Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.01.1933, Blaðsíða 15
15
Félagsril Slálurfélags Suðurlands
ur sjáanlegá að þvi, að félagið verður fyr eða síðar ó-
slarfliæft, og hamingjan má vita, hvað þá tekur við með
afurðasölu sunnlenskra bænda.
Það er ofurauðvelt starf, sem alt of margir iðka, að
gala hátt og setja út á gerðir annara. Slíkt gera oflast
þeir menn, sem gera sér minst far um að kynnast mál-
efnunum af alúð og sanngirni. Heppilegra væri, ef slíkir
menn vildu beina áhuga sínum i þá átt að koma fram
með skynsamlegar umbótatillögur, sem félaginu i beild
mættu verða til heilla.
Nei, sunnlenskir bændur mega ekki snúa baki við sínu
eigin félagi, og þeir gera það ekki. Þeir vita, hvílíkan
markað þeir liefðu átt við að búa um undanfarin ár,
ef Sláturfélagið befði ekki verið til, og þeir vita einnig,
livað við tekur, ef það liættir störfum. Því standa þeir
framvegis fast um félagið í von um batnandi tíma og
góðan árangur. ^
Innkaupsverð á nautgripa- og kálfakjöti.
Sf. Sl. getur nú þegar tekið á móti nokkrum væn-
um, ungum nautgripum og kálfum eða lcjöti af þeim,
og er mjög æskilegt, að þetta fari að lcoma jafnt og
þétt, en ekki of mikið í senn.
Fyrir kjöt af vetrungum og algeldum kvigum borg-
ar félagið nú kr. 0.80—1.00 pr. kgr., sé það golt og
vel með farið. Kjöt af graðneytum eldri en IV2 árs er
í lægra verði, nema um sé að ræða vel fcita og smá-
vaxna gripi. Fyrir kjöt af alikálfum (helst nál. 4 mán-
aða) kr. 1.00—1.30 pr. kgr.
Einstaka kýrskrokka verður einnig hægt að taka, ef
félagsmenn óska, en verð á þeim er mjög lágt, varla yfir
40 aura pr. kgr., nema helst af ungum og vel feitum
kúm. Elcki er líklegt, að um hærra verð en þetta geti