Eining - 01.11.1957, Page 4
4
EINING
Mikil og stórbrotin ævisaga
Ritstjóra Einingar barst nýlega frá
Gyldendal síðasta bindið af 10, og þar
með lýkur þessu einstæða stórverki.
Allt heitir verkið Mit Livs Karrusel. Höf-
undurinn er Larsen-Ledet, hinn víðfrægi
heimshorna Gönguhrólfur — (Globe-
Trotter), ritsnillingur, ræðugarpur,
bindindishetja og pólitíski víkingur. Út-
gefandi verksins er Gyldendalske bog-
handel, nordisk forlag.
Því miður hefur undirritaður ekki
lesið allar bækurnar tíu, en um þær,
er eg hef lesið, kann eg það fyrst og
fremst að segja, að þar er varla ein
blaðsíða leiðinleg, flest allar í þessu
mikla verki bráðskemmtilegar. Bækurn-
ar eru hafsjór fróðleiks, skemmtilesturs
og lifandi frásagna um menn og mál-
efni. Frásagnarhæfileiki höfundarins er
frábær, hreinskilnin og góðvildin
fölvskalaus, samfara geiglausum stór-
hug og vægðarlausri hirtingu alls þess,
sem illt er og skaðlegt, en allt er svo
dásamlega kryddað spriklandi gaman-
semi, og bak við þetta allt stendur
kempan og lifandi uppmálaður hinn
ósvikni mannvinur.
Þetta síðasta og tíunda bindi ævi-
sögunnar fjallar um fjölskyldulíf höf-
undarins: Ægtemand, fader og bedste-
fader. Hvílík fyrirmynd! Hvílík ham-
ingja, ástúð, samhugur og eindrægni,
og voru þó hjónin bæði mjög sjálfstæð-
ar sálir og sérstökum hæfileikum búin.
Frúin var einnig snjall rithöfundur.
Hver mun svo hafa verið undirrót ham-
ingju þeirra? Líklega fyrst og fremst
það, að þau vígðu líf sitt og alla krafta
í þjónustu almennings velferðar og
gleymdu að miklu leyti sjálfum sér,
nema því að unnast, styðja hvort annað
í baráttunni og gera heimilið að þeim
sælu- og hvíldarstað, er gefur hverjum
manni afl og dug til stórverka. Um þetta
er yndislegt að lesa. Þarna er smámynd
af heimi, sem gæti verið og verður,
þegar menn hætta, hver og einn, að
rífa til sín í græðgi eigingirninnar, en
láta sér að minnsta kosti eins annt um
annarra hag sem sinn eiginn. Þannig
var lífsstarf Larsen-Ledets og hans
ágætu konu.
Þegar frúin kynntist upphaflega þess-
um einkennilega unga manni, sem
aldrei hirti um það, hvernig föt hans
fóru eða hvernig hann leit út, hirti eig-
inlega á þeim árum ekki um neitt nema
áhugamál sitt og starf, vissi varla af
öðrum í borðsalnum í matsöluhúsinu
fremur en þeir ,,væru loft eitt“, svo
notuð séu orð frúarinnar, þá fannst
henni hann hræðilegur. Þegar hann svo
nokkru síðar var búinn að þylja yfir
henni margt um ferðalög sín og ævin-
týri, hugsaði hún: hér er maðurinn. I
þenna mann ætla eg að ná. — Sú vissi
nú hvað hún vildi, því að hann var þó
búinn að trúa henni fyrir því, að hann
ætlaði alls ekki að gifta sig, en bíddu
nú við, karl minn, hugsaði hún. Við
skulum nú sjá, hver sterkari verður.
Og svo kom, að ísinn tók að þiðna,
segir hún.
Þannig var af stað farið og svo óx
innileikinn, eindrægnin og ástúðin með
hverju árinu til hinstu stundu hennar.
Frúin er fyrir nokkru dáin og Larsen-
Larsen-Ledet.
Ledet flutti við útför hennar frábæra
kveðju. En þegar hún lá banaleguna,
fékk hún tilboð frá stórblaði um góða
borgun fyrir ritgerð um fjölskyldulíf
þeirra hjóna. Sú ritgerð, er hún skrif-
aði með hvíldum, er snilldarverk.
