Morgunblaðið - 14.09.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.09.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 AF BAÐI Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Það var mergjað atriði í þýskukvikmyndinni Baader-Meinhof Complex, sem RÚV sýndi á dögunum, þegar róttækl- ingurinn Gudrun Ensslin bauð blá- ókunnugum manni ofan í baðið til sín. Maðurinn var kominn til að finna ástmann hennar, Andreas Baader, en kom þess í stað að Enssl- in makindalegri í baði á miðju gólfi. Brá honum fyrst í brún en þar sem Ensslin tók honum hreint ekki illa fikraði hann sig nær. Maðurinn var ungur að árum og nýsloppinn af einhverju upptökuheimili, þar sem menn höfðu barið hann eins og harðfisk. Minna hefur sjálfsagt ver- ið um baðfarir á upptökuheimilinu og óskaði maðurinn eftir að fá að fara í bað þegar Ensslin hefði lokið sér af. Hann hefði eflaust gott af því. „Á eftir?“ spurði Ensslin agn- dofa. „Hvers vegna kemurðu ekki ofan í núna til að spara vatnið?“ Ungi maðurinn lét ekki segja sér þetta tvisvar, smeygði sér úr spjörunum og ofan í baðið. Áttu þau gott spjall í kjölfarið.    Mér er ljóst að hippatíminnmeð öllu sínu hömlu- og hisp- ursleysi er liðinn en þetta atriði varð eigi að síður til þess að ég fór í fúlustu alvöru að velta fyrir mér hvort þessar aðstæður væru ekki ákjósanlegar fyrir okkur blaða- og fréttamenn, það er að bjóða við- mælendum ofan í bað til okkar. Í baðinu myndi skapast ákveð- in nánd sem oft er nauðsynleg til að miðla sjónarmiðum eða lífsreynslu viðmælenda. Útilokað væri fyrir viðmælendur að fela nokkurn skap- aðan hlut. Kvikan myndi loga. Þetta svínvirkar líka á hinn veginn. Hvaða fréttamaður getur haft hulið „agenda“ ofan í baðkari? Enginn spyrill í Íslandssögunni er innilegri í nálgun sinni en Jón Ársæll Þórðarson. Þegar best lætur verða hann og viðmælandinn eitt. Ómögulegt er að átta sig á því hvar Jón endar og viðmælandinn tekur við. Ég er satt best að segja svolítið hissa á því að Jón hafi ekki ennþá smeygt sér ofan í bað með viðmæl- anda. Eða hefur hann kannski gert það? Hver væri til dæmis ekki til í að sjá Jón Ársæl baða sig með Öss- uri Skarphéðinssyni eða Sóleyju Tómasdóttur? Eða þá hópbaða sig með Jónínu Ben. og Gunnari í Krossinum? Það er engum vafa undirorpið að hann myndi ná fram allskonar upplýsingum sem engin leið er að nálgast eftir öðrum leið- um. Þetta myndi án efa hjálpa hníp- inni þjóð í vanda en ekki síður við- mælendunum sjálfum. Það er svo gott að geta létt á sér. Lauga sálina. Ef við lítum kalt á hagsmuni áskriftarstöðvanna myndi skipti- borð áskriftardeildar 365 örugg- lega skíðloga ef ákveðið yrði að Logi Bergmann Eiðsson tæki á móti gestum sínum í baði – í þráðbeinni. Mögulega mætti fá Gillzenegger til að hjálpa viðmælendum ofan í og upp úr baðinu. Sama máli gegnir um Sölva Tryggvason á Skjá einum og varla þyrfti að dekstra Tobbu Marinós til að vippa sér ofan í. Hver myndi missa af henni baða sig með Lindu Pé? Hún virkar í klístruðu formi.    Ekki er víst að baðnálguninvirki í hörðum fréttum en það breytir ekki því að gaman yrði að sjá grjótharða fréttanagla eins og Þorbjörn Þórðarson og Helga Selj- an baða sig með mönnum á borð við Sigurð Einarsson og Björgólf Thor. Kristján Már Unnarsson og Gísli Einarsson gætu síðan tekið út baðkörin á landsbyggðinni. Við blasir að baðið myndi slá í gegn í sportinu. Hugsið ykkur hvað kæmi upp úr Ólafi Stefánssyni sæti hann sultuslakur í búbblubaði með Adolfi Inga! Svalt yrði að sjá forseta lýð- veldisins taka áskorun um viðtal í baði en fyrirfram veðja ég á að Dorrit yrði tilkippilegri af þeim hjónum. Mögulega væri forsetinn þó til í að baða sig með blaðamönn- um Financial Times. Ekki er gott að segja hvernig baðviðtöl kæmu út í dagblaði en all- tént eru tveir ljósmyndarar Morg- unblaðsins, Ragnar Axelsson og Kristinn Ingvarsson, sem ég bar þetta undir yfir mánudagsýsunni, ekki í vafa um að myndefnið hefði burði til að verða gott. Ef til vill hentar baðið pistla- forminu betur, það er að blaða- menn færðu þanka sína í letur í fun- heitu freyðibaði. Hvernig væri að mitt góða blað tæki upp „Bað- þanka“ til mótvægis við „Bak- þanka“ Fréttablaðsins? Nú náist almenn samstaða um þetta viðtals- og pistlaform á prent- miðlum mætti ósköp auðveldlega breyta nöfnum dagblaðanna í Morgunbaðið og Fréttabaðið. Og svo auðvitað Dagbaðið Vísir. Í baði er þetta helst ... » Við blasir að baðiðmyndi slá í gegn í sportinu. Hugsið ykkur hvað kæmi upp úr Ólafi Stefánssyni sæti hann sultuslakur í búbblubaði með Adolfi Inga! Baðtal Enginn viðmælandi fer undan í flæmingi við þessar aðstæður.  