Eining - 01.01.1957, Page 3
EININ G
3
Til kaupenda blaðsins,
frá ritsfjóranum
Þegar ég á síðari hluta ársins
1956 hef verið að merkja spjald-
skrá blaðsins, jafnóðum sem inn
hafa komið árgjöld kaupendanna,
og ég hef veitt athygli, hversu
flestir kaupendurnir hafa nú hald-
ið tryggð við blaðið á annan ára-
tug, hef ég oft fundið hjá mér
sterka löngun til þess að geta tek-
ið í hönd þeirra og þakkað þeim
innilega fyrir góð viðskipti. Þótt
viðskipti séu ekki mikil, er engu
síður ánægjulegt ef þau geta geng-
ið vel. Ég á ákaflega erfitt með að
umbera trassamennsku og vanskil,
og kann þess vegna vel að meta
góða skilsemi. í þessum efnum
hafa næstum allir kaupendur
blaðsins reynst ágætlega.
Upp er nú runnið nýtt náðarár.
Læt ég því blaðið flytja öllum
kaupendum og lesendum þess hug-
heilar óskir um farsæld og blessun
Guðs á nýja árinu. Þakka gott
samstarf, mörg uppörfandi bréf og
allt gott á liðnum árum. Og svo
eru það aðeins nokkur atriði
mjög áríðandi.
Fyrst af öllu bið ég kaupendur
blaðsins, að gera viðvart, ef það
kemur ekki reglubundið með góð-
um skilum. Einstöku hafa kvartað
undan vanskilum, en það er
áríðandi að blaðið fái upplýsingar
um þetta og geti grafizt fyrir um
ástæðu. Þá er einnig nauðsynlegt
að sjá um, að heimilisföng séu rétt
og að tilkynna bústaöaskipti. Kæru
kaupendur, gleymið þessu ekki.
Margoft hef ég ítrekað það áður
við viðskiptamenn blaðsins, að
senda allan póst til þess eða rit-
stjórans í pósthólf 982, Reykja-
vík, en ekki út í Kópavog. Þetta
mun nú verða auglýst framvegis
í ritstjórnaropnu hvers tölublaðs.
Ef einhverjir kaupendur eiga
þess kost, að útvega blaðinu nýja
kaupendur, þá er það því mestur
greiði.
Svo bið ég afsökunar á því, sem
ábótavant hefur verið við útgáfu
blaðsins. Þar er vafalaust ávalt um-
burðarlyndis þörf, en með góðu
samstarfi og vaxandi kaupenda-
fjölda ætti blaðinu að geta farið
eitthvað fram. Það á nú á þessu
ári 15 ára afmæli.
Gleðilegt nýár.
Pétur Sigurðsson.
Larsen-Ledeft: Globe-
Troftfter
Já, hvað er Globe-Trotter. Það er sá,
sem leggur, ekki aðeins land undir fót
heldur allan heiminn. Þetta orð er
undirtitillinn á níunda bindi sjálfsævi-
sögu Larsen-Ledets, er kom út hjá
Gyldendal á 75 ára æfmæli þessa fá-
gæta öldungs, sem er svo snjall rithöf-
undur, að á 7. og 8. tug ævinnar skrif-
ar hann þetta stórverk, 10 binda ævi-
sögu, og mun óhætt að fullyrða, að ekki
ein blaðsíða sé leiðinleg í öllu þessu
verki. Öldungur þessi er dáður jafnt af
samherjum sem andstæðingum, sökum
snillimensku hans í meðferð máls í
ræðu og riti, drengilegra baráttuað-
ferða, hetjuhugs og víkingslundar.
Sem tröllaukinn baráttumaður bind-
indishreyfingarinnar er hann þekktur
Stórtemplar Dana gefur Larsen-Ledet Ijósa-
stjakann.
um heim allan. Hann hefur löngum
tvinnað saman gaman og alvöru, sótt
sóknharður að marki og aldrei kvikað
frá því.
