Morgunblaðið - 14.09.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.09.2011, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 ✝ Jón Guðmunds-son fæddist á Sunnuhvoli í Sand- gerði 6. júlí 1940. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 5. sept- ember 2011. Foreldrar hans voru hjónin Guð- mundur Jónsson, vörubifreiðastjóri, lengst af í Hlíð (Tjarnargötu 12), en síðast á Austurgötu 3 í Sandgerði, f. 5. júlí 1897, d. 24. maí 1971, og Guðbjörg Sigríður Þorgils- dóttir, húsfreyja, f. 4. febrúar 1904, d. 16. október 1964. Föð- urforeldrar voru Jón Jónsson, smiður í Eldhúsinu í Keflavík, f. 7. september 1861, d. 20. febrúar 1930, og kona hans Þóra Eyjólfsdóttir, húsfreyja, f. 10. febrúar 1864, d. 25. nóv- ember 1918. Móðurforeldrar Þorgils Árnason, sjómaður, Þórshamri í Sandgerði, f. 22. júní 1878, d. 1. apríl 1927, og kona hans Unnur Sigurð- ardóttir, húsfreyja, f. 16. júní 1886, d. 28. júní 1965. Alsystk- ini Jóns: Guðrún, húsfreyja, fyrst í Sandgerði, en síðast í Keflavík, f. 17. ágúst 1934, d. 14. júlí 2004, gift Finni Þor- valdssyni, bifreiðarstjóra; Ólaf- var um tíma hjá verktökunum á Keflavíkurflugvelli, en fór til sjós vorið 1960. Jón var lengi háseti á bátum frá Sandgerði, fyrst á Jóni Gunnlaugs, síðar Guðbjörgu og loks á Jóni Garðari. Hann var á sjó öll síld- arárin, þegar veitt var austur af Íslandi, við Jan Mayen og í Norðursjónum. Eftir síldarárin fór Jón í land og vann hjá Netagerð Suðurnesja. Hann afl- aði sér réttinda bæði sem full- gildur netagerðarmaður og sem matsveinn á togurum. Jón fór aftur á sjóinn og var kokk- ur í nokkur ár á Ólafi Jónssyni frá Sandgerði. Síðustu þrjá áratugina var hann netamaður í Hampiðjunni í Reykjavík. Jón fór á eftirlaun 1. maí 2011. Á meðal áhugamála Jóns í tóm- stundum voru gamlir bílar, sér- staklega bandarískir bílar, og dráttarvélar. Hann gerðist snemma félagi í Fornbílaklúbbi Íslands og var þar til æviloka. Frá 1979 átti hann alltaf gamla bíla, Austin A90 árgerð 1955, Rover P6 3500 1967, Ford Capri 1969, Buick Century 1958, Buick Special 1956, svo nokkrir séu taldir en síðast Oldsmobile Cutlass 1969. Haustið 1999 gerði hann upp Massey Ferguson dráttarvél frá árinu 1964. Útför Jóns verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14. september 2011, og hefst at- höfnin kl. 15. ur Þorgils, mál- arameistari í Innri-Njarðvík, f. 23. júlí 1939, kvæntur Guðlaugu Fríðu Bárð- ardóttur, hús- freyju. Hálfbróðir: Einar Vilhelm Guð- mundsson, verka- maður í Sandgerði, f. 20. maí 1936, d. 10. mars 2003. Dóttir Jóns Guðmundssonar er Guðbjörg Sigríður, húsfreyja í Hafnarfirði, f. 22. mars 1975, gift Lofti Bjarna Gíslasyni, sjávarútvegsfræðingi. Börn þeirra eru: Helga Björg, f. 2. desember 1994, Jón Bjarni, f. 21. janúar 2003, og Ísak Máni, f. 29. október 2008. Móðir Guð- bjargar Sigríðar er Jóhanna Sigurbjörg Óladóttir, húsfreyja í Keflavík, f. 11. júlí 1949. Jón og Jóhanna Sigurbjörg bjuggu saman í Sandgerði frá 1973 til 1979. Sambýliskona Jóns á ár- unum 1981 til 1991 var Oddný Sigríður Gestsdóttir frá Sand- gerði, f. 14. september 1940, leikskólakennari. Jón ólst upp hjá foreldrum í Hlíð í Sandgerði. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskól- anum í Reykholti vorið 1957. Jón byrjaði snemma að vinna, Elsku hjartans pabbi minn og besti vinur. Söknuðurinn er mik- ill hjá mér og stórt skarð í hjarta mínu hefur myndast og tóma- rúmið er mikið. Aldrei hefði ég trúað því, að okkar síðasta símtal yrði þennan örlagaríka mánu- dagsmorgun. Mikið er ég þakk- lát fyrir að hafa heyrt rödd þína og get ég yljað mér við það og margar góðar minningar um fal- legan pabba og traustan vin. Mínar fyrstu minningar með þér eru þegar ég var lítil stelpa í Sandgerði á Túngötunni úti í bíl- skúr sitjandi í framsætinu á Austin A90 árgerð 1955 fornbíln- um þínum og þykjast vera að keyra. Pabbi hafði mikið dálæti á amerískum bílum frá árunum 1940 til 1960 og átti hann nokkra slíka bíla gegnum ævina. Núna síðast átti hann Oldsmobile Cut- lass árgerð 1969 blæjubíl. Einnig var pabbi virkur meðlimur í Fornbílaklúbb Íslands fram til síðasta dags. Samvera okkar pabba byggð- ist á trausti og mikilli vináttu. Ég man aldrei eftir að hafa rifist við hann, hann fann alltaf góðu hlið- arnar á öllu enda ljúfmenni í alla staði. 16 ára gömul fluttist ég til pabba í Garðabæ og áttum við feðginin farsælan búskap saman. Í desember 1994 eignaðist ég mitt fyrsta barn 19 ára, afa- stelpuna þína hana Helgu Björg, sem þú reyndist alla tíð góður afi. Ég er þér þakklát fyrir hvað þú hjálpaðir mér mikið frá henn- ar fyrsta degi til þíns síðasta dags. Ykkar vinátta var einstök, pabbi minn. Vil ég þakka þér fyr- ir allt, sem þú gerðir fyrir hana og kenndir henni í lífinu og mun hún búa að því alla tíð. Árið 1999 um haustið lágu leiðir okkar Lofts saman og urð- uð þið miklir vinir, tómarúmið og söknuðurinn er mikill núna hjá Lofti mínum. Árið 2003 eignuð- umst við Loftur okkar fyrsta barn, sem fékk nafnið Jón Bjarni (Jonni). Þú varst stoltur af nafna þínum og afastrák. Árið 2008 kom annar sólargeisli í heiminn, hann Ísak Máni. Pabbi, það má með sanni segja að þú varst stoltur af þessum þremur gull- molum þínum. Tíminn sem þú gafst þeim, mér og Lofti var svo dýrmætur, elsku pabbi. Þú ferð- aðist mikið með okkur fjölskyld- unni til útlanda og voru það yf- irleitt sólarlönd sem farið var til. Þín síðasta ferð var með okkur síðast liðna páska til Tenerife. Það er skrítið að hafa þig ekki hér hjá mér lengur, þú sem hringdir og komst til okkar á hverjum degi. Heimilið okkar var þitt annað heimili og verður það alltaf. Elsku pabbi minn, þakka þér fyrir að vera mér og afabörnunum þínum alltaf til staðar. Minning um fallegan pabba og afa lifir i hjörtum okk- ar. Þín elskandi dóttir Guðbjörg Sigríður. Það var mikið áfall, þegar Guðbjörg systir mín hringdi í mig á mánudagsmorgun 5. sept. Að Jonni hefði fengið hjarta- stopp, fyrir helgina hafði hann fengið hjartaáfall og lá á Land- spítalanum. Ég ók til Reykjavík- ur og upp á Landspítala, og kom það þá í ljós, sem ég óttaðist mest, Jonni var dáinn. Þvílíkt högg og sorg, og ég sem hafði heimsótt hann deginum áður og þá vorum við að tala um að von- andi gengi allt vel. Það var 1974 að móðir mín kynntist honum Jonna, þá var ég átta ára. Jonni tók mér strax vel eins og hann væri faðir minn. Fyrstu árin bjuggum við á Hóla- götu í Njarðvík og þaðan á Hóla- braut 6 í Keflavík. Þar bættist einn fjölskyldumeðlimurinn við, Guðbjörg Sigríður. Þetta voru yndislegir tímar, við ferðuðumst mikið enda var Jonni mikið fyrir að ferðast. Einnig fórum við oft í heimsókn til systur Jonna hana Dúu í Sandgerði og hennar fjöl- skyldu, þar var gott að koma. Einnig var oft farið til Óla bróð- ur Jonna í Njarðvík, þar voru góðar móttökur. Oft var skropp- ið í höfuðborgina á Austin bíln- um hans Jonna Ö-691, og var þá farið í heimsókn til Gísla frænda og hans fjölskyldu. Þetta voru góðir tímar. Móðir mín og Jonni slitu sam- vistum 1979, það var erfitt fyrir mig, þá minnkuðu tengslin um tíma eins og gengur og gerist, en samband okkar var alltaf gott og aldrei slitnuðu þau bönd. Árið 1991 festum ég og Jóhanna unn- usta mín kaup á hjólhýsi og sett- um það niður vestur í Dölum við hliðina