Húsfreyjan - 01.01.1963, Qupperneq 28
Manneldisþáttur
Framhald af bls. 17.
bara, einkum vínrabarbara (C-fjörefnið
eyðileggst þó við sultugerð). Jarðarber
eru mjög auðug af C-fjörefni meðan þau
eru ný. Ekki má heldur gleyma tómöt-
um og lauk. Margar villijurtir eru ágæt-
ir C-fjörefnisgjafar, svo sem skarfakál,
hvönn, söl, njóli, túnsúra, arfi, fífilblöð,
smári og túngrösin. Blöðin eru bezt. —
Súruát barnanna á vorin kemur áreiðan-
lega í góðar þarfir.
Úr 100 g af hráum kartöflum að
hausti fást allt af 20 mg af C-fjörefni,
en 10 mg að vori. Við suðu tapast um
Ys partur, minna við gufusuðu og
minnst við hraðsuðu. Mikið af því tapi
má vinna upp með því að nota soðið í
súpur. Gullauga og rauðar íslenzkar
hafa. reynzt beztar. — Úr 100 g af hrá-
um gulrófum fást allt að 40 mg af C-
fjörefni, og við suðuna tapast mjög lít-
ið (10—15%), nema því lengur sé soð-
ið. Fjörefnistapið er líka hverfandi lítið
yfir veturinn, ef geymslan er góð. Þegar
á allt er litið má segja, að gulrófur séu
bezti C-fjörefnisg.jafi okkar íslendinga.
Rófnakál er líka fjörefnaríkara en flest-
ar káltegundir“.
Garðyrkjumenn ættu að gefa orðum
læknisins gaum, rækta nóg af grænmeti
og hefja áróður fyrir aukinni neyzlu þess.
I þessu sambandi má minnast á þjóð-
arsjúkdóm Islendinga bannsetta tann-
pínuna. Ein helzta orsök hennar er tal-
in óhemju mikil neyzla sykurs og alls-
konar sælgætissætinda; víða samfara
mikilli notkun fínmalaðs, fjörefnasnauðs
hveitimjöls. Sykurinn og sælgætið draga
mjög úr lyst á hollri fæðu og verka
þannig til ills — líka óbeinlínis. Um
skeið var talið að burstun tannanna
væri aðalhjálpræðið gegn tannskemmd-
um — og svo að fylla í holur og draga
út ónýtar tennur. En betra er að fyrir-
byggja en tjasla í skemmdirnar. Burst-
un tanna er sjálfsögð hreinlætisráðstöf-
un, en engin allsherjarlæknig. Margir
trúa á sýrugerlakenninguna gömlu, þ. e.
að matarleifar, aðallega auðleyst kol-
vetni (sykur, mjölvi), sýrist á tönnun-
um og skemmi þær. Sykurinn verkar
mjög fljótt, jafnvel 5 mínútum eftir að
tönn var pensluð með sykurupplausn.
Sýrustig þá orðið 4,8 ph, þ. ei. mjög
súrt. En eftir 25 mínútur hafði sýrustig-
ið breytzt aftur í 6, þ. e. var orðið lítið
súrt, óskaðlegt tönnum að talið er. Nú
borðum við margskonar mat miklu súr-
ari en þetta. I nýlegu riti „Tándernas
fullnáring som kariesprofylax“ eftir Al-
Viðtal við Kirsten Hellner
Framhald af bls. 19.
safna að óþörfu skuldum. Heimili, sem sí-
fellt eru í fjárhagsvandræðum, orka að
sjálfsögðu á allt þjóðarbúið. Þess vegna
tók „Bikuben" að sér að reyna að hjálpa
fólki, sem komizt hefur í fjárhagskrögg-
ur, að fá yfirlit yfir fjárhag sinn.
MARGT FÓLK LEITAR RÁÐA
,,En leitar einungis fólk, sem komizt
hefur í fjárhagskröggur til ykkar?“
„Nei, oft koma til okkar ung hjóna-
efni, sem eru að stofna heimili og vita
ekki hvaða fjárhagslegar skuldbindingar
stofnun heimilis hefur í för með sér. Fólk,
sem vill stofna eigið fyrirtæki, leitar einn-
ig til okkar og loks fólk, sem vegna aldurs
eða veikinda hefur misst atvinnu sína og
leitar nú aðstoðar við að breyta lifn-
aðrháttum sínum.
„En það væri mjög mikils virði“. bæt-
ir frú Hellner við að lokum, „ef skólarnir
kenndu börnunum strax frá byrjun að
ráðstafa peningum, þá myndi starfi mínu
að leiðbeina fólki, sem lent hefur í fjár-
hagsvandræðum, vera ofaukið".
Sigríður Haraldsdóttir.
28
HÚSPREYJAN