Morgunblaðið - 14.09.2011, Page 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
7 3 2
2 4 7 9
6 7
6
6 2 3 5
4 3 1 5
3 1 2 5 7
9 4 1
4 6 3
5 9 2
9 4 6
8 9 7 3
5 4
7 5 6
9
3 8
7 3
4 3 2 5
9 1 3
8 6 2
1 2 4
4 2 9
6
5 8 1
1 9
6
9 4 8 5 2 7 6 3 1
3 5 6 9 1 8 4 2 7
7 2 1 6 4 3 9 5 8
2 8 9 7 5 6 1 4 3
4 1 7 2 3 9 5 8 6
5 6 3 4 8 1 2 7 9
1 9 2 8 7 5 3 6 4
8 3 4 1 6 2 7 9 5
6 7 5 3 9 4 8 1 2
4 9 7 3 8 2 5 1 6
8 2 6 7 1 5 3 4 9
5 1 3 6 4 9 8 7 2
6 5 8 1 2 3 7 9 4
1 3 9 4 6 7 2 8 5
7 4 2 5 9 8 1 6 3
9 6 5 2 7 1 4 3 8
2 8 1 9 3 4 6 5 7
3 7 4 8 5 6 9 2 1
9 6 8 4 7 2 1 3 5
5 7 4 1 3 9 8 2 6
2 1 3 8 6 5 4 7 9
1 9 5 2 4 7 6 8 3
7 4 6 3 1 8 5 9 2
3 8 2 5 9 6 7 1 4
4 5 1 9 8 3 2 6 7
8 3 7 6 2 4 9 5 1
6 2 9 7 5 1 3 4 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 14. september,
257. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og
sjá góða daga, haldi tungu sinni frá
vondu og vörum sínum frá að mæla
svik. (1Pt. 3, 10.)
Víkverji hefur oft rekið sig á þaðhvað fólk getur upplifað um-
hverfi sitt með ólíkum hætti. Sjaldan
hefur bilið þó verið jafn mikið og á
milli Víkverja og starfsbróður hans
hér á blaðinu, sem lýsti heimsókn í
Jóa útherja um helgina. Víkverji á
börn, sem eru í íþróttum, hefur oft
farið í þessa íþróttaverslun og aldrei
kynnst þar öðru en góðu og jákvæðu
viðmóti og fengið góða þjónustu. Vík-
verji hefur ekki gefið sér mikinn tíma
í verðkannanir í íþróttaverslunum,
en þó hefur honum – án allrar
ábyrgðar – fundist verðið hjá Jóa út-
herja ívið lægra en hjá helstu keppi-
nautunum.
x x x
Þá áttar Víkverji sig ekki alveg áþeirri kröfu starfsfélaga síns að
fá að skila skóm sem hann var búinn
að nota, vegna þess að hann hafði
komist að því að þeir væru of litlir.
Augljóst er að verslunin getur ekki
selt notaða skó og tæplega er hægt
að sakast við verslunina þegar varan
passar ekki. Víkverji er ekki saklaus
af því að hafa keypt of stór eða of lítil
föt á sig, en hefur aldrei dottið í hug
að skila notuðum fötum, ekki frekar
en hann reynir að fá endurgreidda
bíómiða þegar hann kaupir sig inn á
mynd sem passar ekki við smekk
hans.
x x x
Víkverji heyrði um daginn sögu afmanni, sem hafði farið í fata-
verslun í miðbænum og mátað þar
jakkaföt sem reyndust smellpassa.
Maðurinn var svo ánægður með fötin
að hann keypti þau á staðnum og
gekk virðulegur í þeim út. Nokkrum
dögum síðar kemur eiginkona
mannsins bálreið með fötin, skamm-
ar klæðskerann fyrir að hafa prang-
að þeim inn á mann sinn og heimtar
að hann taki þau aftur. Klæðskerinn
segir sem er að taki hann fötin aftur
geti hann ekki selt þau á ný. Konan
lætur sig hins vegar ekki og klæð-
skerinn tekur við fötunum, en segir:
„Frú mín góð, viltu gæta þess að
næst þegar maðurinn þinn fer í versl-
unarleiðangur verði hann í fylgd með
fullorðnum.“ víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sleitulaust, 8
grotta, 9 þurrki út, 10 ung-
viði, 11 horfa, 13 húsfreyjan,
15 fáni, 18 lítið, 21 sápulög,
22 skjálfa, 23 eldstæði, 24
vanmáttugur.
