Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.01.1933, Blaðsíða 1
FÉLAGSRIT SLÁTÖRFÉLAGS SUÐURLANDS
1. árg. Reykjavík, jan. 1933. 1. tbl.
Gleðilegt og farsœlt nýarl
Avarp.
í minningarriti Sláturfél. Suðurlands, sem kom út í
fyrravetur, er getið um ýmislegt, sem félagið hefir gert
á liðnum árum, til þcss að fræða félagsmenn um sam-
vinnumál og rekstur félagsins, svo sem útgáfu smá-
ritlinga, fyrirlestraferðir um félagssvæðið o. fl.
Á hverju ári er á deildarstjórafundum, þegar árs-
reikningar félagsins eru Iagðir fram, rækilega skýrt frá
rekstri félagsins og hag þcss á hinu liðna ári. Mætti þvi
ætla, að félagsmönnum væri nokkurnveginn kunn starf-
semi félagsins, og að þeir fylgdust með í málefnum þess,
en þess sjást einatt merki, að svo muni þó ekki vera.
Hin mikla óánægja margra félagsmanna út af verðlags-
ákvæði félagsstjórnarinnar s.l. haust er ljóst merki
þess, að of margir eru enn, sem fylgjast illa með í mál-
efnum félagsins, og skilja elcki tilgang þess og hugsjón.
Fræðslan um starfsemi félagsins hefir ekki orðið nógu
almenn, ekki komist inn í hvern einstakling. Þó að deild-
arstjórar hafi allgóða aðstöðu til þess að fylgjast með
í félagsmálum og fá þekkingu á relcstri félagsins, hafa