Morgunblaðið - 14.09.2011, Side 18

Morgunblaðið - 14.09.2011, Side 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 Illa hefur gengið hjá lundanum í sumar 2011. Hann hefur vantað æti og engum ungum komið upp í Vest- mannaeyjum, þar sem þeir hafa áður verið í þúsundum. Svo var það í frétt- um núna nýlega 1. september að allt væri fullt af lunda á og við Dyrhólaey enda væri sjórinn fyrir framan fullur af síli í torfum. Endurreisa þarf sandsílið, svo ein- falt er það. Fækka sílamávum. Sama sagan af kríu er sögð á Snæfellsnesi og raunar af Seltjarnarnesi líka. Þar er engin kría sumarið 2011 enda vantar síli, sem krían lifir á og gefur ungum sínum. Koma þarf sílinu upp aftur. Svo einfalt er það. Hreinsa þarf sílamávinn burt. Hann afétur kríuna. Sjóbirtingur hvarf víða þegar minkur kom til Íslands og slapp út milli 1930-1940. Þá hreinsaði mink- urinn upp smásilung víða, sem ann- ars hefði gengið í sjó og komið til baka sem sjóbirtingur. Fyrir stríðið 1939-1945 fór greinarhöfundur oft á haustin inn að ós Elliðaánna með strætó. Þá voru menn þar við veiði á smáum sjóbirtingi, en hann hvarf um leið og lausum minkum fjölgaði þarna. Greinarhöfundur hefur í mörgum blaðagreinum árum saman bent á nauðsyn þess að hreinsa Ísland 99% af minknum. Þá myndi mörgum fuglategundum fjölga og sjóbirtingur koma aftur þar sem hann er horfinn í dag. Núna hefur ríkið laust húsnæði á Seltjarnarnesi, þar sem landlæknir var til húsa. Húsnæðið stendur autt. Láta það gera gagn. Þarna er tilvalið að setja upp miðstöð sem myndi skipuleggja frá einum stað eyðingu allra minka og fækkun á sílamávi sem afétur lunda og kríu, að því er varðar sandsílið. Endurreisa þarf sandsílið. Það nái fyrri stærð. Fækkum síla- mávi hæfilega. LÚÐVÍK GIZURARSON, hæstaréttarlögmaður. Björgum lunda, kríu og sjóbirtingi Frá Lúðvík Gizurarsyni Lúðvík Gizurarson Bréf til blaðsins Vel mætt í Gullsmárann Glæsileg þátttaka var í Gullsmára mánudaginn 12. september. Spilað var á 15 borðum. Úrslit í N/S: Pétur Antonsson - Örn Einarsson 332 Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 317 Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 302 Guðbjörg Gíslad. - Sigurður Sigurðss. 275 A/V Ármann J. Láruss. - Guðl. Nielsen 377 Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 330 Sigurður Njálsson - Ágúst Sigurðsson 328 Kári Jónsson - Ágúst Vilhelmsson 289 Skor þeirra Ármanns og Guð- laugs, er ríflega 71%. Allt spilaáhugafólk er velkomið í Gullsmárann. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Við hefjum vetrarstarfið sunnu- daginn 18. september. Byrjað verður með eins kvölds tvímenningi. Keppnisgjald er óbreytt frá síðasta ári 600 kr. og er kaffi innifalið í því verði. Spilastjóri eins og undanfarin ár verður Ólafur Lárusson. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Eldri borgarar Hafnarfirði Föstudaginn 9. september var spilað á 13 borðum hjá FEBH með eftirfarandi úrslitum í N/S: Jóhann Benediktss. – Pétur Antonsson 395 Auðunn Guðmss. – Guðm. Péturss. 375 Oliver Kristóferss. – Magnús Oddsson 353 Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 347 AV. Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 401 Tómas Sigurjóns. – Björn Svavarss. 377 Anton Jónsson – Ólafur Ólafsson 374 Katarínus Jónsson – Helgi Sigurðss. 