Austurland - 23.12.1993, Síða 31
JÓLIN 1993.
31
Heimili Sigríðcir Rósu á Eskifirði.
..Nlaður er nú ekki sterkur
núna." var orðtak á skrifstof-
unni þegar beðið var um pen-
inga. En niér fannst ég aldrei
vera að biðja þá unt eitthvað
sem ég átti ekki rétt á. Það var
búið að vinna fyrir þessu kaupi.
Ég sagði áðan að mér hefði
þótt Eskfirðingar skrýtnir og
veit að þeim þótti ég líka
skrýtin. Ég talaði rneira en aðrir
þegar ég hitti fólk því þess á
milli þurfti ég að þegja. Alla
daga var ég mest ein með krakk-
ana og hafði því mikla þörf fyrir
að tala við einhvern. Pegar ég
hitti manneskju, sem ég gat rætt
við. var ég oft dauðþreytt á eftir
af því einu að nota heilabúið til
að koma hugsunum mínum í
orð. Ég talaði auðvitað við
börnin, fór með vísur og kvæði
fyrir þau, en það reyndi ekki
mikið á hugsunina. Ég hlustaði
mikið á útvarp. Útvarpið var
andlegur bjargvættur minn í
einangruninni.
Ég fann fijótt að ég hafði aðr-
ar skoðanir en fólkið í kringum
mig. Ég dró ekki endilega fyrir
gluggana því ég var ekki að gera
neitt sem aðrir máttu ekki sjá.
Ég sá heldur ekki ástæðu til að
halda því leyndu sem ég var að
gera eða ætlaði að fara að gera,
en sagði það þeim sem ég lenti
á spjalli við. Hér var algengt að
fólk héldi því leyndu ef það var
að fara í burtu, t. d. til Reykja-
víkur.
„Jú, kannski. Pað getur svo
sem verið,“ sagði það eins og
þetta væri hernaðarleyndarmál.
Stundum virkaði það sem ég
gerði ögrandi, eins og þegar ég
hjólaði á stuttbuxum inn í bæ.
Á þessum tíma þótti það ekki
viðeigandi af fullorðinni konu.
En mér var alveg sama hvað fólk
sagði, þetta voru mín læri.
Smátt og smátt vandist fólk svo
þessum vitlausa kvenmanni sem
aumingja, vesalings Ragnar
hafði lent á.
Ég eignaðist Kristján 25. nóv-
ember 1948, á afmælisdegi Ás-
geirs bróður. Ásgeir átti vin á
Eskifirði, Rafn Helgason, sem
var fæddur 19. nóvember og
voru þeir vinirnir stundum að
metast á um það hvor þeirra
fengi barnið í afmælisgjöf. Ás-
geir var að vonum stoltur yfir
því að frændi hans fæddist sama
dag og hann en tveimur árum
seinna eignaðist ég Kristinn 19.
nóvember. Ég gerði því ekki
upp á milli þeirra vinanna.
Hér var rafmagn frá vatnsafis-
stöð, einni af þeim fyrstu á land-
inu, og var stöðin í gangi til
klukkan tólf á miðnætti. Það átti
því að panta rafmagn ef maður
þyrfti á því að halda á nóttunni.
Kristján fæddist klukkan eitt
eftir miðnætti en við höfðum
gleymt að panta rafmagn svo
hann fæddist við kertaljós.
Kristján var ósköp magur
þegar hann fæddist og sagði
Mekkín Bjarnadóttir, vinkoná
Guðrúnar Árnadóttur, þegar
hún sá hann og strauk upp eftir
höfði hans:
„Að sjá þetta. Hann er eins
og horaður svartfugl.“
Það var rétt, hann var alveg
blár í gegn. Ljósmóðirin sagði
að hann hefði verið 14 merkur
þegar hann fæddist en hún var
nokkuð drjúg á vigtinni því þeg-
ar ég vigtaði hann, sex vikna
gamlan, var hann aðeins 13
merkur. Ég hef því meiri trú á
að hann hafi verið 11 merkur
þegar hann fæddist. Ég mjólk-
aði illa og það var litla mjólk að
fá. Eftir að barnið fæddist fékk
ég aðeins hálfan líter til viðbótar
við þann líter sem okkur hafði
tekist að tryggja okkur innan úr
sveit. Ég fékk því aðeins einn
og hálfan líter fyrir fjórar mann-
eskjur; okkur Ásgeir, sem bæði
vorum mjólkurbörn, Sigrún,
sem var eins árs, og hvítvoðung-
inn. Við Ásgeir urðum því að
skera niður okkar mjólkur-
drykkju og hafði það strax slæm
áhrif á tennurnar. 1949 fór ég
svo að fá tvo lítra af mjólk á dag
og hálfan líter af skyri tvisvar í
viku. Við fórum með tóman
brúsa og hengdum á nagla inni
í bæ á morgnana og síðan var
búið að skipta um brúsa unt há-
degi og þá sóttum við mjólkina.
