Húsfreyjan - 01.01.1950, Blaðsíða 18
Rannveig Þorsteinsdóltir.
fá kennara í hennar stað. En næsta haust
réðist sanibandið í að ráða í þjónustu sína
tvo umferðakennara, þær Halldóru Ein-
arsdóttur frá Bolungavík og Guðrúnu Jens-
dóttur, er kennt hafði fyrr sem umferða-
kennari og auk þess verið um alllangt skeið
kennari við húsmæðraskólana á Hallorms-
stað og Staðarfelli. Halldóra starfaði að-
eins eitt ár hjá sambandinu, en Guðriín
er enn í þjónustu þess. Hafa nú umferða-
kennarar í matreiðslu, kostaðir af K. I.,
starfað hjá flestum héraðssambönduni
landsins og auk þess kennt við þó nokk-
ur námskeið fyrir telpur á skólaskyldu-
aldri. Á síðastliðnu Iiausti réðist svo Hall-
dóra Eggertsdóttir, námstjóri húsmæðra-
skólanna, að nokkru leyti hjá K. 1. sem
ráðunautur. Hefir hún lialdið allmarga
fyrirlestra á vegum sambandsins og auk
þess veitt ýmis konar leiðbeiningar, er
bÚ8mæður hafa óskað eftir, bæði á ferð-
um sínum um landið og einnig á vissum
tímuni á skrifstofu K. í., jiá er hún hefir
haldið kyrru fyrir í Keykjavík.
Á Landsþinginu 1945 var samþykkt til-
laga um að leita eftir því við útvarpsráð.
að flutt vrðu að staðaldri erinili, sem varða
áliugamál kvenna, og skyldi stjórn K. I.
sjá uin erindaflutning þennan. Varð út-
varpsráð við beiðni þessari og liefir erinda-
flutningur þessi jafnan farið fram síðan
tvisvar í mánuði nema aðeins sumarmán-
uðina. Má fyllilega telja erindaflutning
þénnan til fræðslustarfs, enda þótt mörg
erindin hafi eigi verið bókstaflcg fræðsla
í þessu orðs þrengstu merkingu.
Þá ber jiess að geta, að um þær mundir,
sem Landsþingið 1945 var lialdið, var haf-
inn nokkur undirbúningur að manneldis-
sýningu, er stjórn K. I. hafði hugsað sér
að gangast fyrir á næsta liausti. Hafði Rann-
veigu Kristjánsdóttur, ráðunaut K. I., verið
falið að sjá um alla tilhögun og undir-
búning sýningar þessarar. Til þess að skýra
málið, flutti svo Rannveig erindi um slík-
ar sýningar á Landsþinginu og var sam-
þykkt á þinginu, að sambandið skyldi efna
til sýningar þessarar. Ennfremur var þess
óskað, að sýningin vrði flutt til fleiri staða
á landinu, ef unnt væri, þótt hún yrði
fyrst lialdin í Revkjavík. Var svo sýningin
lialdin í nóvembermánuði næsta á eftir.
Er svofellduni orðum farið um tilgang
sýningarinnar í inngangi að litlum bækl-
ingi, er út var gefinn í síimhandi við sýn-
inguna:
„Manneldissýning Kvenfélagasambands
íslands er lítil tilraun til þess að kynna
almenningi belztu niðurstöður mann-
eldisfræðinnar, benda á mikilvægi
geymsluaðferða og meðferðar allrar
in arkaðsvöru“.
Var sýningin opin í hálfan mánuð og
var mjög vel sótt. En kostnaðar vegna sá
stjórn K. f. ekki fært að fara með hana
víðar um Iandið, þar e.ð hciðiii um stvrk
til þess var synjað af Alþingi.
18 HÚSFREYJAN