354 Enn ein fjöðrin í hatt Grant Thornton Sveit Grant Thornton er Bikar- meistari 2011. Sveit Grants spilaði úrslitaleikinn við Haustak frá Aust- fjörðum og lauk leiknum með sigri Grant 144-116 Með Grant Thornton spiluðu Sveinn R. Eiríksson, Hrólfur Hjaltason, Júlíus Sigurjónsson og Þröstur Ingimarsson. Alls tóku 30 sveitir þátt í mótinu. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Ég fór á fund á Eyrarbakka að kvöldi 1. september um fangelsismál, þar sem mættir voru innan- ríkisráðherra, margir af þingmönnum okk- ar Sunnlendinga, nokkur af fyr- irmennum sveitarfé- lagsins Árborgar, for- menn stéttarfélaga, fjöldi fangavarða og síðast en ekki síst mikill fjöldi bæj- arbúa og nærsveitunga. Innanrík- isráðherra hélt tölu, fyrstur manna og svo tók Björgvin G. til máls áður en orðið var gefið frjálst og mönnum gef- inn kostur á að spyrja ráðherrann út í fyrirhugaða fangelsisbyggingu á Hólmsheiði, sem eins og flestir nú vita er fyrirhuguð og meira en það því ráð- herrann sagði hana vera ákveðna þó svo að þingið sé ekki einu sinni búið að samþykkja fjármagn til verksins. Undarlegur fundur Já, þetta var undarlegur fundur. Það stóð fjöldi manns upp og allir báru fram sterk rök fyrir því að Hólmsheiðarbyggingin er dýrasti kostur okkar Íslendinga í fangels- ismálum. En ég komst að því á þess- um fundi að rök er hugtak fyrir ráðlausa að velta sér upp úr. Ráðherrar og fyr- irmenni í Reykjavík eru yf- ir svoleiðis tímasóun hafin og þurfa ekki að færa nein rök fyrir sínum málum. Ög- mundur er ráðherra og orð- ið felur í sér að hann ræður. Punktur. Við skattgreið- endur borgum svo bara, sama hvaða þvermóðsku- bull ráðamenn framkvæma. Skýrsla Ríkis- endurskoðunar Skýrsla sú sem ég leyfi mér nú að vitna í kom út í mars 2010. Þar er 1. kostur að byggja við fangelsið á Litla Hrauni um 44 pláss. Þar er annar kostur að byggja við fangelsið á Litla Hrauni 22 pláss. Þessa skýrslu þykist ráðherra hafa lesið. Fór sá lestur fram í Héðinsfjarðargöngunum áður en þau voru upplýst? Ég vil benda á að í þeirri skýrslu er kostnaður á hvert fangapláss á Litla Hrauni sagð- ur vera 6,7 milljónir á ári en eftir stækkun um 44 pláss fer hann niður í 5,8 milljónir og um 22 pláss í 6,1 millj- ón. Í óhagkvæmustu fangelsum landsins sem eru Hegningarhúsið og Kópavogsfangelsið er kostnaður per pláss sagður 8,9 milljónir. Kostnaður á fanga í nýbyggingu á Hólmsheiði sem er 40 rýma fangelsi í skýrslunni verður 7,5 milljónir. Ef við förum svo í landið allt eða meðaltal yfir landið eftir því hvaða kostur er valinn þá er niður- staðan eftirfarandi og dæmi nú hver fyrir sig. (Sjá meðf. töflu.) Fjárlög ofl. Í fjárlögum fyrir árið 2010 og aftur fyrir árið 2011 er ráðherra gefin heim- ild til að selja Kópavogsfangelsið og Hegningarhúsið og kaupa eða leigja húsnæði fyrir gæsluvarðhald í Reykjavík. Er ráðherra líka yfir það hafinn að fylgja fjárlögum? Í staðinn rangtúlkar ráðherra heimildina og ætlar að ráðast í glórulausa byggingu sem í hans útgáfu er gæsluvarðhald, öryggisfangelsi, kvennafangelsi, skammtímavistun sektarfanga og móttökufangelsi. Það er vissara að telja fingurna eftir að hafa tekið í höndina á svona mönnum. Það er einsýnt að það verður að loka fangelsunum tveimur á höfuðborgar- svæðinu. Þau eru löngu úrelt aðstaða, bæði fyrir fanga og fangaverði. En að ætla að leysa það með óhagkvæmasta kostinum sem til er, er mikil bíræfni af ráðherra innanríkismála. Einu rökin sem meðmælendur Hólmsheiðarbyggingarinnar hafa er ferðakostnaður milli Reykjavíkur og Eyrarbakka. Á fundinum stóðu upp tveir