Húsfreyjan - 01.01.1950, Blaðsíða 22

Húsfreyjan - 01.01.1950, Blaðsíða 22
ekki, |>egar götuspilararnir komu í húsa- garðinn. En í vikulok voru samt of margir aurar, sem runnið höfðu til spilaranna. Og svona liefir það gengið jafnan síðan. Skiljið mig nú ekki þannig, að það sé vegna mannúðar og góðgerðasemi, að fjár- mál mín eru ekki í lagi. Þvert á móti er |>að skemmtanalöngun, óbeit á tölum og fyrirlitning á gildi þeirra, sem hlýtur að vera meðfædd, því sannarlega hefi ég á fullorðinsárum orðið að vinna sjálf fyrir þeim peningum, sem ég liefi notað. Auðvitað er mér það ljóst, að það, að é_g hefi haft mína eigin atvinnu, setur mig sem húsmóður í annan flokk en allan þorra liúsinæðra. Sá flokkur á að sumu leyti við betri kjör að búa og að öðru leyti verri en þær konur, sem geta helgað sig liúsmóðurstarfinu einu saman. Ég er ekki þeirrar skoðunar, að það þurfi að vera heimilinu til tjóns, þó móð- irin og húsmóðirin stundi atvinnu utan þess. Yfirleitt lield ég, að ekki sé hægt að gefa neinar reglur um slíkt. Það er allt komið undir einstaklingnum, hvort betur eða ver tekst til. Ég lít svo á, að það sé gott heimili, þar sem börnin halda saman undir kærleiksríkum verndarvæng foreldranna, enda þótt eitt og annað fari að öðm leyti úr skorðum við og við. Án þess að ég liafi ætlast lil þess, má ef til vill skilja orð inín svo, að ég sé að verja húsmóðurina, sem atvinnu stundar utan heimilisins. Á þessu vil ég hiðja fyr- irgefningar, því hún þarf ekki á neinum verjanda að halda. Ég virði hana og met, alveg eins og ég virði þá húsinóður, sem á svo mikið fjör og lífskraft, að hún get- ur flutt andlega strauma uinlieimsins inn í sitt daglega umhverfi á lieimilinu og tekið sjálfstæða afstöðu til stjórnmála og annarra yfirstandandi vandamála þjóðlífs- ins, án þess að verða fyrir áhrifum ann- arra starfsgreina en lieimilisins. Ég á hér við þá húsmóður, sem getur haldið sér við' sem sjálfstæðri manneskju í tilbreyt- ingarlausum önnum húsmóðurstarfsins. Það er eininitt í þessu efni, sem ég tel að húsmæðrafélögin hafi haft og hafi slórt hlutverk, sem þau leysa vel af hendi. Það sem sé, að koma húsmæðrunum í skiln- ing um, að ekkert lieimili, hvort sem það er stórt eða smátt, getur komist af án and- legrar fæðu, og að fjárhagsafkoma breytir hér engu um. Það er stundum talað um, að vera bara húsinóðir, og það orð á full- kominn rétt á sér, ef húsmóðirin gefur sér ekki tíma til að vera jafnframt félagi og sannur maður. Ég liika við að skrifa orðið maður. Orðið liefir á seinni tímum verið dregið svo niður í sorpið. Það ætti að vera eitt af hlutverkum húsmæðrafélaganna, að skapa virðingu fyrir hugtakinu: máSur. Ég er sannfærð um að vald okkar er mikið, vald liúsmæðranna, fyrst og fremst vegna þess að það er máttur án ofbeldis. Máttur kærleikans. Ég hefi þá trú, að góð- ar hugsanir geti ekki dáið, fyrr en aðrar enn betri hafi vaxið upp af fræi jieirra. Þess vegna trúi ég líka á hugsjónina „Sameinuð veröld“, og get ekki skilið ann- að, en að hér sé það takmark, sem hús- mæðrum, mæðrum og yfirleitt öllum kon- um beri að stefna að. Mótstöðumenn hreyfingarinnar segja, að hún sé ekki annað en fagur draumur. Auðvitað er hún ekki annað, á meðan trúna vantar. Allar hugsjónir svífa í loft- inu, ef enginn dregur J>ær niður á jörðina. En okkur, sem þráum þessa liugsjón, af j>ví hún er skilyrði fyrir heimsfriði, -— okkur er hún veruleiki. Allir þeir höfundar, sem áður liafa skrif- að norrænu hréfin hafa byggl á einingar- hugsjóninni, |>ess vegna liika ég heldur ekki við að segja j>að, sem mér liggur Jiyngst á hjarta. Hljótum við ekki að taka undir með Ebbu östenson: „Hversu mikla þýðingu hefir ekki norræn einingarkennd 22 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.