á sumarhúsalóð pabba og Steinu. Eins og hjá flestum sum- arhúsaeigendum þurfti að vera dráttarvél á staðnum til ýmissa verka, Jonni kom stundum í heimsókn á þeim tíma, og auðvit- að þurfti að dytta að gamla Ferguson og ekki stóð á hjálp- semi Jonna að dútla með mér í gamla Ferguson, enda handlag- inn maður. Svo eftir að Jóhanna mín lést árið 2002, fékk ég mik- inn stuðning frá Jonna, þá fórum við að fá okkur fleiri gamlar dráttavélar að gera upp, sem er nú kominn grunnur að vélasafni. Einnig gerðum við upp Willis jeppa 1947. Einnig fórum við um landið að leita að vélum og vara- hlutum í þær, það voru skemmti- legar ferðir. Seinustu árin með Jonna í sveitinni voru skemmti- leg. Góð tengsl mynduðust á milli Einars föður míns og Steinu við hann. Elsku Jonni minn, takk fyrir öll kærleiksríku árin okkar sam- an, megi Guð og það góða vaka yfir minningu þinn. Óli Arelíus Einarsson. Elsku Jonni tengdapabbi. Ótrúlega á ég erfitt að sætta mig við að þú hafir verið tekinn frá okkur svona snöggt, við sem átt- um eftir að gera svo margt sam- an. Það er mikil sorg, söknuður og tómleiki í hjarta mínu núna, en ég þarf að vera sterkur fyrir Guðbjörgu og börnin. En það getur enginn tekið frá okkur all- ar þær góðu minningar sem við eigum um þig. Þær minningar munu hjálpa okkur í gegnum sorgina og söknuðinn, sem þú skilur eftir. Mér finnst ég aldrei hafa þakkað þér nógu mikið fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, Guðbjörgu og börnin. Takk, elsku Jonni, fyrir allt. Þú vast yndislegur pabbi, afi og tengdapabbi. Það voru for- réttindi að fá að vera hluti af þínu lífi. Ég mun halda áfram að umvefja Guðbjörgu og börnin hlýju og ást eins og þú gerðir alla tíð og ég mun passa vel upp á þau, þar til við hittumst næst. Vertu blessaður, elsku Jonni minn. Þinn tengdasonur, Loftur Bjarni. Elsku besti afi minn, ég get ekki trúað því að þú sért farinn frá mér. Ég gæti skrifað ótelj- andi skemmtilegar minningar um okkur hér, en ég vil heldur eiga þær í hjarta mínu. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku afi minn. Þú hefur verið mér allt síð- an ég fæddist og mun minning þín og allar þær stundir, sem við áttum saman lifa í hjarta mínu, þangað til að ég sé þig aftur. Þú varst mér miklu meira en afi. Þú varst eins og pabbi minn og hef ég alltaf litið upp til þín, enda hjartahlýr og góður maður. Það var svo mikið sem við áttum eftir að gera saman. Ég hefði aldrei trúað því að þú færir svona snemma frá mér, því þú varst alltaf svo hraustur mað- ur og við vorum langbestu vinir sem einhver hefði getað hugsað sér. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og kennt mér á þessum 17 árum, sem ég hef átt með þér. Orð fá því ekki lýst hvað ég elska þig mikið. Þín verður sárt saknað, elsku afi minn. Þín afastelpa Helga Björg. Jón Guðmundsson – Jonni í Hlíð – systrungur minn og mikill vinur er allur eftir stutta sjúk- dómslegu. Hann er harmdauði þeim, sem þekktu hann. Á kveðjustund langar mig til að minnast hans með nokkrum orð- um. Við Jonni vorum systrasynir frá Þórshamri í Sandgerði og nánir félagar og vinir í áratugi – líkt og samrýndir bræður – eins ólíkir og við þó vorum. Öll fjöl- skylda mín naut einnig sama við- móts hans. Jonni var í útliti meira í föð- urættina en í Þórshamarsættina. Hann var meðalmaður á hæð, dökkhærður, vel vaxinn og léttur í spori, svipmikill, ljúfur í um- gengni, friðsamur, orðvar, ávarpsgóður og seinþreyttur til vandræða. Hann var vel gefinn, fróðleiksfús, las sér til um margt og mundi lengi. Jón var þrek- mikill, sterkur með eindæmum, vinnusamur og sérlega verklag- inn. Hann var