menn með áratuga reynslu í fangaflutningum og sannfærðu alla viðstadda um að þau rök eru haldlítil enda í raun ekki deiluefni í málinu þar sem mesti aksturinn er um gæslu- varðhaldið og það eru fáir sem eru því ekki sammála að koma eigi á kopp gæsluvarðhaldsfangelsi á höfuðborg- arsvæðinu. Fyrir hverja er ráðherrann að vinna? Aftur að fundinum. Eftir að hafa setið undir hverri ræðunni af fætur annarri, fullum af staðreyndum og rökfærslum og fengið fjölda fyrir- spurna var ráðherra gefið orðið. Hann kom ekki með nein rök til stuðnings „ákvörðun“ sinni um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði, hann sýndi okkur og sannaði að rök eru fyrir ráð- lausa, ekki ráðherra. Eina svarið sem við fengum var að hann væri búinn að tala við fullt af fólki í Reykjavík sem væri bara ekki á sama máli og við, þannig að það væri alveg eins okkar að skipta um skoðun eins og hans. Ráðherrann sagðist hafa talað við dómara í Reykjavík, lögmenn í Reykjavík, lögreglumenn í Reykjavík og fangaverði í Reykjavík. Allir voru sammála honum og fangelsismála- yfirvöldum að byggja fangelsi í Reykjavík fyrir 2,5 milljarða. Ég vil benda hæstvirtum ráðherranum á það að ef hann fer á Reyðarfjörð og ber upp spurninguna hjá þessum hagsmunastarfsstéttum, „Eigum við að byggja hérna fangelsi fyrir 2,5 milljarða?“ þá er ég öruggur á því að hann fengi sama jáið og hann fékk hjá vinum sínum í borginni. Ef þetta eru rökin fyrir Hólmsheiðarbygging- unni, þá er ráðherrann á hálum ís. En það segir okkur líka fyrir hverja Ög- mundur Jónasson er að vinna. Þetta kalla ég að fá sendan putt- ann. Eftir Magnús Vigni Árnason »Höfuðborgarfang- elsin eru löngu úrelt, bæði fyrir fanga og fangaverði. Magnús Vignir Árnason Höfundur er fangavörður. Ráðherra á puttanum hagnaðurinn orðið tæp- ir 10,4 milljarðar. Arð- semi eigin fjár Arion banka hefði líka verið töluvert hærri en 21,4% án þessara íþyngjandi starfs- manna. Það munar um minna. Ég og allir hinir launagreiðendurnir er- um fullir þakklætis yfir að fá að taka þátt í hag- sæld Arion banka. Eða eins og bankastjórinn orðaði þetta: „Það skiptir miklu máli að starfsemin hvíli á traustum stoðum.“ Atvinnuleysistryggingum. Það er gott að vita hvað skiptir Arion banka máli. Ég finn mig knúinn til að þakka Arion banka fyrir að leyfa mér að létta undir með honum á erfiðleikatím- um. Ofan á launa- greiðslur í fyrirtæki mínu er lagt 8,65% tryggingargjald, sem fer að stórum hluta til að greiða atvinnuleys- isbætur. Með uppsögn 57 starfsmanna Arion banka kemur það í minn hlut og ann- arra launagreiðenda hér á landi að tryggja þessu fólki lágmarks fram- færslu. Þannig getum við launa- greiðendur létt undir með Arion banka, sem áður hafði þetta fólk á launaskrá hjá sér. Ef við gefum okkur að hver starfsmaður hafi kostað Arion banka að jafnaði 500 þúsund krónur á mán- uði, þá gerir það 28,5 milljónir mán- aðarlega og 171 milljón króna á hálfu ári. Fyrri helming þessa árs var hagn- aður Arion banka 10,2 milljarðar króna eftir skatt. Ef ekki hefði verið fyrir þessa 57 starfsmenn hefði Eftir Ólaf Hauksson »Ég og allir hinir launagreiðendurnir erum fullir þakklætis yf- ir að fá að taka þátt í hagsæld Arion banka. Ólafur Hauksson Höfundur starfar við almannatengsl. Takk, Arion banki Á næsta ári verða 65 ár liðin frá því, að Hið íslenzka náttúrufræði- félag (HÍN) afhenti hinu opinbera allar eig- ur sínar; þar á meðal drjúgan