A 75 ára afmælisdaginn bárust hon-
um skeyti hundruðum saman úr öllum
álfum heimsins, og einnig gjafir. Komu
kveðjurnar frá hástúkunni, stórstúku
Svíþjóðar, stórstúku Noregs, landssam-
bandi Noregs, stórstúku Englands, stór-
stúku Þýzkalands, mörgum stúkum í
Hollandi, Sviss og víðar að. Bæjarráð
Árósaborgar sendi blóm og heillaóskir.
Borgarstjórinn, sem gat ekki heimsótt
Larsen-Ledet sjálfur, sökum lasleika,
sendi fulltrúa sinn til þess að færa hon-
um þakkir fyrir allt hans mikla starf,
er verða mundi komandi kynslóðum til
farsældar. Það er okkur hrósunarefni,
sagði sendimaður, að hafa átt á meðal
vor slíka andans hetju. Þar kom og
forstjóri Berlingske Tidende, og svo
voru það ýms blöð, ritstjórar, formenn
blaðamannafélaga, rithöfundafélagsins
og fleiri slík samtök, er sendu heilla-
óskir. Jafnvel frá öðrum löndum komu
sendimenn, og ekki má gleyma lands-
sambandi bindindismanna í Danmörku
og stórstúku Danmerkur. Stórtemplar
Dana, Tage Andersen, færði afmælis-
barninu silfur-ljósastjaka. Á hann er
letrað orðið Fremskridtslys (framfara-
Ijós), er skyldi minna á það fræðslu- og
menningarstarf, sem Larsen-Ledet hefur
unnið um langa ævi, því að ungur hóf
hann starfið.
Bindindismenn í Árósum efndu til
veglegrar veizlu til heiðurs afmælisbarn-
inu, og fluttu þar ýmsir mætir menn
ávörp og ræður, en að síðustu þakkaði
Larsen-Ledet alla auðsýnda vináttu og
virðingu. — Þessa heimshornamanns
(Globe-Trotter) mun lengi verða
minnst, en enn hefur hann ekki sagt
síðasta orðið.
Sftolnfundur
Stofnfundur félags áfengisvarna-
nefnda í Árnessýslu var haldinn á Sel-
fossi 8. desember 1956.
Brynleifur Tobiasson áfengisvarna-
ráðunautur setti fundinn og ávarpaði
fundarmenn, en mættir voru 10 fulltrú-
ar frá áfengisvarnanefndum í sýslunni.
Sigmundur Sigurðsson, oddviti í Lang-
holti, var kjörinn fundarstjóri, og
Stefán Jasonarson, bóndi í Vorsabæ,
ritari.
Nefnd sú, er starfað hafði að undir-
búningi félagsstofnunar þessarar, lagði
fram uppkast að lögum fyrir félagið.
Hafði Jón Gunnlaugsson, læknir á Sel-
fossi, framsögu. Nokkrar umræður urðu
um uppkastið. Að því loknu voru lög
félagsins samþykkt og stjórn þess kosin:
Jón Gunnlaugsson læknir formaður,
Þorsteinn Eiríksson ritari og Sigmund-
ur Sigurðsson gjaldkeri.
Kynnti þá áfengisvarnaráðunautur
reglugerð um eftirlit með samkomum í
Skagafjarðarsýslu, er staðfestvar síðast-
liðið sumar, og benti á, að nauðsyn bæri
til, að svipuð reglugerð yrði afgreidd
fyrir Árnessýslu. Tóku fundarmenn
undir það, og var stjórn hins nýja félags
falið að beita áhrifum sínum á sýslu-
nefnd Árnessýslu í þessu efni. Var mikill
áhugi meðal fundarmanna á því að bæta
samkvæmisbrag í sýslunni, og urðu
talsverðar umræður um áfengisvarnir.
— Skýrði áfengisvarnaráðunautur frá
þeim félögum áfengisvarnanefnda, er
þegar hafa verið stofnuð í landinu, og
hlutverki þeirra, og annarri starfsemi
áfengisvarnaráðs á árinu. —
Eins og sáð er
Þann mun skorta, sem óspart eyðir.
Gálaus eyðsla til gjaldþrots leiðir.