Í tilefni tuttugu ára starfsafmælis Pearl Jam verður glæný heimildarmynd Ósk- arsverðlaunaleikstjórans Cameron Crowe (Jerry Maquire, Almost Famous, Vanilla Sky) um hljómsveitina frumsýnd í vel völd- um kvikmyndahúsum um allan heim, þriðju- daginn 20. september. Myndin ber nafnið TWENTY og verður eingöngu sýnd þennan eina dag í Háskólabíói. Miðasala er hafin og einungis 300 miðar eru í boði. Miðasala á Miði.is Pearl Jam Twenty sýnd 20. september í Háskólabíói  Raftónlistardúettinn Stereo Hypnosis, sem samanstendur af þeim feðgum Pan (Beatmakin Troopa) og Óskari Thorarensen (Inferno 5) heldur til Kanada á föstudaginn þar sem þeir spila á tónlistarhátíðinni Har- vest Music Festival rétt fyrir utan Toronto. Stereo Hypnosis hafa verið ötulir að ferðast og koma fram í öðrum löndum og borgum undanfarin þrjú ár. Sveitinni hefur þá verið boðið á hina virtu kvikmyndahátíð í Toronto en ferðin er styrkt af Reykjavík Loftbrú – sem hefur aðstoðað svo marga tónlistarmenn að kynna list sína á erlendri grundu. Nýtt efni með sveitinni er þá væntanlegt á næstu vikum. Stereo Hypnosis heldur til Kanada á tónlistarhátíð Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hljómsveitin Hellvar, sem hóf starfsemi sína sem dúett þeirra Ragnheiðar Eiríksdóttur og Elvars Sævarssonar, hefur nú gefið út aðra plötu sína undir merkjum Kimi Records en sú fyrsta kom út fyrir fjórum árum. „Kuldinn stendur okkur nærri,“ svarar Elv- ar sposkur þegar hann er spurður út í tilvís- anirnar í kaldranalega nýbylgju níunda ára- tugarins á plötunni sem blaðamaður þykist greina. Hljómur plötunnar er þá framúrskar- andi og tónlistarlega er hún ekki svo ólík frum- burðinum. Eða hvað? „Hann Aron Arnarson á heiðurinn af hljómnum,“ segir Elvar en þess má líka geta að tónjöfnun var í höndum JJ Golden frá Gold- en Mastering. JJ hefur m.a. unnið með bönd- um eins og Primus, Sonic Youth, Calexico og Neurosis. „Sum laganna voru samin fyrir fyrstu plöt- una þannig að þær eru ekki svo ólíkar kannski. En vinnslan var mjög ólík. Við lágum yfir fyrstu plötunni í heillangan tíma en höfðum takmarkaðan tækjakost. Við tókum hana upp í litlu íbúðinni okkar í Berlín. Þessi plata var hins vegar tekin upp á þremur dögum.“ Elvar er spurður út í þann veruleika að vera í hljómsveit með spúsu sinni. Hann segir það fela í sér kosti jafnt sem galla. „Það eru auðvitað aldrei árekstrar upp á það að einn sé að fara á hljómsveitaræfingu en hinn ætli að vera heima að horfa á vídeó. Hags- munir okkar liggja saman að þessu leytinu til. En svo er auðvitað hættulegt að fara beint á æfingu eftir að vera búin að rífast um upp- vaskið.“ Elvar segir að hann og Heiða hafi því tekið meðvitaða ákvörðun um að vera „ekki“ saman þegar þau eru á tónleikum eða á æfingu. „Og það hefur gengið alveg furðuvel,“ segir hann og kímir. „Dúettinn varð annars til á sín- um tíma af sjálfu sér. Þegar við bjuggum í Berlín höfðum við bara hvort annað til að vinna með og trommuheila. En nú hafa fleiri meðlimir bæst við og þeir koma með sitt krydd inn í þetta.“ Platan kemur út í dag á efnislegu formi en einnig er hægt að nálgast hana á gogoyoko- veitunni. Hljómsveitin mun þá halda útgáfu- og hlustunarpartí í Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda, Laugavegi 21, í kvöld kl. 21.00. Hljómsveit Hellvar byrjaði sem dúett Heiðu og Elvars en er fullburða hljómsveit núna þar sem fleiri meðlimir hafa bæst við. Uppvaskið skilið eftir  Hellvar gefur út aðra plötu sína, Stop That Noise, í dag  Kostir og gallar fyrir par að vera saman í hljómsveit, segir Elvar Sævarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.