fjársjóð, bóka- kost, áhöld, safngripi og ómetanlegar skýrslur gegn því loforði, að veg- legu náttúrugripasafni yrði komið á fót. Í stuttri blaðagrein eru ekki tök á að rekja hana ítarlega, en hlaupið skal yfir örfá efnisatriði. Megintilgangur með stofnun Hins íslenzka náttúrufræðifélags 1889 var að koma á fót náttúrugripasafni til þess að auka og glæða áhuga fólks á öllu, sem snertir náttúrufræði. Félag- inu tókst þetta ætlunarverk og kom upp veglegu sýningar- og vís- indasafni. Svo fór þó, eftir að ríkið hafði yfirtekið allar eigur félagsins 1947, að sýningarsal í safnahúsinu við Hverfisgötu var lokað 1960. Hann var opnaður að nýju í bráðabirgða- húsnæði við Hlemm 1967, en fyrir þremur árum var honum lokað og læst og öllum munum komið fyrir í geymslu. Árið 1965 var sett á laggirnar Náttúrufræðistofnun Íslands, sem var reist á eigum Hins íslenzka nátt- úrufræðifélags, og var henni meðal annars falið að sjá um sýningarhald, auk þess að þar skyldi lögð áherzla á rannsókn á náttúru landsins, jarð- lögum, flóru og fánu. Hvað svo sem segja má um þá stofnun, tókst forsvarsmönnum henn- ar aldrei að ýta úr vör því meginmarkmiði að reisa veglegt sýning- arsafn. Árið 2007 verða þáttaskil í máli þessu. Þá er Nátt- úruminjasafn stofnað í umsjá menntamálaráðuneytis, og Nátt- úrufræðistofnun, sem tilheyrir um- hverfisráðuneyti, leyst undan því verkefni að sjá um sýningarhald, en nýverið flutti hún í veglega nýbygg- ingu. Á hinn bóginn fer lítið fyrir starfsemi Náttúruminjasafns, þar sem það kúldrast í litlu húsnæði og hefur enn ekki fengið nema fáa muni frá Náttúrufræðistofnun samkvæmt fréttum þar um. Í mörg ár var hart barizt fyrir því að reisa veglegt safnahús, en hvorki gekk né rak. Fjálgleg orð margra menntamálaráðherra á hátíð- arstundu hafa reynzt fleipur eitt. Nú er svo komið, að aðeins eitt er í stöð- unni. Það er, að stjórn Hins íslenzka náttúrufræðifélags rifti einhliða samningi þeim, sem hið opinbera gerði árið 1947, vegna vanefnda. Það er margsannað mál, að ríkið hefur æ ofan í æ farið undan í flæmingi, þegar þessu máli hefur verið hreyft. Fara skal fram á að fá alla safngripi, skjöl og bókakost afhent ásamt uppfærðri þeirri fjárhæð, sem fjármálaráðherra stakk í ríkissjóð. Það er ekki auðvelt að meta í krón- um og aurum þau verðmæti (bækur, gripi og skjöl), sem ríkið tók til sín frá félögum í HÍN. Bara grasasafn Stef- áns Stefánssonar og Helga Jónssonar eru hreinar gersemar og eru slík söfn metin sem ígildi listaverka úti í hinum stóra heimi. Við má svo bæta, að nær engar rannsóknir á háplöntum hafa verið stundaðar á Náttúru- fræðistofnun, svo að þessi söfn hafa verið til næsta lítils gagns á þeim bæ. Það er óhætt að fullyrða það, að staða náttúrufræðasafns er enn á byrjunarreit og jafnvel bágbornari en 1947, þegar ríkið tók safnið til sín. Ég hvet því stjórn Hins íslenzka nátt- úrufræðifélags til að hefja málið að nýju, endurheimta forna muni og semja við sveitarfélög í landinu um að reisa söfn úti á landi. Náttúrufræðasöfn eru mikilvægust allra hluta til að efla og glæða áhuga fólks á náttúrunni og bezta leiðin til þess, að fólk, einkum unga kynslóðin, læri að meta gildi náttúrunnar og um leið bera virðingu fyrir landi sínu. Áskorun til HÍN Eftir Ágúst H. Bjarnason »Enn hefur ekkert safn risið og er hörmungar-saga þessa máls orðin æði löng. Ágúst H. Bjarnason Höfundur er grasafræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.