Húsfreyjan - 01.01.1950, Blaðsíða 11

Húsfreyjan - 01.01.1950, Blaðsíða 11
baiulið setja rííftlnr um fyrirkomulag um- ferðakennslunnar, útvega naúðsynleg kennsluáhöld og sjá uin útgáfu leiðbein- andi smárita. Húsmæðraskólamálið var tekið til ræki- legrar yfirvegunar og lét fundurinn í Ijósi, að hann gerði sér tvímælalaust vonir um að Búnaðarfélag íslands mundi sjá sér fa'rt að afhenda Kvenfélagasamhandimi liús og lóð félagsins í Gróðrarstöðinni til umráða í því skvni, að koinið væri upp húsmæðrakennaraskóla. Hins vegar laldi þar til kjörin nefnd, að gera þvrfti ræki- lega rannsókn á því, hvernig húsmæðra- fræðslunni yrði koniið í fast horf og leggja fram fvrir Alþingi 1931 tillögur bvggðar á slikri rannsókn. Má af þessu marka, að liátl var stefnt og fullkonúns skilnings vænzt af Alþingi og ríkisstjórn, enda þegar sótt uin lil Al- þingis 15000 króna styrk úr ríkissjóði. Búnaðarfélagið veitti 3000 krónur til þess að standast stofnkostnað samhandsins, eins og heitið hafð'i verið og auk þess veitti B. f. 3000 krónur til umferðakennslu í matreiðslu og leiðbeininga í garðyrkju á árinu 1930 og fól K. I. að sjá um úthlut- un |)ess. Annað fé hafði sambandið ekki til umráða á þessu fyrsta ári, en við árslokin átti það þó í sjóði 478 krónur og af fé því, er B. f. veitti til umferða- kennslunnar varð afgangur rúmlega 650 krónur. Á næsta ári, 1931, veitli Aljiingi sam- handinu 2000 krónur úr ríkissjóði, er vit- anlega var smáræði eitt til nokkurs konar framkvæmda, enda |>ótt kaupgjald væri eigi liátt á jieiin árum. En stjórn sam- handsins varð að heita sér fyrir stofnun héraðssambanda lil úthreiðslu fyrir hið nýstofnaða landssamband og eiula |>ótt stjórnarkonur reiknuðu aldrei til peninga þann tíma, er þær eyddú til stjórnarstarfa eða í ferðalög á stofnfundi sambanda eða á fundi þeirra, sem þegar voru til orðin, Guftrún ]. Briem, varð eigi hjá j>ví komizt að verja nokkru af ríkisstyrknum í ferðakostnað. Hins vegar var allt J>að fé, er B. í. veitti notað ein- göngu í jiarfir matreiðshikennslu og garð- vrkjuleiðbeininga. Er J>að furðulegt, hvað niikið verður úr jafnlitlu fé og hér var uin að ræða, sem glöggt sést af reikning- um þessara ára. Kom brátt í ljós, að álykt- anir og ákvarðanir stofnfundarins 1930 liöfðu meira verið byggðar á björtum von- iim hátíðaársins 1930 en hitt, að J>ær gætu samrýmzt gráum veruleika kreppuáranna, er á eftir koniu. Eins og 2. grein sambandslaganna her með sér varð stjórn samhandsins einkuni að leggja áherzlu á tvennt í starfi sínu næstu árin: Inisinæðrafræðslu I |>ar með talin garðyrkja) og aukna samvinnu kvemia. Með því örlitla fjármagni, sem stjórnin hafði yfir að ráða, gat liún að- eins veitt héraðssamhöndunum lítils háttar II Ú S !•’ It E Y J A N | ]

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.