Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.06.1933, Síða 12
76
Félagsrit Sláturfélags Suðurlands
Ætla mætti, að það væri dýrt að halda fundi á Hótel
Borg, en svo er ekki. Hóteleigandinn leggur til ókeypis
húsnæði fyrir alla fundi, er þess óska, meðan húsrúm
lcyfir. Einasti arður, sem hann hefir af þessu er sá, ef
fundarmenn kaupa sér einhverja hressingu svo sem kaffi
eða öl, enda er það mjög hentugt og tímasparnaður, að
fundarmenn geti fengið slílct á fundarstaðnum í stað
þess, að eyða löngum tíma í að sækja það sinn i hverja
áttina.
Slátrun lamba i sumar.
Eins og sjá má af fundargerð síðasla aðalfundar fé-
lagsins, er ákveðið, að íyrirkomulag sumarslátrunar
verði sama og var s.l. ár, þannig, að félagið miðlar henni
milli deildanna, en deildarstjóri hverrar deildar ákveð-
ur, liver dcildarmanna lians skuli komast að í livert sinn.
Þurfa deildarstjórar að senda félaginu sem fvrst
skýrslu um það, hve mörgum lömbum deildarmenn
þeirra óska að koma til sölu á sumrinu, og skal þar tek-
ið fram, hve mörg þeirra séu virkileg fyrirmálslömb, og
hve mörg málborin. Yerða fyrirmálslömbin þá tekin
fyrst, cn þar næst önnur bráðþroska lömb. Þó skulu þeir
menn — að öðru jöfnu — ganga fyrir í því að koma
slíkum lömbum að, sem ekki liafa riotið sumarsölu næstu
ár á undan.
Eftir að lömb eru alment orðin i slátrunarliæfu standi„
er ekki ætlast til að menn velji eingöngu vænstu lömb-
in til sumarsölu, það mundi aðeins leiða til þess, að þeim
mun minna yrði af vænu lambakjöti í haust, — en fé-
lagið þarf á góðri vöru að halda oftar en á sumrin. Hins-
vegar verða menn vel að athuga það, að á sumrin eru
lömb aðeins tekin til daglegrar smásölu, en lil þeirra
hluta duga aðeins lioldgóð lömb á hverjum tíma. Bjóði