strákslegur fram eftir öllum aldri og ekki grátt hár á höfði hans fyrr en nú um sjötugt. Alltaf var hann snyrti- lega til fara. Jonni var tryggur vinum sín- um úr Sandgerði frá æsku- og unglingsárum, og þá vandlærðu list kunni hann vel, að taka mót- læti með manndómi og jafnaðar- geði. Allir, sem kynntust Jonna á árunum hans í Hampiðjunni, vissu, að hann var á meðal fremstu manna þar, þegar kom að vinnu í netum og trollum. Einn vinnufélagi hans sagði mér, að troll, sem komu til viðgerðar samansnúin, væru það ekki lengi, eftir að hópurinn, sem Jonni stjórnaði, kom á vaktina. Jonni sá til þess, að alltaf var togað í réttu spottana. Einnig sagði mér Steingrímur Þorvalds- son, skipstjóri á Vigra, að hann þekkti engan jafningja Jonna við að greiða úr trollum, sem voru komin í einn vöndul. Jonni var ekki síður góður kokkur, málari, bílaviðgerðamað- ur eða að leggja flísar. Fyrir ut- an þessa fjölbreyttu kosti til vinnu, var hann einstaklega góð- viljaður maður, sem vildi hjálpa sínu fólki, ef hann hafði nokkur tök á. Öll vinna gekk betur, þeg- ar Jonni var með. Ég get sjálfur borið vitni um það, eftir alla þá hjálp sem fjölskylda mín naut, þegar hann var með okkur á ár- um áður að byggja. Ég veit með vissu, að fleiri vinir og ættingjar nutu góðs af vinnu hans. Þrátt fyrir mikla vinnu árum saman náði Jonni að sinna vel mesta áhugamáli sínu. Frá unga aldri hafði hann dálæti á banda- rískum bílum og gjörþekkti kaggana frá 1940-1960. Hann hafði ánægju af starfinu í Forn- bílaklúbbnum – mætti manna best og fór í flestar ferðir um landið, sem félagið stóð fyrir. Við Jonni fórum einstaka sinnum í skemmtiferðir. Í minn- ingunni ber þar hæst ferðir aust- ur að Ystakoti í Vestur-Landeyj- um og til Malmö og Kaupmannahafnar í september 2008. Síðast fórum við á Odda- stefnu austur að Skógum í maí sem leið. Ég er afar þakklátur Jonna fyrir samfylgdina. Að leiðarlok- um sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur til fjöl- skyldu Jonna og allra annarra ástvina hans. Guð blessi minningu Jonna í Hlíð. Þorgils Jónasson. Kæri Jonni frændi Það er með sorg og söknuði sem ég skrifa nokkur kveðjuorð til þín svo alltof snemma, við sem ætluðum að gera svo margt þeg- ar ég var nú komin á Hvolsvöll en við ráðum engu. Ég er svo þakklát fyrir allar góðu stund- irnar sem ég og fjölskylda mín höfum átt með þér og þinni fjöl- skyldu en hún var þér allt. Elsku Jonni frændi, nú kveðj- umst við að sinni, guð geymi þig, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín frænka, Margrét Eyjólfsdóttir. Ég kynntist Jonna fyrst þegar Guðbjörg tengdadóttir mín og Helga Björg fögnuðu aldamó- taáramótunum 2000, með okkur fjölskyldunni. Áður hafði ég að sjálfsögðu heyrt mikið um kapp- ann talað. Þetta voru fyrstu ára- mótin, sem Guðbjörg, Helga Björg, Jonni og Loftur héldu saman. Jonni var alla tíð einn af fjölskyldu okkar eftir það. Jonni var mikill hagleiksmað- ur í huga og hönd, enda féll hon- um sjaldan verk úr hendi. Hann fann ráð við flest öllu og fram- kvæmdi lausnir á sinn hátt. Sí- fellt var hann að rétta hjálpar- hönd við alla skapaða hluti. Bílaviðgerðir og að gera upp gamla bíla, fornbíla, var honum mjög hugleikið, enda var hann mjög virkur félagi í Fornbíla- klúbbnum og átti hann nokkra slíka bíla um ævina. Einnig hafði hann mikinn áhuga á gömlum dráttarvélum, sem hann átti og gerði upp í nothæft ásigkomulag. Hann undi hag sínum vel í Döl- unum á sumardvalarstað hjá Óla Arelíusi fóstursyni sínum, en þar voru dráttarvélarnar staðsettar. Jonni starfaði í 35 ár hjá Hampiðjunni, sem netagerðar- maður og verkstjóri. Það var mikill gleðidagur