Lóðrétt | 2 fugl, 3 rýja, 4
flanaði, 5 orkt, 6 guðs, 7
vangi, 12 togstreitu, 14 við-
kvæm, 15 flot, 16 end-
urtekið, 17 kátt, 18 syllu, 19
borðhaldinu, 20 fjallstopp.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 bjáni, 4 fúlga, 7 bóman, 8 níræð, 9 agn, 11 turn, 13
hrum, 14 ósmáa, 15 brot, 17 klók, 20 þró, 22 ostur, 23 lofar, 24
iðaði, 25 rýrar.
Lóðrétt 1 búbót, 2 álmur, 3 inna, 4 fönn, 5 lærir, 6 auðum, 10
gómar, 12 nót, 13 hak, 15 bloti, 16 ostra, 18 lifur, 19 kærar, 20
þrái, 21 ólar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
14. september 1944
Marlene Dietrich, kvikmynda-
leikkonan heimsfræga, hélt
sýningu í Tripoli-leikhúsinu í
Reykjavík ásamt leikflokki
ameríska hersins, við geysi-
lega hrifningu áhorfenda.
Meðal boðsgesta var íslenska
ríkisstjórnin og forsetinn.
Dietrich dvaldi hér í nokkra
daga til að skemmta hermönn-
um.
14. september 1950
Flugvélin Geysir brotlenti á
Bárðarbungu á Vatnajökli, á
leið frá Luxemborg til Reykja-
víkur. Sex manna áhöfn komst
lífs af. Flugvélin fannst ekki
fyrr en fjórum dögum síðar.
Hún var í eigu Loftleiða.
14. september 1963
Þrír bræður léku saman í
landsleik í knattspyrnu, en
það hafði ekki gerst áður.
Þetta voru Bjarni, Gunnar og
Hörður Felixsynir. Íslend-
ingar töpuðu leiknum, sem var
gegn Englendingum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Fárveikir tveir. S-AV.
Norður
♠KG
♥ÁD104
♦104
♣ÁK654
Vestur Austur
♠432 ♠Á7
♥K98 ♥7532
♦ÁK98 ♦DG763
♣DG10 ♣98
Suður
♠D109865
♥G6
♦52
♣732
Suður spilar 4♠.
Hversu veikir eru „veikir tveir“?
Suður hugsaði dæmið þannig: „Ég á
þrjá punkta og svo get ég reiknað mér
þrjá í viðbót fyrir góða spilamennsku –
tveir spaðar!“
Norður hækkaði í 4♠, vestur lagði
niður ♦Á (drottning úr austrinu) og
skipti yfir í ♣D í öðrum slag. Getur
suður réttlætt hrokann?
Hjartakóngur þarf auðvitað að
liggja, en hvernig á að komast heim til
að svína? Vörnin ætti að ráða við það
að dúkka ♠K. Besta vonin liggur í því
að sá með ♠Á (austur) sé með tvíspil í
laufi. Laufdrottningin er drepin og tígli
strax spilað til að slíta þar sambandið.
Væntanlega kemur lauf til baka, sem
sagnhafi tekur og spilar nú ♠K. Austur
dúkkar, fær næsta slag á ♠Á og kemst
þá ekki hjá því að hleypa suðri að.
Dýri Guðmundsson, sem gat sér gott orð sem fót-
boltamaður með meistaraflokkum Vals og FH á
árum áður, er sextugur í dag. Óhætt er að segja að
mikið standi til á afmælisárinu því Dýri hyggst
gefa út sjö laga hljómplötu áður en árið er úti.
Ekki er komið nafn á gripinn en stíllinn er fjöl-
breyttur; blús, rokk og melódíur. „En líklega er nú
blúsinn svolítið áberandi,“ segir hann. „Ég gríp
minn gítar, frakkur og fús, er einn frasinn sem ég
er að leika mér með,“ bætir hann.
Dýri hefur tekið upp þrjú lög og m.a. notið við
það aðstoðar félaga sinna úr Fjallabræðrum,
kórnum góðkunna, og Andra Eyvindssonar. Sonur hans Orri Páll,
trommuleikari í Sigurrós, hefur spilað á trommur í lögunum og Dýri
ætlar einnig að fá dóttur sína, Vilborgu Ásu, bassaleikara Mammúts
til að spila. Þriðja barnið, Guðný Vala lögfræðingur í Noregi, sleppur
ekki heldur. „Ætli ég fái hana ekki til að gerast umboðsmaður fyrir
plötusöluna á hinum Norðurlöndunum,“ segir hann í léttum dúr.