Þessi góðu og merku hjón, aðdáun-
arefni sinnar þjóðar og þúsunda ann-
arra, fengu gott uppeldi og góðan mann-
kostaarf og þetta gengur í arf lið fram
af lið til barna og barnabarna. Um það
eru óræk vitni. Ritgerð sína endaði
frúin á þessum orðum:
„Yndisstundir — allt eru yndisstund-
ir í Frodesgade 5 í Kongsvang. Það er
indælasti staðurinn á jörðu, því að þar
búa Lasse og jeg“. Og fyrirspurn blaða-
manns um það, hvernig það væri að
vera gift slíkri hamhleypu sem Larsen-
Ledet, svaraði hún: „Þótt mér gæfust
þúsund ævir og eg ætti að velja þúsund
sinnum, myndi eg í hvert skipti velja
Larsen-Ledet“.
Að þessu sinni verður hér ekki margt
talið fram af frásögn bókarinnar um
þetta ágæta fjölskyldulíf. Það yrði þá
að vera allmikið mál, en þar sem línur
þessar eru ritaðar í íslenzkt blað, er
varla unnt að ganga fram hjá því, er
frúin segir í ritgerð sinni um íslandsför
þeirra hjóna. Frúin telur fyrst upp
nokkra staði er þau hafi heimsótt, í
brúðkaupsferðinni Washington, Chica-
go, New York, Iowa, Nebraska, Minne-
sota, Fíladelfíu, og svo seinna á árum
Ósló, Stokkhólm, Hamborg, Berlín,
Prag, Vínarborg, Haag, París, Milanó,
Venezíu, Belgrad, Warszawa, Eden-
borg, London, Madríd og Marokkó.
Svo kom að því, að Larsen- Ledet
þurfti til Islands. Frúnni bauð hann
með sér, en hún taldi frágangssök að
fara frá börnunum í sex vikur. Þá för-
um við öll, sagði húsbóndinn, og svo
lögðum við af stað þrem vikum síðar,
öll fimm á SS Baltic „í hið yndislegasta
(allerskönneste) og markverðasta ferða-
lag, er við nokkru sinni höfum farið. Er
nægilegt að nefna aðeins Þingvöll, Al-
mannagjá, hraunin, Bessastaði, gamla
hirðstjórasetrið, sem nú er forsetaslot-
ið, lengst úti í víðáttunni. Sá sem hefur
ekki komið á þessa staði, getur ekki
skilið hvers virði það var mér.
Og nú hefur manninum enn verið
boðið til íslands, en hann hefur afþakk-
að og segir: Hafi maður eitt sinn séð
hið fegursta í heimi, er ekki hyggilegt
að snúa þangað aftur. Það yrðu alltaf
vonbrigði“.
Larsen-Ledet er nú 76 ára. Heilsan
er enn góð. Spákonan lofaði honum
100 árum og ekki er langt síðan lækn-
irinn taldi skrokkinn jafngóðan og á
tvítugum. En Larsen-Ledet hefur verið
óskaplegur vinnujálkur alla ævi. Mikil
ferðalög, mikil átök, mikill spenningur,
vinnudagurinn oftast 16 stundir og
margar vökunætur á ferðalögum. Og
nú hefur hann lokið við sína 10 binda
ævisögu. Hún hefur kostað mikla vinnu,
en hann segist hafa nægilegt efni í 25
bindi, en ekki þorað að leggja meira á
lesarann en þessí 10 bindi. Einhver
ritstjóri sagði um hann, að hann gengi
að skrifborðinu eins og að veizluborði.
Hinn vitri Salómon hefur sagt, að
ekkert sé betra undir sólinni en það, að
maðurinn sé glaður við verk sitt, og það
hefur Larsen-Ledet sannarlega verið.
Pétur Sigurðsson.
Eldsvoðarnir.
Árið sem leið urðu 3000 brunar í Noregi
og er tjónið metið 37 milljónir norskra
króna. Hve margra milljóna tjóni af þessu
skyldi sígarettan liafa valdið? Hún er einn
versti brennuvargur nútímans. Brunar
hafa verið óvenjulega tíðir hin síðari árin
á íslandi, en mjög sjaldan er greint frá
eldsupptökum. Stundum kemur eldurinn
þó upp á hinum ótrúlegustu stöðum.
Tóbaksreykingarnar eru vissulega, bæði
hvað manninn sjálfan áhrærir og umhverfi
lians, liinn eyðandi eldur.