Líf og list - 01.07.1950, Qupperneq 14

Líf og list - 01.07.1950, Qupperneq 14
— Ást okkar verður öflugri með hverjum degi, segir hún. Og hún horfir svo hrærð á mig, að ég verð gramur og finnst hún vera skopleg. Hvað var það, sem fór fram á milli Leonide og konu hans um lágnættið? Þau gengu fram og aft- ur í súlnagöngunum, Leonide með hendur fyrir aftan bak og teygði fram álkuna. Hann segir eitt- hvað við og við. Vadja ypptir öxl- um. Ég gekk til þeirra. Ég hafði sett upp vingjarnlegan, brosandi svip, eins og sá,sem er mjög ánægð- ur með bæði sjálfan sig og aðrar manneskjur. — Kæra vina, hvað hefurðu töfrað marga sjómenn í kvöld? Þau virðast hrökkva við eins og sofendur, sem vaktir eru af fasta svefni. Og ég sé, að kringum munn Vadja eru slakir drættir, eins og grátur sé ekki fjarri. Hún brosir við mér, eins og sársaukinn væri sigraður, yfirunninn. En augu Leonides eru ekki hin sömu og áð- ur, þessi svörtu augu, sem vanalega eru á sífelldu ílökkti, eru nú orðin stöð og hörkuleg. Ég sé í þeim nýjan glampa, eins og nú væru komnir tveir Leonidar. Sá sem við öll þekkjum vel, og svo annar, sem kemur okkur að óvörum, en er þess albúinn að koma í stað hins. Óþægileg tilfinning kæfir gleði mína. Vadja er þegar búin að ná sér. — Aðeins eitt, Pierre, segir hún, það er um hann sem bauð mér upp þrisvar, háa Ijóshærða liðsforingj- ann, þú sást hann, hann er grann- ur eins og kornung stúlka, og hann er yndislega rómantískur. Hann heitir óendanlega löngu nafni, sem lætur eins og Ijóð í eyrum . . . Leonide grípur fram í fyrir henni. — Konan mín er lasin, Théraz. Eigum við nú ekki að fara heim, Vadja? Hún þorir ekki að segja nei, en hikar samt svolítið, brosir og rétt- ir mér síðan hönd sína. — Ég vona, að þú afsakir okkur, Pierre, ég lief eiginlega ofreynt mig núna síðustu mánuðina. Ég horfi á hana, æstur á svip. Það er uppgerð að nokkru leyti, og þó ekki öllu. Ég verð að hafa stjórn á mér, og það er erfiðara en ég hefði getað í- myndað mér. Hvaða klípu var ég nú kominn í? „Ást okkarl“ Vadja hefur haft meiri óþægindi en ánægju af þeirri „ást“. Og Leonide féll ekki annað í hlut en afbrýðissemi og auðmýk- ing — og einhvern góðan veðurdag myndi einhver hláleg slysni henda okkur, sem allir vinir okkar myndu slúðra um . . . Hvað sjálfan mig áhrærir: Ég myndi ábvggilega hafa ánægju af að vera í þingum við einhverja aðra konu, og auk þess losnaði ég þá við samvizkubitið og hina viðbjóðslegu tilfinningu af hneykslinu, sem var í aðsigi. Þetta kvöld átti ég erfitt með að sofna. Það var runninn nýr dagur, þegar ég loks lenti á strönd svefns- ins. Og mig dreymdi. Ljóshærður liðsforingi þuldi rómantíska þvælu yfir Vadja Vasi- dés. Þau gengu saman eftir blóm- bryddum stíg heim að sólglitrandi húsi, sem ég sá, og mig langaði líka heim að húsinu. En það var ó- mögulegt að komast þangað. Þetta var livíta sendiherrahúsið. Sólar- Ijóminn breiddist yfir boghvelf- ingu súlnaganganna og Chiraz- blómin í stóra salnum. Liðsforing- inn tók arm Vadja og sýndist við- kvæmnislegur fremur en ástfang- inn. Ég flýti mér til þess að ná þeim, ég hleyp. Þau eru horfin. Frú Hostier horfir á mig forvitnislega, hún klappar saman höndunum og hlær. Svo sá ég hvítan bát, hvítan eins og nýkalkaðan vegg eða eins og jómfrúlegan klæðnað eða eins og kjólinn hennar frú Hostier. Pierre Théraz stóð á þilfari. Og ég? Ég skildi við sjálfan mig til þess að geta horft á mínar eigin gjörðir. Sjórinn var ládauður með óhugn- anlegum silfurgljáa. Báturinn lá kyrr og Pierre Théraz flýtti sér hræðilega við að komast áfram. Hann þurfti að komast á land svo fljótt sem auðið var, annaðhvort á Frakklandi eða Egyptalandi. Hvað var sjóliðsforinginn að gera? Hvað er skipstjórinn að gera? Allir yfir- menn og sjómenn á þessu skipi ... Sólin gengur til viðar, og nóttin dettur á með öllum sínum þunga. Pierre Théraz stendur aleinn á þil- fari við hlið óljósrar eftirmyndar sjálfs sín, sem ég veit ekki lengur að er ég sjálfur. Öllu er lokið, allar leiðir á enda. Skyndilega — eða loksins — bregður fyrir í vonleysi næturinnar hinum nýja augnaglampa Leonid- es. 5. mai 1948. Nakin blundaði Vadja, eins og skógardís eða barn. Hálf opinn munnur hennar brosir, líkt og vor- blóm úr skrautgörðum E1 Fay- oums. Var hún með augun lokuð? Löng augnahárin vörpuðu skugga á augnalokin. Líkamsþungi henn- ar myndar djúpa dæld í undirsæng- ina, með mjúkum fellingum í kring. Hnígandi sólin er eldrauð, og hörund Vadja er gljáandi eins og perla úr undirdjúpum hafsins. í hcrberginu er þungur reykelsisilm- ur blómanna, staðvindurinn er hættur að blása. Vadja kveinkar sér í svefninum. Henni verður rórra við einn koss. Þetta kvöld fór hún frá mér seinna en hún var vön. Næturblátt rökkrið frá eyðimörkinni sveipaði borgina. í dimmu herberginu, þar 14 LfF og LIST

x

Líf og list

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.