Eiginkona Dýra, Hildur Guðmundsdóttir, varð sextug 3. september
og í kvöld ætla þau að bjóða „innsta hring“ fjölskyldunnar til matar-
veislu og því er um tvöfalda afmælisveislu að ræða. runarp@mbl.is
Dýri Guðmundsson endurskoðandi og blúsari
„Minn gítar frakkur og fús“
Hlutavelta
Diljá Finnsdóttir og Júlía
Karín Kjartansdóttir héldu tom-
bólu við verslun Samkaupa á
Byggðavegi á Akureyri. Þær
söfnuðu 3.444 krónum sem þær
styrktu Rauða krossinn með.
Flóðogfjara
14. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.15 0,4 7.18 3,9 13.27 0,4 19.32 3,9 6.48 20.00
Ísafjörður 3.23 0,3 9.17 2,1 15.35 0,4 21.28 2,1 6.49 20.08
Siglufjörður 5.39 0,2 11.47 1,3 17.46 0,2 6.32 19.51
Djúpivogur 4.32 2,2 10.44 0,4 16.45 2,1 22.54 0,4 6.16 19.30
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er engin ástæða að draga sig í
hlé þótt hugmyndir þínar slái ekki í gegn.
Þér finnst eitthvað bogið við ástandið á
bílnum þínum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ekki láta neinn breyta samningum án
þess að láta þig vita. Leggðu þitt af mörk-
um með því að sýna skilning og umburð-
arlyndi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Kannski varstu vélaður til að taka
að þér visst verk, en þú gerðir það og þar
við situr. Einföld gönguferð í fjöru eða á fjall
getur verið allra meina bót.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur auðugt ímyndunarafl og
færð því skemmtilegar hugmyndir. Einhver
þér náinn kemst í hann krappan.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Dagdraumar eru af hinu góða,
gleymdu þér samt ekki í þeim of lengi. Þér
gengur vel í baráttunni við sykurlöngunina.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er jafn auðvelt að gera eitthvað
sem maður hefur ekki gert áður og að end-
urtaka sig í sífellu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þótt allt virðist slétt og fellt á yfirborð-
inu skaltu ekki láta blekkjast. Ekki eyða
orku í að reyna að sannfæra einhvern sem
ekki er þér sammála.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einhvern veginn taka allir eftir
þér þessa dagana, og þú veist ekki alveg
hvernig þú átt að bregðast við. Hlustaðu á
það sem aðrir hafa að segja.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Veltu því vandlega fyrir þér
hvort nú sé rétti tíminn til að breyta til.
Komið er að því að horfast í augu við nokk-
ur úrlausnarefni.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú færð góðar hugmyndir í dag
um það hvernig þú getur nýtt orku annarra
til að gera gagn. Sýndu vinum ræktarsemi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hefur oft skipt um skoðun í
gegnum tíðina, en sumum hugmyndum
viltu alls ekki láta af. Það er ekki eftir neinu
að bíða, skelltu þér út í óvissuna.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Samheldnin í fjölskyldunni er eitt-
hvað í uppnámi þessa dagana. Sameiginleg
ferð í sundlaugina eða á kaffihús getur
komið hlutunum í lag.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 Rc6 4. Rf3 Be7
5. c3 d5 6. exd5 Rxd5 7. O-O O-O 8. He1
Bf6 9. h3 He8 10. Rbd2 Ra5 11. Bxd5
Dxd5 12. Re4 Be7 13. d4 exd4 14. Dxd4
Be6 15. Bf4 c5 16. Dxd5 Bxd5 17. Had1
Bxa2 18. Ha1 Bd5 19. Hxa5 Bd8
Staðan kom upp á Stigamóti Tafl-
félagsins Hellis sem var haldið í byrjun
júní síðastliðins. Tinna Kristín Finn-
bogadóttir (1796) hafði hvítt gegn for-
manni Hellis, Vigfúsi Óðni Vigfússyni
(2001). 20. Hxa7! Bb6 svartur hefði
einnig tapað eftir 20… Hxa7 21. Rf6+!
gxf6 22. Hxe8+ Kg7 23. Hxd8. 21.
Hxa8 Hxa8 22. Bd6 c4 23. Rc5 Hd8 24.
Ra4 Ba7 25. Bc7 Hf8 26. Rb6 Bxf3 27.
gxf3 f6 28. Rxc4 Hc8 29. Rd6 og svart-
ur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik