Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.01.1933, Síða 5

Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.01.1933, Síða 5
Félagsrit Sláturfélags Suðurlands 5 selt nýslátrað dilkakjöt hér í bænum á aðra viku, og er félagið byrjaði, svaraði söluverð þeirra til kr. 1.30 pr. kgr. i innkaupi, en það var 50 til 60 aurum lægra bverl kgr. en verið liafði á sama tíma sumarið áður. Félagið sá þá lieldur ekki fært að byrja með liærra verð en það, sem fjöldi verslana voru þegar komnar með, en að fé- lagið byrjaði ekki fyr, stafaði af því, að það var ekki fyr búið með frosna kjötið frá fyrra ári. Hinsvegar reyndi félagið að reisa skorður við þvi, að verðfallið yrði mjög ört þar á eftir. Ekki leið þó á löngu áður en ýmsar kjötvcrslanir hér í bænum settu verð sitt 10 til 20 aura niður fyrir verð félagsins á hverjum tima, og héldu þeirri aðferð áfram alt fram á aðalslátrun. Það eftirtektarverðasta við þetta er þó það, að einmitk þær verslanir, sem svo fóru að, keyptu kjöt silt beint frá framleiðendum eða sveitakaupmönnum, þvi að þær verslanir, er kjöt fá frá félaginu, eru allar bundnar við eitt og sanva útsöluverð. Þannig var kjötverð hér í bænum s.l. sumar, minst 40 aurum lægra hvert kgr. en það liafði verið sumarið áður, og þegar aðalslátrun byrjaði, var lieildsöluverðið nú komið niður í 80 aura kgr. í stað kr. 1.20 á sama tíma árið áður. Var þctta auðvitað afleiðing af þvi, að menn alment báru kvíðboga fyrir væntanlegu haust- verði, og buðu svo kjötið fyrir hvað sem var, enda vorn dæmi þess, að menn gengu hér húsa á milli og buðu kjötkroppa fyrir 60 til 70 aura kgr. i fyrri hluta septem- bermánaðar. Strax í fyrrahaust var lika kjötverð úti um land orð- ið enn lægra en það þó er liér nú, og voru þó crlendar markaðsliorfur til muna verri nú en þær voru þá. Framboð af kjöti og fé til afhendingar i haust var líka gífurlegt hvaðanæva af landinu. Ilingað bárust óskir um að taka á móti dilkum til slátrunar austan úr Skaftafellssýslum, vestan úr Dölum og norðan úr

x

Félagsrit Sláturfélags Suðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsrit Sláturfélags Suðurlands
https://timarit.is/publication/844

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.