinni síðasta vetur og að líklegt sé að sama verði uppi á ten- ingnum í ár. Að því sögðu tekur Guðrún einnig fram að horfurnar séu ekki góðar fyrir veturinn. Útlit er fyrir læknaskort en að sögn Guðrúnar eru mjög fáir barna- og unglingageðlæknar á Ís- landi og fleiri lækna vanti í sérgreinina. ,,Þeir sem stunda þetta nám eru teljandi á fingrum annarrar handar og þeir eru ekki væntanlegir til starfa á næstu árum.“ Lítið sem út af má bera Guðrún bendir einnig á að BUGL hafi nú þegar misst eitt stöðugildi á legudeild og gert sé ráð fyrir að einhver samdráttur verði á göngudeild. ,,Við höfum náð að halda ákveðnu jafnvægi en það má lítið út af bera. Líklegt er að þessi læknaskortur eigi eftir að setja strik í reikninginn, sérstaklega þegar álagstopparnir koma, en þeir eru á haustin þegar skólarnir eru að byrja. Rólegasti tíminn er hins vegar yfir sumarið.“ Ef skoðaðar eru komutölur á göngudeildina mánuðina september, október og nóvember á síðasta ári, kemur í ljós að aðsóknin var tölu- vert yfir meðalaðsókn ársins í heild. Í sept- ember var aðsóknin 24,5% yfir meðaltali árs- ins, í október 22,1% og 41,5% í nóvember. Langsvelt þjónusta Í skýrslu barna- og barnafjölskylduhóps Velferðarvaktarinnar, sem kom út í apríl síð- astliðnum, kemur fram að kostnaður við göngudeildarþjónustu á geðsviði Landspítal- ans hefur aukist og greina má minni aðsókn í þá þjónustu, á meðan símtölum vegna geð- rænna vandamála til Rauða krossins hefur fjölgað verulega. Velferðarvaktin leggur því til að ,,sérstöku fjármagni verði varið til að tryggja geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn hvort sem þau eru með kvíða, hegðunar- eða neysluvanda.“ Guðrún tekur undir þetta og bendir enn- fremur á að þjónustan sé raunar langsvelt. ,,Erlendis er víða gert ráð fyrir að um fimm prósent barna þurfi á sérfræðiþjónustu að halda vegna geðræns vanda. Við erum að sinna einu prósenti að meðaltali þeirra 80-90 þúsund barna sem eru á Íslandi. Þannig að á meðan við náum ekki að sinna fleirum er aug- ljóst að margir komast ekki að.“ Þá segir Guðrún að svokallaðri „annarrar línu þjónustu“ sé ábótavant. Það er sú þjón- usta sem er í nærumhverfi barna og unglinga, eins og til dæmis í grunnskólum, en slík þjón- usta hefur verið af skornum skammti hér- lendis. ,,Þessi þáttur verður að aukast töluvert þar sem það getur tekið langan tíma að bæta það upp sem upp á þessa þjónustu hefur vant- að. Það er mikilvægt að taka á vandanum strax með því að samhæfa þjónustuna og koma henni í nærumhverfi barna, svo sem inn í skólana, þar sem auðvelt er að nálgast hana,“ segir Guðrún. Dökkar horfur fyrir veturinn  Áttatíu eru á biðlista eftir þjónustu barna- og unglingageðdeildar  Meðalbiðtími í kringum hálft ár  Útlit fyrir læknaskort á deildinni  Mikilvægt að taka á vandanum strax segir yfirlæknir á göngudeild Morgunblaðið/Ómar BUGL Komutölur hafa haldist svipaðar frá árinu 2007 og biðtíminn lengst jafnt og þétt. Álag á BUGL » Um áttatíu börn og unglingar eru á biðlista eftir þjónustu BUGL. » Meðalbiðtími eftir þjónustu barna- og unglingageðdeildar Landspítalans er um hálft ár. » Helsti álagstíminn er haustið en þá vísa skólarnir mörgum börnum og ung- lingum til meðferðar á BUGL. » Í skýrslu barna- og barnafjöl- skylduhóps Velferðarvaktarinnar, sem kom út í apríl sl., kemur m.a. fram að símtölum vegna geðrænna vandamála til Rauða krossins hafi fjölgað verulega. » Velferðarvaktin leggur því til að „sér- stöku fjármagni verði varið til að tryggja geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn hvort sem þau eru með kvíða, hegðunar- eða neysluvanda.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.