Líf og list - 01.07.1950, Side 8

Líf og list - 01.07.1950, Side 8
Konan í kjallaranum Smásaga eftir Svövu Jakohsdótlur Konan í kjallaranum er búin að missa manninn sinn. Hann dó úr lungnatæringu á hælinu, þar sem hann var búinn að dvelja í hálft annað ár. Stúdentinn sat við gluggann sinn og reyndi að festa hugann við lesturinn. Hann var ofan úr sveit, en hafði tekið stúdentspróf utan- skóla, og nú las hann verzlunar- fræði við Háskólann. Hann hafði verið svo heppinn að fá leigt smá- herbergi á annarri hæð í húsi, scm stóð vestur í bæ. Húseigandinn var konan í kjallaranum. Já, hann hafði verið mjög heppinn, því margir hefðu getað borgað hærri húsaleigu, og konan í kjallaranum var alls ekki efnuð, þó hún hefði erft þetta hús eftir föður sinn. Eiginlega botnaði stúdentinn ekk- ert í, hvers vegna hún halði leigt honum. Hann sat við gluggann, en honum var ógerningur að taka cft- ir því, sem hann las, heldur ein- blíndi hann út á götuna. Fyrir ut- an stóð líkvagninn og fjöldi fólks. Húskveðjan var í þann veginn að enda. Hann vildi ekki horfa. Hann langaði til að nota þetta síðasta tækifæri til að sýna manni kon- unnar í kjallaranum þá virðingu að horfa ekki á hann, nú — þegar þeir báru hann í hvítri kistunni út úr húsinu. Á eftir kistunni kom konan með drenginn sinn. Stúdentinn stóð snögglega upp og henti sér á grúfu ofan á legu- bekkinn. Hann hafði einu sinni séð eig- inmann konunnar í kjallaranum, þegar hann fékk leyfi til að koma heim af hælinu. Hann hafði verið þrjá daga heima. Stúdentinn hafði setið við gluggann einnig þá, þegar hann tók eftir því, að dreng- urinn litli hljóp út á götuna og hrópaði — „Pabbi — pabbi — pabbi er að koma!“ — Á eftir honum liljóp litla tátan, sem hafði rauða lokka eins og mamma hennar. Pabbi þeirra tók þau bæði í fang sér, þrýsti þeim að sér og lciddi Jiau svo heim að húsinu. í dyrun- um stóð konan og beið. Stúdent- inn hafði heyrt smellinn, Jjegar hún lokaði dyrunum á eítir Jreim öllum. Alla þessa Jtrjá daga fór stúdent- inn ekki út úr húsinu. Það varð honum sjúkleg ástríða að standa við gluggann og gæta að hverri lireyfingu fólksins í kjallaranum. Hann gerði sér jaf-nvel erindi nið- ur og bað konuna að lána sér nál og hvítan enda. Hann ætlaði að festa tölu á skyrtuna sína. Hún bauðst ekki til Jiess að gera það l'yrir hann í Jtetta sinn. Kvöldið cftir að ciginmaðurinn fór altur á hælið, fór stúdentinn niður til konunnar. Hann var í Jrungu skapi og ásakaði hana, út af hverju vissi hann ekki íyllilega, en það var eitthvað hið innra með honum, sem varð að fá útrás. Kon- an í kjallaranum hló að honum, svo skein í mjallhvítar tennur hennar. Hún ruglaði svörtu og vel- greiddu hári hans, þrýsti sér upp að honum og liló — „Vertu kátur, litli vinur“ — sagði hún. Og nú var verið að jarða mann- inn. Það leið vika. Stúdentinn sat alltaf við gluggann sinn. Á hverj- um morgni sá hann litlu börnin hennar koma út á götuna og leika sér. En konan í kjallaranum fór aldrei út. Þetta var að verða ó- bærilegt. Hann þráði að fara nið- ur til hennar, en eitthvað hélt aft- ur af honum. Var |>að virðing fyr- ir dauðanum? Var Jiað hræðsla við sorg hennar og áfallið, sem hún Svava Jakobsdóttir er höfundur beatu smásögunnar í smásögukeppni þeirri, sem Líf og List efndi til í vor. Svava er tvítug að aldri. Hún tók stúdentspróf við Menntaskólann í Reykjavík í fyrra- vor og próf í forspjallsvísindum viðHá- skóla Islands í vor. Nú er hún á förum til Bandaríkjanna til háskólanáms í sál- fraeði. hafði orðið fyrir? Hann vissi Jjað ekki. Eitt kvöld sá hann hcnni bregða fyrir. Það kvöld fór hann niður. Hún kom til dyra. „— Ég — komdu sæll — ég get því miður ckki boðið þér inn núna — þú verður að afsaka — en það eru gestir hjá mér. En annars var gott að þú komst, ég Jjarí að tala við þig. Ég er hrædd um að Jjú verðir að leita Jtér að hcrbergi annars staðar. Ég gct fengið leigjanda, sem borgar helmingi hærri húsa- leigu cn Jiú og — Jtú skilur — ég þarf á peningum að halda. Ég vona, að ]:>að verði ekki langt j:>ang- að til að ])ú getur flutt." Svo lokaði hún dyrunum og hann stóð cinn eftir lyrir utan. Konan í kjallaranum var orðin ekkja. 8 LÍF og LIST

x

Líf og list

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.