Ég var viðkvænt fyrir því ef ég
fann súrheysbragð af mjólkinni
en það getur fundist ef komið
er með súrhey í fjós fyrir
mjaltir. Fyrir hátíðir kom rjómi
og skyr frá Akureyri en hér var
ekkert mjólkurbú og ekki seld
mjólk í Pöntunarfélaginu fyrr
en eftir 1960. Það þóttu mér
miklar framfarir.
Líf sjómannskonu með lítil
börn getur verið ömurlegt. Hún
er á vakt allan sólarhringinn,
þarf að sinna öllum sem upp
kemur á heimilinu og hefur eng-
an til að ráðfæra sig við. Það var
ekki verið að hringja út í sjó þó
að eitthvað kæmi upp á. Ég
vandist þessu smátt og smátt en
ég tek undir með prestinum,
sem sagði um hjón sem voru að
skilja, að það væri brot á Guðs
og manna lögum að eiginmenn
væru svona mikið að heiman.
Það verður aldrei heil brú í fjöl-
skyldulífi sjómanna sem eru
fjarvistum langtímum saman.
Þegar þeir eru heima reyna kon-
umar yfirleitt að hlífa mönnum
sínum og gera þeim lífið
ánægjulegt. Þær eru ekki að
jarma yfir því að krakkarnir hafi
verið veikir í síðustu viku og
hvað þær hafi þurft að vaka
mikið. Þar af leiðandi gera sjó-
menn sér oft litla grein fyrir
þeirri vinnu sem heimilishaldið
krefst því allt leikur í lyndi þann
stutta tíma sem þeir eru heima.
Eftir langa túra var algengt að
menn vildu fá sér í glas og
skemmta sér þegar þeir voru í
landi enda hefur það loðað við
sjómenn að þeir drekki meira
en aðrir og varð þessi drykkja
mikil lenska á togurunum. Sjó-
menn drukku ekki endilega
meira en aðrir en drykkjan fór
fram á styttri tíma í stærri
skömmtum. Ef bátarnir sigldu
með afla til útlanda keyptu flest-
ir ómælt af víni og voru bátarnir
yfirleitt ekki strangt tollskoðað-
ir eftir slíkar ferðir. Sjómenn
áttu því flestir nóg af víni og
þegar það var búið var áfengi
pantað frá Áfengisútsölu ríkis-
ins á Seyðisfirði. Ég legg áherslu
á að í þessum landlegum voru
menn að skemmta sér. Þeir
skemmtu yfirleitt ekki konum
sínum og börnum.
Sjómannskonur verða að
stjórna öllu sem fram fer á með-
an menn þeirra eru í burtu og
eru því ekki tilbúnar til að láta
af stjórninni þegar þeir koma í
land. Ég leyfði Ragnari að
mestu að ráða þann stutta tíma
sem hann var heima en þegar
hann kom í land 1957 var ég
ekki tilbúin til að láta af stjórn-
inni og láta hann fara að ráða
einu ogöllu. Mérfannst mérfar-
ast stjórnin miklu betur úrhendi
enda orðin vön henni.
Þannig var það þegar við fór-
um aðbyggja. Égtók ákvarðan-
ir á meðan Ragnar var úti á sjó
og átti ekki í erfiðleikum með
að setja mig inn í byggingafram-
kvæmdirnar. Ég hafði áður gert
tilraunir til að kaupa hús, hafði
áhuga á að kaupa Hól en það
gekk ekki og seinna skoðaði ég
Bjarma sem erágætt einbýlishús
úr timbri. En mér leið svo
undarlega þar inni að ég hvarf
algjörlega frá því að kaupa
húsið. Það var eins og ýtt væri
á mig úr öllum áttum og það
vældi í húsinu þegar ég gekk um
það. Ég hef komið inn í Bjarma
eftir þetta og ekki fundið fyrir
neinu. Það var líklega verið að
gefa mérbendingu um að kaupa
ekki húsið.
En við þurftum að stækka við
okkur, komin með þrjú börn,
og tókum það ráð að byggja.
Tekjur Ragnars voru misjafnar,
einu sinni kom hann með 700
krónur eftir síldarvertíð sent
hefði þurft að duga okkur fram
í janúarlok en gerði það engan
veginn. Vertíðin 1952 gekk hins
vegar betur. Þá kont hann heirn
með 30.000 krónur, sem voru
góð árslaun, og þá byrjuðunt við
að byggja."
Svæðisskrifstofa málefna fatl-
aðia á Austurlandi sendir Austfirð-
ingum og Héraðsbúum bestu jóla- og
nýárskveðju og þakkar samstarf og
samskipti á árinu sem er að líða.
Óskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóia og
farsæls komandi árs
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
VERSLUNIN VIK
Hafnarbraut 3 - © 71900 - Neskaupstað
r
Oskum Austfirðingum öllum
gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs. Þökkum
samstarfið á árinu sem er að
líða. £
é
Minnum á margar aukaferðir
fyrir jól og um áramót.
Leitið upplýsinga
A JSTFJARÐALEID/
— ^0\ 97-71713