Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 257. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Beraði brjóst í beinni
2. Átti 14 ára kærustu
3. Fegursta kona heims
4. Bifhjólamaður slasaðist alvarlega
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Orgelkvartettinn Apparat heldur
tónleika á Faktorý á föstudaginn. Við
svo búið heldur hann af landi brott
og heldur nokkra tónleika í Þýska-
landi og Danmörku en Pólýfónía, önn-
ur plata hans, kemur nú út í Evrópu.
Orgelkvartettinn
Apparat á Faktorý
Fyrirtæki kvik-
myndaframleið-
andans Kristrúnar
Guðmundsdóttur
og eiginmanns
hennar, leikstjór-
ans og handrits-
höfundarins Joël
Colburn, Kristrun
Entertainment,
mun framleiða kvikmynd með danska
leikaranum Jesper Christensen.
Myndin ber titilinn A Sexual Thriller
og mun Colburn leikstýra.
Framleiðir mynd með
Jesper Christensen
Stórsöngvarinn Jón Kr. Ólafsson frá
Bíldudal heldur stórtónleika í FÍH saln-
um hinn 17. september næstkomandi.
Ásamt Jóni Kr. koma fram
söngvararnir Ragnar
Bjarnason, Egill
Ólafsson, Gissur
Páll Gissurarson,
Anna Sigga Helga-
dóttir, Kristín Sæ-
dal, Garðar Guð-
mundsson og
Jóhanna Lin-
net.
Jón Kr. Ólafsson
í FÍH salnum
Á fimmtudag Sunnan 5-13 m/s og bjartviðri austanlands, annars
skýjað og rigning eða súld vestantil. Hiti 8 til 13 stig.
Á föstudag Suðaustan 8-13 m/s og rigning, en þurrt norðaustan-
lands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg átt og bjartviðri. Þykknar upp
vestanlands síðdegis. Hiti 7 til 13 stig.
VEÐUR
Evrópumeistarar Barcelona
hófu titilvörn sína í Meist-
aradeild Evrópu í knatt-
spyrnu karla í gærkvöldi
með því að ná aðeins jafn-
tefli við AC Milan á Camp
Nou í Barcelona. Ítalirnir
jöfnuðu metin, 2:2, með
marki á næstsíðustu mín-
útu eftir að hafa komist yfir
eftir aðeins 25 sekúndur. Þá
vann Chelsea Leverkusen
og Arsenal og Dortmund
skildu jöfn. »2
Meistararnir byrj-
uðu á jafntefli
Novak Djokovic ákvað fjögurra ára
gamall að verða besti tennisleikari í
heimi. Nú er hann á toppnum, tutt-
ugu árum síðar, og undirstrikaði
stöðu sína sem sá besti með því að
sigra Rafael Nadal í úrslitum opna
bandaríska meist-
aramótsins í fyrri-
nótt. »4
Ákvað fjögurra ára að
verða bestur í heimi
„Stemningin á knattspyrnulandsleikjum
hérlendis er almennt séð fullróleg fyrir
minn smekk. Hægt er að benda á í því
sambandi að Íslendingar hafa litla
ástríðu fyrir karlalandsliðinu í knatt-
spyrnu um þessar mundir. Sú skýring
nær bara ekki ýkja langt því stemningin
á kvennalandsleikjum er lítið betri,“
skrifar Kristján Jónsson í pistli um
áhorfendur á fótboltalandsleikjum. »4
Fullróleg stemning
á landsleikjum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Fullt var út úr dyrum í Garðakaffi
á Akranesi í gær þegar blásið var
þar til veislu í tilefni útgáfu bók-
arinnar Ríkisfang: Ekkert – Flótt-
inn frá Írak á Akranes. Bókin seg-
ir sögu flóttakvennanna átta sem
komu til landsins með börn sín frá
Írak fyrir þremur árum, hinn 8.
september 2008, og settust að á
Akranesi. Höfundur bókarinnar er
Sigríður Víðis Jónsdóttir. Fyrir
bókina tók hún viðtöl við allar
konurnar en tvær þeirra, Ayda og
Lína eru í forgrunni.
Lína Mazar var ánægð með
daginn þegar blaðamaður heyrði í
henni eftir útgáfuveisluna í gær. Í
veislunni buðu flóttakonurnar
meðal annars upp á arabískan mat
og sýndu palestínskan debka-dans.
Lína segir að viðtökurnar hafi
verið mjög góðar. „Það kom margt
fólk og það var gaman að sjá það
skoða bókina, borða saman, syngja
saman á arabísku og taka þátt í
dönsunum.“
Erfitt að lesa bókina
Lína dvaldi í Al Waleed-
flóttamannabúðunum í Írak en
búðunum hefur verið lýst sem
versta stað á jörðu. Hún flúði til
Íslands ásamt þremur ungum
börnum. Línu líst mjög vel á bók-
ina en þykir ekki gaman að lesa
hana. „Það er mjög erfitt fyrir
mig að lesa þessa bók. Þegar ég
sé hana man ég hvað lífið í flótta-
mannabúðunum í Írak var erf-
itt, hvað gerðist og af hverju
ég þurfti að koma til Íslands.
Mér þykir erfitt að rifja þetta
upp.“ Hún telur að það muni
hafa áhrif til góðs að þær
hafi sagt sögu sína. „Ég von-
ast til að bókin komi út í
fleiri löndum, á fleiri
tungumálum eins og ensku
og arabísku, svo hún geti
haft víðtækari áhrif,“ segir Lína.
Þrátt fyrir að hafa aðeins verið
þrjú ár á Íslandi talar Lína orðið
ágæta íslensku. „Ég er að læra ís-
lensku og á tölvu í Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi. Þegar ég kom
fyrst til Íslands talaði ég hvorki
íslensku né ensku og skildi ekki
fólk og fannst það erfitt. En núna
tala ég og skil íslensku og það er
mikið betra. Ég hef það mjög gott
og elska Akranes og allt Ísland.
Ég er mjög glöð að ég skuli núna
eiga land og heimili og að krakk-
arnir mínir fari í skóla. Ég er
mjög glöð að eiga núna ríkisfang,“
segir Lína. Hún hefur ekki í huga
að fara frá Íslandi. „Ég hugsa
aldrei út í það að fara út aftur.
Hér líður mér vel og hér ætla ég
að búa.“
Glöð yfir að eiga land og heimili
Þrjú ár frá því
flóttakonurnar átta
komu á Akranes
Morgunblaðið/Kristinn
Áritað af kappi Lína, Sigríður Víðis, Narjis og Ayda höfðu vart undan að árita bókina sem seldist upp á staðnum.
Hvernig er að búa í tjaldi í flóttamannabúðum í 50°C hita? er yfirskrift
fundar sem fer fram í dag í Háskóla Íslands. Er það fyrsti fundurinn af
fjórum á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Forlagsins í til-
efni af útkomu bókarinnar Ríkisfang: Ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur.
Í dag ætlar Lína Mazar að segja frá dvöl sinni í Al Wa-
leed-flóttamanabúðunum í Írak en búðunum hefur verið
lýst sem versta stað á jörðu. Sigríður Víðis Jónsdóttir,
höfundur bókarinnar, segir frá tilurð verksins, viðtölum
sínum við flóttakonurnar á Akranesi og vettvangsferðum
til Palestínu og Íraks. Fundarstjóri er Auður Jónsdóttir
rithöfundur.
Fundirnir eru í Odda 101 á miðvikudögum frá kl. 12.25-
13.20.
Dvölin á versta stað á jörðu
FUNDARÖÐ Í HÁSKÓLA ÍSLANDS