Austurland - 23.12.1993, Qupperneq 19
19
JÓLIN 1993.
ónsson
lunaði og svall“
ði fyrir 50 - 60 árum
#■ ,
• * tf
'{
i
r /
1939 en þá flutti hann til Reykja-
víkur. Svavar var mikill lista-
maður. Auk þess að vera mikill
harmónikuleikari var hann
ágætt tónskáld og samdi mörg
fallegt lög sem eiga eftir að lifa
meðal þjóðarinnar um ókomna
tíð, t. d. Sjómannavalsinn.
Svavar lék víða um Austur-
land og einnig nokkrum sinnum
í útvarpið m. a. með Róberti
Arnfinnssyni leikara, sem þá var
að alast upp á Eskifirði.
Svavar Benediktsson var ákaf-
lega duglegur harmónikuleikari
og munaði ekki mikið um að spila
frá kvöldi til morguns ef svo bar
undir. í einjii slíkri spilamennsku
var hann að spila á Fáskrúðsfirði
og'datt þar fram af sviðinu. Hánn
kom ofan á konu sem sat fyrir
framan sviðið og segir sagan að
hún hafi lærbrotnað.
í>á var Svavar einnig ágætur
leikari og söngvari.
Kátir félagar
Ég byrjaði senmma að spila á
orgel og á unglingsárunum mín-
um spilaði ég nokkuð mikið.
Geir bróðir minn átti mandólín
og spiluðum við mikið saman.
Hilmar Björnsson sem var mik-
ill vinur okkar útbjó sér tromm-
ur úr skinnum og til varð hljóm-
sveitin Kátirfélagar, sem spilaði
heima fyrir um all iangt skeið.
Þegar Svavar Benediktsson
flutti til Reykjavíkur skapaðist
tómarúm í dansmúsikinni og
kom nú að því að við vorum
drifnir til að spila á dansleik í
Gúttó. Við gerðum mikla lukku
á ballinum en slagsmálin voru
þvílík að orgelið á sviðinu rugg-
aði. Fljótlega vorum við svo
fengnir til að spila á dansleik í
barnaskólanum.
Á þessum árum héldu Kven-
félagið Nanna og Kvennadeild
Slysavamarfélagsins stórdans-
leiki í barnaskólanum. Dans-
leikir þessir voru hefðbundnir
fjáröflunardansleikir þessara fé-
laga. Skólaböllin voru fínir
dansleikir. Kvenfólkið var í síð-
um kjólum, karlmennirnir í sínu
fínasta pússi og nokkrir klædd-
ust meira að segja smoking, en
það voru þeir sem keyptu sér
smokinga í siglingunum til
Englands.
Nú var farið að stunda spila-
mennskuna af alvöru. Fyrst spil-
uðum við á orgelið umrædda,
mandólín og trommur. Síðan
fengum við harmónikur, eina
frá Danmörku og aðra frá Eng-
landi. Þessar nikkur voru með
píanónótum svo þeir sem spil-
uðu á orgel voru fljótir að kom-
ast upp á það að spila á þær.
Trommusett keyptum við i
Keflavík á einni vetrarvertíð-
inni.
Hljómsveitaskipanin var þá
þannig að Geirspilaði til skiptis
á mandólín og harmóniku, ég
spilaði á harmóniku og Hilmar
átrommurogallirsungum við.
Það kom stundum fyrir á góð-
viðriskvöldum sumarsins að við
spiluðum úti. Safnaðist þá
margt fólk á götuna og fyrir neð-
an húsið heima. Á þessum tíma
var lítið um músik og það var
ekki víða sem hægt var að hlusta
á hana í útvarpi. Því var þetta
kærkomin tilbreyting í hvers-
dagslífinu.
Einu sinni kom áhöfn af
frönskum togara upp í brekk-
una og sátu þeir eins og brúður
með húfurnar 1 höndunum á
meðan við spiluðum.
Heima hjá mér var til fiðla og
einu sinni þegar við vorum að
spila fyrir gesti spilaði Reynir
Zoéga á fiðluna og var það
skemmtileg tilbreyting.
Á þessum árum var það nokk-
uð algengt að ungir menn gengu
Óskum viðskiptavinum
okkar og starfsfólki
gleðilegra jóla
og farsæts komandi árs
Kaupfélag Vopnafjarðar
Vopnafirði
Tannlæknastofa Pálma Þ. Stefánssonar Neskaupstað
Búnaðarbankinn Egilsstöðum
Ferðamiðstöð Austurlands
Raftækjavinnustofa Sveins Ó Elíssonar Urðarteigi 15 Neskaupstað
Viðskiptaþjónusta Guðmundar Ásgeirssonar Sími 71177 Neskaupstað
Vélasalan Ánanaustum Reykjavík
Brúnás Egilsstöðum
Pöntunarfélag Eskfirðinga Eskifirði
Gurtnar og Snæfugl Fiskverkun GSR Reyðarfirði
Sólning Egilsstöðum sími 12002
Gúmmíbátaþjónusta Austurlands hf. Hlíðargötu 25 Neskaupstað
Málm- og skipasmíðafélag Norðfjarðar Neskaupstað
Flugleiðir
ísgata hf. Nóatúni 17 Reykjavík
Vélar og Skip hf. Fiskislóð 137a Reykjavík
Gjörvi sf. Grandaskála, Grandagarði, Reykjavík
ísmar hf. Síðumúla 37 Reykjavík
Verslunarþjónustan hf. Kirkjubraut 2 Akranesi
Friðrik A. Jónsson Fiskislóð 90 Reykjavík
Sendum öllum Noröfirðingum bestu
jóla- og nýársóskir með þakklæti fyrir
árið sem er að líða.
Hittumst heil á nýja árinu.
Guðrún Sigurjonsdottir
Stefán Þorleifsson
stödd í Gautaborg Svíþjóð