Eining - 01.05.1956, Page 8

Eining - 01.05.1956, Page 8
8 EINING SIHSI H SI RU UHNil U VINHA VMSIH 8UTH MEH ____________N8EAHKA________________ Myndin er af einni deild bindindis- málasýningarinnar. Yfir álmunni til hægri er skráð: Bindindinu unnu og vinna ýmsir beztu menn þjóðarinnar. Þar eru myndir af 32 atkvæðamiklum mönnum í bindindisstarfinu, og eru ekki fáir þeirra þjóðkunnir menn. A milli mannamyndanna eru talin upp öll þau félög og félagakerfi er stofnuðu Lands- samband gegn áfengisbölinu. Vonandi vakir þetta fjölmenna samband vel á verðinum og lætur málin til sín taka. Yfir miðju er Islandskort. Þar var lýstur með litlu rauðu ljósi hver sá staður á landinu, sem á eru starfandi stúkur. Neðan við það er skrá yfir ýmsa menningarstarfsemi og fram- kvæmdir, er Góðtemplarareglan hefur átt frumkvæði að, ýmist að einhverju Frá bindindismála- sýningunni eða öllu leyti. Þar eru einnig myndir frá Jaðri, Sjómanna- og gestaheimili Siglufjarðar og frá Æskulýðsheimili templara á Akureyri, Þar er og plagg er sýnir, að á árunum 1884 til 1954 hafa 68.323 félagar gengið í regluna. Til starfsins hefur verið varið á þessu tímabili kr. 2.532 000,00, þar af kr. 1.647.700,00 úr ríkissjóði. Þá eru ótalin framlög einstakra manna, en sú fjárhæð yrði ekkert smáræði, ef öllu væri til skila haldið, en bezt mun það í anda þess starfs, að vinstri höndin viti ekki hvað hin hægri gerir í þessum efnum. Aðal yfirskrift þessarar deildar allrar var: Bindindisstarf og áfengisvarnir. Álman lengst til vinstri er um Samband bindindisfélaga í skólum, Fangahjálpina og Bláa bandið. Þrátt fyrir að skortur er enn, og hann tilfinnanlegur, á auknum starfs- kröftum til eflingar bindindisstarfinu í landinu, er það nú fjölþættara en nokkru sinni áður og nýtur liðstyrks mikils fjölda ágætra manna, karla og kvenna og á áreiðanlega samúð meginhluta þjóðarinnar. Við ofurefli er samt enn að etja og mun þurfa bæði guðmóð og mikla verkhyggni til þess að vinna nauðsynlega sigra. í skáldskap er oft tröllum og ýmsum undraverum næstum allt fært. Ber helzt að líta á slíkan skáldskap sem eins kon- ar spádóma um afrek verklegrar kunn- áttu nútímamanna. Hún er nú orðin, eins og allir vita, ekkert smáræði og meira en allra trölla maki. Þverskurður á jarögöngunum, sem eru 7 metra breiö og 5,25 m. há. Eftir mikla yfirvegun og margbrotinn útreikning, var á liðnu hausti ráðist í að grafa mikla og rúmgóða bílabraut í gegnum fjallið Mont-Blanc. Þetta er tröllaukið fyrirtæki. Vegarlengdin er Því hefðu engin fröll orkaö meiri en á milli Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar. Hún er 12 kílómetrar. Sumar- leiðin milli Genf í Sviss og Turin Italíu megin er 317 km., en að vetrarlagi, og veturinn kemur oft snemma á þessum slóðum, verður bílvegurinn 800 km. Þegar hin miklu göng í gegnum Mont- Blanc verða fullgerð, segjum eftir 3 ár, þá verður þessi vegalengd aðeins 270 km. Þar sparast þá hverjum bíl 530 km., að vetrarlagi. Talið er að til verks- ins fari 980 vinnudagar, en það eru 2 ár og 8 mánuðir. Verkið er unnið frá báðum endum. Þessi egglöguðu jarðgöng verða 7 metrar á breidd þar sem akbrautin verður, en hæðin er 5, 25 m. Margvís- leg vandamál þurfti að leysa í sambandi við þetta mikla verk, að sjá um lífvæn- legt og heilsusamlegt andrúmsloft í göngunum, frárennsli undir akbraut- inni og fleiri göng þar. Við hverja 100 metra vegalengd verða bílastæði. Geta ferðamenn numið þar staðar og dittað smávegis að bílum sínum. Fjallið Mont- Blanc er landamæralína milli Sviss og Italíu, og verða því reist hótel og önnur nauðsynleg hús þar sem leið liggur inn í jarðgöngin, beggja megin fjallsins. Göngin verða svo vel lýst, að þar verður bjart sem um hádag. Varla mun unnt að segja, að hálfnað sé verk þegar hafið er, því að enn er eftir að sprengja úr þessum göngum um sex hundruð þúsund kúbikmetra af kletti, en ráðagerðin og allur undirbún- ingur stóð yfir í 10 ár. Fyrirhyggjulaust er því ekki farið af stað og má fullvíst telja, að allt takizt þetta samkvæmt áætlun. Frásögn og myndir úr Motorföraren. Hvíti þverskuröurinn gegnum fjalliS sýnir hin miklu göng. menn þeim til þjónustu. Næst segist hann hafa heimsótt aðra salan í fullum gangi, voru gestir þessarar knæpu 42.415, en hjálparstofnun, fræga mjög, er heitir Hadley Rescue Hall, og síðari helming ársins, þá var áfengisbann, voru þessir gestir er hún í nágrenni við knæpu, sem ekki er síður nafnkennd. knæpunnar aðeins 19.691, og var ærið nóg. Hún er kölluð McGurk’s Suicide Hall (Sjálfsmorða hús Mc I bók þessari er af mörgu að taka, og verður ef til vill Gurks). Fyrstu sex mánuði ársins 1919, en þá var enn áfengis- vikið að því síðar.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.