í lífi Jonna, þegar hann á brúðkaups- degi Guðbjargar og Lofts ók Guðbjörgu dóttur sinni á gljá- fægðum Buick Special árgerð 1956, að Hallgrímskirkju á Saurbæ, Hvalfjarðarsveit. Einn- ig var það stoltur faðir, sem gekk með dóttur sinni upp að altarinu í þessari fallegu kirkju. Vakti birfreiðin slíka aðdáun kirkjuvarðarins, að hann falaðist síðar eftir gripnum og er hann enn í Hvalfjarðarsveit. Voru þau Guðbjörg og Helga Björg mjög nákomnar Jonna. Guðbjörg bjó hjá pabba sínum frá unglingsárunum og Helga Björg sín fyrstu æviár. Síðar fæddust hinir sólargeislarnir Jón Bjarni og Ísak Máni. Voru öll afabörnin mjög hænd að afa sín- um, sem var alltaf boðinn og bú- inn að gera allt, sem hann gat fyrir þau og vera í návist þeirra, enda vitjaði hann þeirra daglega. Jonni hafði mjög gaman af ferðalögum, jafnt innanlands, sem utan. Hann fór í margar ferðir til heitra landa með fjöl- skyldu sinni og naut hann mjög þeirra ferða í faðmi fjölskyldunn- ar. Um páskana fórum við stór- fjölskyldan til Tenerife. Þar leið honum vel í góðu loftslagi með fjölskyldunni. Við eigum öll mjög góðar minningar frá þeirri ferð, sem verða varðveittar. Í sumar fóru Guðbjörg, Loft- ur, Jonni og börnin til Akureyrar og áttu góðar stundir þar í ná- grannasveitum og byggðum. Eru þau staðráðin í að sýna ungu kynslóðinni landið sitt í allri sinni dýrð. Að leiðarlokum þakka ég þér Jonni fyrir samfylgdina og allt það góða, sem þú gafst af þér. Ég bið góðan Guð að styrkja Guðbjörgu, Loft, Helgu Björg, Jón Bjarna og Ísak Mána, sem sakna sárt á þessum erfiðu tím- um. Birna Loftsdóttir. Okkar kæri vinur Jón Guð- mundsson er fallinn frá. Hann var oftast kallaður Jonni og kenndur við Hlíð í Sandgerði þar sem hann ólst upp. Jonni varð strax í æsku vinmargur og rækt- aði svo alla tíð sambandið við þessa æskuvini. Sem unglingur fór hann í Reykholtsskóla, seinna stundaði hann sjó- mennsku og keyrði einnig vöru- bíl fyrir pabba sinn. Síðan lá leið hans í Sjókokkaskólann. Eftir það vann hann sem kokkur á skipum um hríð. Ekki lét Jonni þar við sitja heldur lærði neta- gerð, sem var hans starfsvett- vangur meirihluta ævinnar, þar til hann lét af störfum síðastliðið vor. Við hjónin nutum þess oft hve Jonni var greiðvikinn og ósér- hlífinn, hann var óðara kominn óumbeðinn til að hjálpa ef þörf var á. Það munaði líka um hann þegar hann tók til hendinni, því að hann var hæfileikaríkur mað- ur sem allt lék í höndunum á. Það gilti einu hvort hann málaði hús að utan eða innan, smíðaði úr tré eða járni, gerði við bíla eða gaf ráð um snið á kjól. En Jonni elskaði gamla bíla og gerði þá upp hvern af öðrum enda gat hann breytt örgustu bíldruslu í glæsikerru. Oftast mátti þekkja það af bílhljóðinu hver var kom- inn þegar Jonni renndi í hlað á átta gata tryllitæki. Þá var sagt „Jonni er kominn“ og farið til dyra. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Kæri vinur, líði þér vel á ljóss- ins vegum og hafðu þökk fyrir alla þína tryggð. Ingibjörg og Pétur. Jón Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Elsku besti afi okkar, við söknum þín mikið. Þú varst góður afi sem alltaf vildir leika við okkur og faðma okkur að þér. Góða nótt afi, dreymi þig vel og guð geymi þig, afi okkar. Þínir afastrákar Jón Bjarni og Ísak Máni. Elsku Jonni okkar. Við viljum þakka þér fyrir öll þau yndislegu ár sem við áttum með þér, alla þá hlýju, vináttu og faðmlög sem þú veittir okkur. Þú átt alltaf fallegan stað í okkar hjarta. Minning þín lifir. Auður, Baldur, Indíana Ýr og Gabríella Ýr. • Mikið úrval • Yfir 40 ára reynsla • Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.